
Áhrif verkfalls bílstjóra í olíudreifingu á Strætó. Verkfall bílstjóra í olíudreifingu á höfuðborgarsvæðinu mun ekki hafa áhrif á þjónustu Strætó þar sem undanþága hefur verið veitt fyrir dreifingu á olíu fyrir bæði vagna Strætó og verktaka sem keyra fyrir Strætó. Akstur Strætó innan höfuðborgarinnar og á landsbyggðinni mun því haldast óbreyttur.

Strætó heldur áfram á blússandi siglingu og annan mánuðinn í röð frá því að reglulegar mælingar hófust er slegið met þegar kemur að fjölda innstiga. Í janúar 2023 mældust rúmlega 1.119.000 innstig á höfuðborgarsvæðinu sem er mesti fjöldi sem mælst hefur í janúarmánuði síðan mælingar hófust. Innstig í janúar síðastliðnum voru tæplega 7% fleiri en í janúar 2019 og tæplega 4% fleiri en í janúar 2020 sem var fyrra janúarmet. Í desember 2022 voru 980.000 innstig sem var einnig met fyrir desembermánuð frá því að mælingar hófust. Farþegafjöldi dróst saman í Covid faraldrinum en nú er notendum Strætó farið að fjölga á ný. Á grafinu má sjá þróun síðustu ára.

Aldrei hafa fleiri innstig í vagna innan höfuðborgarsvæðisins mælst í desembermánuði en í desember síðastliðnum frá því að reglulegar mælingar á innstigum hófust. Í desember 2022 voru tæplega 980.000 innstig í vagna innan höfuðborgarsvæðisins. Farþegafjöldi í Strætó dróst saman í Covid faraldrinum en fyrir faraldurinn hafði innstigum hægt og bítandi fjölgað og var desember 2019 metmánuður miðað við desembermánuði fyrri ára. Séu desembermánuðirnir 2019 (fyrir Covid) og 2022 hins vegar bornir saman sést að innstig í síðastliðnum desember voru um 8% fleiri en í desember 2019. Notendum strætó fer því fjölgandi sem er ánægjuleg þróun eftir talsverða fækkun í Covid faraldrinum. Eins og sést á grafinu má sjá hvernig fjöldatakmarkanir vegna Covid höfðu bein áhrif á fjölda viðskiptavina í strætó.

Vegna veðurs og færðar á morgun gæti verið að þjónusta Strætó skerðist á morgun 20. janúar, á landsbyggðinni. Við biðjum viðskiptavini vinsamlegast um að fylgjast með tilkynningum og leiðum á heimasíðu Strætó undir staða á ferðum, hægt að smella hér og í Klappinu undir valmynd/staða á ferðum. Jafnframt eru allar tilkynningar settar inn á Twitter síðu Strætó.

Á föstudögum mun móttaka Strætó loka kl. 14:00 í stað 16:00. Er breytingin gerð eftir skoðun á fjölda heimsókna til móttökunnar en mjög fáar komur eru á móttöku Strætó eftir kl.14:00 á föstudögum. Breyttur opnunartími tekur gildi föstudaginn 13. janúar og er þá opnunartími móttöku eftirfarandi: Opnunartími móttöku Mánudaga – fimmtudaga: 09.00-16.00 Föstudaga: 09.00-14.00 Lokað um helgar Athygli er vakin á því að þjónustuver er opið lengur en hægt er að hringja á það í s. 540 2700 mánudaga til föstudaga kl. 7:00-16:30 og um helgar frá kl. 10:00-14:00.

Vegna veðurs og færðar á morgun gæti verið að þjónusta Strætó skerðist á morgun 31. desember, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Við biðjum viðskiptavini vinsamlegast um að fylgjast með tilkynningum og leiðum á heimasíðu Strætó undir staða á ferðum, hægt að smella hér og í Klappinu undir valmynd/staða á ferðum. Jafnframt eru allar tilkynningar settar inn á Twitter síðu Strætó.

Strætó óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það gamla. Upplýsingar um akstur og opnunartíma yfir hátíðirnar má finna í tímatöflum allra leiða og einnig með því að smella hér.

