Fréttir

Breytingar á leiðakerfi Strætó
Leiðakerfi Strætó tekur breytingum í desember en dregið verður úr þjónustu á nokkrum leiðum, fyrst og fremst þegar notkun er sem minnst. Breytingarnar haldast í hendur við mikla þjónustuaukningu á síðustu tveimur árum og eru hluti af því að almenningssamgöngur nýtist almenningi á höfuðborgarsvæðinu sem best þar sem þeirra er mest þörf. Breytingarnar taka gildi 1. desember næstkomandi og snúa að almennu leiðakerfi Strætó. Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar, þegar mun færri ferðast til vinnu og skóla. Þjónustuskerðingin byggir m.a. á mælingum á notkun Strætó þar sem notast var við handtalningar. Við útfærslu breytinganna var lögð áhersla á að þær hefðu sem minnst áhrif á ferðir farþega og reynt var að haga breytingum þannig að þar sem þjónusta er lögð niður sé hægt að komast leiðar sinnar með öðrum leiðum. Breytingar sem taka gildi 1. desember Leiðir 3, 5 og 12 - Tímatafla á annatíma breytist þar sem tímabil með 10 mínútna tíðni verður stytt Leið 7 - Morgunferð kl. 6:33 frá Tungubökkum fellur niður Leið 15 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á milli annatíma Leið 17 - Akstur á laugardögum fellur niður Leið 19 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma Leið 36 - Akstur um helgar fellur niður Kvöldferðir sem munu falla niður: Virkir dagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:52 frá Mjódd; 23:56 frá HÍ; 23:26 frá HÍ 23:22 frá Mjódd; 22:56 frá HÍ 3 23:51 frá Mjódd; 23:54 frá Granda 23:21 frá Mjódd; 23:24 frá Granda 4 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 11 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi 12 23:50 frá Skerjafirði; 23:37 frá Ártúni 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni 15 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 17 19:43 frá Skúlagötu 19:13 frá Skúlagötu; 19:21 frá Mjódd 18 23:39 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu 23:09 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu 24 23:19 frá Spönginni 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Laugardagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:52 frá Mjódd; 23:43 frá HÍ; 23:24 frá HÍ 23:22 frá Mjódd; 22:54 frá HÍ 3 23:51 frá Mjódd; 23:53 frá Granda 23:21 frá Mjódd; 23:23 frá Granda 4 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 11 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi 15 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 18 23:36 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu 23:06 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu 24 23:19 frá Spönginni 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Sunnudagar Leið Ferðir sem falla niður Síðustu ferðir eftir breytingu 2 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd; 23:24 frá HÍ 22:22 frá Mjódd; 22:24 frá HÍ 3 23:23 frá Granda; 23:21 frá Mjódd 22:53 frá Granda; 22:51 frá Mjódd 4 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu 22:51 frá Mjódd; 22:49 frá Skúlagötu 5 23:38 frá HR 23:08 frá HR; 23:18 frá Norðlingaholti 11 23:24 frá Eiðistorgi; 22:54 frá Eiðistorgi; 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd 22:24 frá Eiðistorgi; 22:22 frá Mjódd 12 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni 22:50 frá Skerjafirði; 22:37 frá Ártúni 13 23:38 frá Öludgranda; 23:10 frá Sléttuvegi 22:40 frá Sléttuvegi; 23:08 frá Öldugranda (stutt ferð) 15 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda 22:44 frá Reykjavegi; 22:31 frá Flyðrugranda 18 23:13 Frá Skúlagötu; 22:43 frá Skúlagötu; 23:06 frá Spönginni; 22:36 frá Spönginni 22:13 frá Skúlagötu; 22:06 frá Spönginni 24 23:19 frá Spönginni; 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði; 22:33 frá Ásgarði 22:19 frá Spönginni; 22:03 frá Ásgarði 35 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg 22:07 frá Hamraborg Hægt er að skoða breytingarnar undir hverri akstursleið með því að velja tímabil, einnig er hægt að sjá tímatöfluna fyrir nýtt tímabil. Til að sjá tímabil: Til að sjá tímatöflu: Breytt þjónusta Strætó yfir jól og áramót Breytingarnar munu gilda frá 21. desember til og með 5. janúar. Leiðir 3, 5 og 12 - Tíðni ferða breytist úr 10 í 15 mínútur á annatíma Leið 8 – Tíðni verður 30 mínútur yfir allan daginn Leiðir 21, 24 og 31 – Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma

Tökum Strætó í Jólaþorpið
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði 13. nóvember með pompi og prakt en þar geta gestir og gangandi komist í jólaskapið allar helgar fram að jólum. Leiðir 1, 19, 21 og 55 stoppa allar við biðstöðina Fjörður sem er í mínútu göngufjarlægð frá Jólaþorpinu. Sömu leiðir stoppa einnig við bílastæði í nágrenni miðbæjarins og er þá hægt að taka vagn til og frá bílnum og leið 1 stoppar einnig fyrir framan Hellisgerði. Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Snertilausum greiðslum Klappinu appi í síma Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu

Jólasveinavagninn er kominn á ferð
Í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands hefur sérstakur jólasveinavagn hafið akstur um götur höfuðborgarsvæðisins. Í tilefni af fyrstu ferð jólasveinavagnsins var börnum frá leikskólanum Austurborg boðið í jólaferð í Þjóðminjasafnið. Þar fengu þau jólaleiðsögn um safnið og hittu meðal annars Stekkjastaur og systur hans, jólaskelluna Leppatusku, sem höfðu gert sér snemmbúna ferð til byggða. Að heimsókninni lokinni héldu Stekkjastaur og Leppatuska áfram för með jólasveinavagninum að Barnaspítala Hringsins þar sem þau skemmtu börnum. Jólasveinar í Þjóðminjasafninu Jólasveinarnir hafa heimsótt Þjóðminjasafnið og skemmt börnum þar frá árinu 1988. Í ár verður engin undantekning en dagana 12.–24. desember mæta sveinarnir í safnið kl. 11 þann dag sem þeir koma til byggða. Þar syngja þeir jólalög með gestum og um helgar bætast jólaskellurnar í hópinn. Allir eru velkomnir og er tilvalið að nýta tækifærið og skella sér í safnið með Strætó en jólavagninn mun aka leið 1 yfir aðventuna og er sérstaklega merktur á kortinu á vefnum og í appinu.

