
Strætó býður 12-17 ára ungmennum að fá „ Sumarkort “ sem er frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu út júlímánuð 2022. Sumarkortin verða afhend inn á Klapp kort eða Klapp app viðskiptavina. Því er nauðsynlegt að viðskiptavinir sem sækja Sumarkortið séu með símanúmer tengt Klapp appinu eða með Klapp kort tengt aðgangi sínum á „Mínum síðum“. Annars verður ekki unnt að afhenda Sumarkortið. Sæktu um sumarkortið með því að smella hér:

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á 17. júní 2022. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.

Miðvikudaginn 1. júní verður greitt sama verð um borð í landsbyggðarvögnum og er greitt í landsbyggðarhlutanum í Strætó appinu. Með breytingunni þá munu ungmenni, aldraðir og öryrkjar fá 50% afslátt af fargjöldum. Börn 6-11 ára fá frítt í landsbyggðarstrætó eins og á höfuðborgarsvæðinu. Fargjald Verð á gjaldsvæði fyrir breytingu Verð á gjaldsvæði eftir breytingu Fullorðnir 490 kr. 490 kr. Ungmenni, 12-17 ára 178 kr. 245 kr. Börn, 11 ára og yngri 76 kr. 0 kr. Eldri borgarar og öryrkjar 155 kr. 245 kr. Stök fargjöld Gjaldskrá: Stök fargjöld á Suðurlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Vestur- og Norðurlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Suðurnesjum Gjaldskrá: Stök fargjöld á Norður- og Norðausturlandi Gjaldskrá: Stök fargjöld á Austfjörðum Vestfirðir

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó yfir Hvítasunnu. Höfuðborgarsvæðið Hvítasunna Hvítasunnudagur, 5. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í Hvítasunnu, 6. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Hvítasunna Hvítasunnudagur, 5. júní: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í Hvítasunnu, 6. júní: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á uppstigningardag, 26. maí 2022. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.

Sjálfbærniskýrsla Strætó fyrir árið 2021 er komin út. Í stað hefðbundinnar ársskýrslu þá gefur Strætó í fyrsta sinn út sjálfbærniskýrslu sem er í samræmi við alþjóðastaðalinn Global Reporting Initiative (GRI) Standards: Core. Skýrslan er gefin út rafrænt og í henni er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar fyrir árið 2021 eins og farþegatölur, upplýsingar um umhverfismál og orkunotkun, ársreikning 2021, upplýsingar um samfélagsmál og margt fleira.

Leiðir 61 og 62 munu aka um Vestfirði í júní, júlí og ágúst. Leið 61 Leið 61 ekur frá Aðalstræti 7 á Ísafirði, að verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík og aftur til baka. Viðkomustaðir á leiðinni eru bensínstöð Orkunnar í Súðavík, vegamót Djúpavegar (61) og Mjóafjarðarvegar (633) og Hótel Reykjanes. Leiðin tengist leið 59 sem ekur milli Hólmavíkur og Borgarness. Reiðhjól: Bíllinn á leið 61 getur tekið að mestu lagi 2 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara: Smáferðir ehf — Akstursaðili á leið 61 — hnota95@simnet.is — 8624530 Leið 62 Leið 62 ekur frá upplýsingamiðstöð Westfjords Adventures (Þórsgötu 8a á Patreksfirði), að Aðalstræti 7 á Ísafirði og til baka. Viðkomustaðir á leið frá Patreksfirði og til Ísafjarðar eru bensínstöð N1 á Patreksfirði, Hótel Flókalundur og Dynjandi. Viðkomustaðir á leið frá Ísafirði og til Patreksfjarðar eru Þingeyri (622), Dynjandi, Hótel Flókalundur, Brjánslækur og bensínstöð N1 á Patreksfirði. Leið 62. Patreksfjörður → Ísafjörður Reiðhjól: Bíllinn á leið 62 getur tekið að mestu lagi 3 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara: Westfjords Adventures — Akstursaðili á leið 62 — info@wa.is — 4565006 Gjaldskrá á Vestfjörðum Leið 61 Ferð Fullorðnir Börn, aldraðir og öryrkjar* Ísafjörður - Súðavík 700 kr. 350 kr. Ísafjörður - Heydalur 3.000 kr. 1.500 kr. Ísafjörður - Reykjanes 3.500 kr. 1.750 kr. Ísafjörður - Hólmavík 6.000 kr. 2.500 kr. Hólmavík - Reykjanes 1.500 kr. 750 kr. Hólmavík - Heydalur 2.000 kr. 1.000 kr. Hólmavík - Súðavík 5.000 kr. 2.000 kr. Hólmavík - Ísafjörður 6.000 kr. 2.500 kr. Reiðhjól 3.500 kr. 3.500 kr. *Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar. Leið 62 Ferð Fullorðnir Börn, aldraðir og öryrkjar* Ísafjörður - Brjánslækur 8.400 kr. 6.300 kr. Patreksfjörður - Brjánslækur 3.000 kr. 2.300 kr. Ísafjörður - Patreksfjörður 9.900 kr. 7.500 kr. Ísafjörður - Þingeyri 2.000 kr. 1.500 kr. Brjánslækur - Flókalundur 500 kr. 500 kr. Reiðhjól 3.500 kr. 3.500 kr. *Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.