Norrænu hönnunarverðlaunin á sviði almenningssamgangna voru veitt í fyrsta sinn á ráðstefnunni InformNorden á fimmtudaginn síðastliðinn. Norðurlöndin gátu tilnefnt tvö verkefni, annað á sviði stafrænnar þjónustu og leiðarvísa og hitt á sviði aðgengismála í víðu samhengi. Dómnefndin kom frá þeim Norðurlöndum sem tóku þátt í ráðstefnunni. Í dómnefnd voru: Suss Forssman Thullberg, Svíþjóð/SL, Sian Ambrose, Noregi/Ruter, Kim Gjedsted, Danmörku/Movia, Eeva Jakobsson, Finland/HSL and Kamilla Dögg Guðmundsdóttir, Íslandi/Strætó. Metro fyrir alla Í flokknum aðgengismál í víðu samhengi verðlaunaði dómnefndin SL í Stokkhólmi fyrir verkefnið „C30 Metro – Metro fyrir alla“. SL byggði nýja lest, C30, sem var byggð á upplifun/mati viðskiptavina með ólíkar þarfir og líkan af lest í fullri stærð var smíðað þar sem hægt var að sjá fyrir sér og meta tillögur að lausnum áður en fjöldaframleiðsla hófst. Í umsögn dómnefndar segir: Besta dæmið um hvernig hönnunarferli sem knúið er áfram af þátttöku og upplifun viðskiptavina, leiðir til farartækis þar sem hönnunarþættir og stafrænar lausnir skapa lest fyrir alla í raunheimum. Meiri sveigjanleiki til og frá vinnu Í flokknum stafræn þjónusta og leiðarvísar verðlaunaði dómnefndin HSL í Helsinki fyrir verkefnið þeirra „Meiri sveigjanleika til og frá vinnu“ með endurnýjuðum samgöngukjörum HSL. HSL byrjaði að bjóða upp á þjónustu undir nafninu B2B þar sem atvinnurekendur geta veitt starfsfólki sínu afsláttarkjör á almenningssamgöngum til og frá vinnu á HSL svæðinu. Starfsfólk getur notað miðana sína í HSL appinu og er reikningurinn sendur til atvinnurekanda. Í umsögn dómnefndar segir: Besta dæmið um hvernig viðskiptamiðuð, stafræn lausn eykur bæði einfaldleika og hagkvæmni í samgöngum. Og mikilvægast af öllu, lausn sem eykur fjölda ferðalanga og gera almenningssamgöngum kleift að vaxa í umhverfi í „Nýja Norminu“ eftir Covid. Hönnun er stór þáttur bæði í raunheimum almenningssamgangna og þeim stafrænu og miðar að því að gera þjónustuna aðgengilegri, þægilegri og fallegri fyrir notendur. Það er því fyrir löngu tímabært að gera þessum málaflokki hátt undir höfði og veita norræn hönnunarverðlaun á sviði almenningssamganga. Vonandi tryggja verðlaunin sig í sessi og verða árlegur viðburður á InformNorden ráðstefnunni.

Vegna malbikunarframkvæmda verður Reykjanesbraut lokuð fyrir umferð frá Grindavíkurvegi í átt að Reykjavík, að álverinu í Straumsvík, frá kl. 20:00 miðvikudaginn 16. nóvember og til kl. 20:00 fimmtudaginn 17. nóvember. Reykjanesbrautin verður opin fyrir umferð til Suðurnesja og á flugvöllinn allan framkvæmdatímann. Akstursleiðin frá Hafnarfirði/Reykjavík til Keflavíkur mun haldast óbreytt en búast má við töfum á leiðinni þar sem aksturshraði verður lækkaður niður í 50 km á vinnusvæðinu og búast má við að umferð verði þung. Akstursleiðin frá Keflavík að Hafnarfirði/Reykjavík mun fara hjáleið um Grindavíkurveg (43), Suðurstrandarveg (427) og Krýsuvíkurveg (42) og má búast við að leiðin lengist um allt að 50 mínútur. Athugið að þessir vagnar fara ekki hjáleiðina og fara eftir tímaáætlun: Ferð kl. 6:34 frá Hringbraut – Keflavík Ferð kl. 6:35 frá Kef-Airport Ferð kl. 16:42 frá Kef – Airport

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2022 10:00 - 14:00 25. desember 2022 10:00 - 14:00 26. desember 2022 10:00 - 14:00 31. desember 2022 10:00 - 14:00 1. janúar 2023 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2022 Lokað 25. desember 2022 Lokað 26. desember 2022 Lokað 31. desember 2022 Lokað 1. janúar 2023 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Ekið verður til ca. 15:00. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Ekið verður til ca. 15:00. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Aðfangadagur og gamlársdagur Síðustu ferðir dagsins: Leið 1 Frá Hlemmi 15:12 Leið 1 Frá Skarðshlíð 15:00 Leið 2 frá Hlemmi 15:00 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Hlemmi 14:52 Leið 3 frá Mjódd 14:51 Leið 4 frá Hlemmi 14:48 Leið 4 frá Mjódd 14:51 Leið 5 frá Árvaði 14:44 Leið 5 frá HR 14:36 Leið 6 frá Hlemmi 14:37 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Spönginni A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Sjá leið 5 Leið 11 frá Eiðistorgi 14:58 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:40 Leið 14 frá Granda 14:35 Leið 15 frá Reykjavegi 14:43 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Hlemmi 14:46 Leið 17 frá Mjódd 14:36 Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Hlemmi 14:46 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Bátaskýlunum við Lónsbraut 14:40 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 14:31 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 25 frá Spöngin B Pöntunarþjónusta 15:15 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:20 Leið 28 frá Hamraborg 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg 15:07 Leið 36 frá Hamraborg 15:07