Nýr vefur Strætó í prófun
Í dag opnum við prófunarútgáfu (e. beta) af nýjum vef Strætó á beta.straeto.is . Vefurinn er endurhannaður frá grunni og leysir núverandi vef af hólmi á næstunni. Markmiðið er að auðvelda farþegum að skipuleggja ferðir og veita betri og skýrari upplýsingar, jafnt í síma sem tölvu. Í kjölfar útgáfunnar verður ferðaskipuleggjarinn í Klapp-appinu einnig uppfærður. Vefurinn er hannaður og forritaður af Studio Atla & Samma í nánu samstarfi við starfsfólk ASHB. Hann er enn í vinnslu og við tökum fagnandi á móti ábendingum og hugmyndum í gegnum formið á nýja vefnum . Helstu nýjungar eru meðal annars: Endurbættur ferðaskipuleggjari Ferðaskipuleggjarinn hefur verið uppfærður og skilar nú betri tillögum. Leitin er líka orðin betri, svo auðveldara er að finna heimilisföng, staði og stoppistöðvar. Ferðin er sýnd skref fyrir skref með gönguleiðum, fargjaldi og veðri. Einnig er hægt að deila henni með öðrum. Bætt kort með leiðanetinu öllu Kortið sýnir nú allt leiðanet Strætó á landinu og er bæði nákvæmara og skýrara en áður. Með leiðunum á kortinu er mun auðveldara að fylgjast með vögnum í rauntíma og rata um leiðanetið. Einnig er hægt að smella hvar sem er á kortinu og hefja leit þaðan, auk þess sem þar má sjá veður og rafskútur. Betri rauntímaupplýsingar Upplýsingar um staðsetningu vagna berast nú hraðar og eru nákvæmari en áður. Í nýja viðmótinu er hægt að velja vagn og fylgja honum eftir, sjá hvar hann er staddur og hvaða leið hann ekur. Auðveldara að finna stoppistöðvar Hver stoppistöð hefur nú sína eigin síðu með næstu brottförum í rauntíma, og hægt er að vista hana í „Mín stopp“ til að finna hana fljótt aftur. Leyfir þú staðsetningu sýnir vefurinn líka stoppistöðvar í nágrenninu, svo fljótlegt er að finna næsta stopp og sjá hvenær næsti vagn kemur. Hjáleiðir og truflanir Hjáleiðir og tímabundnar stoppistöðvar eru nú sýndar á kortum og í ferðaupplýsingum. Tilkynningar um breytingar á þjónustu birtast á forsíðu. Nýtt spjallmenni Sérþjálfað spjallmenni er opið allan sólarhringinn á íslensku og ensku. Það aðstoðar meðal annars við ferðaskipulag og óskilamuni og svarar öðrum spurningum um þjónustuna. Á opnunartíma er hægt að fá samband við starfsfólk þjónustuvers. Viðmót og aðgengi Vefurinn er hannaður með ólík tæki í huga og hægt er að velja dökka stillingu. Aðgengi hefur verið haft að leiðarljósi frá upphafi. Hann er prófaður með skjálesurum og með hliðsjón af WCAG 2.2 AA-staðlinum. Strætó var í góðu samráði við Blindrafélagið og notendaprófanir voru í höndum Sjá . Á bak við tjöldin fær starfsfólk einnig ný kerfi til að halda utan um tímatöflur, leiðanet, óskilamuni og þjónustuver. Þau eiga að skila sér í réttari og fljótari upplýsingum til farþega.

Breytt áætlun á leið 94
Mánudaginn 26. október tekur gildi breytt áætlun á leið 94 en áætlun leiðarinnar breytist í samræmi við breytta flugáætlun. Ný tímatafla á leið 94 – 26. október 2026

Strætó bs. fær viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Strætó bs. hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er fjórða árið í röð sem Strætó bs. fær þessa viðurkenningu. Hjá Strætó bs. er lögð áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika enda er það mikilvægur þáttur í að skapa góðan vinnustað. Fjölbreytt stjórnendateymi stuðla að betri ákvarðanatöku og árangri, bæði fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið allt. Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó bs., tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

Betri tengingar og fleiri viðkomustaðir á Háskólaleið Strætó
Strætó eykur þjónustu sína á næstu dögum með talsverðum breytingum á leið 8, Háskólaleiðinni, með nýjum viðkomustöðum og fleiri skiptimöguleikum. Breytingin tekur gildi 15. október nk. en með henni verða háskólarnir í Vatnsmýrinni og stórir vinnustaðir á svæðinu betur tengdir hverjir öðrum og miðborginni en áður. Leið 8 hefur verið lengd og mun framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar líkt og áður. Breytingin auðveldar m.a. nemendum og starfsfólki að skipta milli vagna og fjölgar skiptimöguleikum verulega auk þess sem hún bætir til samgöngur milli háskólanna tveggja og stórra vinnustaða sem finna má á svæðinu. Leið 8 gengur á 10 mínútna fresti á morgnanna og síðdegis á virkum dögum þegar umferð er mest. Viðbótin er um leið skref í átt að breyttu leiðarkerfi vegna innviðaframkvæmda við Fossvogsbrú og á Nauthólsvegi. Þegar Fossvogsbrú verður tekin í gagnið árið 2028 er fyrirhugað að leið 8 aðlagi sig að fyrirhugaðri borgarlínuleið og aki um Skúlagötu að háskólunum tveimur, eftir Fossvogsbrú og að Hamraborg áður en hún fer um Kópavog. Þessar breytingar eru liður í stöðugri þróun almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins sem miða að því bæta þjónustu við farþega Strætó og taka markviss skref í átt að traustum og áreiðanlegum almenningssamgöngum.

Bætt aðkoma og aðstaða fyrir landsbyggðarstrætó á Keflavíkurflugvelli
Mikilvægar umbætur hafa verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir landsbyggðarstrætó sem ekur til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni. Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum, merkingar bættar og gönguleiðin að vögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð. Breytingarnar taka til leiðar 55 sem ekur milli BSÍ og/eða Fjarðar til Keflavíkurflugvallar og leiðar 89 sem ekur milli Reykjanesbæjar/Suðurnesjabæjar og Keflavíkurflugvallar. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi fimmtudaginn 1. október nk. Leið 55 – helstu breytingar Ný stoppistöð fyrir brottfararfarþega (KEF Brottfarir). Ný stoppistöð tekin í notkun brottfararmegin við flugstöðina fyrir farþega á leið í flug. Leið 55 ekur alla leið inn að flugstöðinni og hleypir út farþegum á sama stað og flugrútur. Ekki verður hægt að stíga um borð í vagna á þessari stöð. Ný stoppistöð fyrir komufarþega (KEF Komur). Ný stöð tekin í notkun komumegin á sérmerktu stæði. Byggt hefur verið yfir gönguleiðina frá flugstöðinni til að skýla farþegum sem eru að koma úr flugi fyrir veðri og vindum. Bættar merkingar. Allar merkingar inni í flugstöðinni og utan dyra á stoppistöðvum og gönguleiðum hafa verið bættar og endurgerðar. Auðveldara að flytja hjól. Hægt er að taka með reiðhjól um borð á nokkrum algengum brottfarartímum hjá leið 55 (fimm brottfarartímar af tólf). Greiðslur. Hægt er að greiða bæði með reiðufé eða snertilausum greiðslukortum. Sérstök kjör. Hægt er að kaupa áskriftarkort í landsbyggðarstrætó. Að öðru leyti verða farþegar ekki varir við breytingar á leið 55 og allar tímasetningar á akstursleiðinni eru óbreyttar. Kjóavellir nýtt heiti á stoppistöð fyrir leið 89 Akstursleið og tímatafla leiðar 89, sem gengur frá Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ til flugvallarins er óbreytt. Stoppistöðin sem leið 89 stoppar við fær nýtt nafn, Kjóavellir (stöðin hét áður KEF-Airport). Stæði fyrir leið 89 verður áfram á sama stað og áður en til stendur að bæta þá aðstöðu.

