
Leiðir 61 og 62 munu aka um Vestfirði í júní, júlí og ágúst.
Leið 61
Leið 61 ekur frá Aðalstræti 7 á Ísafirði, að verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík og aftur til baka. Viðkomustaðir á leiðinni eru bensínstöð Orkunnar í Súðavík, vegamót Djúpavegar (61) og Mjóafjarðarvegar (633) og Hótel Reykjanes.
Leiðin tengist leið 59 sem ekur milli Hólmavíkur og Borgarness.
Reiðhjól:
Bíllinn á leið 61 getur tekið að mestu lagi 2 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara:
- Smáferðir ehf — Akstursaðili á leið 61 — hnota95@simnet.is — 8624530
Leið 62
Leið 62 ekur frá upplýsingamiðstöð Westfjords Adventures (Þórsgötu 8a á Patreksfirði), að Aðalstræti 7 á Ísafirði og til baka. Viðkomustaðir á leið frá Patreksfirði og til Ísafjarðar eru bensínstöð N1 á Patreksfirði, Hótel Flókalundur og Dynjandi.
Viðkomustaðir á leið frá Ísafirði og til Patreksfjarðar eru Þingeyri (622), Dynjandi, Hótel Flókalundur, Brjánslækur og bensínstöð N1 á Patreksfirði.
Reiðhjól:
Bíllinn á leið 62 getur tekið að mestu lagi 3 reiðhjól. Ef þú ætlar að ferðast með reiðhjól, þá er nauðsynlegt að panta pláss fyrir það með eins dags fyrirvara:
- Westfjords Adventures — Akstursaðili á leið 62 — info@wa.is — 4565006
Gjaldskrá á Vestfjörðum
Leið 61
Ferð | Fullorðnir | Börn, aldraðir og öryrkjar* |
|---|---|---|
Ísafjörður - Súðavík | 700 krónur | 350 krónur |
Ísafjörður - Heydalur | 3000 krónur | 1500 krónur |
Ísafjörður - Reykjanes | 3500 krónur | 1750 krónur |
Ísafjörður - Hólmavík | 6000 krónur | 2500 krónur |
Hólmavík - Reykjanes | 1500 krónur | 750 krónur |
Hólmavík - Heydalur | 2000 krónur | 1000 krónur |
Hólmavík - Súðavík |
*Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.
Leið 62
Ferð | Fullorðnir | Börn, aldraðir og öryrkjar* |
|---|---|---|
Ísafjörður - Brjánslækur | 8400 krónur | 6300 krónur |
Patreksfjörður - Brjánslækur | 3000 krónur | 2300 krónur |
Ísafjörður - Patreksfjörður | 9900 krónur | 7500 krónur |
Ísafjörður - Þingeyri | 2000 krónur | 1500 krónur |
Brjánslækur - Flókalundur | 500 krónur | 500 krónur |
Reiðhjól |
*Börn, 12 ára og yngri, aldraðir 65 ára og eldri og öryrkjar.