Hér má nálgast upplýsingar um akstur hjá Strætó á landsbyggðinni yfir hátíðarnar. Suðurland Leið 51 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 52 Aðfangadagur, 24.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur * Ef Landeyjahöfn er lokuð, ekur vagninn aðeins til og frá Hvolsvelli. Leiðir 71, 72 og 73 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. ( Leiðir 71 og 72 aka ekki á sunnudögum ) Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Suðurnes Leið 55 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 12:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 87 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 88 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjari 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 89 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Vestur- og Norðurland Leið 57 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið er samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 58, 59, 82 og 84 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 81 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Norður- og Norðausturland Leiðir 56, 78 og 79 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Austurland Leiðir 91, 92, 93 og 95 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 94 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið eftir mánudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ Leiðir R1, R3 og R4 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar á Akureyri Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur

Ráðstefnan InformNorden verður haldin í Reykjavík dagana 16. – 18. nóvember nk. Ráðstefnan er haldin til skiptis í Norðurlöndunum, en í ár er hún haldin á Hilton Reykjavík Nordica og sér Strætó um skipulagningu og utanumhald. Hin árlega InformNorden ráðstefna er kennileiti í norrænum ITS (Intelligent Transportation Systems) heimi og er þekkt fyrir að vera leiðandi umræðuvettvangur um áskoranir á sviði upplýsingatækni og betri almenningssamgöngur á norrænum sem og alþjóðlegum markaði. Margar kynslóðir upplýsingatækniþróunar í almenningssamgöngum hafa verið kynntar til sögunnar á InformNorden, svo sem mismunandi fargjaldakerfi, kerfi sem snúa að upplýsingum fyrir farþega, skipulagskerfum og hönnun. Að þessu sinni er ráðstefnan tvöföld, því ráðstefnan Nordisk Lokaltraffik er haldin samhliða. Þar er áherslan á almenningssamgöngur í víðu samhengi, svo sem Borgarlínuverkefni (BRT), umhverfismál og áhrif áfalla eins og Covid á almenningssamgöngugeirann. Fyrirlesarar eru margir og mismunandi en allir sérfræðingar á sínu sviði og/eða stjórnendur almenningssamgangna í borgum eins og Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Osló, Helsinki og Reykjavík auk fleiri góðra gesta. Hægt er að sjá dagskrá ráðstefnunnar hér: https://informnorden.org/agenda/ Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir bæði vélbúnaðar- og hugbúnaðarbirgja í greininni sem og þá sem stýra almenningssamgöngum á Norðurlöndum. Sköpun og viðhald tengslaneta milli hagsmunaaðila úr öllum geirum almenningssamganga hefur því alltaf verið eitt helsta einkenni ráðstefnunnar og er það enn í Reykjavík 2022. Norræn hönnunarverðlaun á sviði almenningssamgangna Í ár verða í fyrsta sinn veitt verðlaun fyrir framúrskarandi hönnun á ráðstefnunni. Öll Norðurlöndin tilnefna tvö verkefni, annað á sviði stafrænnar þjónustu og leiðarvísa og hitt á sviði aðgengismála í víðu samhengi. Vinningshafar verða tilkynntir fimmtudaginn 17. nóvember á ráðstefnunni. Hönnun er stór þáttur, bæði í raunheimum almenningssamgangna og þeim stafrænu og miðar að því að gera þjónustuna aðgengilegri og fallegri fyrir notendur. Það er því fyrir löngu komið að því að gera þessum málaflokki hátt undir höfði og vonandi tryggja verðlaunin sig í sessi og verða árlegur viðburður á InformNorden ráðstefnunni.

