
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 6. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3 % á stökum fargjöldum og 3,6 % á tímabilskortum.
Stakt fargjald fer þannig úr 670 krónur í 690 krónur og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5600 krónur í 5800 krónur
Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1000 krónur
Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 10. október sl. og er í samræmi við gjaldskrárstefnu stjórnar Strætó um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu. Gjaldskrá Strætó ber að endurskoða tvisvar á ári en síðast var gjaldskráin hækkuð 8. janúar 2025.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni.
Ný gjaldskrá tekur gildi þriðjudaginn 6. janúar 2026.
Gjaldskrá Strætó frá 6. janúar 2026
Stök fargjöld
Snertilausar greiðslur | 690 krónur |
Fullorðnir | 690 krónur |
Ungmenni | 345 krónur |
Aldraðir | 345 krónur |
Öryrkjar | 207 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Næturstrætó - eitt fargjald | 690 krónur |
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 11600 krónur | 116000 krónur |
Ungmenni | 5800 krónur | 58000 krónur |
Aldraðir | 5800 krónur | 58000 krónur |
Nemar, 18 ára og eldri | 5800 krónur | 58000 krónur |
Öryrkjar | 3480 krónur | 34800 krónur |
Plast kort
Klapp kort | 1000 krónur |


