
Hér er staðan hjá Strætó á landsbyggðinni: Suðurland Hellisheiðin er lokuð og því eru leiðir 51 og 52 ekki byrjaðar að aka. Stefnt er að því að leiðir 71, 72 og 73 fari að aka skv. áætlun eftir hádegi í dag. Vesturland Leið 57 er farin að aka skv. áætlun á milli Reykjavíkur og Borgarness. Ekki verður ekið milli Akureyrar og Borgarness í dag. Stefnt er að því að leiðir 58 og 82 á Snæfellsnesi og leið 81 í Borgarbyggð aki skv. áætlun síðar í dag. Suðurnes Allar leiðir á Suðurnesjum eru farnar að aka skv. áætlun. Norður- og Norðausturland Leið 78 milli Akureyrar og Siglufjarðar verður ekkert ekin í dag. Leið 56 milli Akureyrar og Egilsstaða verður ekki ekin í dag. Óvissa er með 17:30 ferðina á leið 79 milli Húsavíkur og Akureyrar
Hér má finna lista yfir fyrstu brottfarir hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu: Leið 1: 10:12 frá Hlemmi 10:01 frá Klukkuvöllum Leið 2: 10:16 frá Hlemmi 10:10 frá Mjódd Leið 3: 10:22 frá Hlemmi 10:21 frá Mjódd Leið 4: 10:18 frá Hlemmi 10:21 frá Mjódd Leið 5: 10:10 frá Gömlu Hringbraut 10:14 frá Norðlingaholti Leið 6: 10:21 frá Hlemmi 10:18 frá Egilshöll Leið 7: 10:04 frá Egilshöll 10:34 frá Leirvogstungu Leið 11: 10:22 frá Mjódd 10:28 frá Eiðistorgi Leið 12: 10:03 frá Skerjafirði 10:29 frá Ártúni Leið 13: 10:08 frá Sléttuvegi 10:08 frá Öldugranda Leið 14: 10:33 frá Granda 10:08 frá Verzló Leið 15: 10:40 frá Reykjavegi 10:31 frá Flyðrugranda Leið 16: 10:22 frá Hlemmi 10:28 frá Hádegismóum Leið 17: 10:46 frá Hlemmi 10:36 frá Mjódd Leið 18: 10:08 frá Spöng 10:14 frá Hlemmi Leið 19: 10:28 frá Kaplakrika 10:32 frá Ásvallalaug Leið 21: 10:40 frá Háholti í Hafnarfirði 10:22 frá Mjódd Leið 22: 10:04 frá Ásgarði Leið 23: 10:28 frá Ásgarði Leið 24: 10:48 frá Spöng 10:31 frá Ásgarði Leið 28: 10:35 frá Hamraborg 10:32 frá Dalaþingi Leið 35: 10:37 frá Hamraborg Leið 36: 10:22 frá Hamraborg

Öllum morgunferðum hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni verður aflýst 7. febrúar. Allar ferðir hjá asktursþjónustunni Pant falla niður fyrir hádegi. Strætó Á höfuðborgarsvæði og landsbyggð Eins og veðurspáin er núna, þá má búast við að Strætó á höfuðborgarsvæðinu geti hafið akstur á ný í fyrsta lagi í kringum 10:00. Allar ákvarðanir um akstur verða háðar veðri og færðar á vegum. Við hvetjum viðskiptavini að fylgjast með tilkynningum inn á heimasíðu Strætó eða á Twitter reikningi Strætó. Skilaboð frá almannavörnum Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins bendir á að þegar veðrinu slotar þá er viðbúið að samgöngur verði enn í ólestri vegna ófærðar og töluverðan tíma tekur að ryðja allar húsagötur í umdæminu. Aðgerðarstjórn hvetur fólk sem ætlar að ferðast innan höfuðborgarsvæðisins til þess að nýta sér almenningssamgöngur svo aðstæður í umferðinni verði ekki of þungar og tefji för snjóruðningstækja. Pant Akstursþjónusta Öllum ferðum akstursþjónustunnar Pant verður aflýst fyrir hádegi á morgun 7. febrúar. Búist er við að þjónustan verði aftur komin í gang kl. 12:00. Allar skipulagðar „heimferðir“ sem tengjast aflýstu morgunferðunum verða einnig sjálfkrafa felldar niður nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir því að þær verði eknar. Það er gert með því að hafa samband við Pant í síma 5402727 eða með því að senda skilaboð í gegnum netspjall Pant eða á netfangið pant@pant.is Pant — Akstursþjónusta — pant@pant.is — 5402727 Tweets by straetobs

Eftirfarandi nýjungar hafa verið innleiddar á nýjan vef Strætó. Staðsetningar og rafhlöðustaða á rafskútum Staðsetningar á rafskútum frá fyrirtækjunum Hopp, OSS og ZOLO eru nú sýnilegar á gagnvirku korti síðunnar. Rafskúturnar eru túlkaðar með ljósgrænum, appelsínugulum og gulum punktum á kortinu. Þegar smellt er á punktana þá sést hvaða fyrirtæki hjólið tilheyrir og hver staðan er á rafhlöðunni. Strætó leggur mikla áherslu á vistvænar samgöngur í hvaða mynd sem er og þessi viðbót mun auka upplýsingagjöf til bíllausra. Loftgæði í rauntíma Tengingu við loftgæðamælistöðvar á vegum Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlita Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar hefur verið komið á. Á gagnvirka kortinu er hægt að smella á þessar mælistöðvar til þess að skoða loftgæði á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og á fleiri stöðum. Gildin sem eru sýnd á síðunni eru styrkur svifryks (PM10) og styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) en slíka mengun í þéttbýli má að mestu rekja til bílaumferðar. Helsti áhættutími svifryks (PM10) er í mars og apríl þegar höfuðborgarsvæðið og önnur þéttbýli á landinu eru að koma undan vetri. Köfnunarefnisdíoxíðmengun (NO2) í þéttbýli kemur að mestu leyti frá útblæstri bifreiða og er þessi mengun algeng í yfir vetrartímann. Mikil loftmengun vegna köfnunarefnisdíoxíðs eða svifryks getur valdið ertingu í lungum og öndunarvegi. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum eða með undirliggjandi lungnasjúkdóma geta upplifað mikla öndunarerfiðleika og þurfa jafnvel að leita læknisaðstoðar. Hvílum bílinn á „gráum dögum“. Yfir síðastliðin ár hefur Strætó hvatt til notkunar á vistvænum samgöngumátum á „gráum dögum“ eða þegar líkur eru á að loftgæði mælast yfir heilsuverndarmörkum. Ákveðin veðurskilyrði gera það að verkum loftmengun mælist yfir heilsuverndarmörkum, eins og þegar það eru stillur og þurrt í lofti. Ástandið verður yfirleitt verst við stórar umferðaræðar þar sem mengunin safnast upp vegna lítillar hreyfingar á loftinu. Veðurskilyrðin á „gráum dögum“ eru því ákjósanleg til þess að skilja bílinn eftir heima og nota vistvænar samgöngur.

Leið 26 kemur ný inn í leiðanet Strætó frá og með 1. febrúar 2022. Leiðin mun aka um iðnaðarhverfið Hellnahraun í Hafnarfirði. Leiðin verður í pöntunarþjónustu sem þýðir að viðskiptavinir panta ferð með því hringja í Hreyfil í síma 5885522 minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Eingöngu er hægt að greiða fyrir ferðina um borð leigubílnum með því að sýna Klapp kort, KLAPP tíu eða fargjald í Strætó appi eða Klapp appi.
Áætlun leiðar 3 verður áfram skert, þriðjudaginn 25. janúar. Í stað þess að leið 3 aki á 15 mínútna fresti yfir háannatímann (milli kl. 07:00-09:00 og 15:00-18:00), þá verður ekið á 30 mínútna fresti allan daginn. Gripið er til þessarar skerðingar vegna fjölda vagnstjóra hjá Strætó bs. sem eru í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19. Nokkur óvissa er um vaktir á öðrum leiðum yfir annatímann milli kl. 15:00-18:00. Fylgst verður náið með stöðunni og tilkynnt verður um öll hugsanleg frávik inn á heimasíðu Strætó.

Velkomin á nýjan vef Strætó. Nýi vefurinn hefur formlega tekið við af þeim gamla sem hefur verið í notkun síðan 2016. Markmið nýja vefsins er að bæta notendaupplifun, upplýsingagjöf, læsileika og aðgengi. Helstu nýjungar eru meðal annars: Leitarvél vefsins er tengd við gagnagrunn ja.is , sem opnar á fleiri möguleika þegar notendur eru að skipuleggja ferðir. Til dæmis er nú hægt að leita eftir fyrirtækjum, stofnunum og kennileitum. Mikil áhersla er lögð á aðgengi fyrir blinda og sjónskerta. Strætó var í góðu samráði við Blindrafélagið og fylgir WCAG (e. Web Content Accessibility Guidelines) staðli til að tryggja að auðvelt sé að nota skjálesara á vefnum. Þegar ýtt er á biðstöðvar á kortinu þá kemur upp nafn stöðvarinnar, götumynd og rauntímaupplýsingar um það hve margar mínútur eru í næstu vagna. Hingað til hafa rauntímaupplýsingar eingöngu verið til staðar í stafrænu strætóskýlunum. Hægt er að ýta á vagnana á kortinu til þess að sjá næstu biðstöðvar og rauntímaupplýsingar. Tímatöflur eru ekki lengur birtar sem myndir. Það er einnig komin með nýja útfærslu af tímatöflum sem kann að henta þeim sem finnst óþægilegt að lesa úr tímatöflum. Vefurinn er forritaður og hannaður af Kolofon . Nýi vefurinn er langt kominn, en búast má við að eftirfarandi efni verði tilbúið á næstunni: Dökk stilling eða „Dark mode“. Leit inn á vefnum. Rauntímakort undir tímatöflum leiða. Möguleiki að sækja PDF útgáfu að tímatöflum. Hægt verður að panta ferðir sem eru í pöntunarþjónustu í gegnum netið. Hjáleiðir verða teiknaðar á gagnvirka kortið. Við hvetjum alla sem vilja senda okkur ábendingar eða hugmyndir fyrir nýja vefinn að skrá þær hér fyrir neðan:
Áætlun leiðar 3 verður skert í dag, mánudaginn 24. janúar. Í stað þess að leiðin aki á 15 mínútna fresti yfir háannatímann (milli kl. 07:00-09:00 og 15:00-18:00), þá verður ekið á 30 mínútna fresti allan daginn. Gripið er til þessarar skerðingar vegna fjölda vagnstjóra hjá Strætó bs. sem eru í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19. Veiran hefur einnig áhrif á strætóleiðir 58 og 82 á Snæfellsnesinu, en morgunferðir leiðanna verða felldar niður vegna manneklu. Fylgst verður náið með stöðunni og tilkynnt verður um öll hugsanleg frávik inn á heimasíðu Strætó.
Það er villa í Strætó appinu sem tengist notkun á AUR í Strætó appinu. Villan lýsir sér þannig að fólk gengur frá greiðslu í gegnum AUR en fær engan miða. Við erum að vinna eins hratt og við getum til að laga þessa villu, en eins og staðan er núna, þá biðjum við viðskiptavini um að nota ekki AUR til að greiða fyrir miða Strætó appinu. Viðskiptavinir sem hafa lent í villunni geta haft samband við okkur í gegnum endurgreidslur@straeto.is og óskað eftir því að fá nýjan miða eða endurgreiðslu. Við vekjum athygli á að viðskiptavinir sem óska eftir endurgreiðslu þurfa að gefa upp fyrstu 6 og síðustu 4 tölustafina á greiðslukortinu sem tekið var út af. Virðingafyllst Strætó
Líkt og komið hefur fram í fréttum varð Strætó fyrir fjandsamlegri netáras frá erlendum árásaraðilum í lok desember. Árásaraðilarnir náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Strætó og afrita gögn og upplýsingar sem þar eru að finna. Upplýsingar uppfærðar 5. janúar 2022 Viðkomandi árásaraðilar hafa krafið Strætó um greiðslu en hótað því að leka viðkomandi gögnum verði Strætó ekki við kröfum árásaraðilanna. Í samræmi við leiðbeiningar netöryggissveitar Íslands mun Strætó ekki verða við þeim kröfum. Persónuvernd hefur verið tilkynnt um málið og er Strætó í stöðugum samskiptum við stofnunina vegna þess. Rannsókn málsins stendur enn yfir og gripið hefur verið til umfangsmikilla ráðstafana til að loka á aðgang umræddra aðila og takmarka áhrif á réttindi og frelsi þeirra einstaklinga sem Strætó vinnur upplýsingar um. Má þar nefna lokun á aðgangi tilgreindra IP talna og tilgreindra aðganga að kerfum Strætó sem og endurræsingu á lykilorðum þeirra aðila sem aðgang hafa í umrædd kerfi. Þau kerfi sem árásaraðilarnir hafa fengið aðgang að eru eftirfarandi: Launakerfi Strætó þar sem finna má tengiliðaupplýsingar, reikningsupplýsingar og launaupplýsingar núverandi og fyrrverandi starfsfólks Strætó Mannauðskerfi Strætó þar sem finna má tengiliðaupplýsingar, ráðningarsamninga og önnur mannauðstengd gögn fyrrverandi og núverandi starfsfólks Strætó Málaskrá Strætó þar sem finna má afrit af erindum og fyrirspurnum frá almenningi, tengiliðaupplýsingar forsvarsmanna birgja, samstarfsaðila og verktaka, sem og afrit af umsóknargögnum umsækjenda um störf Netkerfi Strætó þar sem finna má upplýsingar um hljóðupptökur símtala sl. 90 daga áður en árásin átti sér stað Ekkert bendir til þess að árásaraðilarnir hafi eða geti misnotað þessar upplýsingar, en ekki er hægt að útiloka að upplýsingarnar verði birtar opinberlega af hálfu umræddra aðila. Strætó harmar að þessi innrás hafi átt sér stað og unnið er hörðum höndum við að klára rannsókn málsins og munu uppfærðar upplýsingar birtast hér á heimasíðu Strætó eftir því sem rannsókninni miðar áfram. Tekið skal fram að Strætó vinnur jafnframt með persónuupplýsingar sem svokallaður vinnsluaðili fyrir hönd annarra aðila, svokallaðra ábyrgðaraðila. Hvað varðar mögulegan aðgang árásaraðila að þeim upplýsingum munu viðkomandi ábyrgðaraðilar tilkynna hlutaðeigandi aðilum um slíkan öryggisbrest, eftir því sem við á. Nánari upplýsingar um öryggisbrest þennan veitir persónuverndarfulltrúi Strætó, Sigurður Már Eggertsson, í gegnum netfangið personuvernd@straeto.is . Sigurður Már Eggertsson — Persónuverndarfulltrúi Strætó — personuvernd@straeto.is
Eftirfarandi breytingar verða gerðar á leiðakerfi Strætó um áramótin: Leið 25: Gufunes – Spöngin Leið 25 kemur ný inn í leiðakerfi Strætó frá og með 2. janúar 2022. Leiðin mun aka á milli nýja hverfisins í Gufunesi og Spangar. Leiðin verður í pöntunarþjónustu, sem þýðir að að viðskiptavinir panta ferð með því að hringja í Hreyfil í síma 588 5522 , minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Austfirðir yfir til Vegagerðarinnar Frá og með mánudeginum 3. janúar 2022 mun rekstur Strætisvagna Austurlands færast frá Austurbrú og yfir til Vegagerðarinnar. Almenningssamgöngur á Austfjörðum verða því formlega hluti af leiðaneti Strætó á landsbyggðinni. Akstursleiðirnar munu ekki breytast en leiðirnar munu fá ný leiðanúmer og nýjar tímatöflur. Til að byrja með verður gjaldskráin á Austfjörðum sú sama og hún var hjá Austurbrú.

Strætó þykir leitt að tilkynna innbrot í netkerfi Strætó sem uppgötvaðist í gær, 27. desember 2021. Unnið er að staðfestingu atburðarrásar og greiningu á umfangi í náinni samvinnu við sérfræðinga hjá Syndis og Advania. Atvikið hefur verið tilkynnt til Persónuverndar, CERT-IS og lögreglu. Ekki er hægt að útiloka upplýsingaleka í tengslum við innbrotið, en of snemmt er að segja til um hvort og hvaða upplýsingar innbrotsþjófarnir komust yfir. Nú þegar hefur gripið til allra aðgerða til að fyrirbyggja hættuna á frekari gagnalekum. Það skal þó ítrekað að Strætó sendir aldrei út tölvupósta þar sem fólk er beðið um kortaupplýsingar.

Reglugerð um takmörkun á samkomu vegna farsóttar tekur gildi, fimmtudaginn 23. desember 2021. Samkvæmt reglugerðinni þá er Strætó undanþeginn 20 manna fjöldatakmörkunum og allir farþegar skulu nota grímu ef ekki er unnt að tryggja tveggja metra fjarlægðarmörk um borð í vögnum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Strætó mælir eindregið með grímunotkun þegar ferðast er með almenningssamgöngum. Viðskiptavinir bera ábyrgð á því að klæðast andlitsgrímu þegar þörf er á því samkvæmt reglugerðinni. Undanþegnir grímuskyldu eru einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars. Börn fædd 2006 og yngri eru einnig undanþegin grímunotkun. Andlitsgrímur skulu hylja nef og munn. Grímur skulu uppfylla kröfur sem koma fram í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Hugum að hreinlæti og eigin sóttvörnum. Viðskiptavinir skulu ekki ferðast með almenningssamgöngum ef þeir eru með flensueinkenni. Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar Leiðbeiningar landlæknis um andlitsgrímur Pössum sóttvarnir Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu , minnst 20 sekúndur í hvert skipti. Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt. Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra. Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa, sem ekki fela í sér snertingu. Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni. Frekari upplýsingar og nýjustu fréttir um COVID-19 faraldurinn á Íslandi má finna á síðunni covid.is . Komufarþegar í Leifsstöð Komufarþegum í Leifstöð er nú heimilt að nýta sér almenningssamgöngur (leið 55) frá flugstöðinni gegn því að sýna vagnstjóra SMS skilaboð frá sóttvarnaryfirvöldum sem staðfestir að viðkomandi sé undanþeginn sóttkví vegna komunar til landsins. Þetta kemur fram í 6 grein Reglugerðar um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 nr. 747/2001 Frá því í april 2020 hefur öllum komufarþegum verið óheimilt að nota almenningssamgöngur frá Leifstöð.

Hér má nálgast upplýsingar um akstur hjá Strætó á landsbyggðinni yfir hátíðarnar. Suðurland Leið 51 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 52 Aðfangadagur, 24.desember Einu ferðir dagsins verða kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Einu ferðir dagsins verða kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur * Ef Landeyjahöfn er lokuð, ekur vagninn aðeins til og frá Hvolsvelli. Leiðir 71, 72 og 73 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. ( Leiðir 71 og 72 aka ekki á sunnudögum ) Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Suðurnes Leið 55 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 12:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 011:53 frá Firði til KEF-Airport Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 87 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 88 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjari 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 89 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Vestur- og Norðurland Leið 57 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið er samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 58, 59, 82 og 84 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 81, 63 og 64 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Norður- og Norðausturland Leiðir 56, 78 og 79 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ Leiðir R1, R3 og R4 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar á Akureyri Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2021 07:00 - 14:00 25. desember 2021 10:00 - 14:00 26. desember 2021 10:00 - 14:00 31. desember 2021 07:00 - 14:00 1. janúar 2022 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2021 Lokað 25. desember 2021 Lokað 26. desember 2021 Lokað 31. desember 2021 Lokað 1. janúar 2022 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun en auka ferðum bætt við um morguninn. Ekið verður til ca. 15:00. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun en auka ferðum bætt við um morguninn. Ekið verður til ca. 15:00. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Aðfangadagur og gamlársdagur Aukaferðir um morguninn: Leið 1 frá Hlemmi 06:43 og 07:13 Leið 1 frá Klukkuvöllum 06:35 og 07:05 Leið 2 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 2 frá Hlemmi 07:03 Leið 3 frá Fellaskóla 06:34 Leið 3 frá Mjódd í átt að Breiðholti 06:51 Leið 3 frá Mjódd í átt að Hlemmi 06:51 og 07:21 Leið 3 frá Hlemmi 06:54 og 07:24 Leið 4 frá Fellaskóla 06:33 Leið 4 frá Mjódd í átt að Breiðholti 06:51 Leið 4 frá Mjódd í átt að Hlemmi 06:51 og 07:21 Leið 4 frá Hlemmi 06:48 og 07:18 Leið 5 frá Árvaði 06:44 og 07:14 Leið 5 frá HR 07:06 Leið 6 frá Egilshöll B 06:48 og 07:18 Leið 6 frá Hlemmi 06:37 og 07:07 Leið 7 frá Egilshöll A 07:05 og 07:35 Leið 7 frá Tungubökkum 06:34 og 07:04 Leið 8 Sjá leið 5 Leið 11 frá Eiðistorgi 06:53 og 07:23 Leið 11 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 12 frá Skerjafirði 06:50 og 07:20 Leið 12 frá Ártúni C 06:37 og 07:07 Leið 13 frá Sléttuvegi 06:40 og 07:10 Leið 13 frá Öldugranda 06:38 og 07:08 Leið 14 frá Verzló 06:39 og 07:09 Leið 14 frá Granda 06:39, 07:09 og 07:39 Leið 15 frá Flyðrugranda 07:01 og 07:31 Leið 15 frá Reykjavegi 06:45 og 07:15 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Hlemmi 06:46 og 07:16 Leið 17 frá Mjódd 06:36 og 07:06 Leið 18 frá Spönginni A 06:36 og 07:06 Leið 18 frá Hlemmi 06:46 og 07:16 Leið 19 frá Ásvallalaug 06:59 Leið 19 frá Kaplakrika 06:55 og 07:25 Leið 21 frá Bátaskýlunum við Lónsbraut 06:40 og 07:10 Leið 21 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 22 frá Ásgarði A 07:04 Leið 23 frá Ásgarði A 06:58, 07:28, 07:58 og 08:28 Leið 24 frá Ásgarði A 07:03 og 07:33 Leið 24 frá Spönginni A 06:49 og 07:19 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 07:01 Leið 28 frá Hamraborg B 06:35 og 07:05 Leið 28 frá Dalaþingi 07:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg B 06:37 og 07:07 Leið 36 frá Hamraborg B 07:07 Síðustu ferðir dagsins: Leið 1 Frá Hlemmi 15:01 Leið 1 Frá Klukkuvöllum 15:12 Leið 2 frá Hlemmi 15:00 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Hlemmi 14:52 Leið 3 frá Mjódd 14:51 Leið 4 frá Hlemmi 14:48 Leið 4 frá Mjódd 14:51 Leið 5 frá Árvaði 14:44 Leið 5 frá HR 14:36 Leið 6 frá Hlemmi 14:37 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Spönginni A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Sjá leið 5 Leið 11 frá Eiðistorgi 14:58 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:40 Leið 14 frá Granda 14:35 Leið 15 frá Reykjavegi 14:43 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Hlemmi 14:46 Leið 17 frá Mjódd 14:36 Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Hlemmi 14:46 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Bátaskýlunum við Lónsbraut 14:40 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 14:34 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:20 Leið 28 frá Hamraborg B 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg B 15:07 Leið 36 frá Hamraborg B 15:07
Vonskuveðrið sem gengur yfir landið á morgun, 5. desember mun hafa mikil áhrif á strætóferðir á landsbyggðinni. Spáð er hviðum allt að 40 til 45 metrum á sekúndu frá um klukkan 9 til klukkan 5 síðdegis á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi. Leið 57 (Reykjavík – Akureyri): Allar ferðir munu falla niður yfir daginn. Óvissa verður með ferðir eftir kl. 17:00 á morgun. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 58 (Stykkishólmur – Borgarnes): Morgunferðin verður felld niður en búist er við að seinni ferð dagsins verði ekin. Leið 82 (Hellissandur – Stykkishólmur): Óvissa verður með morgunferðina en seinni ferð dagsins er líkleg. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 51 (Reykjavík – Höfn): Allar líkur eru á að ekið verði um morguninn en þegar líður á daginn má búast við að ferðir verði felldar niður. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 52 (Reykjavík – Landeyjahöfn): Allar líkur eru á að fyrri ferðin verði ekin um morguninn en óvissa er um seinni ferð dagsins. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Hægt er að nálgast tilkynningar inn á heimasíðu Strætó og á Twitter síðu Strætó https://twitter.com/straetobs

Starfsfólk Strætó mun kynna nýja greiðslukerfið og selja strætókort. Á þriðjudaginn 7. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi mun starfsfólk frá Strætó koma í heimsókn til Ás Styrktarfélags í Ögurhvarfi 6. Starfsfólkið mun kenna fólki á nýja Klapp greiðslukerfið og hjálpa þeim að kaupa fargjöld í Strætó. Starfsfólk frá Strætó mun einnig koma í heimsókn til Þroskahjálpar á Háaleitisbraut 13 á miðvikudaginn 8. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi. Við vonumst til að sjá sem flesta.

KLAPP er nýtt greiðslukerfi fyrir Strætó á höfuðborgarsvæðinu og það verður formlega innleitt 16. nóvember 2021 . Fyrirmynd kerfisins er þekkt í almenningssamgöngum um allan heim, þar sem kort eða farsími er settur upp við skanna þegar fargjald er greitt í vagninum. Það eru 3 greiðsluleiðir í Klappinu: KLAPP kort, KLAPP app og KLAPP tía. KLAPP kort KLAPP kort eru snjallkort sem þú leggur upp við skanna um borð í Strætó til þess að greiða fargjaldið. Þú getur verslað KLAPP kort inn á straeto.is og hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu . Fyllt er á KLAPP kortið í gegnum vefaðgang notenda á „Mínum síðum“ . KLAPP app Með KLAPP appinu getur þú notað snjallsímann þinn til að kaupa staka miða eða tímabilskort fyrir Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt Klappið inn á App Store og Google Play. KLAPP tía KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Þessi vara kemur í stað pappírs strætómiðanna. Pappaspjaldið er með kóða sem þú skannar um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hvað eru margar ferðir eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu og í vefverslun Strætó. Ný gjaldskrá Samhliða innleiðingu á Klappinu þá verða einnig gerðar breytingar á gjaldskrá Strætó. Markmið breytingarinnar er fyrst og fremst að einfalda gjaldskrána og gera öllum hópum kleift að kaupa mánaðarkort á hagstæðu verði. Hér má sjá nýju gjaldskrána: Gjaldskrá Stakir miðar Verð Afsláttur Fullorðnir 490 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 245 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 245 kr. 50% Öryrkjar 147 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Mánaðarkort Verð Afsláttur Fullorðnir 8.000 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 4.000 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 4.000 kr. 50% Öryrkjar 2.400 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Árskort Verð Afsláttur Fullorðnir 80.000 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 40.000 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 40.000 kr. 50% Öryrkjar 24.000 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Klapp tía (10 miða passi) Verð Afsláttur Fullorðnir 4.900 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 2.450 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 2.450 kr. 50% *Börn þurfa ekki að skanna farmiðla um borð í Strætó. Hvað verður um gamla greiðslukerfið? Samhliða nýju greiðslukerfi þá verður gamla greiðslukerfið að einhverju leyti til staðar í eitt ár. Strætó appið Þann 16. nóvember verður ekki lengur hægt að kaupa nýja miða eða mánaðarkort í Strætó appinu. Viðskiptavinum verður í staðinn vísað í KLAPP appið. Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort í Strætó appinu skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Viðskiptavinir sem eru með virka áskrift munu klára þriggja mánaða hringinn sinn. Eftir þriðja „fría mánuðinn“ verður ekki lengur hægt að kaupa nýja áskrift. Þeir sem eiga ónotaða miða í Strætó appinu þann 16. nóvember 2021 hafa frest í eitt ár til að nota þá. Til að byrja með verður núverandi Strætó app áfram notað til þess að leita að ferðum eða fylgjast með vögnum í rauntíma. Það verður einnig áfram hægt að kaupa landsbyggðarmiða í Strætó appinu. Pappírs farmiðar Í stað pappírs farmiðanna kemur ný vara sem heitir KLAPP tía. KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Pappaspjaldið er með kóða sem er skannaður um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hve margar ferðir eru eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu eða inn á straeto.is. Það verður áfram hægt að greiða með pappírs farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þangað til 1. mars 2022. Viðskiptavinir sem vilja skipta gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu hafa frest til 16. mars 2022 til að gera það. Prentuð Strætó kort Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Reiðufé Áfram verður hægt að greiða með reiðufé þar til annað verður tilkynnt. Vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Öryrkjar munu ekki geta greitt afsláttarfargjald með reiðufé. Þeir geta hins vegar fengið 70% afslátt í Klapp greiðslukerfinu.
Hvassviðri hefur áhrif á leiðir 57 og 55. Leið 57: Reykjavík – Akureyri Margar ferðir hafa fallið niður í dag á leið 57 vegna hvassviðris á Kjalarnesi og við Blikadalsá. Mjög tvísýnt er með ferðir á leiðinni það sem eftir lifir degi. Leið 55: Fjörður – Keflavíkurflugvöllur Einhverjar raskanir hafa orðið á leiðinni í dag vegna hvassviðris. Bilun í tilkynningakerfi Það er bilun í tilkynningakerfinu á heimasíðu Strætó og okkur hefur því ekki tekist að setja inn tilkynningar um frávik á heimasíðuna. Við erum hins vegar búin að tilkynna öll frávik dagsins í gegnum Twitter síðu Strætó https://twitter.com/straetobs Við biðjumst velvirðingar á þessum tækniörðugleikum. Unnið er að lagfæringu eins fljótt og hægt er.

KLAPP, nýtt greiðslukerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður formlega innleitt 16. nóvember. En samhliða nýju greiðslukerfi þá verður gamla greiðslukerfið að einhverju leyti til staðar í eitt ár. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um það hvað gerist fyrir gamla greiðslukerfið frá og með 16. nóvember 2021. Strætó appið Þann 16. nóvember verður ekki lengur hægt að kaupa nýja miða eða mánaðarkort í Strætó appinu. Viðskiptavinum verður í staðinn vísað í KLAPP appið. Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort í Strætó appinu skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Viðskiptavinir sem eru með virka áskrift munu klára þriggja mánaða hringinn sinn. Eftir þriðja „fría mánuðinn“ verður ekki lengur hægt að kaupa nýja áskrift. Þeir sem eiga ónotaða miða í Strætó appinu þann 16. nóvember 2021 hafa frest í eitt ár til að nota þá. Til að byrja með verður núverandi Strætó app áfram notað til þess að leita að ferðum eða fylgjast með vögnum í rauntíma. Það verður einnig áfram hægt að kaupa landsbyggðarmiða í Strætó appinu. Pappírs farmiðar Í stað pappírs farmiðanna kemur ný vara sem heitir KLAPP tía. KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Pappaspjaldið er með kóða sem er skannaður um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hve margar ferðir eru eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu eða inn á straeto.is. Það verður áfram hægt að greiða með pappírs farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þangað til 1. mars 2022. Viðskiptavinir sem vilja skipta gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu hafa frest til 16. mars 2022 til að gera það. Prentuð Strætó kort Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Reiðufé Áfram verður hægt að greiða með reiðufé þar til annað verður tilkynnt. Vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Öryrkjar munu ekki geta greitt afsláttarfargjald með reiðufé. Þeir geta hins vegar fengið 70% afslátt í Klapp greiðslukerfinu.
Nýjar sóttvarnaraðgerðir taka gildi á morgun, laugardaginn 6. nóvember. Samkvæmt reglugerðinni verður grímuskylda í gildi ef viðskiptavinir eða starfsmenn hjá Strætó geta ekki tryggt eins metra fjarlægðarmörk um borð í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Börn 15 ára og yngri eru undanþegin grímunotkun. Andlitsgrímur skulu hylja nef og munn. Hugum að hreinlæti og eigin sóttvörnum. Viðskiptavinir skulu ekki ferðast með almenningssamgöngum ef þeir eru með flensueinkenni.
Mikið hvassviðri á Kjalarnesi hefur sett almenningssamgöngur úr skorðum á leið 57 sem ekur milli Reykjavíkur og Akureyrar. Flestar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness hafa fallið niður með leiðinni í dag og veðurspáin gerir ráð fyrir sambærilegu ástandi í kvöld. Ferðin sem lagði af stað kl. 16:20 frá Akureyri mun líklegast ekki komast lengra en á Akranes. 17:00 ferðin frá Reykjavík og til Akureyrar mun hefja akstur frá Akranesi kl. 17:34. Búist er við að allar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness falli niður í dag.
Eftirfarandi breytingar taka gildi hjá Strætó á landsbyggðinni á morgun 1. september Tímatöflur á leið 88 breytast á ferðum milli Grindavíkur og Fjölbrautaskóla Suðurnesja þannig þær passi betur við skólatíma nemenda. Breyting er gerð á tímatöflu seinni ferðanna á leið 52 þannig að áætlun vagnins passi betur við áætlun Herjólfs. Áhöfn Herjólfs ber ábyrgð á því að hafa samband Strætó til að kanna hvort farþegar séu á leið með Herjólfi. Ef svo er þá hinkrar Herjólfur eftir þeim. Leið 88. Grindavík → Reykjanesbær