Við erum stolt af því að Strætó sé með jafnlaunavottun enda viljum við sem vinnustaður stuðla að jafnrétti, segir Sigríður Harðardóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó í tilefni þess að Strætó hlaut endurvottun á jafnlaunakerfi sínu frá Versa vottun. Vottunin er staðfesting þess að jafnlaunakerfi fyrirtækisins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Strætó fékk skírteini þessu til staðfestingar á kvennafrídeginum þann 24. október sl. en Strætó hlaut fyrstu jafnlaunavottunina á þessum degi árið 2019. Sigríður segir það ánægjulegt að staðfestingin hafi borist á sjálfum kvennafrídeginum. „Það skiptir máli að fyrirtæki og stofnanir leggist á eitt og stuðli að jafnari vinnumarkaði. Einn liður í því er að fá jafnlaunavottun.“ Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2018 . Með innleiðingu jafnlaunastaðalsins geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Gleymdu þér í Strætó og hlustaðu á strætósögur á Storytel til að hvíla hugann frá amstri dagsins. Storytel í samstarfi við Strætó hefur gefið út sjö stuttar strætósögur sem tilvalið er að hlusta á þegar maður lætur líða úr sér í Strætó. Skyggndu inn í hveitibrauðsdaga ungs pars þar sem lífið er ekki eins ljúft og þau bjuggust við eða ferðastu um með ungum manni í strætó sem er á leið á stefnumót sem fer á annan veg en hann hélt. Strætósögur er safn sjö brakandi ferskra smásagna eftir Þóru Sif Guðmundsdóttur.

Strætó hefur tekið þá ákvörðun að hætta akstri næturstrætó um helgar frá og með 16. október 2022. Um er að ræða leiðir 101, 102, 103, 104, 105, 106 og 107. Stjórn Strætó samþykkti þann 4. júlí sl. að hefja akstur næturstrætó um helgar til reynslu út septembermánuð. Nú að loknum reynslutíma er ljóst að væntingar um farþegafjölda í næturstrætó hafa ekki staðist þrátt fyrir að búist hafi verið við auknum fjölda nú í haust þegar starfsfólk kom úr sumarleyfum og skólar hófust á ný. Farþegafjöldi hverrar helgar var um 300 til 340 farþegar, að meðaltali 14 til 16 í hverri ferð, sem er talsvert undir ásættanlegum viðmiðum. Í ljósi þessa og fjárhagsstöðu Strætó, samþykkti stjórn Strætó að ekki sé réttlætanlegt að halda áfram akstri næturstrætó um helgar nú að loknum reynslutíma og verður því þeirri þjónustu hætt.

Hópur bandarískra nemenda vinnur nú í samstarfi við Strætó að rannsókn á innleiðingu Klapps greiðslukerfisins. Nemendahópurinn kemur frá skólanum Worcester Polytechnic Institute (WPI) í Massachusetts fylki og verður sjö vikur á landinu. Strætó hefur nokkur undanfarin ár verið í samstarfi við nemendahópa frá þessum skóla þar sem nemendur hafa unnið hin ýmsu verkefni með góðum árangri. Verkefnið núna er að rannsaka innleiðingu Klapps kerfisins og verður könnun lögð fyrir viðskiptavini annars vegar og vagnstjóra hins vegar. Límmiðar hafa verið settir í vagna þar sem notendur geta skannað inn QR kóða og svarað könnun um Klapp kerfið.

Breytingar eru á leið 94, Djúpivogur – Höfn. Vetraráætlun hefur tekið gildi á leið 94 á Austfjörðum. Ekki er lengur stoppað í Breiðdalsvík og er nú stoppistöðin á Höfn á flugvellinum.

Þann 1. október mun ný gjaldskrá Strætó taka gildi. Gjaldskráin var samþykkt á fundi stjórnar félagsins 16. september sl. og nemur hækkunin 12,5 %. Stök fargjöld og tímabilskort munu öll taka sömu verðbreytingu. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 490 kr. í 550 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4.000 kr. í 4.500 kr. Gjaldskráin hefur verið óbreytt síðan um áramótin 2020/2021 en þann 16. nóvember 2021 var Klapp, rafrænt greiðslukerfi Strætó innleitt og öll gjaldskráin einfölduð til að vera sanngjarnari og veita viðskiptavinum jafnari kjör á fargjöldum. Verðhækkunum er ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum á aðföngum Strætó svo sem olíuverðshækkunum, en olíuverð hefur hækkað um tæp 40% frá áramótum og kostnaði vegna vinnutímastyttingar, sem hefur haft veruleg áhrif á reksturinn. Áhrifa heimsfaraldurs COVID gætir enn í rekstrinum og útlit fyrir að uppsöfnuð áhrif á tekjur séu á bilinu 1500 m.kr. til 2000 m.kr. Áhrifa hækkandi aðfangaverðs og lægri tekna má sjá í árshlutauppgjöri Strætó fyrir janúar til júní 2022. Ávallt er reynt að stilla öllum verðhækkunum Strætó í hóf og er hækkuninni ætlað að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt munu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skoða að styrkja rekstur Strætó frekar en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2022. Strætó hefur sett sér stefnu um kolefnislausan flota árið 2030 og með því verða áhrif olíuverðs óveruleg á rekstur Strætó. Miðað við útreikninga FÍB um rekstrarkostnað þess að reka bíl, er hann um 1,3 milljónir á ári miðað við að eknir séu 15.000 km á ári og því ljóst að enn er mun hagstæðara að nota almenningssamgöngur. Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en ekki til akstursþjónustu fyrir fatlað fólk en þar verða engar breytingar á gjaldskrá. Ný gjaldskrá tekur gildi 1. október næstkomandi. Gjaldskrá Strætó 1. okt. 2022 Stök fargjöld Fullorðnir 550 kr. Ungmenni 275 kr. Aldraðir 275 kr. Öryrkjar 165 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 9.000 kr. 90.000 kr. Ungmenni 4.500 kr. 45.000 kr. Aldraðir 4.500 kr. 45.000 kr. Öryrkjar 2.700 kr. 27.000 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. 0 kr. Klapp tíur Verð Klapp 10 Fullorðnir 5.500 kr. Klapp 10 Aldraðir 2.750 kr. Klapp 10 Ungmenni 2.750 kr. Plastkort Verð Klapp kort 1.000 kr. Dagpassar Verð 24 klst. 2.200 kr. 72 klst. 5.000 kr.