Sunnudaginn 15. maí hefst sumaráætlun á leið 94, sem ekur á milli Breiðdalsvíkur og Hornafjarðar með viðkomu á Djúpavogi. Ferð vagnsins hefst á Höfn, stoppar á Djúpavogi og endar á Breiðdalsvík áður en keyrt er til baka sömu leið. Leiðin hét áður leið 4 og keyrði milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur. Vagninn ekur á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og svo sunnudögum. Austfirðir - leiðakort

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó á sumardeginum fyrsta. Áætlanir dagsins Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Nokkuð verður um lokanir á höfuðborgarsvæðinu á sumardaginn fyrsta. Miðbær Reykjavíkur Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30 Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu og Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Lokaðar biðstöðvar verða: Barónsstígur Bíó Paradís Þjóðleikhúsið Lækjartorg A Lækjartorg B MR Hallargarðurinn Ráðhúsið Gamla Hringbraut Landakot Ásvallagata Hafnarfjörður Hafnarfjörður milli kl. 13:45 og 14:00 Leið 19 – Ein ferð á leið 19 mun ekki geta ekið um Hjallabraut á leið sinni í átt að Kaplakrika. Í staðinn mun leiðin aka hjáleiðu um Reykjavíkurveg. Lokaðar biðstöðvar verða: Miðvangur Víðivangur Skjólvangur Sundhöll Hafnarfjarðar Norðurbakki Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30 Leið 7 – Leiðin mun ekki aka til og frá Leirvogstungu á meðan á lokun stendur. Leið 15 – Í stað þess að aka um Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka hjáleið um Bogatanga, Langatanga og Vesturlandsveg á leið sinni til og frá Reykjaveg. Lokaðar biðstöðvar milli kl. 12:50 og 13:30 verða: Skeiðholt Varmárskóli Háholt Tungubakkar Laxatunga

Stoppistöðin á bílastæðinu hjá Olís á Selfossi mun færast kl. 16:30 í dag, 11. apríl. Stoppistöðin á bílastæðinu hjá Olís á Selfossi mun færast kl. 16:30 í dag, 11. apríl. Á leið frá Reykjavík og til Selfoss munu leiðir 51 og 52 beygja inn á Fossnes og stoppa við Guðmund Tyrfingsson ehf. Á leið frá Selfossi til Reykjavíkur munu leiðir 51 og 52 beygja inn á Breiðumýri og stoppa við Vegagerðina á Selfossi.

Þann 10. apríl mun bætast við ný biðstöð á leið 25 sem ekur milli Spangar og Gufuness. Nýja biðstöðin mun fá nafnið Gufunesvegur og hún verður staðsett við hús Íslenska gámafélagsins við gatnamót Gufunesvegar og Jöfursbáss. Endastöðin við hverfið í Gufunesi mun heita Jöfursbás. Leið 25 er í pöntunarþjónustu, sem þýðir að viðskiptavinir panta ferð með því að hringja í Hreyfil í síma 5885522 minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Á þessari mynd má sjá staðsetningu nýju biðstöðvarinnar.

Sumaráætlun á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi á leiðum 6, 19 og 28 þann 10. apríl n.k. Síðari hluti aðhaldsaðgerða sem tilkynnt var um í síðustu viku taka einnig gildi. Sumaráætlun á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi á leiðum 6, 19 og 28 þann 10. apríl n.k. Það þýðir að leiðir 19 og 28 aka á 30 mínútna tíðni allan daginn í stað þess að aka skv. 15 mínútna tíðni á annatímum. Leið 6 mun aka á 15 mínútna tíðni yfir annatímann í stað þess að aka á 10 mínútna tíðni yfir annatímann. Sumaráætlunin tekur gildi örlítið fyrr þetta árið vegna aðhaldsaðgerðanna hjá Strætó. Síðari hluti aðhaldsaðgerða Þann 10. apríl tekur einnig í gildi seinni hluti aðhaldsaðgerða sem tilkynnt var um í síðustu viku. Síðustu kvöldferðir verða klipptar af leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6 og 18. Leið 1 Seinasta ferð frá Klukkuvöllum til Hlemms fer kl. 23:35 í staðinn fyrir kl. 00:05 Seinasta ferð frá Hlemmi til Klukkuvalla fer kl. 23:43 í staðinn fyrir kl. 00:13 Leið 2 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 22:52 í staðinn fyrir kl. 23:22 Seinasta ferðin frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:35 í staðinn fyrir kl. 00:05. (Á laugardögum og sunnudögum fer síðasta ferðin kl. 23:33) Leið 3 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 23:21 í staðinn fyrir kl. 23:51 á virkum dögum og 00:21 á laugardögum. Seinasta ferð frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:24 í staðinn fyrir kl. 23:54. Leið 4 Seinasta ferð frá Hlemmi til Mjóddar fer kl. 23:18 í staðinn fyrir kl. 23:48 Seinasta ferð frá Mjódd til Hlemms fer kl. 23:21 í staðinn fyrir kl. 23:51 Leið 5 Seinasta ferð frá Norðlingaholti til Nauthóls fer kl. 23:14 í staðinn fyrir kl. 23:44. Seinasta ferð frá Nauthól til Norðlingaholts fer kl. 23:36 í staðinn fyrir kl. 00:06. Leið 6 Seinasta ferð frá Egilshöll til Hlemms fer kl. 23:18 í staðinn fyrir kl. 23:48. Seinasta ferð frá Hlemmi til Egilshallar fer kl. 23:37 í staðinn fyrir kl. 00:07. Leið 18 Seinasta ferð frá Hlemmi til Spangar fer kl. 23:16 í staðinn fyrir kl. 23:46. Seinasta ferð frá Spöng til Hlemms fer kl. 23:09 í staðinn fyrir kl. 23:39. (Á laugardögum og sunnudögum fer síðasta ferðin kl. 23:06)

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur Strætó yfir páska 2022. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2022 Skírdagur, 14. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 15. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Páskadagur, 17. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í páskum, 18. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Páskar 2022 Skírdagur, 14. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 15. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 17. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 18. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun

Stjórn Strætó boðar til opins fundar við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Fundurinn verður haldinn 7. apríl í Safnaðarheimilinu Borgum (hjá Kópavogskirkju) milli kl. 17:00-19:00. Fulltrúar úr stjórn og ýmsir starfsmenn Strætó verða á staðnum til þess að hlusta á ábendingar og svara spurningum. Við hvetjum alla þá sem eru áhugasamir um málefni Strætó að mæta á fundinn.

Covid faraldurinn hefur leikið rekstur Strætó grátt og hafa tekjur minnkað um allt að 1,5 milljarðar á síðustu 2 árum. Til að ná endum saman varð því nauðsynlegt að grípa til áframhaldandir aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins. Gert er ráð fyrir því að spara þurfi um 275 m.kr. á árinu 2022 og því verður gripið til hagræðis, þjónustutími og þjónustustig minnkað í leiðarkerfi Strætó. Þessar breytingar taka gildi sunnudaginn 3. apríl. Eftirfarandi breytingarnar fela m.a. skerðingu á kvöldferðum á leiðum 7,11,12,15,19,22,23, 28, 35 og 36. Leið 24 mun aka á 30 mín tíðni allan daginn í stað 15 mínútna tíðni á annatíma. Leið 7 Virkir dagar Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:08 í staðinn fyrir kl. 22:38 Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:09 í staðinn fyrir kl. 22:39 Helgar Seinasta ferð frá Tungubökkum til Egilshallar fer kl. 21:04 í staðinn fyrir kl. 21:08 Seinasta ferð frá Egilshöll til Tungubakka fer kl. 21:05 í staðinn fyrir kl. 21:09 Leið 11 Seinasta ferð frá Eiðistorgi til Mjóddar fer kl. 23:23 í staðinn fyrir kl. 00:23 Seinasta ferðin frá Mjódd til Eiðistorgs fer kl. 23:22 í staðinn fyrir kl. 00:22 Leið 12 Seinasta ferð frá Ártúni til Skerjafjarðar fer kl. 23:07 í staðinn fyrir kl. 23:37 Seinasta ferð frá Skerjafirði til Ártúns fer kl. 23:20 í staðinn fyrir kl. 23:50 Leið 15 Seinasta ferð frá Flyðrugranda til Reykjavegar fer kl. 23:01 í staðinn fyrir kl:23:31 Seinasta ferð frá Reykjavegi til Flyðrugranda fer kl. 23:15 í staðinn fyrir kl:23:45 Leið 19 Virkir dagar Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl. 22:10 í staðinn fyrir kl. 22:40 Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaug fer kl. 22:06 í staðinn fyrir kl:22:36 Laugardagar Seinasta ferð frá Ásvallalaug til Kaplakrika fer kl. 22:22 í staðinn fyrir kl. 22:52 Seinasta ferð frá Kaplakrika til Ásvallalaugar fer kl. 22:18 í staðinn fyrir kl:22:48 Leið 22 Virkir dagar. Leið 22 breytist í pöntunarþjónustu kl. 19:44 og fer seinasti vagn frá Ásgarði kl. 19:14. Leið 23 Leið 23 breyist í pöntunarþjónustu kl. 19:47 og fer seinasti vagn kl. 19:17. Leið 24 Leið 24 mun aka á 30 mínútna tíðni alla daga í stað þess að aka á 15 mínútna tíðni á annatímum. Leið 28 Seinasta ferð frá Dalaþingi til Hamraborgar fer kl. 20:02 í staðinn fyrir kl. 23:32 Seinasta ferð frá Hamraborg til Dalaþings fer kl. 20:05 í staðinn fyrir kl. 23:35 Leiðir 35 og 36 Leið 35 Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 23:07 i staðin fyrir kl. 23:37 Leið 36 Seinasta ferð frá Hamraborg fer kl. 20:07 i staðin fyrir kl. 22:07

Frá og með deginum í dag, 14. mars mun farmiðasalan í Mjódd opna tímabundið aftur. Viðskiptavinir Strætó geta því skilað gömlum strætómiðum í Mjóddina. Við vekjum athygli á að starfsfólkið í Mjóddinni er eingöngu að veita gömlum farmiðum viðtöku. Inneignir verða sendar í Klapp kerfið einum degi síðar. Opið er á virkum dögum í mars milli kl. 09:00-17:00. Klapp kort og Klapp tíur verða seldar í farmiðasölunni.

Breyting hefur verið gerð á áætlun Herjólfs og því breytist seinni ferðin á leið 52 frá og með 1. mars. Virkir dagar: Í stað þess að aka frá Mjódd kl. 17:38 þá verður ekið kl. 17:45. Áætluð koma í Landeyjahöfn er kl. 20:03. Í stað þess að aka frá Landeyjahöfn og í Mjódd kl. 19:55 þá verður ekið kl. 20:40. Laugadagar og sunnudagar Í stað þess að aka frá Mjódd kl. 15:05 þá verður ekið kl. 15:15. Áætluð koma í Landeyjahöfn er kl. 17:38. Í stað þess að aka frá Landeyjahöfn og í Mjódd kl. 17:26 þá verður ekið kl. 18:00. Ef Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn Ef Landeyjahöfn er lokuð, þá ekur leið 52 ekki lengra en til og frá Hvolsvelli. Ef Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn þá mun aukavagn merktur Herjólfi aka á milli Mjóddar og Þorlákshafnar skv. eftirfarandi áætlun: Brottför frá Mjódd 09:00 Brottför frá Mjódd 19:00 Aukavagninn ekur frá Þorlákshöfn og í Mjódd þegar allir farþegar Herjólfs eru komnir frá borði.

Frá og með miðvikudeginum 23. febrúar verður hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á leiðum 51 og 57 á landsbyggðinni. Um er að ræða verkefni í þróun hjá Strætó og Vegagerðinni. Eins og staðan er núna þá geta hjólastólanotendur eingöngu notað ákveðnar biðstöðvar og pantað ferðir á ákveðnum tímum. Leið 51 Mjódd - Selfoss Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför. Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum: Virkir dagar: 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 13:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 10:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 15:00 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 Laugardagar og sunnudagar: 08:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 14:50 ferð frá Selfoss-N1 til Mjóddar 13:15 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 17:30 ferð frá Mjódd til Selfoss-N1 Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu. Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd , Hveragerði og Selfoss-N1 . Leið 57 Mjódd - Akureyri Vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 5402700 minnsta kosti einum sólarhring fyrir áætlaða brottför. Athugið: Eingöngu er hægt að panta vagn með aðgengi fyrir hjólastólanotendur á eftirfarandi ferðum: Alla daga: 09:00 ferð frá Mjódd til Akureyrar-Hof* 16:20 ferð frá Akureyri-Hof til Mjóddar* Það er aðeins pláss fyrir einn hjólastól í vagninum í einu. Aðeins er aðgengi fyrir hjólastólanotendur á biðstöðvunum Mjódd , Akratorg, Borgarnes, Staðarskáli, Blönduós, Sauðárkrókur og Akureyri – Hof *Á fimmtudögum er aðeins ekið milli Mjóddar og Borgarness

Hér má nálgast samantekt á áhrifum óveðursins 21. febrúar á þjónustu Strætó Strætó á höfuðborgarsvæðinu mun halda úti akstri eins og veður leyfir í kvöld. Við hvetjum viðskiptavini að fylgjast með tilkynningum inn á vef Strætó eða á Twitter reikningi Strætó. Strætóferðir falla niður á landsbyggðinni seinni hluta dags og í kvöld. Óvissa verður með ferðir á landsbyggðinni í fyrramálið. Viðskiptavinir eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á vef Strætó eða Twitter reikningi Strætó. Pant akstursþjónusta ekur ekki í kvöld. Það verður ekið í fyrramálið en viðskipavinir þjónustunnar mega búast við einhverjum seinkunum.

Síðustu daga hefur Klapp, greiðslukerfi Strætó orðið fyrir barðinu á netárásum. Um er að ræða svokallaða dreifða álagsárás eða DDoS árás sem þýðir að gríðarmiklum fjölda af fyrirspurnum er beint á kerfið og vefþjónar kikna tímabundið undan álagi. Nýjasta árásin var gerð í dag, laugardag kl. 13:50 og hún stóð yfir í ca. 90 mínútur. Á meðan á árásinni stóð komust viðskiptavinir til að mynda ekki inn á Klapp-appið eða vefaðganginn sinn á „Mínum síðum“ til að kaupa eða skoða stöðu fargjalda. Skönnun farmiða í vögnum varð einnig óáreiðanleg á sama tíma. Norska fyrirtækið FARA AS sem heldur úti undirliggjandi hugbúnaði Klappsins og vélbúnaði kerfisins segir að gripið verði til aðgerða til þess að reyna að koma í veg fyrir að slíkar árásir lami greiðslukerfið. Strætó og FARA harma þau óþægindi sem viðskiptavinir hafa orðið fyrir vegna árásarinnar. Við vekjum athygli á að þessi DDoS árás á ekkert sameiginlegt með netárásinni sem Strætó varð fyrir í lok árs 2021 þegar brotist var inn í netkerfi Strætó og ýmsum gögnum stolið.

Frá og með 1. mars 2022 verður ekki hægt að borga með pappírs farmiðum í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Farmiðar: Gefinn verður frestur til 31. mars 2022 til þess að skipta öllum gömlum farmiðum yfir í inneign í Klapp greiðslukerfinu. Athugið: Klapp greiðslukerfið er ekki í Strætó á landsbyggðinni. Fundin verður önnur leið til að gefa inneign á landsbyggðinni. Öllum farmiðum er skilað í móttöku Strætó á Hesthálsi 14, 110 Reykjavík. Opið er í móttöku Strætó milli kl. 09:00-16:00 á virkum dögum. Lokað er um helgar. Gömlu Strætókortin: Handhafar tímabilskorta í gamla greiðslukerfi Strætó skulu leyfa gildistíma kortanna að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Gömlu Strætókortin verða enn til staðar á landsbyggðinni. Reiðufé: Áfram verður hægt að greiða með reiðufé á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Ekki er hægt að gefa til baka á höfuðborgarsvæðinu. Skil á farmiðum - Kemstu ekki á Hestháls? Viðskiptavinir Strætó einnig skilað gömlum strætómiðum í farmiðasöluna í Mjódd. Við vekjum athygli á að starfsfólkið í Mjóddinni er eingöngu að veita gömlum farmiðum viðtöku. Inneignir verða sendar í Klapp kerfið einum degi síðar. Opið er á virkum dögum í mars milli kl. 09:00-17:00. Klapp kort og Klapp tíur verða seldar í farmiðasölunni. Þeir sem komast ekki á Hestháls 14 eða Mjóddina geta einnig sent okkur farmiðana sína í pósti. Ef þú kýst að senda okkur miðana í pósti, þá er nauðsynlegt að fylgja þessum skrefum: Stofnaðu aðgang að „Mínum síðum“ með símanúmeri eða netfangi. Sendu farmiðana í pósti á heimilisfangið: Strætó bs. Hestháls 14, 110 Reykjavík Nauðsynlegt er að hafa nafn, símanúmer eða netfang með í bréfinu. Við leggjum inneign á „veski“ viðkomandi símanúmers eða netfangs sem fylgir með bréfinu. Hægt er að senda fyrirspurnir í gegnum klappid@klappid.is Klappið — Hafa samband — klappid@klappid.is Skil á farmiðum - Landsbyggðin Fólk sem notar eingöngu Strætó á landsbyggðinni getur einnig sent okkur farmiðana sína í pósti. Landsbyggðin er ekki í Klapp greiðslukerfinu og því verður fundin önnur leið til að gefa fólki inneign. Sendu farmiðana í pósti á heimilisfangið: Strætó bs. Hestháls 14, 110 Reykjavík Nauðsynlegt er að hafa nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang með í bréfinu. Strætó hefur samband í gegnum sima þegar bréfið berst okkur.

Hér er staðan hjá Strætó á landsbyggðinni: Suðurland Hellisheiðin er lokuð og því eru leiðir 51 og 52 ekki byrjaðar að aka. Stefnt er að því að leiðir 71, 72 og 73 fari að aka skv. áætlun eftir hádegi í dag. Vesturland Leið 57 er farin að aka skv. áætlun á milli Reykjavíkur og Borgarness. Ekki verður ekið milli Akureyrar og Borgarness í dag. Stefnt er að því að leiðir 58 og 82 á Snæfellsnesi og leið 81 í Borgarbyggð aki skv. áætlun síðar í dag. Suðurnes Allar leiðir á Suðurnesjum eru farnar að aka skv. áætlun. Norður- og Norðausturland Leið 78 milli Akureyrar og Siglufjarðar verður ekkert ekin í dag. Leið 56 milli Akureyrar og Egilsstaða verður ekki ekin í dag. Óvissa er með 17:30 ferðina á leið 79 milli Húsavíkur og Akureyrar
Hér má finna lista yfir fyrstu brottfarir hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu: Leið 1: 10:12 frá Hlemmi 10:01 frá Klukkuvöllum Leið 2: 10:16 frá Hlemmi 10:10 frá Mjódd Leið 3: 10:22 frá Hlemmi 10:21 frá Mjódd Leið 4: 10:18 frá Hlemmi 10:21 frá Mjódd Leið 5: 10:10 frá Gömlu Hringbraut 10:14 frá Norðlingaholti Leið 6: 10:21 frá Hlemmi 10:18 frá Egilshöll Leið 7: 10:04 frá Egilshöll 10:34 frá Leirvogstungu Leið 11: 10:22 frá Mjódd 10:28 frá Eiðistorgi Leið 12: 10:03 frá Skerjafirði 10:29 frá Ártúni Leið 13: 10:08 frá Sléttuvegi 10:08 frá Öldugranda Leið 14: 10:33 frá Granda 10:08 frá Verzló Leið 15: 10:40 frá Reykjavegi 10:31 frá Flyðrugranda Leið 16: 10:22 frá Hlemmi 10:28 frá Hádegismóum Leið 17: 10:46 frá Hlemmi 10:36 frá Mjódd Leið 18: 10:08 frá Spöng 10:14 frá Hlemmi Leið 19: 10:28 frá Kaplakrika 10:32 frá Ásvallalaug Leið 21: 10:40 frá Háholti í Hafnarfirði 10:22 frá Mjódd Leið 22: 10:04 frá Ásgarði Leið 23: 10:28 frá Ásgarði Leið 24: 10:48 frá Spöng 10:31 frá Ásgarði Leið 28: 10:35 frá Hamraborg 10:32 frá Dalaþingi Leið 35: 10:37 frá Hamraborg Leið 36: 10:22 frá Hamraborg

Öllum morgunferðum hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni verður aflýst 7. febrúar. Allar ferðir hjá asktursþjónustunni Pant falla niður fyrir hádegi. Strætó Á höfuðborgarsvæði og landsbyggð Eins og veðurspáin er núna, þá má búast við að Strætó á höfuðborgarsvæðinu geti hafið akstur á ný í fyrsta lagi í kringum 10:00. Allar ákvarðanir um akstur verða háðar veðri og færðar á vegum. Við hvetjum viðskiptavini að fylgjast með tilkynningum inn á heimasíðu Strætó eða á Twitter reikningi Strætó. Skilaboð frá almannavörnum Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins bendir á að þegar veðrinu slotar þá er viðbúið að samgöngur verði enn í ólestri vegna ófærðar og töluverðan tíma tekur að ryðja allar húsagötur í umdæminu. Aðgerðarstjórn hvetur fólk sem ætlar að ferðast innan höfuðborgarsvæðisins til þess að nýta sér almenningssamgöngur svo aðstæður í umferðinni verði ekki of þungar og tefji för snjóruðningstækja. Pant Akstursþjónusta Öllum ferðum akstursþjónustunnar Pant verður aflýst fyrir hádegi á morgun 7. febrúar. Búist er við að þjónustan verði aftur komin í gang kl. 12:00. Allar skipulagðar „heimferðir“ sem tengjast aflýstu morgunferðunum verða einnig sjálfkrafa felldar niður nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir því að þær verði eknar. Það er gert með því að hafa samband við Pant í síma 5402727 eða með því að senda skilaboð í gegnum netspjall Pant eða á netfangið pant@pant.is Pant — Akstursþjónusta — pant@pant.is — 5402727 Tweets by straetobs

Leið 26 kemur ný inn í leiðanet Strætó frá og með 1. febrúar 2022. Leiðin mun aka um iðnaðarhverfið Hellnahraun í Hafnarfirði. Leiðin verður í pöntunarþjónustu sem þýðir að viðskiptavinir panta ferð með því hringja í Hreyfil í síma 5885522 minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Eingöngu er hægt að greiða fyrir ferðina um borð leigubílnum með því að sýna Klapp kort, KLAPP tíu eða fargjald í Strætó appi eða Klapp appi.
Áætlun leiðar 3 verður áfram skert, þriðjudaginn 25. janúar. Í stað þess að leið 3 aki á 15 mínútna fresti yfir háannatímann (milli kl. 07:00-09:00 og 15:00-18:00), þá verður ekið á 30 mínútna fresti allan daginn. Gripið er til þessarar skerðingar vegna fjölda vagnstjóra hjá Strætó bs. sem eru í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19. Nokkur óvissa er um vaktir á öðrum leiðum yfir annatímann milli kl. 15:00-18:00. Fylgst verður náið með stöðunni og tilkynnt verður um öll hugsanleg frávik inn á heimasíðu Strætó.

Velkomin á nýjan vef Strætó. Nýi vefurinn hefur formlega tekið við af þeim gamla sem hefur verið í notkun síðan 2016. Markmið nýja vefsins er að bæta notendaupplifun, upplýsingagjöf, læsileika og aðgengi. Helstu nýjungar eru meðal annars: Leitarvél vefsins er tengd við gagnagrunn ja.is , sem opnar á fleiri möguleika þegar notendur eru að skipuleggja ferðir. Til dæmis er nú hægt að leita eftir fyrirtækjum, stofnunum og kennileitum. Mikil áhersla er lögð á aðgengi fyrir blinda og sjónskerta. Strætó var í góðu samráði við Blindrafélagið og fylgir WCAG (e. Web Content Accessibility Guidelines) staðli til að tryggja að auðvelt sé að nota skjálesara á vefnum. Þegar ýtt er á biðstöðvar á kortinu þá kemur upp nafn stöðvarinnar, götumynd og rauntímaupplýsingar um það hve margar mínútur eru í næstu vagna. Hingað til hafa rauntímaupplýsingar eingöngu verið til staðar í stafrænu strætóskýlunum. Hægt er að ýta á vagnana á kortinu til þess að sjá næstu biðstöðvar og rauntímaupplýsingar. Tímatöflur eru ekki lengur birtar sem myndir. Það er einnig komin með nýja útfærslu af tímatöflum sem kann að henta þeim sem finnst óþægilegt að lesa úr tímatöflum. Vefurinn er forritaður og hannaður af Kolofon . Nýi vefurinn er langt kominn, en búast má við að eftirfarandi efni verði tilbúið á næstunni: Dökk stilling eða „Dark mode“. Leit inn á vefnum. Rauntímakort undir tímatöflum leiða. Möguleiki að sækja PDF útgáfu að tímatöflum. Hægt verður að panta ferðir sem eru í pöntunarþjónustu í gegnum netið. Hjáleiðir verða teiknaðar á gagnvirka kortið. Við hvetjum alla sem vilja senda okkur ábendingar eða hugmyndir fyrir nýja vefinn að skrá þær hér fyrir neðan:
Áætlun leiðar 3 verður skert í dag, mánudaginn 24. janúar. Í stað þess að leiðin aki á 15 mínútna fresti yfir háannatímann (milli kl. 07:00-09:00 og 15:00-18:00), þá verður ekið á 30 mínútna fresti allan daginn. Gripið er til þessarar skerðingar vegna fjölda vagnstjóra hjá Strætó bs. sem eru í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19. Veiran hefur einnig áhrif á strætóleiðir 58 og 82 á Snæfellsnesinu, en morgunferðir leiðanna verða felldar niður vegna manneklu. Fylgst verður náið með stöðunni og tilkynnt verður um öll hugsanleg frávik inn á heimasíðu Strætó.
Það er villa í Strætó appinu sem tengist notkun á AUR í Strætó appinu. Villan lýsir sér þannig að fólk gengur frá greiðslu í gegnum AUR en fær engan miða. Við erum að vinna eins hratt og við getum til að laga þessa villu, en eins og staðan er núna, þá biðjum við viðskiptavini um að nota ekki AUR til að greiða fyrir miða Strætó appinu. Viðskiptavinir sem hafa lent í villunni geta haft samband við okkur í gegnum endurgreidslur@straeto.is og óskað eftir því að fá nýjan miða eða endurgreiðslu. Við vekjum athygli á að viðskiptavinir sem óska eftir endurgreiðslu þurfa að gefa upp fyrstu 6 og síðustu 4 tölustafina á greiðslukortinu sem tekið var út af. Virðingafyllst Strætó
Líkt og komið hefur fram í fréttum varð Strætó fyrir fjandsamlegri netáras frá erlendum árásaraðilum í lok desember. Árásaraðilarnir náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Strætó og afrita gögn og upplýsingar sem þar eru að finna. Upplýsingar uppfærðar 5. janúar 2022 Viðkomandi árásaraðilar hafa krafið Strætó um greiðslu en hótað því að leka viðkomandi gögnum verði Strætó ekki við kröfum árásaraðilanna. Í samræmi við leiðbeiningar netöryggissveitar Íslands mun Strætó ekki verða við þeim kröfum. Persónuvernd hefur verið tilkynnt um málið og er Strætó í stöðugum samskiptum við stofnunina vegna þess. Rannsókn málsins stendur enn yfir og gripið hefur verið til umfangsmikilla ráðstafana til að loka á aðgang umræddra aðila og takmarka áhrif á réttindi og frelsi þeirra einstaklinga sem Strætó vinnur upplýsingar um. Má þar nefna lokun á aðgangi tilgreindra IP talna og tilgreindra aðganga að kerfum Strætó sem og endurræsingu á lykilorðum þeirra aðila sem aðgang hafa í umrædd kerfi. Þau kerfi sem árásaraðilarnir hafa fengið aðgang að eru eftirfarandi: Launakerfi Strætó þar sem finna má tengiliðaupplýsingar, reikningsupplýsingar og launaupplýsingar núverandi og fyrrverandi starfsfólks Strætó Mannauðskerfi Strætó þar sem finna má tengiliðaupplýsingar, ráðningarsamninga og önnur mannauðstengd gögn fyrrverandi og núverandi starfsfólks Strætó Málaskrá Strætó þar sem finna má afrit af erindum og fyrirspurnum frá almenningi, tengiliðaupplýsingar forsvarsmanna birgja, samstarfsaðila og verktaka, sem og afrit af umsóknargögnum umsækjenda um störf Netkerfi Strætó þar sem finna má upplýsingar um hljóðupptökur símtala sl. 90 daga áður en árásin átti sér stað Ekkert bendir til þess að árásaraðilarnir hafi eða geti misnotað þessar upplýsingar, en ekki er hægt að útiloka að upplýsingarnar verði birtar opinberlega af hálfu umræddra aðila. Strætó harmar að þessi innrás hafi átt sér stað og unnið er hörðum höndum við að klára rannsókn málsins og munu uppfærðar upplýsingar birtast hér á heimasíðu Strætó eftir því sem rannsókninni miðar áfram. Tekið skal fram að Strætó vinnur jafnframt með persónuupplýsingar sem svokallaður vinnsluaðili fyrir hönd annarra aðila, svokallaðra ábyrgðaraðila. Hvað varðar mögulegan aðgang árásaraðila að þeim upplýsingum munu viðkomandi ábyrgðaraðilar tilkynna hlutaðeigandi aðilum um slíkan öryggisbrest, eftir því sem við á. Nánari upplýsingar um öryggisbrest þennan veitir persónuverndarfulltrúi Strætó, Sigurður Már Eggertsson, í gegnum netfangið personuvernd@straeto.is . Sigurður Már Eggertsson — Persónuverndarfulltrúi Strætó — personuvernd@straeto.is