Breytt áætlun á leiðum 72, 73 og 94
Þann 1. október tekur gildi breytt áætlun á leiðum 72, 73 og 94. Leið 72 Tímataflan hefur verið lagfærð og tímasetningar á stoppistöðum breytast á leiðinni. Upphafstímar frá Selfossi haldast óbreyttir. Ný tímatafla á leið 72 - 1. október 2026 Leið 73 Ferð kl. 16:02 verður aðeins farin mánudaga til fimmtudaga en ekki á föstudögum. Á föstudögum færist ferð frá N1 Selfossi úr kl. 11:49 í kl. 13:50. Á sunnudögum seinkar ferð um 3 mínútur til að samræma hana betur við aðrar leiðir. Brottför frá N1 Selfossi verður kl. 16:26. Ferð á laugardögum fellur niður. Ný tímatafla á leið 73 - 1. október 2026 Leið 94 Áætlun leiðarinnar breytist í samræmi við breytta flugáætlun. Jafnframt mun vagninn einungis aka á milli Hafnar og Djúpavogs og hætta að aka til Breiðdalsvíkur. Ný tímatafla á leið 94 - 1. október 2026

Bíllausi dagurinn 2026 – frítt í Strætó 22. september
Þriðjudaginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu í tilefni bíllausa dagsins. Með bíllausa deginum ljúkum við Evrópskri samgönguviku sem hófst þann 16. september síðastliðinn. Þema vikunnar í ár var Samgöngur fyrir öll – þvert á kynslóðir. Bíllausi dagurinn er frábært tækifæri til að leggja bílnum til hliðar og prófa aðra vistvænni ferðamáta. Hvort sem það er að hoppa um borð í Strætó gjaldfrjálst, hjóla, ganga eða jafnvel skokka í vinnu og skóla. Við hvetjum fólk til að taka þátt og nýta sér fjölbreytta ferðamáta sem eru bæði góðir fyrir okkur og umhverfið.

NaviLens-kóðar Strætó verðlaunaðir á Samgönguráðstefnunni
NaviLens verkefni Strætó, sem auðveldar blindum, sjónskertum og öðrum að nota almenningssamgöngur með sérhönnuðum kóðum við biðskýli, hlutu ITS verðlaunin 2026 á Samgönguráðstefnunni sem haldin var í gær, 16. september. Í umsögn dómnefndar kom fram að lausnin nýti snjalla tækni og rauntímaupplýsingar til að efla sjálfstæði blindra og sjónskertra og gera almenningssamgöngur aðgengilegri fyrir alla. Með notkun NaviLens kóða geta blindir og sjónskertir farþegar sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó. Í gegnum NaviLens smáforritið eru upplýsingarnar lesnar upphátt og þannig geta notendur nálgast rauntímaupplýsingar um ferðir án utanaðkomandi aðstoðar. Lausnin nýtist þó ekki aðeins blindum og sjónskertum. Hún getur einnig auðveldað sjáandi farþegum, ferðamönnum, fólki sem ekki talar íslensku og fólki með lestrarerfiðleika að nálgast upplýsingar. Verkefnið sýnir þannig hvernig góðar aðgengislausnir geta gagnast fjölbreyttum hópi farþega og stuðlað að jafnara aðgengi að almenningssamgöngum. Samstarf um betra aðgengi Verkefnið er samstarfsverkefni Blindrafélagsins og Strætó. Strætó leiðir verkefnið og eru NaviLens-kóðarnir í eigu og á ábyrgð Strætó. Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið frá upphafi, bæði við skipulag og framkvæmd, og starfsfólk borgarinnar hefur séð um uppsetningu kóða á skýli og staura í borginni. Síminn/Billboard hefur jafnframt lagt verkefninu lið með því að setja upp NaviLens-kóða á öll skýli sem eru á þeirra vegum. Verðlaunin eru því einnig viðurkenning á mikilvægu samstarfi þessara aðila við að gera upplýsingar og almenningssamgöngur aðgengilegri fyrir alla.

Samgönguvika - vertu með!
Á morgun 16. september hefst Evrópsk samgönguvika en hún stendur til 22. september. Vikan er haldin til að hvetja fólk til að nota fjölbreytta ferðamáta sem eru í senn vistvænir, hagkvæmir og heilsusamlegir. Þema vikunnar í ár er Samgöngur fyrir öll – þvert á kynslóðir. Á höfuðborgarsvæðinu hefst vikan á Samgönguráðstefnu á vegum ITS-Ísland og lýkur á bíllausa deginum þar sem frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Fólk er hvatt til að nýta sér fjölbreytta og sjálfbæra samgöngumáta í vikunni en fjölbreytta viðburði í tilefni vikunnar má kynna sér á Facebook síðu samgönguviku.

Ný leið á Vestfjörðum bætist við landsbyggðarstrætó
Leið 66 bætist nú við leiðakerfi landsbyggðarinnar en leiðin ekur um Patreksfjörð, Tálknafjörð, Bíldudal og að Bíldudalsflugvelli. Leiðin hefur akstur 1. september. Leið 66 ekur í takt við gildandi flugáætlun Norlandair á Bíldudal. Leiðin ekur ekki fyrir aukaflugferðir Norlandair sem er utan útgefinnar flugáætlunar. Vagninn fer skv. tímatöflu en með fyrirvara um breytta flugáætlun Norlandair, t.a.m. vegna færðar yfir vetrartímann. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með flugáætlun ef færð og veður spillist. Leið 66

Vetraráætlun á leið 56
Breyttur akstur verður á leið 56 frá með 1. september en þá hættir leiðin akstri á þriðjudögum og fimmtudögum. Vetraráætlun mun svo taka við þann 6. september og þá breytast aksturstímar einnig: Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum breytist brottför frá Akureyrarflugvelli úr 14:53 í 16:35. Á sunnudögum breytist brottför úr 8:30 í 12:20 frá Egilsstöðum og úr 16:35 í 16:50 frá Akureyrarflugvelli. Leið 56

Vetraráætlun á leið 59 hefst 1. september
Vetraráætlun hefst á leið 59 Borgarnes – Hólmavík þriðjudaginn 1. september. Leiðin mun áfram aka á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Aksturstímar munu þó breytast á miðvikudögum og föstudögum auk þess sem leiðin mun einungis aka á milli Borgarness og Búðardals á miðvikudögum. Leið 59

Ný áskriftarkort landsbyggðarstrætó komin í sölu
Ný áskriftarkort fyrir landsbyggðarstrætó, Byggðakort, og nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi eru komin í sölu. Hægt er að versla kortin í vefverslun Strætó. Byggðakort – ný áskriftarkort Byggðakortin eru ný áskriftarkort fyrir landsbyggðastrætó. Þau gilda á ákveðnum akstursleiðum milli þéttbýliskjarna innan hvers landshluta, án viðkomu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða hagkvæmari valkost fyrir þau sem ferðast reglulega á þessum leiðum. Þær akstursleiðir sem urðu fyrir valinu fyrir Byggðakortin eru þær sem mest ákall hefur verið um, en komi upp óskir um fleiri akstursleiðir mun Vegagerðin taka það til skoðunar. Eftirfarandi akstursleiðir eru í boði fyrir Byggðakortin: Suðurland Selfoss – Hveragerði Selfoss – Þorlákshöfn Selfoss – Hella – Hvolsvöllur Suðurnes Reykjanesbær – Sandgerði – Garður Reykjanesbær – Vogar Vesturland Borgarnes – Akranes Borgarnes – Dalir Sömu aldursflokkar og afsláttarkjör gilda fyrir Byggðakort og Landshlutakort. Landshlutakortin, sem hafa verið í boði frá árinu 2022, verða áfram í sölu á óbreyttu verði og með óbreyttum skilmálum. Nemakort – nýtt fyrirkomulag Nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi er einnig komið í sölu. Nemendur geta nú valið þau kort sem henta þeim best, annaðhvort Landshlutakort eða Byggðakort, og fá 50% afslátt af þeim kortum. Nú er hægt að velja á milli 1 mánaða, 3 mánaða og 12 mánaða korta. Áður var aðeins hægt að kaupa kort fyrir ákveðinn landshluta sem gilti í 6 mánuði frá kaupum. Nýja fyrirkomulagið veitir því nemendum meiri sveigjanleika og gerir þeim kleift að velja áskrift út frá þeim leiðum sem þeir nota mest.

Vetraráætlun hefst á fimm landsbyggðarleiðum 24. ágúst
Mánudaginn 24. ágúst hefst vetraráætlun á fimm landsbyggðarleiðum, leiðum 50, 51, 52, 53 og 71. Á leiðum 50, 51 og 71 verður ferðum fækkað utan álagstíma en Vegagerðin horfði til nýtingar og farþegafjölda við mat á fækkun ferða á þessum þremur leiðum. Ekki verða neinar breytingar á ferðum tengdar framhaldsskólum, morgunferðum tengdar hefðbundnum vinnudegi og ferðaframboði síðdegis þegar hefðbundnum vinnudegi lýkur. Leið 50 Ferðir sem falla niður Ferð Tími Borgarnes - Mjódd 18:50 Mjódd - Borgarnes 20:54 Leið 50 Leið 51 Ferðir sem falla niður Ferð Tími Selfoss - Mjódd 10:30 Selfoss - Mjódd 18:10 Mjódd - Selfoss 10:20 Mjódd - Selfoss 19:35 Leið 51 Leið 52 Leið 52 Leið 53 Leið 53 Leið 71 Ferðir sem falla niður Ferð Tími Þorlákshöfn - Hveragerði 20:50 Hveragerði - Þorlákshöfn 21:25 Leið 71

Þjónusta Strætó á Menningarnótt 2026
Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu. Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær. Lokanir og fyrirkomulag Skrollaðu til hægri til að sjá fleiri flipa með upplýsingum. Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00. Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð . Vegna götulokana munu vagnar þurfa að aka hjáleiðir og geta akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða . Hægt er að sjá sjá tíðni ferða í l eiðavísinum og í tímatöflum . Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru. Aukin tíðni yfir daginn Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Leið 1 mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10 mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leið 6 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15 munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18 munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Hægt er að greiða í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Snertilausri greiðslu Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu Nánari upplýsingar á Klappid.is Leiðakerfi rofið kl. 21:30 Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut. Það kostar ekkert í þessar ferðir. Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu: Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 23:20. Brottfaratímar á síðustu ferð frá Kl. 21:35 frá Skúlagötu Kl. 21:34 frá Skarðshlíð. Kl. 21:24 frá HÍ Kl. 21:16 frá Mjódd Kl. 21:25 frá Granda Kl. 21:21 frá Mjódd Kl. 21:19 frá Skúlagötu Kl. 21:21 frá Mjódd Kl. 21:23 frá HR Kl. 21:33 frá Norðlingaholti Kl. 21:33 frá HÍ Kl. 21:33 frá Egilshöll Kl. 21:34 frá Tungubökkum Kl. 21:35 frá Egilshöll Kl. 21:20 frá Mjódd Kl. 21:22 frá Eiðistorgi Kl. 21:20 frá Skerjafirði Kl. 21:37 frá Ártúni Kl. 21:10 frá Sléttuvegi Kl. 21:38 frá Öldugranda Kl. 21:29 frá Granda Kl. 21:30 frá Verzló Kl. 21:15 frá Reykjavegi Kl. 21:30 frá Flyðrugranda Kl. 21:36 frá Spöng Kl. 21:43 frá Skúlagötu Kl. 21:18 frá Kaplakrika Kl. 21:26 frá Ásvallalaug Kl. 21:11 frá Álfholti Kl. 21:22 frá Mjódd Kl. 21:19 frá Spöng Kl. 21:03 frá Ásgarði Kl. 21:07 frá Hamraborg Kl. 20:07 frá Hamraborg Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29. Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa. Almennt fargjald gildir. Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar en einungis ganga í eina átt. Aðeins verður hægt að taka vagninn frá miðbænum og út í hverfi. Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50. Leið 101 Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð . Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti. Skutluþjónusta „Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:00 – 23:15. Frá kl. 7:00 -12:00 mun skutlan einnig stoppa á Njarðargötu. Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll. Það kostar ekkert í skutluþjónustuna. Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvunum sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum. Miðborgin tæmd Um 22:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni. Það kostar ekkert í tæminguna. Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 22:00 – 23:00. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir. Leiðir Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt. * Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 23:30. Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi Leiðarkort Ferðir til Selfoss, Keflavíkur og Akraness Áætlunarferðir á leiðum 50, 51 og 55 munu aka frá Skúlagötu kl. 22:40. Almennt fargjald gildir. Hægt er að greiða í landsbyggðarvögnum með debit- eða kreditkorti um borð í vagninum, reiðufé og landsbyggðarkortum. Athugið breytta áætlun þennan dag á leiðum 50, 51 og 55 Leið 50 - Akranes Venjuleg laugardagsáætlun fram eftir degi. Ferð frá Akranesi til Reykjavíkur kl. 21:40 verður flýtt til kl. 20:26. Ferð frá Mjódd kl. 22:50 færist til kl. 22:52. Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata-Mjódd og hefðbundin leið á Akranes) áætlaður tími á endastöð 23:41. Leið 51 - Selfoss Venjulega laugardagsáætlun fram eftir degi. Ferðir 20:25 og 23:15 frá Mjódd og 22:10 frá Selfossi falla niður. Engin tenging verður á Selfossi við ferð leiðar 53, kl. 21:00 frá Landeyjahöfn. Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata – Mjódd, og svo hefðbundin leið á Selfoss) áætlaður tími á endastöð 23:43. Leið 55 - Keflavík Venjuleg laugardagsáætlun fram eftir degi. Ferðir 21:50 og 23:50 frá Firði og ferðir 22:54 frá Kef – Airport falla niður. Ferð 20:54 frá Kef-Airport verður flýtt til 20:35. Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata – Fjörður og svo hefðbundin leið að Keflavík – Airport) áætlaður tími á endastöð 23:43. Næturstrætó Klukkan 01:20 aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó. Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum en byrja á Skúlagötu vegna götulokana. Almennt fargjald gildir. Stakt fargjald í næturstrætó er 690 kr. – Afsláttarfargjöld gilda ekki Hægt er að greiða snertilaust með greiðslukorti/síma í næturstrætó Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó Næturstrætó frá Skúlagötu alla helgina Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu alla helgina, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina) og sunnudags (laugardagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið Brottfarir næturvagna á Menningarnótt 01:20 – 02:25 – 03:45 01:30 – 02:35 – 03:40 01:25 – 02:30 – 03:35 01:29 – 02:29 – 03:29 01:30 – 02:35 – 03:40

Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar
Strætó hefur aukið þjónustu sína á mest notuðu leið höfuðborgarsvæðisins. Aukningunni er ætlað að koma til móts við verulega fjölgun farþega sem árlega fylgir haustinu þegar skólar byrja og flestir hafa snúið til vinnu eftir sumarfrí. Alls verður þremur aukavögnum bætt við á leið 1 frá Hafnarfirði á morgnana á virkum dögum og verða þá alls fimm aukavagnar á leiðinni þar sem tveir hafa þegar verið í akstri. Leiðin er sú mest notaða á höfuðborgarsvæðinu allt árið um kring en reynslan sýnir að farþegum fjölgar verulega á leiðinni á haustin, sem jafnframt þýðir að vagnar eru oft þétt setnir og jafnvel fullir. Með fleiri vögnum minnka verulega líkur á að vagnar yfirfyllist en tíðni ferða verður áfram sú sama, á tíu mínútna fresti á annatíma.

Breytt áætlun á leiðum 56, 78 og 79
Breytt áætlun á leiðum 78, 79 og 56 tekur gildi mánudaginn 17. ágúst. Helstu breytingar eru: Brottför á leið 56 frá Akureyri á virkum dögum verður flýtt vegna framkvæmda á brú á Jökulsá á Fjöllum. Búast má við töfum á leiðinni vegna framkvæmdanna frá 17. ágúst til og með 31. ágúst. Áætlað er að vetraráætlun hefjist á leiðinni í byrjun september. Vagninn á leið 56 mun aka frá Akureyrarflugvelli kl. 14:53 í stað kl. 16:35 . Leið 79 ekur fyrst inn á Akureyrarflugvöll í morgunferðum á virkum dögum, svo fer vagninn að VMA, MA og HA. Einnig verður Hof á Akureyri upphafs og endastaður leiðarinnar á í stað flugvallarins. Koma leiðar 79 á Húsavík í annarri ferð sinni á virkum dögum er seinkað til að passa við brottför frá Akureyri. Fyrri ferð leiðar 79 er flýtt á sunnudögum sem og sunnudagsferð á leið 78. Leið 56 Virkir dagar Sunnudagar Frá Egilsstöðum að Akureyri Egilsstaðir - Tjaldsvæðið 08:30 08:30 Fellabær - Olís 08:34 08:34 Skjöldólfsstaðir 09:06 09:06 Vopnafjörður - Vegamót 09:26 09:26 Jökulsá á Fjöllum 10:02 10:02 Mývatn - Reykjahlíð 10:36 10:36 Skútustaðir 10:51 10:51 Laugar 11:06 11:06 Fosshóll - Goðafoss 11:16 11:16 Fnjóskárbrú 11:31 11:31 Akureyri - Hof 11:51 11:51 Akureyrarflugvöllur 11:58 11:58 Frá Akureyri til Egilsstaða Akureyrarflugvöllur 14:53 16:35 Akureyri - Hof 15:00 16:42 Fnjóskárbrú 15:15 16:57 Fosshóll - Goðafoss 15:30 17:12 Laugar 15:40 17:22 Skútustaðir 15:55 17:37 Mývatn - Reykjahlíð 16:15 17:57 Jökulsá á Fjöllum 16:45 18:27 Vopnafjörður - Vegamót 17:21 19:03 Skjöldólfsstaðir 17:41 19:23 Fellabær - Olís 18:13 19:55 Egilsstaðir - Tjaldsvæðið 18:22 20:04 Leið 78 Virkir dagar Sunnudagar Frá Siglufirði til Akureyrar Siglufjörður - Olís 6:30 - 10:30 - 14:45 14:45 Siglufjörður - Snorragata suður 6:32 - 10:32 - 14:47 14:47 Ólafsfjörður - Aðalgata 6:47 - 10:47 - 15:02 15:02 Ólafsfjörður - Múlavegur 6:48 - 10:48 - 15:03 15:03 Dalvík 7:07 - 11:07 - 15:22 15:22 Árskógssandur - Orkan 7:19 - 11:19 - 15:34 15:34 Dalsbraut / Norðurslóð 7:48 VMA 7:52 Þórunnarstræti / MA 7:54 Akureyri - Hof 7:56 - 11:49 - 16:04 16:04 Akureyrarflugvöllur 8:03 - 11:56 - 16:11 16:11 Frá Akureyri til Egilsstaða Akureyrarflugvöllur 8:15 - 12:15 - 16:35 16:35 Akureyri - Hof 8:22 - 12:22 - 16:42 16:42 Árskógssandur - Orkan 8:52 - 12:52 - 17:12 17:12 Dalvík 9:04 - 13:04 - 17:24 17:24 Ólafsfjörður - Múlavegur 9:23 - 13:23 - 17:43 17:43 Ólafsfjörður - Aðalgata 9:24 - 13:24 - 17:44 17:44 Siglufjörður - Snorragata suður 9:38 - 13:38 - 17:58 17:58 Siglufjörður - Olís 9:38 - 13:38 - 17:58 17:58 Leið 79 Virkir dagar Sunnudagar Frá Húsavík til Akureyrar Húsavík 6:45 - 15:00 - 17:50 10:30 - 17:40 Aðaldalsvegur 7:02 - 15:17 - 18:07 10:47 - 17:57 Laugar - Einarsstaðaskáli 7:13 - 15:28 - 18:18 10:57 - 18:08 Fosshóll - Goðafoss 7:22 - 15:37 - 18:27 11:07 - 18:17 Norðausturvegur 7:27 - 15:42 - 18:32 11:12 - 18:22 Fnjóskárbrú 7:37 - 15:52 - 18:42 11:22 - 18:32 Akureyrarflugvöllur 7:55 - 16:10 - 19:00 11:40 - 18:50 VMA 8:01 Þórunnarstræti / Sjúkrahús 8:03 Dalsbraut / Klettaborg 8:06 Akureyri - Hof 8:09 - 16:17 - 19:07 11:47 - 15:57 Frá Akureyri til Húsavíkur Akureyri - Hof 8:45 - 16:25 - 19:45 12:10 - 20:10 Akureyrarflugvöllur 8:52 - 16:32 - 19:52 12:17 - 20:17 Fnjóskárbrú 9:10 - 16:50 - 20:10 12:35 - 20:35 Norðausturvegur 9:20 - 17:05 - 20:25 12:45 - 20:45 Fosshóll - Goðafoss 9:25 - 17:05 - 20:25 12:50 - 20:50 Laugar - Einarsstaðaskáli 9:34 - 17:14 - 20:34 12:59 - 20:59 Aðaldalsvegur 9:45 - 17:25 - 20:45 13:10 - 21:10 Húsavík 10:03 - 17:43 - 21:03 13:28 - 21:28

Samstaða og fögnuður í Gleðigöngunni
Strætó tók þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga líkt og undanfarin ár og óhætt er að segja að gleðin hafi verið allsráðandi. Við hönnun Gleðivagnsins var ákveðið að fagna regnboganum, enda slagorð Hinsegin daga í ár Sameinumst undir regnboganum . Vagninn var því skreyttur regnbogalitunum frá toppi til táar og vakti mikla lukku í göngunni. Auglýsingastofan Hér&Nú sá um hönnun Gleðivagnsins og útkoman var sannarlega litrík og glæsileg. Annað árið í röð bauð Strætó skynsegin fólki að vera um borð í Gleðivagninum á meðan á göngunni stóð. Þar gafst tækifæri til að taka þátt í gleðinni úr rólegra og þægilegra rými og draga þannig úr áreiti. Í Strætó erum við öll á mismunandi leiðum, en saman getum við ferðast öll í sömu átt – að jöfnu, fjölbreyttu og kærleiksríku samfélagi. Við óskum Hinsegin dögum til hamingju með vel heppnuð hátíðarhöld og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábæran dag.

Sólmyrkvi 12. ágúst – upplýsingar um þjónustu Strætó
Strætó ekur samkvæmt áætlun 12. ágúst að undanskilinni leið 59 á landsbyggðinni en vegna mikillar umferðar í tengslum við sólmyrkvann má búast við lengri ferðatíma, töfum og rofnum tengingum á sumum leiðum. Fylgist með stöðu ferða áður en lagt er af stað. Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á nokkrum stöðum á Íslandi. Búist er við því að margir leggi leið sína á almyrkvaslóðina til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð og því má gera ráð fyrir aukinni umferð víða um land. Þjónusta Strætó verður samkvæmt áætlun, en aukin umferð getur haft áhrif á ferðatíma. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um stöðu ferða á sjálfum deginum og gera ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega. Hægt er að borga fargjald um borð í öllum vögnum – á höfuðborgarsvæðinu með snertilausri greiðslu og á landsbyggðinni með greiðslukorti. Höfuðborgarsvæðið: Þjónusta Strætó verður skv. áætlun. Nokkrar leiðir munu þó aka hjáleiðir vegna götulokana og búast má við lengri ferðatíma, sérstaklega á leiðum sem aka um vesturhluta Reykjavíkur og á Seltjarnarnes. Leið 11 mun aka út á Seltjarnarnes þrátt fyrir götulokanir, það verður umferðarstýring og vagninum verður hleypt í gegn. Hjáleiðir: Leiðir 12 og 15 geta ekki ekið Suðurgötu í Reykjavík vegna götulokunar. Leið 12 mun því enda ferð sína í HÍ. Leið 15 mun aka Hringbraut beint frá stoppistöðinni Gömlu Hringbraut að næstu virku stoppistöð sem verður Ægisborg, hún mun stöðva í HÍ á leiðinni. Leið 19 mun aka Skjólvang og Herjólfsgötu í stað Hjallabrautar vegna götulokunar. Leið 23 mun aka öfugan hring á Álftanesi vegna einstefnu. Upplýsingar um hjáleiðir verða birtar undir stöðu ferða. Hægt er að borga í strætó á höfuðborgarsvæðinu með: Snertilausri greiðslu Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu Landsbyggðin: Þjónusta verður samkvæmt áætlun, að undanskilinni leið 59 þar sem miðvikudagsferð verður færð yfir á þriðjudaginn 11. ágúst. Aukin umferð getur valdið töfum á leiðunum og haft áhrif á tengingar milli leiða. Upplýsingar um seinkanir og stöðu ferða verða uppfærðar eins og kostur er á sjálfum deginum undir stöðu ferða. Vakin er athygli á að tenging landsbyggðarvagna við ferjuáætlun Herjólfs og Baldurs getur rofnað. Fyrir Herjólf eru farþegar beðnir um að fylgjast með upplýsingum undir stöðu ferða. Fyrir Baldur eru farþegar beðnir um að hafa samband við Westfjords Adventures í s. 456-5006. Helst má gera ráð fyrir áhrifum á eftirfarandi leiðir: Suðurnes: Leið 55 Leið 87 Leið 89 Snæfellsnes Leið 58 Leið 82 Vesturland og Norðurland Leið 50 Leið 57 – Biðtími farþega í Staðarskála getur lengst eða styst eftir því hvernig ferðir ganga, þar sem vagnarnir mætast þar Leið 59 – miðvikudagsferð færist yfir á þriðjudaginn 11. ágúst Vestfirðir Leið 62 Suðurland Leið 51 Leið 53 Við hvetjum farþega til að fylgjast með upplýsingum á vef Strætó undir stöðu ferða og samfélagsmiðlum á ferðadeginum. Börn ferðist ekki ein út á land Samkvæmt tilmælum Vegagerðarinnar er mælst til þess að börn yngri en 15 ára ferðist ekki ein með landsbyggðarvögnum þennan dag. Búast má við mikilli umferð og töfum sem geta haft áhrif á ferðatíma og tengingar. Einnig má gera ráð fyrir álagi á fjarskiptakerfi. Verum vel undirbúin Verið vel undirbúin fyrir ferðalagið og kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað. Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma. Stjórnvöld hvetja þá sem búa á almyrkvaslóðinni til að njóta almyrkvans í sínu nærumhverfi og draga þannig úr álagi á vegakerfi og aðra innviði. Þeir sem ætla að ferðast ættu að skipuleggja ferðalagið vel, vera tímanlega og gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Hægt er að borga í landsbyggðarstrætó með: Debit- eða kreditkorti Landsbyggðarkortum Reiðufé – það er gefið tilbaka í landsbyggðarvögnum Öll fargjöld eru greidd um borð. Athugið að strætó á landsbyggðinni er ekki í Klapp greiðslukerfinu.
Sólmyrkvi 12. ágúst – upplýsingar um þjónustu Strætó
Strætó ekur samkvæmt áætlun 12. ágúst að undanskilinni leið 59 á landsbyggðinni en vegna mikillar umferðar í tengslum við sólmyrkvann má búast við lengri ferðatíma, töfum og rofnum tengingum á sumum leiðum. Fylgist með stöðu ferða áður en lagt er af stað. Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á nokkrum stöðum á Íslandi. Búist er við því að margir leggi leið sína á almyrkvaslóðina til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð og því má gera ráð fyrir aukinni umferð víða um land. Þjónusta Strætó verður samkvæmt áætlun, en aukin umferð getur haft áhrif á ferðatíma. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um stöðu ferða á sjálfum deginum og gera ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega. Hægt er að borga fargjald um borð í öllum vögnum – á höfuðborgarsvæðinu með snertilausri greiðslu og á landsbyggðinni með greiðslukorti. Höfuðborgarsvæðið: Þjónusta Strætó verður skv. áætlun. Nokkrar leiðir munu þó aka hjáleiðir vegna götulokana og búast má við lengri ferðatíma, sérstaklega á leiðum sem aka um vesturhluta Reykjavíkur og á Seltjarnarnes. Leið 11 mun aka út á Seltjarnarnes þrátt fyrir götulokanir, það verður umferðarstýring og vagninum verður hleypt í gegn. Hjáleiðir: Leiðir 12 og 15 geta ekki ekið Suðurgötu í Reykjavík vegna götulokunar. Leið 12 mun því enda ferð sína í HÍ. Leið 15 mun aka Hringbraut beint frá stoppistöðinni Gömlu Hringbraut að næstu virku stoppistöð sem verður Ægisborg, hún mun stöðva í HÍ á leiðinni. Leið 23 mun aka öfugan hring á Álftanesi vegna einstefnu. Leið 19 mun hugsanlega þurfa að aka hjáleið í Hafnarfirði vegna tónleika á Vífilstaðatúni. Upplýsingar um hjáleiðir verða birtar undir stöðu ferða. Hægt er að borga í strætó á höfuðborgarsvæðinu með: Snertilausri greiðslu Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu Landsbyggðin: Þjónusta verður samkvæmt áætlun, að undanskilinni leið 59 þar sem miðvikudagsferð verður færð yfir á þriðjudaginn 11. ágúst. Aukin umferð getur valdið töfum á leiðunum og haft áhrif á tengingar milli leiða. Upplýsingar um seinkanir og stöðu ferða verða uppfærðar eins og kostur er á sjálfum deginum undir stöðu ferða. Vakin er athygli á að tenging landsbyggðarvagna við ferjuáætlun Herjólfs og Baldurs getur rofnað. Fyrir Herjólf eru farþegar beðnir um að fylgjast með upplýsingum undir stöðu ferða. Fyrir Baldur eru farþegar beðnir um að hafa samband við Westfjords Adventures í s. 456-5006. Helst má gera ráð fyrir áhrifum á eftirfarandi leiðir: Suðurnes: Leið 55 Leið 87 Leið 89 Snæfellsnes Leið 58 Leið 82 Vesturland og Norðurland Leið 50 Leið 57 – Biðtími farþega í Staðarskála getur lengst eða styst eftir því hvernig ferðir ganga, þar sem vagnarnir mætast þar Leið 59 – miðvikudagsferð færist yfir á þriðjudaginn 11. ágúst Vestfirðir Leið 62 Suðurland Leið 51 Leið 53 Við hvetjum farþega til að fylgjast með upplýsingum á vef Strætó undir stöðu ferða og samfélagsmiðlum á ferðadeginum. Börn ferðist ekki ein út á land Samkvæmt tilmælum Vegagerðarinnar er mælst til þess að börn yngri en 15 ára ferðist ekki ein með landsbyggðarvögnum þennan dag. Búast má við mikilli umferð og töfum sem geta haft áhrif á ferðatíma og tengingar. Einnig má gera ráð fyrir álagi á fjarskiptakerfi. Verum vel undirbúin Verið vel undirbúin fyrir ferðalagið og kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað. Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma. Stjórnvöld hvetja þá sem búa á almyrkvaslóðinni til að njóta almyrkvans í sínu nærumhverfi og draga þannig úr álagi á vegakerfi og aðra innviði. Þeir sem ætla að ferðast ættu að skipuleggja ferðalagið vel, vera tímanlega og gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Hægt er að borga í landsbyggðarstrætó með: Debit- eða kreditkorti Landsbyggðarkortum Reiðufé – það er gefið tilbaka í landsbyggðarvögnum Öll fargjöld eru greidd um borð. Athugið að strætó á landsbyggðinni er ekki í Klapp greiðslukerfinu.

Nákvæmari rauntímaupplýsingar hjá Strætó
Farþegar Strætó fá nú nákvæmari upplýsingar um ferðir og komur vagna með nýrri uppfærslu og samræmingu á kerfum sem halda utan um rauntímaupplýsingar. Sömu upplýsingar birtast nú í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple. Með uppfærslunni taka komuspár mið af fleiri þáttum en áður, t.d. hjáleiðum, sem hafa áhrif á aksturinn. Farþegar fá því nú nákvæmari og áreiðanlegri upplýsingar um hvenær næsti vagn kemur. Betri rauntímaupplýsingar eru liður í því að bæta stöðugt þjónustu við farþega Strætó. Á síðustu misserum hafa ýmsar nýjungar verið innleiddar sem stuðla að aðgengilegri og áreiðanlegri almenningssamgöngum. Farþegar geta nú m.a. einnig greitt fyrir ferðir snertilaust með greiðslukorti, Google Pay eða Apple Pay um borð í vögnum og skipulagt ferðir með vinsælum korta-öppum eins og Google Maps eða Apple Maps.

Akstur Strætó á frídegi verslunarmanna
Akstur og opnunartími Strætó á frídegi verslunarmanna 3. ágúst. Höfuðborgin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Landsbyggðin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Leið 94 á Austfjörðum mun aka skv. mánudagsáætlun Leiðir 51 og 53 munu aka aukaferðir yfir helgina vegna Þjóðhátíðar í Eyjum, sjá nánar hér. Hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð en þjónustuverið verður opið þennan dag frá kl. 10:00 – 14:00.

Akstur leiða 51 og 53 yfir Þjóðhátíð 2026
Leið 51, Mjódd – Selfoss, ásamt leið 53, Selfoss – Landeyjahöfn, munu aka aukaferðir yfir verslunarmannahelgina vegna Þjóðhátíðar í Eyjum dagana 30. júlí – 3. ágúst 2026. Hægt er að greiða fargjald um borð í vagninum með greiðslukorti eða reiðufé. Ekki er hægt að bóka pláss í vagninn. Hér að neðan má finna allar ferðir Mjódd → Selfoss → Landeyjahöfn : Fimmtudaginn 30. júlí Föstudaginn 31 . júlí Laugardaginn 1. ágúst Sunnudaginn 2. ágúst Landeyjahöfn → Selfoss → Mjódd : Mánudaginn 3. ágúst Athugið að í flestum tilvikum mun sami vagninn halda áfram frá leið 51 yfir á leið 53 og öfugt en skilti verður í framrúðu vagnsins sem sýnir hvort hann fari alla leið eða skipta þurfi um vagn. Áætlun Herjólfs er fengin af heimasíðu ferjunnar. Farþegar eru beðnir um að athuga áætlun og tilkynningar frá Herjólfi áður en lagt er af stað. Aðrar ferðir milli Mjóddar og Landeyjahafnar má finna undir tímatöflu hverrar leiðar. Mjódd → Selfoss → Landeyjahöfn Fimmtudagur 30. júlí 2026 Brottför leiðar 51 frá Mjódd Koma leiðar 51 til Selfoss Brottför leiðar 53 frá Selfossi Koma leiðar 53 til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn 07:00 07:51 - - 08:00 07:55 08:46 - - 10:00 08:55 09:46 - - - 09:20 10:11 10:20 11:28 12:00 10:20 11:11 11:30 12:38 14:00 11:40 12:31 - - - 12:55 13:46 - - - 15:15 16:06 - - 17:00 16:00 16:51 - - 19:00 17:05 17:56 - - - 17:40 18:31 - - - 18:20 19:11 19:20 20:28 21:00 19:35 20:26 - - - 20:45 21:36 - - - 22:04 22:55 - - 23:00 Mjódd → Selfoss → Landeyjahöfn Föstudagur 31. júlí 2026 Brottför leiðar 51 frá Mjódd Koma leiðar 51 til Selfoss Brottför leiðar 53 frá Selfossi Koma leiðar 53 til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn 07:00 07:51 - - 08:00 07:55 08:46 - - 10:00 08:55 09:46 - - - 09:20 10:11 10:20 11:28 12:00 10:20 11:11 11:30 12:38 14:00 11:40 12:31 - - - 12:55 13:46 14:00 15:08 16:00 15:15 16:06 - - - 16:00 16:51 - - 18:00 17:05 17:56 - - 20:00 17:40 18:31 - - - 18:20 19:11 19:20 20:28 22:00 19:35 20:26 - - - 20:45 21:36 - - - 22:04 22:55 - - - Mjódd → Selfoss → Landeyjahöfn Laugardagur 1. ágúst 2026 Brottför leiðar 51 frá Mjódd Koma leiðar 51 til Selfoss Brottför leiðar 53 frá Selfossi Koma leiðar 53 til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn 08:10 09:01 - - 10:00 09:16 10:07 10:20 11:28 12:00 11:50 12:41 - - 14:00 13:18 14:09 14:22 15:30 16:00 14:20 15:11 15:25 16:33 18:00 18:16 19:07 - - - 20:25 21:16 - - - 23:15 00:06 - - - Mjódd → Selfoss → Landeyjahöfn Sunnudagur 2. ágúst 2026 Brottför leiðar 51 frá Mjódd Koma leiðar 51 til Selfoss Brottför leiðar 53 frá Selfossi Koma leiðar 53 til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - - - 09:00 08:10 09:01 - - 11:00 09:16 10:07 10:20 11:28 13:00 11:50 12:41 12:50 13:58 15:00 14:20 15:11 15:22 16:30 17:00 18:16 19:07 - - - 20:25 21:16 - - - 23:15 00:06 - - - Landeyjahöfn→ Selfoss → Mjódd Mánudagur 3. ágúst 2026 Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum Brottför leiðar 53 frá Landeyjahöfn Koma leiðar 53 til Selfoss Brottför leiðar 51 frá Selfossi Koma leiðar 51 í Mjódd 02:00 03:00 04:03 04:08 05:00 04:00 05:00 06:03 06:08 07:00 - - - 06:48 07:40 06:00 08:00 09:03 09:04 09:56 08:00 09:20 10:23 10:25 11:17 10:00 11:00 12:03 12:08 13:00 13:00 14:20 15:23 15:28 16:20 15:00 16:00 17:03 17:08 18:00 17:00 18:00 19:03 19:20 20:12 19:00 20:30 21:33 21:38 22:30 21:00 22:00 23:03 23:08 00:00 23:00 00:00 01:03 (04.08.2026) 01:08 (04.08.2026) 02:00 (04.08.2026)

Uppfærð sumaráætlun leiða 51, 52 og 53
Vegagerðin tilkynnir að í samræmi við áætlun Herjólfs mun sumaráætlun leiða 51, 52 og 53 taka gildi mánudaginn 20. júlí næstkomandi og standa til og með sunnudeginum 23. ágúst. Aukaferðir yfir Þjóðhátíð verða tilkynntar eins fljótt og auðið er.

Gjaldskrárbreyting á tímabilskortum
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 16. júlí næstkomandi. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt en tímabilskort hækka því sem nemur 3,45%. Sama hækkun á við tímabilskort versluð með afsláttarkjörum. 30 daga kort fullorðinna hækkar því úr 11.600 kr. í 12.000 kr. og árskort fullorðinna úr 116.000 kr. í 120.000 kr. Stakt fargjald verður áfram 690 kr. og verð á Klapp plastkortum og lyklakippum helst sömuleiðis óbreytt eða 1.000 kr. Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu er í samræmi við gjaldskrárstefnu um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu. Gjaldskrá Strætó ber að endurskoða tvisvar á ári en síðast var gjaldskráin hækkuð 6. janúar 2026. Gjaldskrárbreytingarnar ná einungis til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Ný gjaldskrá tekur gildi fimmtudaginn 16. júlí 2026. Gjaldskrá Strætó frá og með 16. júlí 2026 Stök fargjöld Verð Snertilausar greiðslur 690 kr. Fullorðnir 690 kr. Ungmenni, 12- 17 ára 345 kr. Aldraðir, 67 ára og eldri 345 kr. Öryrkjar 207 kr.* Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Næturstrætó - eitt fargjald 690 kr. *Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 12.000 kr. 120.000 kr. Ungmenni, 12- 17 ára 6.000 kr. 60.000 kr. Aldraðir, 67 ára og eldri 6.000 kr. 60.000 kr. Nemar, 18 ára og eldri* 6.000 kr. 60.000 kr. Öryrkjar* 3.600 kr. 36.000 kr. *Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu. Áfyllanleg Klapp kort og lyklakippur Klapp kort 1.000 kr. Klapp lyklakippa 1.000 kr.

Tökum Strætó í Hjarta Hafnarfjarðar
Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar verður haldin tíunda árið í röð við Bæjarbíó í miðbæ Hafnarfjarðar og mun hátíðin standa yfir sex helgar, frá 25. júní til 1. ágúst. Hvetjum við alla til að taka Bestu leiðina í Hjarta Hafnarfjarðar með Strætó. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna hér Besta leiðin á Hjarta Hafnarfjarðar Hátíðarsvæðið er í um 200 metra fjarlægð frá biðstöðinni Fjörður þar sem leiðir 1, 19, 21 og 55 stoppa. Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu Klapp tíu Staðgreiðsla – snertilausar greiðslur Tímatöflur fyrir leiðir sem stoppa í Firði

Síðustu ferðir dagsins falla niður á leið 51
Vegna vegavinnu á Suðurlandsvegi falla tvær síðustu ferðir dagsins niður á leið 51 í kvöld 22. júní. Eftirfarandi ferðir falla niður: Mjódd til Selfoss kl. 20:45 og 22:04. Selfoss til Reykjavíkur kl. 20:59 og 22:00.