Skiljum bílinn eftir heima á bíllausa daginn Í tilefni af samgönguviku verður bíllausi dagurinn á morgun, 22. september og þá verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar á stór-höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að leggja bílnum og ferðast frítt um allan bæ frá morgni til kvölds án þess að hafa áhyggjur af bílastæðum eða bensínkostnaði. Hvernig væri að nota samgönguviku til að gefa einkabílnum kærkomna hvíld og nýta okkur vistvænar samgöngur?

Veljum fjölbreytta ferðamáta Á morgun hefst Evrópsk samgönguvika sem stendur frá 16. – 22. september og hvetur Strætó alla til að taka þátt. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í þessu samstillta átaki með sveitarfélögum í Evrópu og hefur Strætó verið með frá upphafi. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla, ganga eða nota aðra vistvæna ferðamáta. Yfirskrift Samgönguviku er Veljum fjölbreytta ferðamáta og þema ársins í ár er Virkari samgöngur . Kynntu þér allt um samgönguvikuna á Facebook-síðu vikunnar Taktu þátt í viðburðum í samgönguvikunni: Hjólaævintýri Höfuðborgarsvæðisins Bíllausi dagurinn 22. september – Frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu Nánar má lesa um átakið á www.mobilityweek.eu .

Strætó á vini alls staðar að. Þau Verity og Christian Graham eru sko aldeilis sannir Strætóvinir, þau dýrka Ísland og finnst fátt skemmtilegra en að rúnta um í strætó þegar þau koma til landsins en þau eru bæði frá Englandi. Til merkis um aðdáun þeirra á Strætó þá nefndu þau köttinn sinn Strætó. Þau segjast hafa ákveðið nafnið í einni af heimsóknum sínum til landsins en þau eiga tvo ketti og heitir hinn Bjarki. Christian hefur komið þrettán sinnum til landsins og Verity ellefu sinnum. Í síðustu ferð þeirra hingað til lands höfðu þau samband við Strætó og báðu um varning merktan Strætó. Það var sjálfsagt að verða við bón þeirra og bera þau derhúfur Strætó með prýði og kötturinn Strætó virðist líka vel við una miðað við myndina sem þau sendu af honum. Hjónin segjast heltekin af Íslandi og landið sé uppáhaldsstaðurinn þeirra í öllum heiminum. Þau eru bæði að læra íslensku en segja málið frekar erfitt. Þau trúlofuðu sig líka á Íslandi, í Grímsey árið 2020 eftir að hafa varið sumrinu á Egilsstöðum.

Starfsmenn Strætó gefa erlenda mynt til Vildarbarna Icelandair. Í dag afhentu starfsmenn Strætó Vildarbörnum Icelandair erlenda mynt sem safnast hafði saman í strætisvögnum höfuðborgarsvæðisins yfir nokkurra ára tímabil. Vildarbörn Icelandair er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður og er markmiðið að gefa börnum á Íslandi og í nágrannalöndunum tækifæri til ferðalaga ásamt fjölskyldum sínum. Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna tók við myntinni fyrir hönd ferðasjóðs Vildarbarna en það voru Sigríður Harðardóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó og Elísa Kristmannsdóttir, fjármálastjóri Strætó sem komu með myntina færandi hendi fyrir hönd Strætós. Í tilefni dagsins sagði Sigríður að það væri afar ánægjulegt að gefa í svona verðugt málefni og efast ekki um að Vildarbörn og fjölskyldur þeirra muni njóta góðs af.

Í byrjun september verða gerðar breytingar á nokkrum leiðum Strætó á landsbyggðinni. Leið 57 breytist í Mosfellsbæ Frá og með sunnudeginum 4. September þá mun leið 57 sem ekur í átt að Akranesi, Borgarnesi eða Akureyri hætta að nota biðstöðina „ Háholt “. Í staðinn mun hún nota biðstöðina „Bjarkarholt“. Leið 57 sem ekur í átt að Mjódd, mun áfram nota biðstöðina „ Háholt“. Leiðir 63, 64 og 81 hefja akstur á ný Leiðir 63, 64 og 81 sem aka í Borgarbyggð munu hefja akstur á nýjan leik mánudaginn 5. september 2022. Leiðir 61 og 62 hætta akstri á Vestfjörðum Leiðir 61 og 62 á Vestfjörðum eru eingöngu eknar yfir sumartímann. Þær munu formlega hætta akstri frá og með 1. september 2022. Leið 62. Patreksfjörður → Ísafjörður Breyting á Austfjörðum Eftirfarandi breytingar verða gerðar á Austfjörðum mánudaginn 5. september 2022. Leið 92: Ferðin sem er ekin kl. 16:45 frá Fáskrúðsfirði verður ekin kl. 16:48. Leið 93: Það bætist við ferð á laugardögum. Ekið verður frá Seyðisfirði kl. 08:45 og frá Egilsstöðum kl. 10:00.

Strætó hefur verið með pöntunarþjónustu á leið 27 á. Leiðin er með þjónustu á milli Háholts og Laxness. Hringt í Pant í stað Hreyfils Leiðin verður áfram í pöntunarþjónustu en í stað þess að hringja í Hreyfil, þá eru ferðirnar pantaðar í gegnum símanúmerið 540 2740 hjá þjónustuveri Pant hjá Strætó. Áfram er nauðsynlegt að panta ferðir minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu Bíll frá akstursþjónustunni Pant eða Hreyfli verður sendur á biðstöð viðskiptavinarins. Sérstaklega þarf að taka fram í síma ef viðskiptavinur notar hjólastól eða er með barnavagn. Í þeim tilvikum mun Strætó útvega bíl frá akstursþjónustunni Pant í stað Hreyfils. Í pöntunarþjónustu er fargjaldið greitt með því að sýna bílstjóra Klapp kort, Klapp tíu eða virkjaðan miða í Klapp appinu. Þessi breyting tekur gildi 1. september. Tímatafla leiðarinnar mun líta svona út:

Hátíðin „Í túninu heima“ er haldin í Mosfellsbæ 23.- 28. ágúst. Í tilefni hátíðarinnar þá verður frítt í strætóleiðir 7 og 15 yfir laugardaginn 27. ágúst. Leið 7 ekur milli Egilshallar og Leirvogstungu með viðkomu í Helgafellshverfi. Leiðin ekur milli kl. 07:30-21:30 á laugardögum. Leið 15 ekur milli Vesturbæjar í Reykjavík og Reykjahverfis í Mosfellsbæ. Leiðin ekur milli kl. 07:30 – 00:00 á laugardögum. Hægt er að skoða dagskrá hátíðarinnar með því í ýta á takkann hér fyrir neðan.

Breytt leiðakerfi á menningarnótt Frítt í Strætó yfir daginn þar til næturstrætó tekur við. Lokanir og fyrirkomulag Lokað verður fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Frítt verður í strætó allan daginn þangað til akstur á hefðbundnum næturstrætó tekur við um eittleytið, en ekki er frítt í hann. Leiðir 1, 3, 5, 6, 11, 12, 13, 14 og 15 munu aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Hér fyrir neðan má sækja kort af hátíðarsvæðinu og lokuðum götum í miðborginni. Hátíðarsvæði - Menningarnótt 2022 Leiðakerfi rofið kl. 22:30 Kl. 22:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sæbraut við Höfða. Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu: Brottfaratímar á síðustu ferð frá Kl. 22:13 frá Hlemmi Kl. 22:04 frá Skarðshlíð. Kl. 22:03 frá Hlemmi Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 22:24 frá Hlemmi Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:18 frá Hlemmi Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:06 frá HR Kl. 22:18 frá Norðlingaholti Kl. 22:07 frá Hlemmi Kl. 22:18 frá Egilshöll Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 22:23 frá Eiðistorgi Kl. 22:20 frá Skerjafirði Kl. 22:07 frá Ártúni Kl. 22:10 frá Sléttuvegi Kl. 22:08 frá Öldugranda Kl. 22:09 frá Granda Kl. 22:10 frá Verzló Kl. 22:15 frá Reykjavegi Kl. 22:01 frá Flyðrugranda Kl. 22:06 frá Spöng Kl. 22:16 frá Hlemmi Kl. 22:18 frá Kaplakrika Kl. 22:22 frá Ásvallalaug Kl. 22:19 frá Spöng Kl. 22:03 frá Ásgarði Kl. 22:07 frá Hamraborg Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum sem eru í pöntunarþjónustu. Þetta eru leiðir 22, 23, 25 og 27. Ef viðskiptavinur virkjar óvart miða Ef viðskiptavinur gleymir að það sé frítt í Strætó og virkjar miða í appinu, þá getur hann/hún/hán sent tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is og við sendum viðkomandi frían miða. Nauðsynlegt er að símanúmer fylgi með tölvupóstinum. Skutluþjónusta „Skutlur“ á vegum Strætó munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 01:00. Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll og nýta sér skutluþjónusta í miðborgina. Það er kostar ekkert í skutluþjónustuna. Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni. Miðborgin tæmd Um 23:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni. Ekið verður frá Sæbraut við Höfða frá kl. 23:00 – 01:00. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir: Leiðir Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf Framkvæmdir á Bústaðaveg Leið 103 mun ekki aka um Bústaðaveg eins og við höfðum upphaflega auglýst. Hún mun í staðinn aka Miklubraut. Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt. * Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30. Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi Leiðarkort Næturstrætó Eftir kl. 01:00 á aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó. Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum en auka ferðum verður bætt við yfir Menningarnótt. Við vekjum athygli á að það er ekki frítt í næturstrætó. Brottfarir næturvagna á Menningarnótt 01:20 01:50 02:25 02:55 03:45 Lækjartorg B – Snorrabraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð 01:40 02:10 02:40 03:10 03:45 Lækjartorg B – Hlemmur – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Hamraborg – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf Framkvæmdir á Bústaðaveg Leið 103 mun ekki aka um Bústaðaveg eins og við höfðum upphaflega auglýst. Hún mun í staðinn aka Miklubraut. 01:30 02:00 02:40 03:10 03:50 Hlemmur – Lækjartorg A – Hringbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar 01:25 01:55 02:30 03:00 03:35 Lækjartorg B – Hlemmur – Suðurlandsbraut – Ártún – Vesturlandsvegur – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur 01:29 01:59 02:29 02:59 03:29 Lækjartorg B – Borgartún – Sæbraut – Vogar – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt 01:34 02:04 02:34 03:04 03:34 Lækjartorg B – Hlemmur – Miklabraut – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt 01:20 02:00 02:40 03:20 Hlemmur – Lækjartorg A – Suðurgata – Hjarðarhagi – Ægisíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi

Frá og með mánudeginum 15. ágúst mun leið 1 aka að Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði. Eftir breytinguna verður biðstöðin Klukkuvellir óvirk. Leiðin mun í staðinn aka um Hnappavelli og Ásvallabraut. Tvær nýjar biðstöðvar, Hamranes og Skarðshlíð opnast á Ásvallabraut. Sjá breytingu á myndinni hér fyrir neðan:

Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 6. ágúst milli kl. 10:00-18:00. Eftirfarandi hjáleiðir verða í gildi: Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Listi yfir óvirkar biðstöðvar frá kl. 10:00-18:00 á laugardaginn 6. ágúst: Óvirkar biðstöðvar Áhrif lokunar á leið nr. Hallargarðurinn 1, 3, 6, 11 og 12 MR 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Lækjartorg B* 1, 6, 11, 12 og 13 Þjóðleikhúsið* 1, 6, 11, 12 og 13 Bíó Paradís* 1, 6, 11, 12 og 13 Barónsstígur* 1, 6, 11, 12 og 13 Lækjartorg A 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Ráðhúsið 1, 3, 6, 11, 12 og 13 Landakot 13 Ásvallagata 13 *Leið 14 mun áfram nota þessa stöð Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Snorrabraut þegar hjáleið er ekin. Leið 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Háskóli Íslands þegar hjáleið er ekin. Gleðigangan Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn. Myndin hér fyrir neðan sýnir gönguleiðina og götulokanir í kringum hana.

Næturstrætó úr miðbæ Reykjavíkur snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé. Ný stjórn Strætó kom saman á föstudaginn síðasta og það var mikill samhugur í stjórnarmönnum um að láta næturstrætó aka úr miðbænum um helgar. Stjórnin er með þessu að svara ákalli íbúa höfuðborgarsvæðisins um aukna þjónustu og fjölbreyttari samgöngukosti út úr miðborg Reykjavíkur um helgar. Leitast verður við að nota eins umhverfisvæna vagna og kostur er. Neðangreind þjónusta verður til reynslu fram í september, en þá verður þjónustan metin á ný út frá notkun leiðanna og ánægju viðskiptavina. 7 næturleiðir aka úr miðbænum 7 næturleiðir munu aka frá miðbænum og út í hverfin, en árið 2020 voru þessar leiðir 5. Næturstrætó ekur úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags. Aðeins er hægt að taka næturstrætó á leið úr miðbænum en ekki til baka í átt að miðbænum. Vagnarnir aka ekki skv. hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfaratími úr miðbænum og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna. Viðskiptavinir sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klapp appinu, Strætó appinu eða inn á straeto.is Eftirfarandi leiðir aka úr miðbæ Reykjavíkur um helgar: Leið 101: Hafnarfjörður ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:20, 02:25 og 03:45. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Snorrabraut, Kringlumýrarbraut og inn í Hamraborg. Eftir það ekur leiðin Hafnarfjarðarveg, Reykjavíkurveg, Lækjargötu (í Hafnarfirði), Hringbraut (í Hafnarfirði), Strandgötu, Ásbraut og inn á Velli. Leið 102: Kópavogur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:40, 02:40 og 03:40. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Eftir það fer leiðin um Smára, Lindir, Sali, Kóra og Hvörf í Kópavogi. Leið 103: Breiðholt ekur frá Hlemmi kl. 01:30, 02:40 og 03:50. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, Háskóla Íslands, um Bústaðarveg og upp í Mjódd. Eftir viðkomu í Mjódd þá ekur leiðin hring í Breiðholti um Skóga, Sel, Fell, Hóla og Bakka. Leið 104: Úlfarsárdalur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:25, 02:30 og 03:35. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Vesturlandsveg, inn í Grafarholt og Úlfarsárdal. Leið 105: Norðlingaholt ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:29, 02:29 og 03:29. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Borgartún, Sæbraut, Vesturlandsveg, inn í Árbæ, Selás og Norðlingaholt. Leið 106: Mosfellsbær ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:34, 02:34 og 03:34. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Vesturlandsveg, upp Höfðabakka og inn í Grafarvog. Þar mun hún aka í gegnum Folda, Rima- og Staðahverfið og inn í Mosfellsbæ. Leið 107: Seltjarnarnes ekur frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda. Fargjöld í næturstrætó Viðskiptavinir sem nota greiðslumiðla á vegum Strætó, þ.e. Klapp korti, Klapp appi, Klapp tíu, Strætókorti eða Strætóappi greiða sama fargjald og er greitt yfir daginn. Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Gerð verður tilraun með að hafa posa um borð næturstrætó. Þeir viðskiptavinir sem vilja staðgreiða með greiðslukorti eða reiðufé greiða 1.000 kr. í næturstrætó. Við vekjum athygli á að vagnstjórar geta ekki gefið til baka. Fargjöld í næturstrætó Stök fargjöld með greiðslumiðlum Strætó Verð Fullorðnir 490 kr. Ungmenni, 12-17 ára 245 kr. Aldraðir, 67 ára og eldri 245 kr. Öryrkjar* 147 kr. Aðrar greiðsluleiðir Verð Greitt með greiðslukorti eða reiðufé 1.000 kr. *Aðeins er hægt að fá öryrkjaafslátt í Klapp greiðslukerfinu.

Strætó hefur ýtt úr vör tilraunaverkefni til þess að auka þjónustu á leið 25 á virkum dögum. Leiðin er með þjónustu á milli Spangar og Gufuness Markmið verkefnisins er að kanna hvort unnt sé að auka nýtingu bíla frá akstursþjónustunni Pant, þá sérstaklega utan annatíma. Frá og með 1. júlí verður leiðin með 30 mínútna tíðni á virkum dögum, en í dag er leiðin með um 60-120 mínútna tíðni. Hringt í Strætó í stað Hreyfils Leiðin verður áfram í pöntunarþjónustu en í stað þess að hringja í Hreyfil, þá eru ferðirnar pantaðar í gegnum símanúmerið 540 2740 hjá Strætó. Áfram er nauðsynlegt að panta ferðir minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu Bíll frá akstursþjónustunni Pant eða Hreyfli verður sendur á biðstöð viðskiptavinarins. Sérstaklega þarf að taka fram í síma ef viðskiptavinur notar hjólastól eða er með barnavagn. Í þeim tilvikum mun Strætó útvega bíl frá akstursþjónustunni Pant í stað Hreyfils. Í pöntunarþjónustu er fargjaldið greitt með því að sýna bílstjóra Klapp kort, Klapp tíu eða virkjaðan miða í Klapp appinu. Þessi breyting tekur gildi 1. júlí. Tímatafla leiðarinnar mun líta svona út: