
Starfsfólk Strætó mun kynna nýja greiðslukerfið og selja strætókort.
Á þriðjudaginn 7. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi mun starfsfólk frá Strætó koma í heimsókn til Ás Styrktarfélags í Ögurhvarfi 6.
Starfsfólkið mun kenna fólki á nýja Klapp greiðslukerfið og hjálpa þeim að kaupa fargjöld í Strætó.
Starfsfólk frá Strætó mun einnig koma í heimsókn til Þroskahjálpar á Háaleitisbraut 13 á miðvikudaginn 8. desember milli kl. 1 – 3 eftir hádegi.
Við vonumst til að sjá sem flesta.


