
Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 6. ágúst milli kl. 10:00-18:00. Eftirfarandi hjáleiðir verða í gildi: Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Listi yfir óvirkar biðstöðvar frá kl. 10:00-18:00 á laugardaginn 6. ágúst: Óvirkar biðstöðvar Áhrif lokunar á leið nr. Hallargarðurinn 1, 3, 6, 11 og 12 MR 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Lækjartorg B* 1, 6, 11, 12 og 13 Þjóðleikhúsið* 1, 6, 11, 12 og 13 Bíó Paradís* 1, 6, 11, 12 og 13 Barónsstígur* 1, 6, 11, 12 og 13 Lækjartorg A 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Ráðhúsið 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Landakot 13 Ásvallagata 13 *Leið 14 mun áfram nota þessa stöð Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Snorrabraut þegar hjáleið er ekin. Leið 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Háskóli Íslands þegar hjáleið er ekin. Gleðigangan Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn. Myndin hér fyrir neðan sýnir gönguleiðina og götulokanir í kringum hana.
Eins og er er ekki hægt að komast inn í Klapp kerfi strætó. Þetta á við um Klapp appið og Mínar síður á klappid.is Í nótt var gerð uppfærsla í Klapp greiðslukerfinu sem varð til þess að tenging rofnaði. Það er í algjörum forgangi að koma þessu í lag. Vagnstjórar eru meðvitaðir um ástandið og bjóða viðskiptavini velkomna á meðan unnið er að lagfæringu.

Næturstrætó úr miðbæ Reykjavíkur snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé. Ný stjórn Strætó kom saman á föstudaginn síðasta og það var mikill samhugur í stjórnarmönnum um að láta næturstrætó aka úr miðbænum um helgar. Stjórnin er með þessu að svara ákalli íbúa höfuðborgarsvæðisins um aukna þjónustu og fjölbreyttari samgöngukosti út úr miðborg Reykjavíkur um helgar. Leitast verður við að nota eins umhverfisvæna vagna og kostur er. Neðangreind þjónusta verður til reynslu fram í september, en þá verður þjónustan metin á ný út frá notkun leiðanna og ánægju viðskiptavina. 7 næturleiðir aka úr miðbænum 7 næturleiðir munu aka frá miðbænum og út í hverfin, en árið 2020 voru þessar leiðir 5. Næturstrætó ekur úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags. Aðeins er hægt að taka næturstrætó á leið úr miðbænum en ekki til baka í átt að miðbænum. Vagnarnir aka ekki skv. hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfaratími úr miðbænum og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna. Viðskiptavinir sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klapp appinu, Strætó appinu eða inn á straeto.is Eftirfarandi leiðir aka úr miðbæ Reykjavíkur um helgar: Leið 101: Hafnarfjörður ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:20, 02:25 og 03:45. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Snorrabraut, Kringlumýrarbraut og inn í Hamraborg. Eftir það ekur leiðin Hafnarfjarðarveg, Reykjavíkurveg, Lækjargötu (í Hafnarfirði), Hringbraut (í Hafnarfirði), Strandgötu, Ásbraut og inn á Velli. Leið 102: Kópavogur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:40, 02:40 og 03:40. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Eftir það fer leiðin um Smára, Lindir, Sali, Kóra og Hvörf í Kópavogi. Leið 103: Breiðholt ekur frá Hlemmi kl. 01:30, 02:40 og 03:50. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, Háskóla Íslands, um Bústaðarveg og upp í Mjódd. Eftir viðkomu í Mjódd þá ekur leiðin hring í Breiðholti um Skóga, Sel, Fell, Hóla og Bakka. Leið 104: Úlfarsárdalur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:25, 02:30 og 03:35. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Vesturlandsveg, inn í Grafarholt og Úlfarsárdal. Leið 105: Norðlingaholt ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:29, 02:29 og 03:29. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Borgartún, Sæbraut, Vesturlandsveg, inn í Árbæ, Selás og Norðlingaholt. Leið 106: Mosfellsbær ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:34, 02:34 og 03:34. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Vesturlandsveg, upp Höfðabakka og inn í Grafarvog. Þar mun hún aka í gegnum Folda, Rima- og Staðahverfið og inn í Mosfellsbæ. Leið 107: Seltjarnarnes ekur frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda. Fargjöld í næturstrætó Viðskiptavinir sem nota greiðslumiðla á vegum Strætó, þ.e. Klapp korti, Klapp appi, Klapp tíu, Strætókorti eða Strætóappi greiða sama fargjald og er greitt yfir daginn. Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Gerð verður tilraun með að hafa posa um borð næturstrætó. Þeir viðskiptavinir sem vilja staðgreiða með greiðslukorti eða reiðufé greiða 1.000 kr. í næturstrætó. Við vekjum athygli á að vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Fargjöld í næturstrætó Stök fargjöld með greiðslumiðlum Strætó Verð Fullorðnir 490 kr. Ungmenni, 12-17 ára 245 kr. Aldraðir, 67 ára og eldri 245 kr. Öryrkjar* 147 kr. Aðrar greiðsluleiðir Verð Greitt með greiðslukorti eða reiðufé 1.000 kr. *Aðeins er hægt að fá öryrkjaafslátt í Klapp greiðslukerfinu.

Aukaferðir með leið 52 milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar yfir Þjóðhátíð í eyjum. Leið 52, sem gengur milli Reykjavíkur og Landeyjarhafnar mun aka 20 aukaferðir vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum dagana 28. júlí – 1. ágúst 2022. Allar aukaferðir eru skipulagðar með áætlun Herjólfs að leiðarljósi. Hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum eða með Strætó appinu. Mjódd -> Landeyjahöfn Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn Fimmtudagur 28. júlí 2022 Engin ferð Engin ferð 08:15 08:00 10:05 10:45 (Samkvæmt tímatöflu) 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:30 17:35 18:15 17:45 20:05 20:45 (Samkvæmt tímatöflu) Engin ferð Engin ferð 23:15 Föstudagur 29. júlí 2022 Engin ferð Engin ferð 08:00 07:30 09:35 10:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega samkvæmt tímatöflu kl. 08:00) 09:30 11:35 13:00 12:00 14:05 15:00 14:15 16:20 17:00 16:15 18:20 19:00 17:45 20:05 21:00 (Samkvæmt tímatölfu) Engin ferð Engin ferð 23:00 Laugardagur 30. júlí 2022 Engin ferð Engin ferð 08:15 08:10 10:15 10:45 (Samkvæmt áætlun) 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:15 17:40 18:15 Sunnudagur 31. júlí 2022 Engin ferð Engin ferð 09:00 08:10 10:15 11:00 (Samkvæmt áætlun) 10:15 12:20 13:00 12:15 14:20 15:00 Engin ferð Engin ferð 17:00 15:15 17:40 Engin ferð- samkvæmt tímatöflu, endar við Hvolsvöll Landeyjahöfn -> Mjódd Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum Brottför Strætó úr Landeyjahöfn Koma Strætó í Mjódd Mánudagur 1. ágúst 2022 02:00 03:20 05:20 04:00 05:20 07:20 06:00 07:20 09:20 08:00 09:20 11:20 10:00 11:20 13:20 10:25 12:45 (Samkvæmt tímatöflu) 13:00 14:20 16:20 15:00 16:20 18:20 17:00 18:00 20:20 (Samkvæmt tímatöflu) 19:00 20:30 23:30 21:00 22:30 00:20

Strætó hefur ýtt úr vör tilraunaverkefni til þess að auka þjónustu á leið 25 á virkum dögum. Leiðin er með þjónustu á milli Spangar og Gufuness Markmið verkefnisins er að kanna hvort unnt sé að auka nýtingu bíla frá akstursþjónustunni Pant, þá sérstaklega utan annatíma. Frá og með 1. júlí verður leiðin með 30 mínútna tíðni á virkum dögum, en í dag er leiðin með um 60-120 mínútna tíðni. Hringt í Strætó í stað Hreyfils Leiðin verður áfram í pöntunarþjónustu en í stað þess að hringja í Hreyfil, þá eru ferðirnar pantaðar í gegnum símanúmerið 540 2740 hjá Strætó. Áfram er nauðsynlegt að panta ferðir minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu Bíll frá akstursþjónustunni Pant eða Hreyfli verður sendur á biðstöð viðskiptavinarins. Sérstaklega þarf að taka fram í síma ef viðskiptavinur notar hjólastól eða er með barnavagn. Í þeim tilvikum mun Strætó útvega bíl frá akstursþjónustunni Pant í stað Hreyfils. Í pöntunarþjónustu er fargjaldið greitt með því að sýna bílstjóra Klapp kort, Klapp tíu eða virkjaðan miða í Klapp appinu. Þessi breyting tekur gildi 1. júlí. Tímatafla leiðarinnar mun líta svona út:

Strætó býður 12-17 ára ungmennum að fá „ Sumarkort “ sem er frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu út júlímánuð 2022. Sumarkortin verða afhend inn á Klapp kort eða Klapp app viðskiptavina. Því er nauðsynlegt að viðskiptavinir sem sækja Sumarkortið séu með símanúmer tengt Klapp appinu eða með Klapp kort tengt aðgangi sínum á „Mínum síðum“. Annars verður ekki unnt að afhenda Sumarkortið. Sæktu um sumarkortið með því að smella hér:

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á 17. júní 2022. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.

Eftirfarandi breytingar verða gerðar á tímatöflum á Austfjörðum. Leið 91 Mánudagar – föstudagar Fyrsta ferð frá Norðfirði fer af stað 06:52 í stað 06:50. ( Þessi breyting tekur gildi þriðjudaginn 7. júní) Seinni ferðin frá Norðfirði verður ekin kl. 13:50 í stað 14:10. Ekið verður frá Egilsstöðum kl. 16:00 í stað 16:15. ( Þessi breyting tekur gildi mánudaginn 13. júní) Laugardagar Ekið verður frá Norðfirði kl. 08:10 og frá Egilsstöðum kl. 10:00. ( Þessi breyting tekur gildi laugardaginn 11. júní) Leiðir 92 og 96 Mánudagar – föstudagar Leið 92 leggur af stað frá Breiðdalsvík kl. 06:25 í stað 06:30. ( Þessi breyting tekur gildi fimmtudaginn 9. júní) Leið 96 leggur af stað frá Fáskrúðsfirði kl. 07:10 í stað 07:15. ( Þessi breyting tekur gildi fimmtudaginn 9. júní) Leið 93 Mánudagar – föstudagar Aukaferðin sem hefur hingað til verið ekin á þriðjudögum mun aka á fimmtudögum til þess að passa betur við ferðir Norrænu. Ekið verður frá Seyðisfirði kl. 10:00 og ekið verður frá Egilsstöðum kl. 10:45. ( Þessi breyting tekur gildi þriðjudaginn 7. júní) Síðasta ferð dagsins ekur frá Seyðisfirði kl. 14:30 og frá Egilsstöðum kl. 16:00. ( Þessi breyting tekur gildi mánudaginn 13. júní) Laugardagar Áætlun leiðarinnar breytt til að samræmast flugi frá Egilsstöðum betur. Ekið verður kl. 08:45 frá Seyðisfirði og kl. 10:00 frá Egilsstöðum. ( Þessi breyting tekur gildi laugardaginn 11. júní)

Miðvikudaginn 1. júní verður greitt sama verð um borð í landsbyggðarvögnum og er greitt í landsbyggðarhlutanum í Strætó appinu. Með breytingunni þá munu ungmenni, aldraðir og öryrkjar fá 50% afslátt af fargjöldum. Börn 6-11 ára fá frítt í landsbyggðarstrætó eins og á höfuðborgarsvæðinu. Fargjald Verð á gjaldsvæði fyrir breytingu Verð á gjaldsvæði eftir breytingu Fullorðnir 490 kr. 490 kr. Ungmenni, 12-17 ára 178 kr. 245 kr. Börn, 11 ára og yngri 76 kr. 0 kr. Eldri borgarar og öryrkjar 155 kr. 245 kr. Stök fargjöld Gjaldskrá: Stök fargjöld á Suðurlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Vestur- og Norðurlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Suðurnesjum Gjaldskrá: Stök fargjöld á Norður- og Norðausturlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Austfjörðum Vestfirðir

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó yfir Hvítasunnu. Höfuðborgarsvæðið Hvítasunna Hvítasunnudagur, 5. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í Hvítasunnu, 6. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Hvítasunna Hvítasunnudagur, 5. júní: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í Hvítasunnu, 6. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á uppstigningardag, 26. maí 2022. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.

Sjálfbærniskýrsla Strætó fyrir árið 2021 er komin út. Í stað hefðbundinnar ársskýrslu þá gefur Strætó í fyrsta sinn út sjálfbærniskýrslu sem er í samræmi við alþjóðastaðalinn Global Reporting Initiative (GRI) Standards: Core. Skýrslan er gefin út rafrænt og í henni er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar fyrir árið 2021 eins og farþegatölur, upplýsingar um umhverfismál og orkunotkun, ársreikning 2021, upplýsingar um samfélagsmál og margt fleira.

Leiðir 61 og 62 munu aka um Vestfirði í júní, júlí og ágúst. Leið 61 Leið 61 ekur frá Aðalstræti 7 á Ísafirði, að verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík og aftur til baka. Viðkomustaðir á leiðinni eru bensínstöð Orkunnar í Súðavík, vegamót Djúpavegar (61) og Mjóafjarðarvegar (633) og Hótel Reykjanes. Leiðin tengist leið 59 sem ekur milli Hólmavíkur og Borgarness. Reiðhjól: Bíllinn á leið 61 getur tekið að mestu lagi 2 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara: Smáferðir ehf — Akstursaðili á leið 61 — hnota95@simnet.is — 8624530 Leið 62 Leið 62 ekur frá upplýsingamiðstöð Westfjords Adventures (Þórsgötu 8a á Patreksfirði), að Aðalstræti 7 á Ísafirði og til baka. Viðkomustaðir á leið frá Patreksfirði og til Ísafjarðar eru bensínstöð N1 á Patreksfirði, Hótel Flókalundur og Dynjandi. Viðkomustaðir á leið frá Ísafirði og til Patreksfjarðar eru Þingeyri (622), Dynjandi, Hótel Flókalundur, Brjánslækur og bensínstöð N1 á Patreksfirði. Leið 62. Patreksfjörður → Ísafjörður Reiðhjól: Bíllinn á leið 62 getur tekið að mestu lagi 3 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara: Westfjords Adventures — Akstursaðili á leið 62 — info@wa.is — 4565006 Gjaldskrá á Vestfjörðum Leið 61 Ferð Fullorðnir Börn, aldraðir og öryrkjar* Ísafjörður - Súðavík 700 kr. 350 kr. Ísafjörður - Heydalur 3.000 kr. 1.500 kr. Ísafjörður - Reykjanes 3.500 kr. 1.750 kr. Ísafjörður - Hólmavík 6.000 kr. 2.500 kr. Hólmavík - Reykjanes 1.500 kr. 750 kr. Hólmavík - Heydalur 2.000 kr. 1.000 kr. Hólmavík - Súðavík 5.000 kr. 2.000 kr. Hólmavík - Ísafjörður 6.000 kr. 2.500 kr. Reiðhjól 3.500 kr. 3.500 kr. *Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar. Leið 62 Ferð Fullorðnir Börn, aldraðir og öryrkjar* Ísafjörður - Brjánslækur 8.400 kr. 6.300 kr. Patreksfjörður - Brjánslækur 3.000 kr. 2.300 kr. Ísafjörður - Patreksfjörður 9.900 kr. 7.500 kr. Ísafjörður - Þingeyri 2.000 kr. 1.500 kr. Brjánslækur - Flókalundur 500 kr. 500 kr. Reiðhjól 3.500 kr. 3.500 kr. *Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.

Sunnudaginn 15. maí hefst sumaráætlun á leið 94, sem ekur á milli Breiðdalsvíkur og Hornafjarðar með viðkomu á Djúpavogi. Ferð vagnsins hefst á Höfn, stoppar á Djúpavogi og endar á Breiðdalsvík áður en keyrt er til baka sömu leið. Leiðin hét áður leið 4 og keyrði milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur. Vagninn ekur á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og svo sunnudögum. Austfirðir - leiðakort

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á sumardeginum fyrsta. Áætlanir dagsins Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Nokkuð verður um lokanir á höfuðborgarsvæðinu á sumardaginn fyrsta. Miðbær Reykjavíkur Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30 Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu og Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Lokaðar biðstöðvar verða: Barónsstígur Bíó Paradís Þjóðleikhúsið Lækjartorg A Lækjartorg B MR Hallargarðurinn Ráðhúsið Gamla Hringbraut Landakot Ásvallagata Hafnarfjörður Hafnarfjörður milli kl. 13:45 og 14:00 Leið 19 – Ein ferð á leið 19 mun ekki geta ekið um Hjallabraut á leið sinni í átt að Kaplakrika. Í staðinn mun leiðin aka hjáleiðu um Reykjavíkurveg. Lokaðar biðstöðvar verða: Miðvangur Víðivangur Skjólvangur Sundhöll Hafnarfjarðar Norðurbakki Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30 Leið 7 – Leiðin mun ekki aka til og frá Leirvogstungu á meðan á lokun stendur. Leið 15 – Í stað þess að aka um Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka hjáleið um Bogatanga, Langatanga og Vesturlandsveg á leið sinni til og frá Reykjaveg. Lokaðar biðstöðvar milli kl. 12:50 og 13:30 verða: Skeiðholt Varmárskóli Háholt Tungubakkar Laxatunga

Stoppistöðin á bílastæðinu hjá Olís á Selfossi mun færast kl. 16:30 í dag, 11. apríl. Stoppistöðin á bílastæðinu hjá Olís á Selfossi mun færast kl. 16:30 í dag, 11. apríl. Á leið frá Reykjavík og til Selfoss munu leiðir 51 og 52 beygja inn á Fossnes og stoppa við Guðmund Tyrfingsson ehf. Á leið frá Selfossi til Reykjavíkur munu leiðir 51 og 52 beygja inn á Breiðumýri og stoppa við Vegagerðina á Selfossi.

Þann 10. apríl mun bætast við ný biðstöð á leið 25 sem ekur milli Spangar og Gufuness. Nýja biðstöðin mun fá nafnið Gufunesvegur og hún verður staðsett við hús Íslenska gámafélagsins við gatnamót Gufunesvegar og Jöfursbáss. Endastöðin við hverfið í Gufunesi mun heita Jöfursbás. Leið 25 er í pöntunarþjónustu, sem þýðir að viðskiptavinir panta ferð með því að hringja í Hreyfil í síma 5885522 minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Á þessari mynd má sjá staðsetningu nýju biðstöðvarinnar.

Sumaráætlun á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi á leiðum 6, 19 og 28 þann 10. apríl n.k. Síðari hluti aðhaldsaðgerða sem tilkynnt var um í síðustu viku taka einnig gildi. Sumaráætlun á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi á leiðum 6, 19 og 28 þann 10. apríl n.k. Það þýðir að leiðir 19 og 28 aka á 30 mínútna tíðni allan daginn í stað þess að aka skv. 15 mínútna tíðni á annatímum. Leið 6 mun aka á 15 mínútna tíðni yfir annatímann í stað þess að aka á 10 mínútna tíðni yfir annatímann. Sumaráætlunin tekur gildi örlítið fyrr þetta árið vegna aðhaldsaðgerðanna hjá Strætó. Síðari hluti aðhaldsaðgerða Þann 10. apríl tekur einnig í gildi seinni hluti aðhaldsaðgerða sem tilkynnt var um í síðustu viku. Síðustu kvöldferðir verða klipptar af leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6 og 18. Leið 1 Seinasta ferð frá Klukkuvöllum til Hlemms fer kl. 23:35 í staðinn fyrir kl. 00:05 Seinasta ferð frá Hlemmi til Klukkuvalla fer kl. 23:43 í staðinn fyrir kl. 00:13 Leið 2 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 22:52 í staðinn fyrir kl. 23:22 Seinasta ferðin frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:35 í staðinn fyrir kl. 00:05. (Á laugardögum og sunnudögum fer síðasta ferðin kl. 23:33) Leið 3 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 23:21 í staðinn fyrir kl. 23:51 á virkum dögum og 00:21 á laugardögum. Seinasta ferð frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:24 í staðinn fyrir kl. 23:54. Leið 4 Seinasta ferð frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:18 í staðinn fyrir kl. 23:48 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 23:21 í staðinn fyrir kl. 23:51 Leið 5 Seinasta ferð frá Norðlingaholti til Nauthóls fer kl. 23:14 í staðinn fyrir kl. 23:44. Seinasta ferð frá Nauthól til Norðlingaholts fer kl. 23:36 í staðinn fyrir kl. 00:06. Leið 6 Seinasta ferð frá Egilshöll til Hlemms fer kl. 23:18 í staðinn fyrir kl. 23:48. Seinasta ferð frá Hlemmi til Egilshallar fer kl. 23:37 í staðinn fyrir kl. 00:07. Leið 18 Seinasta ferð frá Hlemmi til Spangar fer kl. 23:16 í staðinn fyrir kl. 23:46. Seinasta ferð frá Spöng til Hlemms fer kl. 23:09 í staðinn fyrir kl. 23:39. (Á laugardögum og sunnudögum fer síðasta ferðin kl. 23:06)

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó yfir páska 2022. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2022 Skírdagur, 14. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 15. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Páskadagur, 17. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í páskum, 18. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Páskar 2022 Skírdagur, 14. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 15. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 17. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 18. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun

Stjórn Strætó boðar til opins fundar við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Fundurinn verður haldinn 7. apríl í Safnaðarheimilinu Borgum (hjá Kópavogskirkju) milli kl. 17:00-19:00. Fulltrúar úr stjórn og ýmsir starfsmenn Strætó verða á staðnum til þess að hlusta á ábendingar og svara spurningum. Við hvetjum alla þá sem eru áhugasamir um málefni Strætó að mæta á fundinn.

Covid faraldurinn hefur leikið rekstur Strætó grátt og hafa tekjur minnkað um allt að 1,5 milljarðar á síðustu 2 árum. Til að ná endum saman varð því nauðsynlegt að grípa til áframhaldandir aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins. Gert er ráð fyrir því að spara þurfi um 275 m.kr. á árinu 2022 og því verður gripið til hagræðis, þjónustutími og þjónustustig minnkað í leiðarkerfi Strætó. Þessar breytingar taka gildi sunnudaginn 3. apríl. Eftirfarandi breytingarnar fela m.a. skerðingu á kvöldferðum á leiðum 7,11,12,15,19,22,23, 28, 35 og 36. Leið 24 mun aka á 30 mín tíðni allan daginn í stað 15 mínútna tíðni á annatíma. Leið 7 Virkir dagar Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:08 í staðinn fyrir kl. 22:38 Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:09 í staðinn fyrir kl. 22:39 Helgar Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:04 í staðinn fyrir kl. 21:08 Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:05 í staðinn fyrir kl. 21:09 Leið 11 Seinasta ferð frá Eiðistorgi til Mjóddar fer kl. 23:23 í staðinn fyrir kl. 00:23 Seinasta ferðin frá Mjódd til Eiðistorgs fer kl. 23:22 í staðinn fyrir kl. 00:22 Leið 12 Seinasta ferð frá Ártúni til Skerjafjarðar fer kl. 23:07 í staðinn fyrir kl. 23:37 Seinasta ferð frá Skerjafirði til Ártúns fer kl. 23:20 í staðinn fyrir kl. 23:50 Leið 15 Seinasta ferð frá Flyðrugranda til Reykjavegar fer kl. 23:01 í staðinn fyrir kl:23:31 Seinasta ferð frá Reykjavegi til Flyðrugranda fer kl. 23:15 í staðinn fyrir kl:23:45 Leið 19 Virkir dagar Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl. 22:10 í staðinn fyrir kl. 22:40 Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaug fer kl. 22:06 í staðinn fyrir kl:22:36 Laugardagar Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl. 22:22 í staðinn fyrir kl. 22:52 Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaugar fer kl. 22:18 í staðinn fyrir kl:22:48 Leið 22 Virkir dagar. Leið 22 breytist í pöntunarþjónustu kl. 19:44 og fer seinasti vagn frá Ásgarði kl. 19:14. Leið 23 Leið 23 breyist í pöntunarþjónustu kl. 19:47 og fer seinasti vagn kl. 19:17. Leið 24 Leið 24 mun aka á 30 mínútna tíðni alla daga í stað þess að aka á 15 mínútna tíðni á annatímum. Leið 28 Seinasta ferð frá Dalaþingi til Hamraborgar fer kl. 20:02 í staðinn fyrir kl. 23:32 Seinasta ferð frá Hamraborg til Dalaþings fer kl. 20:05 í staðinn fyrir kl. 23:35 Leiðir 35 og 36 Leið 35 Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 23:07 i staðin fyrir kl. 23:37 Leið 36 Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 20:07 i staðin fyrir kl. 22:07

Strætó er þátttakandi í evrópsku samstarfsverkefni um þjálfun og fræðslu starfsfólks í almenningssamgöngum. Um verkefnið Competence+ er námsleið sem hefur það markmið að þróa hæfni starfsfólks umfram faglega hæfni og færni. Verkefnið gengur vel og nú er verið að móta fræðsluefnið sem m.a. verður í sýndarveruleika. Í nóvember 2021 hittist hópurinn í fyrsta skipti frá því verkefnið hófst og verður næsti fundur í verkefninu haldinn á Íslandi í apríl. Tilgangurinn er að þjálfa núverandi- og framtíðarstarfsfólk almenningssamgangna til að takast á við krefjandi verkefni í daglegu lífi og störfum. Í þjálfuninni verður beitt ólíkum og nýstárlegum kennsluaðferðum þar sem blandað verður saman einstaklingsnámi, námi á netinu, hópavinnu og vinnusmiðjum auk þess sem sýndarveruleiki verður notaður. Sýndarveruleikinn gefur starfsfólki tækifæri til að nýta þekkingu strax í aðstæðum sem líkjast mjög raunverulegum aðstæðum. Hér má skoða annað fréttabréf verkefnisins:

Frá og með deginum í dag, 14. mars mun farmiðasalan í Mjódd opna tímabundið aftur. Viðskiptavinir Strætó geta því skilað gömlum strætómiðum í Mjóddina. Við vekjum athygli á að starfsfólkið í Mjóddinni er eingöngu að veita gömlum farmiðum viðtöku. Inneignir verða sendar í Klapp kerfið einum degi síðar. Opið er á virkum dögum í mars milli kl. 09:00-17:00. Klapp kort og Klapp tíur verða seldar í farmiðasölunni.

Breyting hefur verið gerð á áætlun Herjólfs og því breytist seinni ferðin á leið 52 frá og með 1. mars. Virkir dagar: Í stað þess að aka frá Mjódd kl. 17:38 þá verður ekið kl. 17:45. Áætluð koma í Landeyjahöfn er kl. 20:03. Í stað þess að aka frá Landeyjahöfn og í Mjódd kl. 19:55 þá verður ekið kl. 20:40. Laugadagar og sunnudagar Í stað þess að aka frá Mjódd kl. 15:05 þá verður ekið kl. 15:15. Áætluð koma í Landeyjahöfn er kl. 17:38. Í stað þess að aka frá Landeyjahöfn og í Mjódd kl. 17:26 þá verður ekið kl. 18:00. Ef Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn Ef Landeyjahöfn er lokuð, þá ekur leið 52 ekki lengra en til og frá Hvolsvelli. Ef Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn þá mun aukavagn merktur Herjólfi aka á milli Mjóddar og Þorlákshafnar skv. eftirfarandi áætlun: Brottför frá Mjódd 09:00 Brottför frá Mjódd 19:00 Aukavagninn ekur frá Þorlákshöfn og í Mjódd þegar allir farþegar Herjólfs eru komnir frá borði.

Frá og með miðvikudeginum 23. febrúar verður hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á leiðum 51 og 57 á landsbyggðinni. Um er að ræða verkefni í þróun hjá Strætó og Vegagerðinni. Eins og staðan er núna þá geta hjólastólanotendur eingöngu notað ákveðnar biðstöðvar og pantað ferðir á ákveðnum tímum. Leið 51 Mjódd - Selfoss Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför. Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum: Virkir dagar: 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 13:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 10:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 15:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 Laugardagar og sunnudagar: 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 14:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 13:15 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 17:30 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu. Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd , Hveragerði og Selfoss-N1 . Leið 57 Mjódd - Akureyri Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför. Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum: Alla daga: 09:00 ferð frá Mjódd til Akureyrar-Hof* 16:20 ferð frá Akureyri-Hof til Mjóddar* Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu. Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd , Akratorg, Borgarnes, Staðarskáli, Blönduós, Sauðárkrókur og Akureyri – Hof *Á fimmtudögum er aðeins ekið milli Mjóddar og Borgarness

Hér má nálgast samantekt á áhrifum óveðursins 21. febrúar á þjónustu Strætó Strætó á höfuðborgarsvæðinu mun halda úti akstri eins og veður leyfir í kvöld. Við hvetjum viðskiptavini að fylgjast með tilkynningum inn á vef Strætó eða á Twitter reikningi Strætó. Strætóferðir falla niður á landsbyggðinni seinni hluta dags og í kvöld. Óvissa verður með ferðir á landsbyggðinni í fyrramálið. Viðskiptavinir eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á vef Strætó eða Twitter reikningi Strætó. Pant akstursþjónusta ekur ekki í kvöld. Það verður ekið í fyrramálið en viðskipavinir þjónustunnar mega búast við einhverjum seinkunum.

Síðustu daga hefur Klapp, greiðslukerfi Strætó orðið fyrir barðinu á netárásum. Um er að ræða svokallaða dreifða álagsárás eða DDoS árás sem þýðir að gríðarmiklum fjölda af fyrirspurnum er beint á kerfið og vefþjónar kikna tímabundið undan álagi. Nýjasta árásin var gerð í dag, laugardag kl. 13:50 og hún stóð yfir í ca. 90 mínútur. Á meðan á árásinni stóð komust viðskiptavinir til að mynda ekki inn á Klapp-appið eða vefaðganginn sinn á „Mínum síðum“ til að kaupa eða skoða stöðu fargjalda. Skönnun farmiða í vögnum varð einnig óáreiðanleg á sama tíma. Norska fyrirtækið FARA AS sem heldur úti undirliggjandi hugbúnaði Klappsins og vélbúnaði kerfisins segir að gripið verði til aðgerða til þess að reyna að koma í veg fyrir að slíkar árásir lami greiðslukerfið. Strætó og FARA harma þau óþægindi sem viðskiptavinir hafa orðið fyrir vegna árásarinnar. Við vekjum athygli á að þessi DDoS árás á ekkert sameiginlegt með netárásinni sem Strætó varð fyrir í lok árs 2021 þegar brotist var inn í netkerfi Strætó og ýmsum gögnum stolið.

Frá og með 1. mars 2022 verður ekki hægt að borga með pappírs farmiðum í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Farmiðar: Gefinn verður frestur til 31. mars 2022 til þess að skipta öllum gömlum farmiðum yfir í inneign í Klapp greiðslukerfinu. Athugið: Klapp greiðslukerfið er ekki í Strætó á landsbyggðinni. Fundin verður önnur leið til að gefa inneign á landsbyggðinni. Öllum farmiðum er skilað í móttöku Strætó á Hesthálsi 14, 110 Reykjavík. Opið er í móttöku Strætó milli kl. 09:00-16:00 á virkum dögum. Lokað er um helgar. Gömlu Strætókortin: Handhafar tímabilskorta í gamla greiðslukerfi Strætó skulu leyfa gildistíma kortanna að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Gömlu Strætókortin verða enn til staðar á landsbyggðinni. Reiðufé: Áfram verður hægt að greiða með reiðufé á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Ekki er hægt að gefa til baka á höfuðborgarsvæðinu. Skil á farmiðum - Kemstu ekki á Hestháls? Viðskiptavinir Strætó einnig skilað gömlum strætómiðum í farmiðasöluna í Mjódd. Við vekjum athygli á að starfsfólkið í Mjóddinni er eingöngu að veita gömlum farmiðum viðtöku. Inneignir verða sendar í Klapp kerfið einum degi síðar. Opið er á virkum dögum í mars milli kl. 09:00-17:00. Klapp kort og Klapp tíur verða seldar í farmiðasölunni. Þeir sem komast ekki á Hestháls 14 eða Mjóddina geta einnig sent okkur farmiðana sína í pósti. Ef þú kýst að senda okkur miðana í pósti, þá er nauðsynlegt að fylgja þessum skrefum: Stofnaðu aðgang að „Mínum síðum“ með símanúmeri eða netfangi. Sendu farmiðana í pósti á heimilisfangið: Strætó bs. Hestháls 14, 110 Reykjavík Nauðsynlegt er að hafa nafn, símanúmer eða netfang með í bréfinu. Við leggjum inneign á „veski“ viðkomandi símanúmers eða netfangs sem fylgir með bréfinu. Hægt er að senda fyrirspurnir í gegnum klappid@klappid.is Klappið — Hafa samband — klappid@klappid.is Skil á farmiðum - Landsbyggðin Fólk sem notar eingöngu Strætó á landsbyggðinni getur einnig sent okkur farmiðana sína í pósti. Landsbyggðin er ekki í Klapp greiðslukerfinu og því verður fundin önnur leið til að gefa fólki inneign. Sendu farmiðana í pósti á heimilisfangið: Strætó bs. Hestháls 14, 110 Reykjavík Nauðsynlegt er að hafa nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang með í bréfinu. Strætó hefur samband í gegnum sima þegar bréfið berst okkur.

Útgáfu almennra Samgöngukorta hefur verið hætt á höfuðborgarsvæðinu. Strætó mun kynna sambærilega vöru á þessu ári fyrir fleiri fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngukort voru 12 mánaða kort í Strætó á verði 9 mánaða korts og voru einungis í boði fyrir starfsfólk fyrirtækja og stofnana sem höfðu gert samgöngusamning við Strætó. Frekari upplýsingar veitir Markús Vilhjálmsson, sölu- og markaðsstjóri Strætó. Markús Vilhjálmsson — Sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs — markus@straeto.is

Nú er hægt að skipta efni á völdum síðum yfir í „Auðlesið mál“ ( e. Easy-read) . Auðlesinn texti er skrifaður á skýru og einföldu máli sem nýtist þeim sem eiga erfitt með að lesa texta. Til dæmis fólki með þroskahömlum, fólki sem er lesblint eða er að læra íslensku. Síður sem er hægt að breyta yfir í auðlesið mál eru merktar „Easy-to-read“ tákninu frá Inclusion Europe. Þegar að ýtt er á takkann þá skiptist texti á síðunni yfir í auðlesið mál. Þessi virkni var unnin í samráði við Landsamtökin Þroskahjálp. Á nýja vef Strætó er mikil áhersla lögð á aðgengismál og við teljum þessa virkni vera skref í átt að bættu aðgengi. Nýr vefur Strætó opnaði 24. janúar sl. Vefurinn var hannaður og forritaður af Kolofon.