
Þjónusta Strætó verður með breyttu sniði á Menningarnótt.
Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu.
Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær.
Lokanir og fyrirkomulag
Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00.
Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð.
Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag.
Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
Leið 1
- mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
- mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leið 6
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15
- munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
- munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Hægt er að skoða tíðnina í tímatöflum þessara leiða undir 23. ágúst.
Vagnar gætu þurft að aka óhefðbundna leið vegna lokana og geta því akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða. — Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.
Hægt er að greiða í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:
- Snertilausri greiðslu
- Klappinu appi í síma
- Áfyllanlegu Klapp korti
- Klapp tíu
Nánari upplýsingar á Klappid.is
Leiðakerfi rofið kl. 21:30
Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.
Það kostar ekkert í þessar ferðir.
Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:
Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 22:20.
Brottfaratímar á síðustu ferð frá
Kl. 21:35 frá Skúlagötu | Kl. 21:34 frá Skarðshlíð. | |
Kl. 21:24 frá HÍ | Kl. 21:16 frá Mjódd | |
Kl. 21:25 frá Granda | Kl. 21:21 frá Mjódd | |
Kl. 21:19 frá Skúlagötu | Kl. 21:21 frá Mjódd | |
Kl. 21:23 frá HR | Kl. 21:33 frá Norðlingaholti | |
Kl. 21:33 frá HÍ | Kl. 21:33 frá Egilshöll | |
Kl. 21:34 frá Tungubökkum | Kl. 21:35 frá Egilshöll | |
Kl. 21:20 frá Mjódd | Kl. 21:22 frá Eiðistorgi | |
Kl. 21:20 frá Skerjafirði |
Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29.
Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd
Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa.
Almennt fargjald gildir.
Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar og ganga þá í báðar áttir. Þ.e. hægt verður að taka vagninn niður í bæ einnig.
Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50. Síðasta ferð í bæinn er:
Leið 101
101
Hafnarfjörður – Frá Skarðshlíð kl. 00:20
Leið 102
102
Kópavogur – Frá Álfkonuhvarfi 00:20
Leið 103
103
Breiðholt – Frá Mjódd kl. 00:27
Leið 104
104
Úlfarsárdalur – Frá Gefjunarbrunni kl. 00:20
Leið 105
105
Norðlingaholt – Frá Selvaði kl. 00:20
Leið 106
106
Mosfellsbær – Frá Bjarkarholti kl. 00:20
Leið 107
107
Seltjarnarnes – Frá Boðagranda kl. 00:22
Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð.
Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti.
Skutluþjónusta
„Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 23:15.
Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll.
Það kostar ekkert í skutluþjónustuna.
Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvunum sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum.

Miðborgin tæmd
Um 22:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni.
Það kostar ekkert í tæminguna.
Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 22:00 – 23:15. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir.
Leiðir
Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur
Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt.
* Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30.
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi
Leiðarkort

Ferðir til Selfoss, Keflavíkur og Akraness
Áætlunarferðir á leiðum 51, 55 og 57 munu aka frá Skúlagötu kl. 22:40.
Almennt fargjald gildir.
Hægt er að greiða í landsbyggðarvögnum með debit- eða kreditkorti um borð í vagninum, reiðufé og landsbyggðarkortum.
Athugið breytta áætlun þennan dag á leiðum 51, 55 og 57
Leið 51
Í stað ferða frá Mjódd kl. 20:30 og 23:30 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40 með viðkomu í Mjódd á leið til Selfossar. Síðasta ferðin frá Selfossi kl. 22:40 fellur niður.
Leið 55
Í stað ferða frá Firði kl. 21:53 og 23:53 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40, leiðin mun stöðva á biðstöðvunum Hlíðum, Kringlumýrarbraut, Ásgarði C og Firði á leið til Keflavíkur. Síðustu tvær ferðir frá Keflavíkurflugvelli kl. 20:55 og 22:55 falla niður.
Leið 57
Í stað ferðar frá Mjódd kl. 20:00 verður farið frá Skúlagötu kl. 22:40 með viðkomu í Mjódd á leið til Akraness.
Næturstrætó
Klukkan 01:20 aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó.
Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum en byrja á Skúlagötu vegna götulokana.
Almennt fargjald gildir.
- Stakt fargjald í næturstrætó er 670 krónur – Afsláttarfargjöld gilda ekki
- Hægt er að greiða snertilaust með greiðslukorti/síma í næturstrætó
- Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi
- Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó
Næturstrætó frá Skúlagötu alla helgina
Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu alla helgina, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina) og sunnudags (laugardagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið
Brottfarir næturvagna á Menningarnótt
01:20 – 02:25 – 03:45
01:30 – 02:35 – 03:40
01:25 – 02:30 – 03:35
01:29 – 02:29 – 03:29
01:30 – 02:35 – 03:40



