
Vegna breytinga á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu munu Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) taka við rekstri greiðslukerfisins Klappsins af Strætó bs. þann 1. júlí 2026. Af því tilefni flytjast persónuupplýsingar notenda Klappsins frá Strætó til ASHB svo unnt sé að tryggja áframhaldandi rekstur þjónustunnar, þar á meðal aðgang notenda að reikningum sínum, farmiðum og áskriftum í Klappinu. Eftir miðlunina verður ASHB ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í Klappinu. Breytingin hefur ekki áhrif á notkun Klappsins eða þjónustu við viðskiptavini. Miðlun persónuupplýsinga er nauðsynleg til að tryggja samfellu í þjónustu við notendur Klappsins, þar á meðal aðgang að gildum farmiðum, áskriftum og notendareikningum. Miðlunin byggir á lögmætum hagsmunum Strætó og ASHB. Heimild til þessa er í 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Notendur eiga rétt á að andmæla þeirri vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og skulu andmæli berast á netfangið personuvernd@straeto.is eigi síðar en 28. júní 2026. Berist andmæli verður brugðist við þeim í samræmi við skjalfest verklag Strætó. Verði andmæli tekin til greina kann það að leiða til þess að ekki verði unnt að flytja upplýsingar um notendareikning, farmiða eða áskriftir til ASHB. Notandi mun þá þurfa að stofna nýjan notendareikning að Klappinu til að nýta sér þjónustuna eftir yfirtökuna. Hafi notendur engar athugasemdir við tilfærsluna þurfa þeir ekkert að gera. Breytingin hefur engin áhrif á réttindi þeirra eða áframhaldandi notkun Klappsins. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga, réttindi notenda og varðveislu upplýsinga má finna í persónuverndaryfirlýsingu Klappsins.

Þriðjudaginn 23. júní flytur móttaka Strætó í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. Þar verður áfram hægt að nálgast sömu þjónustu og áður, meðal annars að fá aðstoð vegna farmiða og vitja óskilamuna. Opnunartími móttökunnar er: Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00–16:00 Föstudaga kl. 9:00–14:00 Margar strætóleiðir stoppa nálægt móttökunni og eru biðstöðvar í innan við 5 mínútna göngufjarlægð. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í nýju húsnæði í miðbæ Reykjavíkur.

Markmiðið með breytingunum er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar með stöðugri fjármögnun og umbótum Frá og með 1. júlí 2026 taka í gildi breytingar á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) taka við ábyrgð á skipulagi og rekstri þeirra. Markmið breytinganna er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar og er liður í áframhaldandi uppbyggingu þeirra samkvæmt Samgöngusáttmálanum. Með nýju fyrirkomulagi verður skipulag og þjónustustýring aðskilin frá daglegum rekstri vagna auk þess sem ríkið kemur inn með fjármögnun. Með aðkomu ríkisins fæst aukið fjármagn til að efla þjónustuna og styðja við greiðari, hagkvæmari og vistvænni samgöngur. Fyrir viðskiptavini verða engar breytingar á daglegri notkun þjónustunnar. Allir farmiðar halda gildi sínu, greiðslulausnir verða óbreyttar og áfram verður hægt að nálgast upplýsingar um ferðir og þjónustu með sama hætti og áður. Móttakan mun flytja í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 7 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um flutninginn og afgreiðslutíma verða birtar innan skamms. Vegna breytinganna mun ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem tengjast greiðsluþjónustu viðskiptavina færast frá Strætó bs. til ASHB. Tilkynning um það verður birt áður en breytingarnar taka gildi. Flutningurinn hefur ekki áhrif á réttindi viðskiptavina eða þá þjónustu sem þeir njóta. Viðskiptavinir þurfa ekki að grípa til neinna aðgerða vegna breytinganna.

Höfuðborgarsvæðið Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið samkvæmt laugardagsáætlun. Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum 91 , 92 , 93 , og 96. Leið 94 ekur skv. miðvikudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð 17. júní en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00. Götulokanir munu hafa áhrif á akstur Strætó í miðborg Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum. Mesta röskunin verður á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá morgni til kvölds. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um daginn. Allar hjáleiðir verða settar undir stöðu ferða.

Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ munu aka skv. sumaráætlun frá og með 15. júní til og með 15. ágúst. Leiðir R1, R3 og R4 munu þá aka á klukkutímafresti á virkum dögum og enginn akstur verður á sunnudögum. Auk þess mun leið R3 hefjast hálftíma seinna á virkum dögum. Athygli er vakin á því að innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ eru reknir af Reykjanesbæ.

Vegna framkvæmda á Skólavegi verður gerð tímabundin breyting á leið R1 í Reykjanesbæ. Áætlað er að framkvæmdir standi yfir frá 11.júní – 22.ágúst. Eftirfarandi stoppistöðvar falla tímabundið niður: Holtaskóli Skólavegur Reykjaneshöll Eftirfarandi stoppistöð bætist við á meðan á framkvæmdum stendur: Hringbraut Athygli er vakin á því að innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ eru reknir af Reykjanesbæ. Kort af leiðakerfinu eins og það verður í sumar á meðan á framkvæmdum stendur:

Hvalfjarðargöng verða opnuð að nýju þann 29. maí kl. 6:00 að loknum framkvæmdum við endurnýjun lýsingar í göngunum. Við opnun ganganna fellur niður sú tímabundna skerðing sem verið hefur á leið 50 og mun leiðin því aftur aka samkvæmt hefðbundinni áætlun. Síðustu ferðir dagsins falla því ekki lengur niður. Leið 59 mun hins vegar halda óbreyttri tímabundinni áætlun fram að sumaráætlun leiðarinnar sem tekur gildi 5. júní.

Höfuðborgarsvæðið Hvítasunnudagur, 24. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í hvítasunnu, 25. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Hvítasunnudagur, 24. maí : Ekið samkvæmt laugardagsáætlun. Annar í hvítasunnu, 25. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Athugið að leið 94 ekur eins og venjulega þessa daga. Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum 91 , 92 , 93 , og 96. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð yfir helgina og annan í hvítasunnu, mánudaginn 25. maí en þjónustuverið verður opið þessa daga frá kl. 10:00 – 14:00.

Hægt að sækja um á vef Reykjavíkurborgar frá og með 18. maí Reykjavíkurborg býður börnum fædd á árunum 2010–2014 með lögheimili í Reykjavík tveggja mánaða gjaldfrjálsa Strætó-áskrift. Verkefnið er liður í aðgerðum Reykjavíkurborgar til að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli foreldra vegna skóla-, íþrótta- og frístundastarfs. Forsjáraðilar geta sótt um fría tveggja mánaða áskrift á Mínum síðum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 18. maí til og með 30. júní 2026. Börn sem þegar eru með virkt tímabilskort hjá Strætó geta einnig fengið tvo auka mánuði bætta við sinn Klapp aðgang, en sækja þarf sérstaklega um það í sama umsóknarformi á Mínum síðum Reykjavíkurborgar. Þetta framtak er á vegum Reykjavíkurborgar en borgin mun gefa upp nánari upplýsingar á vef sínum. Jafnframt munu forsjáraðilar reykvískra barna á þessum aldri fá hnipp frá island.is þann 18. maí með tengli á umsóknarformið.

Áætlun nokkurra landsbyggðarleiða mun breytast yfir sumartímann. Leiðir á höfuðborgarsvæðinu haldast óbreyttar. Suðurland Breytt áætlun Athugið: Vegna breytinga á áætlun Herjólfs mun sumaráætlun á leiðum 51 og 53 ekki taka gildi 5. júní eins og áður var auglýst. Sumaráætlun leiða 51 og 53 mun taka gildi 20. júlí og standa til og með 23. ágúst . Leiðir 51 og 53 Breytt áætlun frá föstudeginum 5. júní til og með sunnudagsins 23. ágúst vegna sumaráætlunar Herjólfs. Leið 52 mun ekki stoppa á biðstöðinni FSU yfir sumartímann en tímataflan helst óbreytt. Aukaferðir yfir Þjóðhátíð á leiðum 51 og 53 verða kynntar síðar. Vesturland Leið 81 Enginn akstur frá og með 1. júní, leiðin hættir akstri og hefst því ekki að nýju eftir sumarið. Leiðir 63, 64 og 65 Akstur er skv. skóladagatali og er því síðasti dagur í akstri 18. maí. Leið 59 Ferð á miðvikudögum breytist og fer alla leiðina í Hólmavík (í stað þess að enda í Búðardal) frá og með 5.júní til og með 30.ágúst. Norðurland Leið 56 Ekur alla virka daga, auk sunnudaga, frá 1. júní til og með 31. ágúst. Leiðir 78 og 79 Sumaráætlun frá 1. júní – 16. ágúst. Breyting frá vetraráætlun er að ekki komið við á þessum stoppistöðum: VMA Þórunnarstræti/Sjúkrahús Dalsbraut/Klettaborg Aðeins er komið við hjá Hofi á Akureyri auk flugvallarins sem er endastöð. Vestfirðir Leið 62 Sumaráætlun frá 1. júní – 31. ágúst. Tímataflan mun breytast yfir sumarið, fyrsta er í gildi frá 1. júní – 5. júlí, næsta frá 6. júlí – 14. ágúst og síðasta frá 15. ágúst – 31. ágúst. Tímatöflurnar taka mið af siglingaáætlun Baldurs yfir sumartímann. Enginn akstur verður á leið 61 þar sem hún er hætt. Austfirðir Leið 94 Sumaráætlun er frá 1. júní – 30. september. Í sumar mun leiðin aka á milli Breiðdalsvíkur og Hornafjarðar með viðkomu á Djúpavogi.

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að bjóða reykvískum grunnskólabörnum upp á frítt tímabilskort í Strætó. Þar sem þetta framtak er á vegum Reykjavíkurborgar mun borgin sjá um útfærsluna á þessu og foreldrar/forráðamenn sækja um fríkortin á vef borgarinnar. Strætó mun birta frekari leiðbeiningar um leið og þær berast frá borginni.

Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Enginn akstur verður á leiðum 91 – 96 á Austfjörðum þennan dag. Enginn akstur verður á innanbæjarvögnum í Reykjanesbæ . Enginn akstur verður á innanbæjarvögnum á Akureyri nema á leið A6, ekið skv. sunnudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð á uppstigningardag en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó þann 1. maí. Nánari upplýsingar um hjáleiðir vegna tímabundinna götulokana í Reykjavík í tengslum við kröfugöngu 1. maí verða birtar undir Staða á ferðum þegar nær dregur. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Enginn akstur verður á leiðum 91 92, 93 og 96 á Austfjörðum. Leið 94 ekur skv. föstudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð þann 1. maí en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó ásamt hjáleiðum vegna gatnalokana á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl 2026. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Enginn akstur verður á leiðum 91 – 96 á Austfjörðum þennan dag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00. Miðbær Reykjavíkur Vegna götulokana fara margar leiðir hjáleiðir en vagnar munu stöðva á öllum biðstöðvum sem eru á hjáleiðunum. Leið 1 Frá kl. 10:30-15:00. Í stað þess að aka Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Sæbraut, Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ og Skúlagötu. Frá kl. 10:30 – 13:30 er Gamla Hringbraut lokuð og ekur þá leiðin Hringbraut í staðinn. Leið 2 Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka Hverfisgötu, Vonarstræti og Suðurgötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ. Leið 3 Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka Geirsgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun hún aka Ánanaust og Hringbraut. Frá kl. 10:30 – 13:30 er Gamla Hringbraut lokuð og ekur þá leiðin Hringbraut í staðinn. Leið 5 Frá kl. 10:30 – 13:30 . Í stað þess að aka um Egilsgötu, Barónsstíg, Gömlu Hringbraut og Vatnsmýrarveg mun leiðin fara hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut. Leið 6 Frá kl. 10: 30 -15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Hringbraut til og frá HÍ. Leið 11 Frá kl. 10:30 – 15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu og Suðurgötu mun leiðin aka um Hringbraut. Leið 12 Frá kl. 10:30 -15:00. Í stað þess að aka um Hverfisgötu, Lækjargötu og Skothúsveg mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut. Leið 13 Frá kl. 10:30 – 15:00. Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Vonarstræti og Túngötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut. Leið 14 Frá kl. 10:30 – 13:30 . Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka Snorrabraut, Hringbraut og Ánanaust. Frá kl. 13:30 – 15:00 . Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka Sæbraut. Leið 15 Frá kl. 10:30 – 13:30. Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu mun leiðin aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut. Lokaðar biðstöðvar verða: Frá kl. 10:30-13:30: Heilsuverndarstöðin (5) Sjúkrahótel (5, 15) Gamla Hringbraut (1, 3, 5, 15) Mýrargata (3, 14) Frá kl. 10:30 -15:00: Mýrargata (3) Snorrabraut (6) Skeggjagata (6, 11, 13) Laugavegur (6, 11, 13) Barónsstígur (2, 6, 11, 12, 13, 14) Bíó Paradís (2, 6, 11, 12, 13, 14) Þjóðleikhúsið (2, 6, 11, 12, 13, 14) Harpa (1) Lækjartorg A (1, 2, 3, 6, 11, 13) Lækjartorg B (12, 14) Lækjartorg C (1, 3, 14) MR (12) Hallargarðurinn (12) Ráðhúsið ( 1, 2, 3, 6, 11, 13) Landakot (13) Ásvallagata (13) Hafnarfjörður Ein ferð á leið 19 kl. 13:15 fer beint frá Firði um Reykjavíkurveg að Iðnskólanum og tímajafnar þar og sleppir því hringnum í Norðurbæ. Biðstöðvar sem verða óvirkar í þessari einu ferð verða: Norðurbakki Sundhöll Hafnarfjarðar Skjólvangur Víðivangur Miðvangur Hjallabraut Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:35 Leið 15 – Í stað þess að aka Þverholt, Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka Vesturlandsveg og Langatanga. Lokaðar biðstöðvar verða: Álfatangi Skeiðholt Varmárskóli Háholt

Strætó fagnar alþjóðlegum degi almenningssamgangna sem haldinn verður í fyrsta sinn þann 17. apríl 2026. Dagurinn er alþjóðlegt framtak á vegum UITP, alþjóðasamtaka almenningssamgangna, sem varpar ljósi á mikilvægi almenningssamgangna fyrir daglegt líf, samfélag og umhverfi. Á þessum degi mun Strætó hvetja fólk og farþega til að deila upplifun sinni af notkun fjölbreyttra ferðamáta. Markmiðið er að fagna því hlutverki sem almenningssamgöngur gegna – að koma fólki á milli staða, í vinnu, nám og afþreyingu – og minna á fólkið sem gerir almenningssamgöngur mögulegar. Yfirskrift átaksins í ár er: Einn dagur. Milljónir ferða. Almenningssamgöngur gegna lykilhlutverki í að byggja upp grænni og skilvirkari borgir. Þær draga úr umferð og bæta loftgæði. Á hverjum degi eru farnar milljónir ferða með almenningssamgöngum um allan heim. Strætó hefur á undanförnum árum stigið markviss skref í átt að vistvænni rekstri með kaupum á rafvögnum og stefnir að kolefnislausum flota fyrir árslok 2029. Af þessu tilefni er kjörið að staldra við og hugsa um þau skipti sem við höfum tekið Strætó eða aðrar almenningssamgöngur – og það hlutverk sem almenningssamgöngur gegna í að halda samfélaginu gangandi. #WorldPublicTransportDay.

Breytingar munu verða á ferðum á leið 53 vegna lokunar á hringvegi við Hellu þann 14. apríl. Ferð kl. 19:29 frá Selfossi ekur aðeins að Hellu. Ferð kl. 20:13 frá Hvolsvelli ekur ekki frá Hvolsvelli heldur hefst á Hellu kl. 20:25. Ferð kl. 20:40 frá Landeyjahöfn ekur ekki frá Landeyjahöfn heldur hefst á Hellu kl. 21:15. Herjólfur mun þetta kvöld sigla til Þorlákshafnar og mun aukavagn merktur Herjólfi aka á milli Mjóddar og Þorlákshafnar. Athugið að mögulega gæti lokunin einnig haft áhrif á fyrstu ferð leiðar 53 þann 15. apríl, upplýsingar verða settar hér inn um leið og þær liggja fyrir.

Lokun Hvalfjarðarganga hefur áhrif á akstur tveggja leiða á landsbyggðinni, leiðir 50 og 59 . Göngin eru lokuð frá 7. apríl til 29. maí frá kl. 21:30 til 06:00. Unnið er að endurnýjun á lýsingu í göngunum og er unnið frá sunnudegi til föstudags þannig að þetta hefur ekki áhrif á akstur á föstudögum og laugardögum. Leið 50 Fella þarf niður síðustu ferðir á leið 50 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og sunnudaga vegna lokunar Hvalfjarðarganga. Mánudaga – fimmtudaga Ferðir sem falla niður: 20:34 Borgarnes – Mjódd 22:00 Borgarnes – Mjódd 22:09 Mjódd – Borgarnes 23:35 Mjódd – Akranes Síðustu ferðir dagsins verða þá: 18:50 Borgarnes – Mjódd 19:15 Borgarnes – Akranes 18:45 Mjódd – Borgarnes 20:54 Mjódd – Borgarnes 19:45 Akranes – Borgarnes Sunnudagar Ferðir sem falla niður: 19:40 Borgarnes – Mjódd 21:40 Akranes – Mjódd 21:20 Mjódd – Borgarnes 22:50 Mjódd – Akranes Síðustu ferðir dagsins verða þá: 15:10 Borgarnes – Mjódd 17:10 Borgarnes – Mjódd 16:50 Mjódd – Borgarnes 18:50 Mjódd – Akranes Leið 59 Flýta þarf brottförum um 75/80 mínútur á leið 59 á miðvikudögum og 10 mínútur á sunnudögum . Áætlun breytist eftirfarandi: Miðvikudagar Brottför Borgarnes til Búðardals verður kl. 16:50 í stað 18:10. Brottför Búðardalur til Borgarness verður kl. 18:05 í stað 19:20. Farþegar á leið til Reykjavíkur mun skipta yfir í leið 57 í stað leiðar 50. Leið 57 fer frá Borgarnesi. kl. 19:16. Sunnudagar Brottför Borgarnes til Hólmavíkur verður 14:50 í stað 15:00 Brottför Hólmavík til Borgarness verður 17:03 í stað 17:13 Farþegar á leið til Reykjavíkur munu skipta yfir í leið 57 í stað leiðar 50. Leið 57 fer frá Borgarnesi kl. 19:30.

Frá og með þriðjudeginum 7. apríl verða allar ferðir á leið 26 í pöntunarþjónustu. Akstursleiðin helst óbreytt og tímataflan sömuleiðis en panta þarf allar ferðir með því að hringja í Hreyfil í síma 588 55 22, minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.

Sjálfbærniskýrsla Strætó fyrir árið 2025 er komin út og var hún kynnt á ársfundi félagsins sem haldinn var fimmtudaginn 26. mars. Í skýrslunni má finna fjölbreyttar upplýsingar um starfsemi Strætó, meðal annars um vagnastöðu, þjónustu í leiðakerfinu, tækninýjungar og losun gróðurhúsalofttegunda. Við gerð skýrslunnar var stuðst við alþjóðlega staðalinn GRI (Global Reporting Initiative). Á ársfundinum fór Alexandra Briem, stjórnarformaður Strætó, yfir skýrslu stjórnar og Elísa Kristmannsdóttir, deildarstjóri fjármála, kynnti ársreikninga félagsins. Að lokum fór Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, yfir helstu áherslur félagsins í sjálfbærni – og umhverfismálum.

Ný tímatafla mun taka gildi á leið 19 næstkomandi sunnudag 29.mars. Breytingar verða á brottfarartímum en akstursleiðin helst sú sama. Eins er tíðni á leiðinni sú sama, þ.e. 15 mínútur á annatíma á virkum dögum og 30 mínútur utan annatíma og um helgar.

Uppsetning NaviLens-kóða á biðstöðvum Strætó er hafin og eru fyrstu leiðirnar, 13 og 14, nú þegar aðgengilegar blindum og sjónskertum. Með notkun NaviLens kóða geta blindir og sjónskertir sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó, án utanaðkomandi aðstoðar en lausnin gerir notendum kleift að nálgast sjálfstætt rauntímaupplýsingar um ferðir Strætó í gegnum smáforrit sem les upplýsingar upphátt. Hún nýtist einnig öðrum farþegum, meðal annars ferðamönnum og fólki með annað móðurmál. Verkefnið er samstarfsverkefni Strætó og Blindrafélagsins og markar mikilvægt framfaraskref í aðgengi að almenningssamgöngum. Strætó leiðir verkefnið og eru kóðarnir á ábyrgð og í eigu Strætó en Blindrafélagið fékk styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðherra og innviðaráðherra um innleiðingu á kóðanna á sínum tíma. Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið frá upphafi, bæði í skipulagi og framkvæmd, og starfsfólk borgarinnar hefur séð um uppsetningu kóða á skýli og staura í borginni. Síminn/Billboard hefur jafnframt veitt ómetanlega aðstoð með því að setja upp kóða á öll skýli á þeirra vegum. Á næstu misserum verður uppsetning kóða hafin á fleiri leiðum og stöðvum, bæði í Reykjavík og síðar í öðrum sveitarfélögum. Hvað eru Navilens kóðar? NaviLens kóðar virka á svipaðan hátt og QR kóðar en hafa nokkra kosti fram yfir þá: Hægt er að greina kóða úr allt að 12 sinnum meiri fjarlægð en QR kóða. Þeir virka í minni birtu og krefjast ekki sömu nákvæmni myndavélasíma og QR kóðar. Kóðarnir veita upplýsingar um staðsetningu biðstöðvar, hvaða leiðir stoppa þar og hve langt er í næsta vagn í rauntíma. Fyrir hverja er lausnin? Blindir og sjónskertir geta sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma, án þess að þurfa að treysta á aðstoð annarra. Sjáandi notendur geta nýtt appið NaviLens GO til að fá sömu rauntímaupplýsingar á einfaldan hátt. Ferðamenn og fólk sem ekki talar íslensku fá upplýsingar sjálfkrafa á tungumáli tækisins. Appið styður yfir 33 tungumál. Fólk með lestrarerfiðleika , eins og lesblindu, getur einnig nýtt sér kóðana þar sem upplýsingarnar eru lesnar upphátt í appinu.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó yfir páska 2026. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2026 Ekið er skv. sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana Skírdagur, 2. apríl Föstudagurinn langi, 3. apríl Páskadagur, 5. apríl Annar í páskum, 6. apríl Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Landsbyggðin Páskar 2026 Skírdagur, 2. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 3. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 5. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 6. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Leiðir 63 , 64 , 65 og 81 miða akstur við skóladagatal og verða því ekki í akstri yfir páskana frá 30. mars til 6. apríl. Austfirðir: Athugið að enginn akstur er þessa rauðu daga á leiðum á Austfjörðum: 91 , 92 , 93 og 96 . (Athugið að leiðir 91 og 93 aka eins og venjulega á laugardeginum 4. apríl). Leið 94 mun aka skv. föstudagsáætlun föstudaginn langa og skv. mánudagsáætlun annan í páskum en enginn akstur er á skrídag og páskadag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Reykjanesbær – innanbæjarvagnar: Enginn akstur yfir páskadaga. Akureyri – innanbæjarvagnar: Enginn akstur nema á leið A6 á Skírdag 2. apríl og annan í páskum 6. apríl, þá verður ekið skv. sunnudagsáætlun. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími Skírdagur, 2. apríl 10:00 - 14:00 Föstudagurinn langi, 3. apríl 10:00 - 14:00 Páskadagur, 5. apríl 10:00 - 14:00 Annar í páskur, 6. apríl 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími Skírdagur, 2. apríl Lokað Föstudagurinn langi, 3. apríl Lokað Páskadagur, 5. apríl Lokað Annar í páskur, 6. apríl Lokað

Akstur Strætó verður með breyttu sniði í kringum Smáralind vegna tónleika Laufeyjar sem haldnir verða í Kórnum um helgina. Vegna sætaferða tónleikagesta frá Smáralind fyrir tónleika verður biðstöðinni Smáralind lokað að sunnanverðu (Smáralindar megin) í almenna leiðakerfinu. Nánari upplýsingar um fríar sætaferðir með strætó fyrir tónleikagesti ásamt aðgengi gesta að Kórnum má finna á síðu Senu. Áhrif á leiðakerfið Stoppistöð Smáralind að sunnanverðu (Smáralindar megin) verður lokuð laugardag og sunnudag frá kl.17:30-20:00 fyrir leiðir 2, 21, 24, 28 í austurátt. Í staðinn geta farþegar nýtt sér þessar biðstöðvar í staðinn: Leið 2 Dalsmára á leið 2 Leið 2 mun aka hjáleið um Arnarnesveg og niður Smárahvammsveg og mun vagninn stoppa á öllum biðstöðvum á hjáleið. Leið 21 Dalsmára á leið 21 Leið 24 Dalsmára og Smáratorg á leið 24 Leið 28 Smáralind að norðanverðu á leið 28 þar sem farþegar geta enn notað stoppistöðina að norðanverðu Sætaferðir munu ekki hafa áhrif á akstur eða biðstöðvar eftir tónleikana. Akstur í Kórahverfinu óbreyttur Akstur í Kórahverfi verður óbreyttur þrátt fyrir götulokanir, vögnum verður hleypt í gegn um lokanir. Það má þó búast við seinkunum vegna þessa. Akstur á leiðum 2 og 28 helst því óbreyttur og munu leiðirnar stoppa á sínum venjubundnu biðstöðum í hverfinu.

Ný uppfærsla Í Klappinu fór í loftið í lok síðustu viku og á hún að koma í veg fyrir að notendur Android síma lendi í því að veskið taki yfir QR kóðann í appinu og greiði þannig snertilaust en einstaka notendur höfðu lent í því. Uppfærslan á að virka þannig að þegar appið er opið slökknar á NFC tengingu símans og því ekki hægt að greiða snertilaust. Við biðjum því viðskiptavini um að uppfæra appið en mikilvægt er að uppfæra appið reglulega til að tryggja að nýjustu uppfærslur og lagfæringar sé ávallt til staðar. Ef einhverjar spurningar vakna geta viðskiptavinir haft samband við straeto@straeto.is

Við viljum vekja athygli viðskiptavina sem nota tímabilskort eða miða í Klapp appinu á því að einstaka Android notendur hafa lent í því að veskið í símanum taki yfir QR kóðann í appinu þegar síminn er borinn að skannanum og greiða þannig fyrir stakan miða með snertilausri greiðslu. Ávallt þarf að vera búið að opna QR kóðann í appinu áður en gengið er um borð. Þegar QR kóðinn er opnaður læsist skjár símans sjálfkrafa. Í einstökum Android símum virðist skjárinn þó ekki læsast eins og til er ætlast. Í þeim tilvikum getur veski símans tekið yfir og skuldfært snertilaust af greiðslukorti í stað þess að QR kóðinn sé skannaður. Unnið er að lausn. Hvað er hægt að gera á meðan? Viðskiptavinir með Android síma geta: Slökkt á NFC í símanum áður en QR kóðinn er skannaður. Fært tímabilskort eða miða yfir á Klapp kort eða Klapp lyklakippu. Athugið að þetta á ekki við um iPhone síma, heldur eingöngu stöku Android tæki. Mikilvægt að uppfæra appið Við minnum jafnframt á að uppfæra Klapp appið reglulega til að tryggja að nýjustu uppfærslur og lagfæringar séu til staðar. Endurgreiðslur og ábendingar Hafi greiðsla verið tekin af korti þrátt fyrir virkt tímabilskort eða miða er hægt að óska eftir endurgreiðslu með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband við straeto@straeto.is hafi það einhverjar ábendingar sem það vill koma á framfæri eða nýta sér ábendingakerfi Strætó.

Lítilsháttar breytingar verða á tímatöflum leiða 52 og 53 á Suðurlandi og 50, 57 og 84 á Vestur- og Norðurlandi. Breytingar taka gildi sunnudaginn 1. mars. Um er að ræða minni háttar breytingar á brottfarartímum en fjöldi ferða helst óbreyttur. Leiðir 52 og 53 Tímatöflur á leiðum 52 og 53 (Suðurland) munu breytast á meðan 51 verður óbreytt. Leiðir 50, 57 og 84 Tímatöflur á leiðum 50 og 57 (Vestur- og Norðurland) munu breytast. Tímatafla leiðar 84 (Vestur- og Norðurland) mun breytast til að passa við leið 57. Leiðarvísirinn hefur verið uppfærður þannig að viðskiptavinir geta séð réttar ferðir 1. mars og síðar.

