Eftirfarandi breytingar verða gerðar á leiðakerfi Strætó um áramótin: Leið 25: Gufunes – Spöngin Leið 25 kemur ný inn í leiðakerfi Strætó frá og með 2. janúar 2022. Leiðin mun aka á milli nýja hverfisins í Gufunesi og Spangar. Leiðin verður í pöntunarþjónustu, sem þýðir að að viðskiptavinir panta ferð með því að hringja í Hreyfil í síma 588 5522 , minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Austfirðir yfir til Vegagerðarinnar Frá og með mánudeginum 3. janúar 2022 mun rekstur Strætisvagna Austurlands færast frá Austurbrú og yfir til Vegagerðarinnar. Almenningssamgöngur á Austfjörðum verða því formlega hluti af leiðaneti Strætó á landsbyggðinni. Akstursleiðirnar munu ekki breytast en leiðirnar munu fá ný leiðanúmer og nýjar tímatöflur. Til að byrja með verður gjaldskráin á Austfjörðum sú sama og hún var hjá Austurbrú.

Strætó þykir leitt að tilkynna innbrot í netkerfi Strætó sem uppgötvaðist í gær, 27. desember 2021. Unnið er að staðfestingu atburðarrásar og greiningu á umfangi í náinni samvinnu við sérfræðinga hjá Syndis og Advania. Atvikið hefur verið tilkynnt til Persónuverndar, CERT-IS og lögreglu. Ekki er hægt að útiloka upplýsingaleka í tengslum við innbrotið, en of snemmt er að segja til um hvort og hvaða upplýsingar innbrotsþjófarnir komust yfir. Nú þegar hefur gripið til allra aðgerða til að fyrirbyggja hættuna á frekari gagnalekum. Það skal þó ítrekað að Strætó sendir aldrei út tölvupósta þar sem fólk er beðið um kortaupplýsingar.

Reglugerð um takmörkun á samkomu vegna farsóttar tekur gildi, fimmtudaginn 23. desember 2021. Samkvæmt reglugerðinni þá er Strætó undanþeginn 20 manna fjöldatakmörkunum og allir farþegar skulu nota grímu ef ekki er unnt að tryggja tveggja metra fjarlægðarmörk um borð í vögnum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Strætó mælir eindregið með grímunotkun þegar ferðast er með almenningssamgöngum. Viðskiptavinir bera ábyrgð á því að klæðast andlitsgrímu þegar þörf er á því samkvæmt reglugerðinni. Undanþegnir grímuskyldu eru einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars. Börn fædd 2006 og yngri eru einnig undanþegin grímunotkun. Andlitsgrímur skulu hylja nef og munn. Grímur skulu uppfylla kröfur sem koma fram í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Hugum að hreinlæti og eigin sóttvörnum. Viðskiptavinir skulu ekki ferðast með almenningssamgöngum ef þeir eru með flensueinkenni. Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar Leiðbeiningar landlæknis um andlitsgrímur Pössum sóttvarnir Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu , minnst 20 sekúndur í hvert skipti. Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt. Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra. Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa, sem ekki fela í sér snertingu. Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni. Frekari upplýsingar og nýjustu fréttir um COVID-19 faraldurinn á Íslandi má finna á síðunni covid.is . Komufarþegar í Leifsstöð Komufarþegum í Leifstöð er nú heimilt að nýta sér almenningssamgöngur (leið 55) frá flugstöðinni gegn því að sýna vagnstjóra SMS skilaboð frá sóttvarnaryfirvöldum sem staðfestir að viðkomandi sé undanþeginn sóttkví vegna komunar til landsins. Þetta kemur fram í 6 grein Reglugerðar um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 nr. 747/2001 Frá því í april 2020 hefur öllum komufarþegum verið óheimilt að nota almenningssamgöngur frá Leifstöð.

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2021 07:00 - 14:00 25. desember 2021 10:00 - 14:00 26. desember 2021 10:00 - 14:00 31. desember 2021 07:00 - 14:00 1. janúar 2022 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2021 Lokað 25. desember 2021 Lokað 26. desember 2021 Lokað 31. desember 2021 Lokað 1. janúar 2022 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun en auka ferðum bætt við um morguninn. Ekið verður til ca. 15:00. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun en auka ferðum bætt við um morguninn. Ekið verður til ca. 15:00. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Aðfangadagur og gamlársdagur Aukaferðir um morguninn: Leið 1 frá Hlemmi 06:43 og 07:13 Leið 1 frá Klukkuvöllum 06:35 og 07:05 Leið 2 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 2 frá Hlemmi 07:03 Leið 3 frá Fellaskóla 06:34 Leið 3 frá Mjódd í átt að Breiðholti 06:51 Leið 3 frá Mjódd í átt að Hlemmi 06:51 og 07:21 Leið 3 frá Hlemmi 06:54 og 07:24 Leið 4 frá Fellaskóla 06:33 Leið 4 frá Mjódd í átt að Breiðholti 06:51 Leið 4 frá Mjódd í átt að Hlemmi 06:51 og 07:21 Leið 4 frá Hlemmi 06:48 og 07:18 Leið 5 frá Árvaði 06:44 og 07:14 Leið 5 frá HR 07:06 Leið 6 frá Egilshöll B 06:48 og 07:18 Leið 6 frá Hlemmi 06:37 og 07:07 Leið 7 frá Egilshöll A 07:05 og 07:35 Leið 7 frá Tungubökkum 06:34 og 07:04 Leið 8 Sjá leið 5 Leið 11 frá Eiðistorgi 06:53 og 07:23 Leið 11 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 12 frá Skerjafirði 06:50 og 07:20 Leið 12 frá Ártúni C 06:37 og 07:07 Leið 13 frá Sléttuvegi 06:40 og 07:10 Leið 13 frá Öldugranda 06:38 og 07:08 Leið 14 frá Verzló 06:39 og 07:09 Leið 14 frá Granda 06:39, 07:09 og 07:39 Leið 15 frá Flyðrugranda 07:01 og 07:31 Leið 15 frá Reykjavegi 06:45 og 07:15 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Hlemmi 06:46 og 07:16 Leið 17 frá Mjódd 06:36 og 07:06 Leið 18 frá Spönginni A 06:36 og 07:06 Leið 18 frá Hlemmi 06:46 og 07:16 Leið 19 frá Ásvallalaug 06:59 Leið 19 frá Kaplakrika 06:55 og 07:25 Leið 21 frá Bátaskýlunum við Lónsbraut 06:40 og 07:10 Leið 21 frá Mjódd 06:52 og 07:22 Leið 22 frá Ásgarði A 07:04 Leið 23 frá Ásgarði A 06:58, 07:28, 07:58 og 08:28 Leið 24 frá Ásgarði A 07:03 og 07:33 Leið 24 frá Spönginni A 06:49 og 07:19 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 07:01 Leið 28 frá Hamraborg B 06:35 og 07:05 Leið 28 frá Dalaþingi 07:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg B 06:37 og 07:07 Leið 36 frá Hamraborg B 07:07 Síðustu ferðir dagsins: Leið 1 Frá Hlemmi 15:01 Leið 1 Frá Klukkuvöllum 15:12 Leið 2 frá Hlemmi 15:00 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Hlemmi 14:52 Leið 3 frá Mjódd 14:51 Leið 4 frá Hlemmi 14:48 Leið 4 frá Mjódd 14:51 Leið 5 frá Árvaði 14:44 Leið 5 frá HR 14:36 Leið 6 frá Hlemmi 14:37 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Spönginni A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Sjá leið 5 Leið 11 frá Eiðistorgi 14:58 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:40 Leið 14 frá Granda 14:35 Leið 15 frá Reykjavegi 14:43 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Hlemmi 14:46 Leið 17 frá Mjódd 14:36 Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Hlemmi 14:46 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Bátaskýlunum við Lónsbraut 14:40 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 14:34 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:20 Leið 28 frá Hamraborg B 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg B 15:07 Leið 36 frá Hamraborg B 15:07
Vonskuveðrið sem gengur yfir landið á morgun, 5. desember mun hafa mikil áhrif á strætóferðir á landsbyggðinni. Spáð er hviðum allt að 40 til 45 metrum á sekúndu frá um klukkan 9 til klukkan 5 síðdegis á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi. Leið 57 (Reykjavík – Akureyri): Allar ferðir munu falla niður yfir daginn. Óvissa verður með ferðir eftir kl. 17:00 á morgun. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 58 (Stykkishólmur – Borgarnes): Morgunferðin verður felld niður en búist er við að seinni ferð dagsins verði ekin. Leið 82 (Hellissandur – Stykkishólmur): Óvissa verður með morgunferðina en seinni ferð dagsins er líkleg. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 51 (Reykjavík – Höfn): Allar líkur eru á að ekið verði um morguninn en þegar líður á daginn má búast við að ferðir verði felldar niður. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Leið 52 (Reykjavík – Landeyjahöfn): Allar líkur eru á að fyrri ferðin verði ekin um morguninn en óvissa er um seinni ferð dagsins. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum. Hægt er að nálgast tilkynningar inn á heimasíðu Strætó og á Twitter síðu Strætó https://twitter.com/straetobs

Starfsfólk Strætó mun kynna nýja greiðslukerfið og selja strætókort. Á þriðjudaginn 7. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi mun starfsfólk frá Strætó koma í heimsókn til Ás Styrktarfélags í Ögurhvarfi 6. Starfsfólkið mun kenna fólki á nýja Klapp greiðslukerfið og hjálpa þeim að kaupa fargjöld í Strætó. Starfsfólk frá Strætó mun einnig koma í heimsókn til Þroskahjálpar á Háaleitisbraut 13 á miðvikudaginn 8. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi. Við vonumst til að sjá sem flesta.

KLAPP er nýtt greiðslukerfi fyrir Strætó á höfuðborgarsvæðinu og það verður formlega innleitt 16. nóvember 2021 . Fyrirmynd kerfisins er þekkt í almenningssamgöngum um allan heim, þar sem kort eða farsími er settur upp við skanna þegar fargjald er greitt í vagninum. Það eru 3 greiðsluleiðir í Klappinu: KLAPP kort, KLAPP app og KLAPP tía. KLAPP kort KLAPP kort eru snjallkort sem þú leggur upp við skanna um borð í Strætó til þess að greiða fargjaldið. Þú getur verslað KLAPP kort inn á straeto.is og hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu . Fyllt er á KLAPP kortið í gegnum vefaðgang notenda á „Mínum síðum“ . KLAPP app Með KLAPP appinu getur þú notað snjallsímann þinn til að kaupa staka miða eða tímabilskort fyrir Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt Klappið inn á App Store og Google Play. KLAPP tía KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Þessi vara kemur í stað pappírs strætómiðanna. Pappaspjaldið er með kóða sem þú skannar um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hvað eru margar ferðir eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu og í vefverslun Strætó. Ný gjaldskrá Samhliða innleiðingu á Klappinu þá verða einnig gerðar breytingar á gjaldskrá Strætó. Markmið breytingarinnar er fyrst og fremst að einfalda gjaldskrána og gera öllum hópum kleift að kaupa mánaðarkort á hagstæðu verði. Hér má sjá nýju gjaldskrána: Gjaldskrá Stakir miðar Verð Afsláttur Fullorðnir 490 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 245 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 245 kr. 50% Öryrkjar 147 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Mánaðarkort Verð Afsláttur Fullorðnir 8.000 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 4.000 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 4.000 kr. 50% Öryrkjar 2.400 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Árskort Verð Afsláttur Fullorðnir 80.000 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 40.000 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 40.000 kr. 50% Öryrkjar 24.000 kr. 70% Börn, 11 ára og yngri* 0 kr. 100% Klapp tía (10 miða passi) Verð Afsláttur Fullorðnir 4.900 kr. 0% Ungmenni, 12-17 ára 2.450 kr. 50% Aldraðir, 67 ára og eldri 2.450 kr. 50% *Börn þurfa ekki að skanna farmiðla um borð í Strætó. Hvað verður um gamla greiðslukerfið? Samhliða nýju greiðslukerfi þá verður gamla greiðslukerfið að einhverju leyti til staðar í eitt ár. Strætó appið Þann 16. nóvember verður ekki lengur hægt að kaupa nýja miða eða mánaðarkort í Strætó appinu. Viðskiptavinum verður í staðinn vísað í KLAPP appið. Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort í Strætó appinu skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Viðskiptavinir sem eru með virka áskrift munu klára þriggja mánaða hringinn sinn. Eftir þriðja „fría mánuðinn“ verður ekki lengur hægt að kaupa nýja áskrift. Þeir sem eiga ónotaða miða í Strætó appinu þann 16. nóvember 2021 hafa frest í eitt ár til að nota þá. Til að byrja með verður núverandi Strætó app áfram notað til þess að leita að ferðum eða fylgjast með vögnum í rauntíma. Það verður einnig áfram hægt að kaupa landsbyggðarmiða í Strætó appinu. Pappírs farmiðar Í stað pappírs farmiðanna kemur ný vara sem heitir KLAPP tía. KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Pappaspjaldið er með kóða sem er skannaður um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hve margar ferðir eru eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu eða inn á straeto.is. Það verður áfram hægt að greiða með pappírs farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þangað til 1. mars 2022. Viðskiptavinir sem vilja skipta gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu hafa frest til 16. mars 2022 til að gera það. Prentuð Strætó kort Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Reiðufé Áfram verður hægt að greiða með reiðufé þar til annað verður tilkynnt. Vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Öryrkjar munu ekki geta greitt afsláttarfargjald með reiðufé. Þeir geta hins vegar fengið 70% afslátt í Klapp greiðslukerfinu.
Hvassviðri hefur áhrif á leiðir 57 og 55. Leið 57: Reykjavík – Akureyri Margar ferðir hafa fallið niður í dag á leið 57 vegna hvassviðris á Kjalarnesi og við Blikadalsá. Mjög tvísýnt er með ferðir á leiðinni það sem eftir lifir degi. Leið 55: Fjörður – Keflavíkurflugvöllur Einhverjar raskanir hafa orðið á leiðinni í dag vegna hvassviðris. Bilun í tilkynningakerfi Það er bilun í tilkynningakerfinu á heimasíðu Strætó og okkur hefur því ekki tekist að setja inn tilkynningar um frávik á heimasíðuna. Við erum hins vegar búin að tilkynna öll frávik dagsins í gegnum Twitter síðu Strætó https://twitter.com/straetobs Við biðjumst velvirðingar á þessum tækniörðugleikum. Unnið er að lagfæringu eins fljótt og hægt er.

KLAPP, nýtt greiðslukerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður formlega innleitt 16. nóvember. En samhliða nýju greiðslukerfi þá verður gamla greiðslukerfið að einhverju leyti til staðar í eitt ár. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um það hvað gerist fyrir gamla greiðslukerfið frá og með 16. nóvember 2021. Strætó appið Þann 16. nóvember verður ekki lengur hægt að kaupa nýja miða eða mánaðarkort í Strætó appinu. Viðskiptavinum verður í staðinn vísað í KLAPP appið. Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort í Strætó appinu skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Viðskiptavinir sem eru með virka áskrift munu klára þriggja mánaða hringinn sinn. Eftir þriðja „fría mánuðinn“ verður ekki lengur hægt að kaupa nýja áskrift. Þeir sem eiga ónotaða miða í Strætó appinu þann 16. nóvember 2021 hafa frest í eitt ár til að nota þá. Til að byrja með verður núverandi Strætó app áfram notað til þess að leita að ferðum eða fylgjast með vögnum í rauntíma. Það verður einnig áfram hægt að kaupa landsbyggðarmiða í Strætó appinu. Pappírs farmiðar Í stað pappírs farmiðanna kemur ný vara sem heitir KLAPP tía. KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Pappaspjaldið er með kóða sem er skannaður um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hve margar ferðir eru eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu eða inn á straeto.is. Það verður áfram hægt að greiða með pappírs farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þangað til 1. mars 2022. Viðskiptavinir sem vilja skipta gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu hafa frest til 16. mars 2022 til að gera það. Prentuð Strætó kort Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið. Reiðufé Áfram verður hægt að greiða með reiðufé þar til annað verður tilkynnt. Vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Öryrkjar munu ekki geta greitt afsláttarfargjald með reiðufé. Þeir geta hins vegar fengið 70% afslátt í Klapp greiðslukerfinu.
Nýjar sóttvarnaraðgerðir taka gildi á morgun, laugardaginn 6. nóvember. Samkvæmt reglugerðinni verður grímuskylda í gildi ef viðskiptavinir eða starfsmenn hjá Strætó geta ekki tryggt eins metra fjarlægðarmörk um borð í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Börn 15 ára og yngri eru undanþegin grímunotkun. Andlitsgrímur skulu hylja nef og munn. Hugum að hreinlæti og eigin sóttvörnum. Viðskiptavinir skulu ekki ferðast með almenningssamgöngum ef þeir eru með flensueinkenni.
Mikið hvassviðri á Kjalarnesi hefur sett almenningssamgöngur úr skorðum á leið 57 sem ekur milli Reykjavíkur og Akureyrar. Flestar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness hafa fallið niður með leiðinni í dag og veðurspáin gerir ráð fyrir sambærilegu ástandi í kvöld. Ferðin sem lagði af stað kl. 16:20 frá Akureyri mun líklegast ekki komast lengra en á Akranes. 17:00 ferðin frá Reykjavík og til Akureyrar mun hefja akstur frá Akranesi kl. 17:34. Búist er við að allar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness falli niður í dag.
Eftirfarandi breytingar taka gildi hjá Strætó á landsbyggðinni á morgun 1. september Tímatöflur á leið 88 breytast á ferðum milli Grindavíkur og Fjölbrautaskóla Suðurnesja þannig þær passi betur við skólatíma nemenda. Breyting er gerð á tímatöflu seinni ferðanna á leið 52 þannig að áætlun vagnins passi betur við áætlun Herjólfs. Áhöfn Herjólfs ber ábyrgð á því að hafa samband Strætó til að kanna hvort farþegar séu á leið með Herjólfi. Ef svo er þá hinkrar Herjólfur eftir þeim. Leið 88. Grindavík → Reykjanesbær