
Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á 17. júní 2022.
- Höfuðborgarsvæðið
- Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.
- Landsbyggðin
- Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á 17. júní 2022.

Leiðakerfi Strætó tekur breytingum í desember en dregið verður úr þjónustu á nokkrum leiðum, fyrst og fremst þegar notkun er sem minnst. Breytingarnar haldast í hendur við mikla þjónustuaukningu á síðustu tveimur árum og eru hluti af því að almenningssamgöngur nýtist almenningi á höfuðborgarsvæðinu sem best þar sem þeirra er mest þörf. Breytingarnar taka gildi 1. desember næstkomandi og snúa að almennu leiðakerfi Strætó. Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar, þegar mun færri ferðast til vinnu og skóla. Þjónustuskerðingin byggir m.a. á mælingum á notkun Strætó þar sem notast var við handtalningar. Við útfærslu breytinganna var lögð áhersla á að þær hefðu sem minnst áhrif á ferðir farþega og reynt var að haga breytingum þannig að þar sem þjónusta er lögð niður sé hægt að komast leiðar sinnar með öðrum leiðum. Breytingar sem taka gildi 1. desember Leiðir 3, 5 og 12 - Tímatafla á annatíma breytist þar sem tímabil með 10 mínútna tíðni verður stytt Leið 7 - Morgunferð kl. 6:33 frá Tungubökkum fellur niður Leið 15 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á milli annatíma Leið 17 - Akstur á laugardögum fellur niður Leið 19 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma Leið 36 - Akstur um helgar fellur niður Kvöldferðir sem munu falla niður: Virkir dagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:52 frá Mjódd; 23:56 frá HÍ; 23:26 frá HÍ 23:22 frá Mjódd; 22:56 frá HÍ 3 23:51 frá Mjódd; 23:54 frá Granda 23:21 frá Mjódd; 23:24 frá Granda 4 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 11 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi 12 23:50 frá Skerjafirði; 23:37 frá Ártúni 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni 15 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 17 19:43 frá Skúlagötu 19:13 frá Skúlagötu; 19:21 frá Mjódd 18 23:39 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu 23:09 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu 24 23:19 frá Spönginni 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Laugardagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:52 frá Mjódd; 23:43 frá HÍ; 23:24 frá HÍ 23:22 frá Mjódd; 22:54 frá HÍ 3 23:51 frá Mjódd; 23:53 frá Granda 23:21 frá Mjódd; 23:23 frá Granda 4 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 11 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi 15 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 18 23:36 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu 23:06 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu 24 23:19 frá Spönginni 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Sunnudagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd; 23:24 frá HÍ 22:22 frá Mjódd; 22:24 frá HÍ 3 23:23 frá Granda; 23:21 frá Mjódd 22:53 frá Granda; 22:51 frá Mjódd 4 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 22:51 frá Mjódd; 22:49 frá Skúlagötu 5 23:38 frá HR 23:08 frá HR; 23:18 frá Norðlingaholti 11 23:24 frá Eiðistorgi; 22:54 frá Eiðistorgi; 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd 22:24 frá Eiðistorgi; 22:22 frá Mjódd 12 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni 22:50 frá Skerjafirði; 22:37 frá Ártúni 13 23:38 frá Öludgranda; 23:10 frá Sléttuvegi 22:40 frá Sléttuvegi; 23:08 frá Öldugranda (stutt ferð) 15 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 22:44 frá Reykjavegi; 22:31 frá Flyðrugranda 18 23:13 Frá Skúlagötu; 22:43 frá Skúlagötu; 23:06 frá Spönginni; 22:36 frá Spönginni 22:13 frá Skúlagötu; 22:06 frá Spönginni 24 23:19 frá Spönginni; 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði; 22:33 frá Ásgarði 22:19 frá Spönginni; 22:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Hægt er að skoða breytingarnar undir hverri akstursleið með því að velja tímabil, einnig er hægt að sjá tímatöfluna fyrir nýtt tímabil. Til að sjá tímabil: Til að sjá tímatöflu: Breytt þjónusta Strætó yfir jól og áramót Breytingarnar munu gilda frá 21. desember til og með 5. janúar. Leiðir 3, 5 og 12 - Tíðni ferða breytist úr 10 í 15 mínútur á annatíma Leið 8 – Tíðni verður 30 mínútur yfir allan daginn Leiðir 21, 24 og 31 – Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma

Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði 13. nóvember með pompi og prakt en þar geta gestir og gangandi komist í jólaskapið allar helgar fram að jólum. Leiðir 1, 19, 21 og 55 stoppa allar við biðstöðina Fjörður sem er í mínútu göngufjarlægð frá Jólaþorpinu. Sömu leiðir stoppa einnig við bílastæði í nágrenni miðbæjarins og er þá hægt að taka vagn til og frá bílnum og leið 1 stoppar einnig fyrir framan Hellisgerði. Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Snertilausum greiðslum Klappinu appi í síma Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu

Í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands hefur sérstakur jólasveinavagn hafið akstur um götur höfuðborgarsvæðisins. Í tilefni af fyrstu ferð jólasveinavagnsins var börnum frá leikskólanum Austurborg boðið í jólaferð í Þjóðminjasafnið. Þar fengu þau jólaleiðsögn um safnið og hittu meðal annars Stekkjastaur og systur hans, jólaskelluna Leppatusku, sem höfðu gert sér snemmbúna ferð til byggða. Að heimsókninni lokinni héldu Stekkjastaur og Leppatuska áfram för með jólasveinavagninum að Barnaspítala Hringsins þar sem þau skemmtu börnum. Jólasveinar í Þjóðminjasafninu Jólasveinarnir hafa heimsótt Þjóðminjasafnið og skemmt börnum þar frá árinu 1988. Í ár verður engin undantekning en dagana 12.–24. desember mæta sveinarnir í safnið kl. 11 þann dag sem þeir koma til byggða. Þar syngja þeir jólalög með gestum og um helgar bætast jólaskellurnar í hópinn. Allir eru velkomnir og er tilvalið að nýta tækifærið og skella sér í safnið með Strætó en jólavagninn mun aka leið 1 yfir aðventuna og er sérstaklega merktur á kortinu á vefnum og í appinu.