Sunnudaginn 1. mars verða breytingar á leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Tímatöflum á leiðum 13, 14, 15 og 19 verður breytt til að bæta áreiðanleika þeirra og auka þar með stundvísi. Einnig mun bætast við ný biðstöð við Perluna á leið 18 til að auka aðgengi farþega að Perlunni. Leiðir 35 og 36 munu aka nær Sky Lagoon, sem auðveldar aðgengi fyrir farþega og þeirra sem búa og starfa við Bakkabraut en ný biðstöð við Bakkabraut verður tekin í notkun. Þessar breytingar eru liður í vegferð Strætó í að bæta þjónustu sína og kemur í kjölfar þjónustuaukningar sl. sumar sem var mikil ánægja með. Strætó er sífellt að skoða með hvaða hætti hægt er að bæta þjónustuna og mun m.a. halda tímatöflulagfæringum áfram á næstunni. Allar breytingar Leiðir 13, 14, 15 og 19 Tímatöflum breytt til að auka stundvísi. Nýjar tímatöflur frá 1. mars Leið 18 Leið 18 mun aka nær Perlunni í átt frá Skúlagötu en markmiðið er að bæta aðgengi farþega að Perlunni. Ný biðstöð bætist við sem mun bera nafnið: Perlan. Biðstöðin sem heitir núna Perlan mun skipta um nafn og heita: Litlahlíð. Ný akstursleið: Leiðir 35 og 36 Leiðir 35 og 36 munu aka nær Sky Lagoon en markmiðið er að stytta gönguvegalengd fyrir farþega sem ætla í Sky Lagoon og þá sem búa og starfa í grennd við Bakkabraut. Ný akstursleið:

Leið 93 mun aka aukaferð á miðvikudögum í takt við siglingar Norrænu. Miðvikudagsferðirnar verða frá 18. mars til og með 27. maí. Milli 10-10:35 frá Seyðisfirði til Egilsstaða Milli 11-11:35 frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar Þann 4. júní breytist fyrirkomulagið þannig að Norræna siglir á fimmtudögum og þá breytast aukaferðirnar í samræmi við það til 3. september. Frá 9. september til 19. nóvember færast ferðirnar svo aftur á miðvikudaga.

Þjóðminjasafn Íslands og Strætó hafa tekið höndum saman til að fagna þeim merka áfanga að íslensk sundmenning er komin á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Sundmenningin, sem lifandi hefð, er þar með viðurkennd á alþjóðavettvangi sem einkennandi þáttur í menningu íslensks samfélags. Sundvagninn er því kominn til sögunnar og mun aka leið 1 næstu vikurnar. Hann verður til sýnis við Þjóðminjasafnið við upphaf Safnanætur á sundfögnuði í safninu kl. 17. Þar munu Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður, Logi Einarsson menningarráðherra og Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og velunnari íslenskrar sundmenningar, flytja ávörp. Boðið verður upp á örsýningar sem tengjast sundmenningu þjóðarinnar og sundlaugabíó í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Einnig koma fram Linus Orri Gunnarsson Cederborg, fulltrúi gamalla hefða í íslenskum kveðskap og Erpur Eyvindarson, fulltrúi nýrra blæbrigða, en þeir munu hræra í tímalausa rímnasúpu gestum til skemmtunar.

Frá og með 1. febrúar mun leið 55 aka í gegnum Ásbrú í fyrstu ferð á morgnanna frá Reykjanesbæ til höfuðborgarsvæðisins. Ferðin sem um ræðir er sú sem leggur af stað frá Keflavíkurflugvelli kl. 6:27 á virkum dögum. Stoppað verður við Grænásbraut kl. 6:44 skv. nýrri tímatöflu. Einnig verða örlitlar breytingar á tímatöflunni einungis í þessari fyrstu ferð. Akstursleið verður eftirfarandi: