
Nokkrar breytingar verða gerðar á leið 26 þann 7. janúar en leiðin ekur um Hellnahraun í Hafnarfirði. Tímatöflunni verður breytt ásamt því að ekki þarf lengur að panta fyrstu morgunferðir og síðustu ferðir dagsins. Ferðir frá Ásvallalaug kl. 8:32, 9:02, 14:50 og 15:20 þarf enn að panta. Einnig verður akstursleiðinni breytt. Ákveðið hefur verið að prófa þetta fyrirkomulag til 1. apríl nk. Biðstöðvar sem detta út: Steinhella, Rauðhella, Dranghella og Einhella Biðstöðvar sem bætast við: Koparhella, Tinhella og Dofrahella Athugið að biðstöðvarnar Berghella, Breiðhella, Gjáhella og Álfhella munu færast aðeins til. Tímatafla frá 7. janúar 2026 Ekki þarf að panta gulmerktu ferðirnar. Aðrar ferðir þarf að panta í síma 588 5522, minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.

Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 6. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3 % á stökum fargjöldum og 3,6 % á tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 670 kr. í 690 kr. og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5.600 kr. í 5.800 kr. Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1.000 kr. Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 10. október sl. og er í samræmi við gjaldskrárstefnu stjórnar Strætó um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu. Gjaldskrá Strætó ber að endurskoða tvisvar á ári en síðast var gjaldskráin hækkuð 8. janúar 2025. Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi þriðjudaginn 6. janúar 2026. Gjaldskrá Strætó frá 6. janúar 2026 Stök fargjöld Snertilausar greiðslur 690 kr. Fullorðnir 690 kr. Ungmenni 345 kr. Aldraðir 345 kr. Öryrkjar 207 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Næturstrætó - eitt fargjald 690 kr. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 11.600 kr. 116.000 kr. Ungmenni 5.800 kr. 58.000 kr. Aldraðir 5.800 kr. 58.000 kr. Nemar, 18 ára og eldri 5.800 kr. 58.000 kr. Öryrkjar 3.480 kr. 34.800 kr. Plast kort Klapp kort 1.000 kr.

Frá og með 1. janúar 2026 verður ekki hægt að nýta fargjöld milli Klapp greiðslukerfis Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu og greiðslukerfis Vegagerðarinnar, sem á og rekur landsbyggðarvagna. Þetta þýðir að fargjald sem greitt er í öðru kerfinu nýtist ekki upp í greiðslu í hinu. Strætó bs. sér um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og notast við Klapp greiðslukerfið. Landsbyggðarstrætó er á vegum Vegagerðarinnar, sem rekur eigið greiðslukerfi. Strætó sér um ákveðna upplýsingagjöf og þjónustu fyrir farþega. Farþegar greiða fargjald um borð í vögnunum með reiðufé, greiðslukorti eða áskriftarkorti landsbyggðarstrætó. Við bendum farþegum á að kynna sér fargjaldaskilmála og greiðslufyrirkomulag. Þessi breyting er gerð til að skýra framkvæmd og aðgreina greiðslukerfin samkvæmt gildandi reglum.

Stætó óskar viðskiptavinum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Reykjanesbær hefur ákveðið að auka vetrarþjónustu innanbæjarvagna hjá sér frá og með 2. janúar 2026. Markmiðið er að bæta þjónustuna og bregðast við breytingum sem Vegagerðin innleiðir á leiðakerfi á landsbyggðinni eftir áramót. Helstu breytingar: Sunnudagsakstur hefst, með sama fyrirkomulagi og á laugardögum – á öllum leiðum, R1, R3 og R4 R1 Ný morgunferð bætist við kl. 06:00 Bætt við ferð kl. 18:o0 R3 Ný morgunferð bætist við kl. 06:00 Ferð sem farin var kl. 18:00 færð til kl. 18:30

Þessa dagana er verið að taka í notkun 13 nýja rafknúna strætisvagna hjá Almenningsvögnum Kynnisferða og Hagvögnum sem sinna strætóakstri fyrir Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. Á síðasta ári gekk Strætó bs. frá samningi við félögin í kjölfar útboðs og verður allur strætófloti fyrirtækjanna orðinn rafknúinn fyrir lok árs 2029. Þessir nýju vagnar eru hluti af þeirri vegferð. Vagnarnir sem um ræðir koma frá kínverska framleiðandanum Higer og er Icelandia umboðsaðili þeirra hér á landi. Þeir eru með 482 kWh rafhlöðu og með drægni allt að 350 km. „ Við fögnum komu þessara vagna í strætóflotann og með tilkomu þeirra eru nú um 40 vagnar orðnir rafknúnir í akstri Strætó eða um 25%. Reynsla okkar af rekstri rafvagna er mjög góð og sjáum við fram á að þetta verði framtíðarorkugjafinn í almenningssamgöngum,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „Með þessum vögnum erum við hjá Hagvögnum að taka okkar fyrstu skref í rafvæðingu okkar flota og erum við spenntir yfir því,“ segir Hjörvar Sæberg Högnason, framkvæmdastjóri Hagvagna. Samhliða þessu hefur Strætó bs. sett upp hleðslustöðvar í bækistöðvum Almenningsvagna Kynnisferða og Hagvagna til að hlaða þessa bíla. „Við höfum átt farsælt samstarf við Higer síðan 2016 og höfum á síðustu tveimur árum verið að vinna að rafvæðingu okkar flota. Það er virkilega spennandi að taka þátt í þessum orkuskiptum í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og munum við halda ótrauð áfram í að rafvæða annan rekstur félagsins. Við reiknum með að vera komin með hátt í 40 rafknúna hópferðabíla í okkar rekstur fyrir lok næsta árs, “ segir Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia og Almenningsvagna Kynnisferða.

Aukaferðir verða farnar á leið 94 vegna breyttrar flugáætlunar yfir hátíðarnar. Þann 23. desember og 30. desember verður aukaferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50. Áætlun leiðar 94 verður því svona yfir hátíðarnar: Þorláksmessa, 23. desember Aukaferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Aðfangadagur, 24. desember Ferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Jóladagur, 25. desember Enginn akstur Annar í jólum, 26. desember Hefðbundin föstudagsáætlun Þriðjudagur, 30. desember Aukaerð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Gamlársdagur, 31. desember Ferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Nýársdagur, 1. janúar Enginn akstur

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2025 10:00 - 14:00 25. desember 2025 10:00 - 14:00 26. desember 2025 10:00 - 14:00 31. desember 2025 10:00 - 14:00 1. janúar 2026 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2025 Lokað 25. desember 2025 Lokað 26. desember 2025 Lokað 31. desember 2025 Lokað 1. janúar 2026 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun að viðbættum aukaferðum um morguninn. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Athugið að pöntunarleiðir 26 og 27 aka skv. áætlun á virkum degi. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun að viðbættum aukaferðum um morguninn. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Athugið að pöntunarleiðir 26 og 27 aka skv. áætlun á virkum degi. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Aðfangadagur og gamlársdagur Síðustu ferðir dagsins: Síðasta ferð Leið 1 Frá Skúlagötu 15:14 Leið 1 Frá Skarðshlíð 15:00 Leið 2 frá Háskóla Íslands 14:51 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Granda 15:20 Leið 3 frá Mjódd 15:21 Leið 4 frá Skúlagötu 15:19 Leið 4 frá Mjódd 14:51 Leið 5 frá Selvaði 14:48 Leið 5 frá HR 14:38 Leið 6 frá Háskóla Íslands 15:08 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Egilshöll A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Enginn akstur Leið 11 frá Eiðistorgi 14:59 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:43 Leið 14 frá Granda 14:35 Leið 15 frá Reykjavegi 14:43 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Skúlagötu 14:43 Leið 17 frá Mjódd 14:51 Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Skúlagötu 15:14 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Álfholti 14:41 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 15:01 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 25 frá Jöfurbás Pöntunarþjónusta 15:10 Leið 25 frá Spöngin A Pöntunarþjónusta 15:18 Leið 26 frá Ásvallalaug Pöntunarþjónusta 15:07 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:16 Leið 28 frá Hamraborg 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 frá Háholti Pöntunarþjónusta 15:19 Leið 29 frá Hofsgrund Pöntunarþjónusta 15:28 Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg 15:07 Leið 36 frá Hamraborg 15:07

Hér má nálgast upplýsingar um akstur hjá Strætó á landsbyggðinni yfir hátíðarnar. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Suðurland Leið 51 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 10:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 10:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 52 Aðfangadagur, 24.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:42 frá BSÍ til Landeyjahafnar* kl. 10:45 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:42 frá BSÍ til Landeyjahafnar* kl. 10:45 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur * Ef Landeyjahöfn er lokuð, ekur vagninn aðeins til og frá Hvolsvelli. Leiðir 71, 72 og 73 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. ( Leiðir 71 og 72 aka ekki á sunnudögum ) Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Suðurnes Leið 55 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 87 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:00 frá sveitarfélaginu Vogar til Miðstöðvar kl. 10:23 frá Miðstöð til sveitarfélagsins Vogar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:00 frá sveitarfélaginu Vogar til Miðstöðvar kl. 10:23 frá Miðstöð til sveitarfélagsins Vogar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 89 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Vestur- og Norðurland Leið 57 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið er samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 58, 59, 82 og 84 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 63, 64, 65 og 81 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Norður- og Norðausturland Leiðir 56, 78 og 79 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Austurland Leiðir 91, 92, 93 og 96 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 94 Þorláksmessa, 23.desember Aukaferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Aðfangadagur, 24.desember Ferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Hefðbundin föstudagsáætlun Þriðjudagur, 30.desember Aukaferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Gamlársdagur, 31.desember Ferð frá Djúpavogi kl. 8:55 og frá Höfn kl. 10:50 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ Leiðir R1, R3 og R4 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar á Akureyri Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun (Athugið að leiðir A1, A2, A3, A4 og A5 aka ekki á sunnudögum) Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur

Tekur gildi 1. janúar 2026. Tvær nýjar leiðir munu bætast í kerfið og tímaáætlun vagna verður áreiðanlegri. Með breyttu leiðakerfi er stigið skref í átt að betri og aðgengilegri almenningssamgöngum á landsbyggðinni. Markmiðin eru að þjónusta sem best atvinnu- og skólasókn, tengja áfram landshluta og vinna að tengingu milli leiðakerfa landsbyggðar- og innanbæjarvagna. Vegagerðin á og rekur landsbyggðarvagna og hefur unnið að breytingunum síðastliðna mánuði en Strætó sér um upplýsingagjöf og þjónustu fyrir farþega. Með breytingum á leiðakerfinu er einnig verið að framfylgja stefnu stjórnvalda um að færa almenningssamgöngur á landsbyggðinni yfir í hreinorkuvagna. Grunnurinn að þeirri breytingu er að stilla leiðakerfinu upp í takti við aðgengi og dreifni hleðsluinnviða í landinu. Þannig verða til dæmis allir vagnar á Suðurlandi rafmagnsvagnar, nema vagninn sem ekur Höfn – Vík – Höfn. Bætt þjónusta Tvö ný leiðarnúmer Áreiðanlegri tímaáætlun Örari tíðni ferða á suðvesturhorninu Betri tenging við flugvelli Búið er að uppfæra leiðavísinn og því geta notendur fundið bestu leiðina fyrir sig í Skipuleggja ferð með því að velja dagsetninguna 1. janúar 2026 eða síðar þegar breytt leiðakerfi tekur gildi. Allar breytingar Suðurland Leiðir og skiptast upp í þrjár leiðir: Leið 51: Selfoss – Reykjavík Leið 52: Reykjavík – Höfn Leið 53: Selfoss – Landeyjahöfn – Hvolsvöllur Með þessu fæst aukin tíðni milli Reykjavíkur og Selfoss og á milli Hvolsvallar og Selfoss þar sem þessar leiðir verða nú óháðar leiðinni til Hafnar. Allir vagnar á Suðurlandi, nema vagninn sem ekur Höfn – Vík – Höfn, verða rafmagnsvagnar. Leið Selfoss – Reykjavík Ekur aðeins milli Selfoss og Reykjavíkur Aukin tíðni á virkum dögum Fækkun stoppistöðva í Norðlingaholti úr fjórum í eina – stoppað við Helluvað Breytt akstursleið innan Selfoss – Stoppað á N1 Selfossi, FSU og Ráðhúsinu Leið Reykjavík – Höfn Ekur á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði Ekur fjórar ferðir á viku – þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga og sunnudaga Fækkun stoppistöðva í Norðlingaholti úr fjórum í eina – stoppað við Helluvað Breytt akstursleið innan Selfoss – Stoppað á N1 Selfossi, FSU og Ráðhúsinu Leið Selfoss – Landeyjahöfn – Hvolsvöllur Ekur á milli Selfoss, Hvolsvallar og Landeyjahafnar Tengist áfram skv. siglingaáætlun Herjólfs í tveimur ferðum Fyrir farþega sem ferðast á milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar þarf að taka tvo vagna; Leið 51 milli Reykjavíkur og Selfoss og leið 53 milli Selfoss og Landeyjahafnar Aukin tíðni ferða milli Hvolsvallar og Selfoss Breytt akstursleið innan Selfoss – Stoppað á N1 Selfossi, FSU og Ráðhúsinu Leið Þorlákshöfn – Hveragerði Ferðum fjölgað úr þremur í fimm á virkum dögum Bætt tenging við leið 51 bæði til Selfoss og Reykjavíkur Leið Selfoss – Flúðir Breytt akstursleið innan Selfoss – Stoppað á N1 Selfossi, FSU og Ráðhúsinu Stoppistöðvar við Þrastarlund, Þóroddsstaði og Þjórsárdalsveg detta út Leið Selfoss – Grímsnes Breytt akstursleið innan Selfoss Breytt akstursleið innan Selfoss – Stoppað á N1 Selfossi, FSU og Ráðhúsinu Stoppistöðvar við Þrastarlund, Þóroddsstaði og Þjórsárdalsveg detta út Suðurnes Leið KEF – Airport – Reykjavík Breytt akstursleið innan Reykjanesbæjar Samræmd tímaáætlun leiðar 55 við innanbæjarvagna Reykjanesbæjar í Miðstöð Hættir akstri inn að Ásbrú og stoppar nú aðeins í Miðstöð og við Tjarnarhverfi Ferðir til og frá BSÍ á virkum dögum verða alls fimm á dag og á öðrum tímum aka vagnar til og frá Firði Hafnarfirði Tekur við reiðhjólum á fyrirfram ákveðnum ferðum í tímatöflu Leið Vogar – Miðstöð Reykjanesbær Færri ferðir til Reykjanesbæjar Í ferðum til Reykjanesbæjar verður ávallt stoppað við FS á stoppistöðinni Holtaskóli sem fær nafnið Holtaskóli – FS og Miðstöð Tengist leið 55 við Vogaafleggjara til að tengjast höfuðborgarsvæðinu í morgun- og síðdegisferðum Leið Garður – Sandgerði – Miðstöð Reykjanesbær Akstursleið snúið við; verður Garður-Sandgerði-KEF-Airport-Reykjanesbær Ekur í völdum ferðum upp að Keflavíkurflugvelli. Fyrsta ferð frá Garði verður kl. 5:12 og verður vagninn kl.5:30 við Keflavíkurflugvöll Ferðum á virkum dögum fækkað úr ellefu í átta ferðir á dag Breytt akstursleið í Suðurnesjabæ – Stoppað á Garðvangi og Póshúsinu í Garði, stoppað hjá Vörðunni og Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði Í ferðum til Reykjanesbæjar verður ávallt stoppað við FS á stoppistöðinni Holtaskóli sem fær nafnið Holtaskóli – FS og Miðstöð Vestur- og Norðvesturland Akstursleið á milli Reykjavíkur og Akureyrar verður skipt upp í tvær leiðir: Leið 50 : Reykjavík – Akranes – Borgarnes Leið 57 : Reykjavík – Akureyri Leiðin milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness er því orðin óháð leggnum á milli Reykjavíkur og Akureyrar og tímaáætlun því áreiðanlegri fyrir vikið. Leið Reykjavík – Akranes – Borgarnes Ekur milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness Aukin tíðni á milli Akraness og Borgarness Breytt akstursleið innan Akraness – Stoppað á Þjóðbraut, Bæjarskrifstofunni og Innnesvegi Leið Akureyri – Reykjavík Ekur milli Reykjavíkur og Akureyrar án viðkomu á Akranesi Íbúar á Akranesi sem vilja ferðast norðar en Borgarnes taka leið 50 í Borgarnes og tengjast þar leið 57 til að ferðast áfram norður Ekur eina ferð á dag alla daga – tímatöflu breytt í takt við vetrarþjónustu Vegagerðarinnar Ekur að heimavistum MA og VMA á sunnudagskvöldum Ekur frá Akureyrarflugvelli á leggnum Akureyri-Reykjavík Leið Stykkishólmur – Borgarnes Óbreytt tíðni Ný tímaáætlun – tengist leið 50 í Borgarnesi til og frá höfuðborgarsvæðinu Tengist áfram leið 82 við stoppistöðina Vatnaleið Það verður stoppað á Sundlauginni Stykkishólmi í stað Olís Leið Borgarnes – Hólmavík Óbreytt tíðni Ný tímaáætlun – tengist leið 50 í Borgarnesi til og frá höfuðborgarsvæðinu. Leið Borgarnes – Reykholt Akstursdögum fækkað úr fimm í þrjá – ekur mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga Leið Hellissandur – Stykkishólmur Óbreytt tíðni Ný tímatafla – tengist áfram leið 58 við stoppistöðina Vatnaleið Það verður stoppað á Sundlauginni Stykkishólmi í stað Olís Leið Skagaströnd – Blönduós Óbreytt tíðni Tengist áfram leið 57 á Blönduósi Norður- og Norðausturland Leið Egilsstaðir – Akureyri Leiðinni verður snúið við og mun aka Egilsstaðir – Akureyri – Egilsstaðir Ekur í öllum ferðum inn á Akureyrarflugvöll og tímaáætlun ferða sett upp m.v. áætlunarflug til og frá Reykjavík Leið Siglufjörður – Akureyri Ekur í öllum ferðum inn á Akureyrarflugvöll og fyrir utan morgunferðina er tímaáætlun ferða sett upp m.v. áætlunarflug til og frá Reykjavík Breytt akstursleið innan Akureyrar í , stoppar áfram við HA, VMA og MA en stoppistöðin Kaupvangsstræti dettur út Stoppistöð fyrir Háskólann á Akureyri Borgarbraut/Háskóli dettur út og Dalsbraut/Norðurslóð kemur í staðinn Leið Húsavík – Akureyri Tímatöflu breytt í takt við vetrarþjónustutíma Vegagerðarinnar Ekur í öllum ferðum inn á Akureyrarflugvöll og fyrir utan morgunferðina er tímaáætlun ferð setta upp m.v. áætlunarflug til og frá Reykjavík Breytt akstursleið innan Akureyrar í , stoppar áfram við HA, VMA og MA Stoppistöð fyrir Háskólann á Akureyri Borgarbraut/Háskóli dettur út og Dalsbraut/Klettaborg kemur í staðinn

Truflanir hafa orðið á leiðakerfi Strætó þar sem margir vagnar eru fastir vegna færðar og umferðar. Akstri verður þó haldið áfram eftir bestu getu og lögð áhersla á að vagnar séu á hverri leið (28. október). Þjónustuver Strætó er opið, en móttaka á Hesthálsi mun loka kl. 14:00. Samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins er fólk hvatt til að huga að heimferð sem allra fyrst, þar sem veður og færð versna eftir því sem líður á daginn. Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi kl. 17:00 og hefur hún þegar áhrif víða um land. Margar ferðir á landsbyggðinni hafa verið felldar niður, en hægt er að fylgjast með stöðu ferða undir Tilkynningar. Við þökkum farþegum fyrir þolinmæðina og skilninginn.

Röskun mun verða á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá morgni til kvölds vegna kvennaverkfallsins þann 24. október. Breytingar munu því verða á akstursleiðum og munu leiðir 1, 2, 3, 6, 11, 12, 13 og 14 aka hjáleiðir. Tíðni ferða er eins og venjulega á föstudegi og almennt fargjald gildir. Hægt er að borga um borð í vagninum stakt fullorðinsfargjald með snertilausum greiðslum, kaupa miða í Klappinu, nota Klapp tíu eða Klapp kort. Þjónusta í þjónustuveri Strætó kann að verða takmörkuð vegna kvennaverkfallsins. Kort af hjáleiðum Athugið að tímasetning hjáleiða er mismunandi eftir leiðum og eru áætlaðar,fer eftir hvenær götur verða opnaðar Leið 1 Leið 2 Leið 3 Leið 6 Leið 11 Leið 12 Leið 13 Leið 14 Yfirlitskort yfir allar hjáleiðir

Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs og gæðasviðs, tók á móti viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir hönd Strætó, á árlegri viðurkenningarathöfn sem haldin var þann 9. október sl. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur að markmiði að auka jafnvægi milli kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Að þessu sinni hlutu 90 fyrirtæki, 16 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar viðurkenninguna. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Kynjahlutfall í stjórn Strætó er 50/50 en 55/45 í framkvæmdastjórn. Kynjahlutfallið meðal allra stjórnenda í stofnuninni er 60/40. Ljósmyndir: Silla Páls

Þann 1. október breytist tímaáætlun á leið 94. Engar ferðar verða farnar á fimmtudögum en tvær ferðir verða á miðvikudögum á breyttum tíma. Aðrar ferðir verða eins.

Biðstöðin Borg í Grímsnesi verður á nýjum stað frá og með 30. september en þá verður hún staðsett hjá sundlauginni. Leiðir 72 og 73 stöðva á þessari biðstöð.

Frá og með 30. september hefst aftur hefðbundin áætlun á leiðum 51 og 52. Tímatöflunum var tímabundið breytt þegar Herjólfur fór í slipp en ferjan er nú komin úr slipp og leiðirnar fara því aftur á sína hefðbundnu áætlun.

Mánudaginn 22. september verður frítt í Strætó bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Tilefnið er bíllausi dagurinn sem er hluti af Evrópsku samgönguvikunni, sem hófst 16. september. Bíllausi dagurinn er frábært tækifæri til að leggja bílnum til hliðar og prófa aðra ferðamáta. Hvort sem það er að hoppa upp í Strætó, hjóla, ganga eða jafnvel skokka í vinnu eða skóla. Við hvetjum alla til að taka þátt og njóta þess að ferðast á umhverfisvænan og hagkvæman hátt.

Evrópsk samgönguvika stendur yfir frá 16. – 22. september. Þema vikunnar í ár er Samgöngur fyrir öll . Þemanu er ætlað að hvetja alla til að vinna að samfélagi þar sem samgöngur eru í boði, aðgengilegar, á viðráðanlegu verði, öruggar og fyrir öll. Að velja almenningssamgöngur eða fara gangandi eða hjólandi verði valkostur fyrir öll. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum og hefur Strætó tekið þátt síðan átakið hófst á Íslandi. Fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir verða haldnir í tilefni af samgönguviku þ.á.m. málþingið Fjölbreyttar samgöngur fyrir öll sem haldið verður kl. 9:00 þann 18. september í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar. Bíllausi dagurinn verður svo eins og vanalega þann 22. september. Hægt er að kynna sér alla viðburðina á Facebook síðu samgönguviku

Strætó leggur áherslu á að almenningssamgöngur séu öruggur og aðgengilegur ferðamáti fyrir öll. Á undanförnum vikum hefur umræða átt sér stað í samfélaginu um upplifanir hinsegin fólks, meðal annars í sjónvarpsþættinum Hatur á RÚV, þar sem var sérstaklega fjallað um upplifun hinsegin einstaklinga af almannarýmum. Í kjölfar þessarar umræðu hefur Strætó gripið til aðgerða og hafið samstarf við Flotann – flakkandi félagsmiðstöð og Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og Tjarnarinnar. Markmið samstarfsins er að tryggja að allir farþegar upplifi sig velkomna og örugga um borð í strætisvögnum með sérstaka áherslu á yngri farþega og ungmenni. Samstarfið snýr að því að: leggja sérstaka áherslu á að öll eru velkomin um borð hvetja bæði starfsfólk og farþega til að láta vita ef eitthvað kemur upp bjóða upp á fræðslu fyrir starfsfólk Strætó skerpa á verklagi til að bregðast hratt og rétt við atvikum Strætó vill vera raunverulegur valkostur fyrir öll og leggur áherslu á að almenningssamgöngur séu öruggur ferðamáti. Á næstu vikum verða næstu skref samstarfsins útfærð í sameiningu og kynnt fyrir almenningi. Besta leiðin á að vera fyrir öll.

Aukaferð verður farin þriðjudaginn 9. september á leið 93 þar sem Norræna mun sigla þann daginn í stað miðvikudags. Er um einstakt tilfelli að ræða þar sem ferjan breytir nú yfir í vetraráætlun. Mun aukaferðin því vera bæði á þriðjudag og miðvikudag þessa vikuna en framvegis verður hún á miðvikudögum í takt við siglingar Norrænu.

Breytt áætlun verður á leið 52 frá og með 8. september þegar Herjólfur fer í slipp og Baldur tekur við. Áætlað er að þetta verði til 29. september. Baldur mun sigla eftir sumaráætlun og því nauðsynlegt að breyta tímatöflunni í takt við nýjan siglingartíma. Leið 51 mun taka breytingum um helgar á meðan á þessu stendur sem munu ganga til baka um leið og Herjólfur er búinn í slipp. Leið 51 Helgar Mjódd->Selfoss Brottför klukkan 15:30 í staðinn fyrir 16:30 (-60m) Leið 52 Virkir dagar Mjódd->Landeyjahöfn Brottför klukkan 07:27 í staðinn fyrir 07:57 (-30m) Brottför klukkan 18:27 í staðinn fyrir 17:57 (+30m) Landeyjahöfn->Mjódd Brottför klukkan 10:15 í staðinn fyrir 10:45 (-30m) Brottför klukkan 21:15 í staðinn fyrir 20:45 (+30m) Helgar Mjódd/Bsí->Landeyjahöfn Brottför klukkan 07:12 í staðinn fyrir 07:42 (-30m) Brottför klukkan 16:27 í staðinn fyrir 15:27 (+60m) Landeyjahöfn->Mjódd Brottför klukkan 10:15 í staðinn fyrir 10:45 (-30m) Brottför klukkan 19:15 í staðinn fyrir 18:15 (+60m)

Vetraráætlun mun nú hefjast á nokkrum leiðum á landsbyggðinni. Þann 28. ágúst hefst vetraráætlun á leið 59 . Þann 30. ágúst hefst vetraráætlun á leið 56 . Þann 1. september hefst vetraráætlun á leið 94 en þá verður ekki lengur stoppað í Breiðdalsvík og stoppistöðin á Höfn verður einungis á flugvellinum. Leið 93 mun einnig breytast en frá og með 10. september mun aukaferðin á leiðinni færast yfir á miðvikudaga í takt við siglingar Norrænu. Leiðir 61 og 62 á Vestfjörðum hætta akstri 31. ágúst. Akstur er þegar hafinn á leiðum 63 , 64 , 65 og 81 en aksturinn á þessum leiðum miðast við skóladagatal og því einungis ekið á skóladögum.

Næturstrætó mun fara frá Skúlagötu alla helgina vegna götulokana á Menningarnótt. Á þetta því við bæði um aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina) og sunnudags (laugardagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið.

Þjónusta Strætó verður með breyttu sniði á Menningarnótt. Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu. Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær. Lokanir og fyrirkomulag Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00. Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð . Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Leið 1 mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10 mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leið 6 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15 munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18 munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð , áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Hægt er að skoða tíðnina í tímatöflum þessara leiða undir 23. ágúst. Vagnar gætu þurft að aka óhefðbundna leið vegna lokana og geta því akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða . — Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru. Hægt er að greiða í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Snertilausri greiðslu Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti Klapp tíu Nánari upplýsingar á Klappid.is Leiðakerfi rofið kl. 21:30 Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut. Það kostar ekkert í þessar ferðir. Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu: Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 22:20. Brottfaratímar á síðustu ferð frá Kl. 21:35 frá Skúlagötu Kl. 21:34 frá Skarðshlíð. Kl. 21:24 frá HÍ Kl. 21:16 frá Mjódd Kl. 21:25 frá Granda Kl. 21:21 frá Mjódd Kl. 21:19 frá Skúlagötu Kl. 21:21 frá Mjódd Kl. 21:23 frá HR Kl. 21:33 frá Norðlingaholti Kl. 21:33 frá HÍ Kl. 21:33 frá Egilshöll Kl. 21:34 frá Tungubökkum Kl. 21:35 frá Egilshöll Kl. 21:20 frá Mjódd Kl. 21:22 frá Eiðistorgi Kl. 21:20 frá Skerjafirði Kl. 21:37 frá Ártúni Kl. 21:10 frá Sléttuvegi Kl. 21:38 frá Öldugranda Kl. 21:29 frá Granda Kl. 21:10 frá Verzló Kl. 21:15 frá Reykjavegi Kl. 21:30 frá Flyðrugranda Kl. 21:36 frá Spöng Kl. 21:44 frá Skúlagötu Kl. 21:18 frá Kaplakrika Kl. 21:22 frá Ásvallalaug Kl. 21:11 frá Álfholti Kl. 21:22 frá Mjódd Kl. 21:19 frá Spöng Kl. 21:03 frá Ásgarði Kl. 21:07 frá Hamraborg Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29. Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa. Almennt fargjald gildir. Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar og ganga þá í báðar áttir. Þ.e. hægt verður að taka vagninn niður í bæ einnig. Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50. Síðasta ferð í bæinn er: Leið 101 101 Hafnarfjörður – Frá Skarðshlíð kl. 00:20 Leið 102 102 Kópavogur – Frá Álfkonuhvarfi 00:20 Leið 103 103 Breiðholt – Frá Mjódd kl. 00:27 Leið 104 104 Úlfarsárdalur – Frá Gefjunarbrunni kl. 00:20 Leið 105 105 Norðlingaholt – Frá Selvaði kl. 00:20 Leið 106 106 Mosfellsbær – Frá Bjarkarholti kl. 00:20 Leið 107 107 Seltjarnarnes – Frá Boðagranda kl. 00:22 Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð . Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti. Skutluþjónusta „Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 23:15. Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll. Það kostar ekkert í skutluþjónustuna. Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvunum sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum. Miðborgin tæmd Um 22:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni. Það kostar ekkert í tæminguna. Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 22:00 – 23:15. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir. Leiðir Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt. * Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30. Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi Leiðarkort Ferðir til Selfoss, Keflavíkur og Akraness Áætlunarferðir á leiðum 51, 55 og 57 munu aka frá Skúlagötu kl. 22:40. Almennt fargjald gildir. Hægt er að greiða í landsbyggðarvögnum með debit- eða kreditkorti um borð í vagninum, reiðufé og landsbyggðarkortum. Athugið breytta áætlun þennan dag á leiðum 51, 55 og 57 Leið 51 Í stað ferða frá Mjódd kl. 20:30 og 23:30 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40 með viðkomu í Mjódd á leið til Selfossar. Síðasta ferðin frá Selfossi kl. 22:40 fellur niður. Leið 55 Í stað ferða frá Firði kl. 21:53 og 23:53 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40, leiðin mun stöðva á biðstöðvunum Hlíðum, Kringlumýrarbraut, Ásgarði C og Firði á leið til Keflavíkur. Síðustu tvær ferðir frá Keflavíkurflugvelli kl. 20:55 og 22:55 falla niður. Leið 57 Í stað ferðar frá Mjódd kl. 20:00 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40 með viðkomu í Mjódd á leið til Akraness. Næturstrætó Klukkan 01:20 aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó. Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum en byrja á Skúlagötu vegna götulokana. Almennt fargjald gildir. Stakt fargjald í næturstrætó er 670 kr. – Afsláttarfargjöld gilda ekki Hægt er að greiða snertilaust með greiðslukorti/síma í næturstrætó Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó Næturstrætó frá Skúlagötu alla helgina Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu alla helgina, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina) og sunnudags (laugardagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið Brottfarir næturvagna á Menningarnótt 01:20 – 02:25 – 03:45 01:30 – 02:35 – 03:40 01:25 – 02:30 – 03:35 01:29 – 02:29 – 03:29 01:30 – 02:35 – 03:40

Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Með þessari breytingu verður mikilvægt skref stigið í átt að betri og aðgengilegri almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18% í rúmlega 50%. Markmiðið með breytingunum er að bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni og auka þannig notkun almenningssamgangna. Þjónustuaukningin er liður í Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó, auk þess að vera undirbúningur fyrir Nýtt leiðanet sem tekur gildi árið 2031. Nú þegar styttist í breytingarnar er mikilvægt að notendur kynni sér þær vel. Við stórbætum þjónustuna Aukin þjónusta í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu Lengri þjónustutími á kvöldin Styttri ferðatími frá Kópavogi og Breiðholti með nýrri forgangsakrein Lengri þjónustutími á Kjalarnesi og stóraukin tíðni Búið er að uppfæra leiðavísinn og því geta notendur fundið bestu leiðina fyrir sig í Skipuleggja ferð með því að velja dagsetninguna 17. ágúst eða síðar þegar þjónustuaukningin hefst. Helstu breytingar Aukin tíðni á annatíma: Leiðir 3 , 5 , 6 og 12 úr 15 mín. í 10 mín. Leiðir 19 , 21 og 24 úr 30 mín. í 15 mín. Milli annatíma á virkum dögum: Leiðir 3 , 5 , 12 og 15 úr 30 mín. í 15 mín. Lengri þjónustutími á kvöldin á leiðum: Leiðir 1 , 2 , 3 , 4 , 5 , 6 , 7 , 11 , 12 , 15 , 18 , 19 og 21 Vegna aukinnar tíðni munu vagnar ekki bíða eftir hver öðrum á annatíma í Ártúni Vegna aukinnar tíðni verða einnig leiðir 12 og 3 ekki í tengingum við aðrar leiðir í Mjódd á annatíma Allar breytingar Leið Breyting frá og með 17. ágúst Ný tímatafla 1 Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 2 Lengri þjónustutími á kvöldin Tímatafla lagfærð Ný tímatafla 3 10 mín tíðni á annatíma 15 mín tíðni utan annatíma Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 4 Lengri þjónustutími á kvöldin Leiðin breytir akstursleið – fer um Kringlumýrarbraut vegna nýrrar forgangsakreinar og ekur því ekki um Miklubraut og Háaleitisbraut. Ný tímatafla 5 10 mín tíðni á annatíma 15 mín tíðni utan annatíma Tímatafla lagfærð Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 6 10 mín tíðni á annatíma Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 7 Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 11 Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 12 10 mín tíðni á annatíma 15 mín tíðni utan annatíma Lengri þjónustutími á kvöldi Ný tímatafla 15 15 mín tíðni milli annatíma virka daga Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 18 Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 19 15 mín tíðni á annatíma Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 21 15 mín tíðni á annatíma Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla 22 Verður ekki lengur í pöntunarþjónustu á kvöldin og um helgar heldur ekur skv. tímatöflu. 30 mín tíðni virka daga og um helgar Síðasta ferð á leið 22 verður kl. 22:14 Ný tímatafla 23 Verður ekki lengur í pöntunarþjónustu á kvöldin og um helgar heldur ekur skv. tímatöflu. 30 mín tíðni virka daga og um helgar Síðasta ferð á leið 23 verður kl. 22:17 Ný tímatafla 24 15 mín tíðni á annatíma Hjáleið um Dvergshöfða hættir þar sem framkvæmdum er lokið og leiðin ekur aftur um Stórhöfða. Ný tímatafla 25 Leiðinni verður skipti í tvo leggi: Spöngin – Gufunes Gufunes – Spöngin Þetta er gert til að tímasetja ferðir betur við aðrar ferðir til og frá Spönginni. Ný tímatafla 29 Tíðni verður stóraukin Lengri þjónustutími á kvöldin Ný tímatafla

Um helgina fóru Hinsegin dagar fram í 26. sinn þar sem þúsundir lögðu leið sína í miðbæ Reykjavíkur til að taka þátt í Gleðigöngunni, fagna fjölbreytileikanum og styðja við baráttu hinsegin fólks. Strætó tók þátt í göngunni eins og undanfarin ár en Gleðivagninn í ár er listilega skreyttur verkum Hrafnhildar Arnardóttur /Shoplifter og fagnar fjölbreytileikanum á ferð sinni um höfuðborgarsvæðið. Það var auglýsingastofan Hér&Nú sem sá um hönnun Gleðivagnsins. Hægt er að fylgjast með ferðum vagnsins á rauntímakorti Strætó en hann er merktur með:

Vetrarakstur á leiðum 51 og 52 hefst mánudaginn 11. ágúst með breyttri tímatöflu. Leið 51 Virkir dagar Selfoss -> Mjódd: Brottför klukkan 10:50 í staðinn fyrir 11:50 (-60m) Mjódd -> Selfoss: Brottför klukkan 07:10 í staðinn fyrir 08:10 (-60m) Brottför klukkan 12:00 í staðinn fyrir 12:20 (-20m) Helgar Selfoss -> Mjódd: Brottför klukkan 20:30 í staðinn fyrir 20:00 (+30m) Mjódd -> Selfoss: Brottför klukkan 22:20 í staðinn fyrir 21:30 (+50m) Leið 52 Virkir dagar Mjódd->Landeyjahöfn Brottför klukkan 07:57 í staðinn fyrir 08:00 (-3m) Brottför klukkan 17:57 í staðinn fyrir 17:45 (+12m) Landeyjahöfn->Mjódd Brottför klukkan 10:45 í staðinn fyrir 10:35 (+10m) Brottför klukkan 20:45 í staðinn fyrir 20:40 (+5m) Helgar Mjódd->Landeyjahöfn Brottför (frá Mjódd) klukkan 07:42 í staðinn fyrir 07:55 (-13m) Brottför klukkan 15:27 í staðinn fyrir 15:15 (+12m) Landeyjahöfn->Mjódd Brottför klukkan 10:45 í staðinn fyrir 10:35 (+10m) Brottför klukkan 18:15 í staðinn fyrir 18:00 (+15m) Athugið að breytingar verða aftur á tímatöflu þann 8. september þegar Herjólfur fer í slipp og Baldur tekur við. Nánari upplýsingar um þær breytingar verða birtar þegar nær dregur.

Akstur og opnunartími Strætó á frídegi verslunarmanna 4. ágúst. Höfuðborgin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Landsbyggðin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Leiðir 91, 93 og 94 aka skv. mánudagsáætlun Enginn akstur verður á leiðum 92 og 96 Móttaka Strætó verður lokuð en þjónustuverið verður opið þennan dag frá kl. 10:00 – 14:00.

Leið 52, sem gengur milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar mun aka 20 aukaferðir vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum dagana 31. júlí – 4. ágúst 2025. Allar aukaferðir eru skipulagðar með áætlun Herjólfs að leiðarljósi en þær munu einungis stoppa í Mjódd, Hveragerði, N1 Selfossi, Hellu, Hvolsvelli og Landeyjahöfn. Fastar ferðir skv. tímatöflu stoppa á hefðbundum stoppum á leið 52, einnig þeim ferðum sem er flýtt og eru þær stjörnumerktar (*) í töflunum. Hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða reiðufé. Mjódd → Landeyjahöfn Fimmtudagur 31. júlí Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:00 07:10* 09:13 10:00 09:10 11:15 12:00 14:10 16:15 17:00 16:10 18:15 19:00 18:10* 20:13 21:00 - - 23:15 * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Föstudagur 1. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:00 07:10* 09:13 10:00 09:10 11:15 12:00 11:10 13:15 14:00 - - 16:00 15:10 17:15 18:00 17:10 (Brottför flýtt úr Mjódd)* 19:13 20:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 18:10) 19:10 21:15 22:00 * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Laugardagur 2. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn 07:15 (07:00 frá BSÍ)* 09:18 10:00 - - 12:00 11:10 13:15 14:00 13:10 15:15 16:00 15:10 (Brottför flýtt úr Mjódd)* 17:13 18:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 18:10) * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Sunnudagur 3. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 09:00 08:10 (07:55 frá BSÍ)* 10:13 11:00 10:10 12:15 13:00 12:10 14:15 15:00 14:10 (Brottför flýtt úr Mjódd)* 16:13 17:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 18:10) * Samkvæmt tímatöflu Landeyjahöfn → Mjódd Mánudagur 4. ágúst Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum Brottför Strætó úr Landeyjahöfn Koma Strætó í Mjódd 02:00 03:00 05:00 04:00 05:00 07:00 06:00 07:10 09:10 08:00 09:00 (Brottför flýtt)* 11:02 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 10:05) 10:00 11:05 13:05 13:00 14:05 16:05 15:00 16:05 18:05 17:00 18:05 20:05 19:00 20:00 (Brottför flýtt)* 22:02 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 21:00) 21:00 22:10 00:10 23:00 24:00 02:00 * Samkvæmt tímatöflu

Frá og með 1. júli tekur við sumaráætlun á leiðum 51 og 52. Leið 51 – Virkir dagar Ferð frá Mjódd að Selfossi fer klukkan 8:10 í staðin fyrir 7:10 Ferð frá Mjódd fer klukkan 12:20 í staðin fyrir 12:00 Ferð frá Selfossi að Mjódd fer klukkan 11:50 í staðin fyrir 10:50 Leið 51 – Helgar Ferð frá Mjódd að Selfossi fer klukkan 20:00 í staðin fyrir 20:30 Ferð frá Selfossi að Mjódd fer klukkan 21:30 í staðin fyrir 22:20 Leið 52 – Virkir dagar Ferð frá Mjódd að Landeyjahöfn fer klukkan 7:10 í staðin fyrir 8:00 Ferð frá Mjódd að Landeyjahöfn fer klukkan 18:10 í staðin fyrir 17:45 Ferð frá Landeyjahöfn að Mjódd fer klukkan 10:00 í staðin fyrir 10:35 Ferð frá Landeyjahöfn að Mjódd fer klukkan 21:00 í staðin fyrir 20:40 Biðtími á Hvolsvelli fjarlægður Leið 52 – Helgar Ferð frá BSÍ að Landeyjahöfn fer klukkan 7:00 í staðin fyrir 7:55 Ferð frá Mjódd að Landeyjahöfn fer klukkan 18:10 í staðin fyrir 15:15 Ferð frá Landeyjahöfn að Mjódd fer klukkan 10:05 í staðin fyrir 10:35 Ferð frá Landeyjahöfn að Mjódd fer klukkan 21:00 í staðin fyrir 18:00 Biðtími á Hvolsvelli fjarlægður Tímaáætlun á leiðum 71, 72 og 73 helst óbreytt