
Frá og með 1. nóvember verða breytingar á leið 94 sem taka mið af breyttri flugáætlun frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði. Þann 1. nóvember nk. mun leiðin aka seinni ferðina á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í stað þeirrar fyrri. Ferðin ekur ekki á þriðjudögum. Ein ferð er svo á fimmtudögum og sunnudögum (á öðrum tíma). Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar Djúpivogur → Höfn kl. 16:00 og Höfn → Djúpivogur kl. 17:40 Fimmtudagar Djúpivogur → Höfn kl. 12:50 og Höfn → Djúpivogur kl. 14:30 Sunnudagar Djúpivogur → Höfn kl. 13:35 og Höfn → Djúpivogur kl. 15:05

Vegna götulokana munu leiðir 1, 2, 3, 6, 11, 12, 13 og 55 aka hjáleið þar sem Vonarstræti verður lokað. Gildir þetta frá kl. 8:00 frá mánudeginum 28. október til kl. 16:00 miðvikudaginn 30. október. Leiðir 1, 2, 3, 6, 11 og 12 munu aka hjáleið um Skothúsveg og Fríkirkjuveg. Óvirkar biðstöðvar: Ráðhúsið Leið 13 mun fara hjáleið um Mýrargötu og Ægisgötu á leið út á Öldugranda. Á leið sinni til Sléttuvegar fer leiðin hjáleið um Suðurgötu, Skothúsveg og Fríkirkjuveg. Óvirkar biðstöðvar: Ráðhúsið Leið 55 mun aka hjáleið um Sóleyjargötu og Skothúsveg. Óvirkar biðstöðvar: Ráðhúsið og Hallargarður

Frá og með 18. október mun bætast við ferð í sitthvora áttina á föstudögum á leið 65. Þetta verður breyting frá núverandi áætlun og strætóáætlunin verður nú sú sama og síðastliðið vor. Áætlun leiðar 65 verður eftirfarandi: Mánudagar: Búðardalur → Borgarnes kl. 8:30 og Borgarnes → Búðardalur kl. 9:45 Búðardalur → Borgarnes kl. 15:10 og Borgarnes → Búðardalur kl. 16:25 Föstudagar: Búðardalur → Borgarnes kl. 8:30 og Borgarnes → Búðardalur kl. 9:45

Strætó hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er ætlað að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Markmiðið er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. „Jafnrétti er ákvörðun og við getum verið stolt af því að tilheyra fyrirtæki sem sýnir í verki að jafnrétti skiptir miklu máli,“ segir Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Strætó.

Kapp (e.capping) er greiðsluþak yfir hversu mikið þú borgar í strætó á einum degi eða á einni viku. Aldrei er rukkað meira en fyrir 3 ferðir á sólarhring eða 9 ferðir á viku. Þetta er tilvalið fyrir þá sem nýta sér Strætó ekki að jafnaði þar sem fólk veit fyrirfram hvað það mun greiða fyrir Strætó á einum degi eða einni viku. Það besta við Kapp greiðsluþak er þessi fyrirsjáanleiki – maður veit alltaf hvað maður borgar að hámarki fyrir daginn eða vikuna. Það þarf ekkert að gera til að virkja Kapp greiðsluþak, það er alltaf að telja. Einungis þarf að muna að nota alltaf sama greiðslumáta eins og sama Klapp kort eða sama Klappið (appið). DagKapp: Ef þú ert búin/n að virkja 3 staka fullorðinsmiða á sama deginum, þá ferðastu frítt út daginn. VikuKapp: Ef þú ert búin/n að virkja 9 staka fullorðinsmiða innan einnar viku, þá ferðastu frítt út vikuna. Kapp greiðsluþak gildir í Klapp greiðslukerfinu hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með almennu stöku fargjaldi – fullorðins gjaldi. Nánari upplýsingar um Kapp greiðsluþak má finna hér.

Frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó sunnudaginn 22. september nk. Bíllausi dagurinn, er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst 16. september síðastliðinn, en 22. september nk. verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó yfir daginn og er fólk hvatt til að hvíla bílinn og nota fjölbreytta og vistvæna ferðamáta. Þetta er frábært tækifæri til að prófa aðra ferðamáta – taka Strætó, hjóla eða ganga. Ath. það er ekki frítt í næturstrætó aðfaranótt sunnudags.

Á mánudaginn hefst Evrópsk samgönguvika sem stendur yfir frá 16. – 22. september. Þema vikunnar er Almannarými – virkir ferðamátar. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í þessu samstillta átaki með sveitarfélögum í Evrópu og hefur Strætó verið með frá upphafi. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja fleiri í að nota fjölbreytta, vistvæna ferðamáta. Kynntu þér allt um samgönguvikuna á : Facebook síðu samgönguviku Fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá í samgönguvikunni: 16. september: Setning og hjólasýning • Hjólasýning Reiðhjólabænda í samstarfi við Reykjavíkurborg verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhússins 16. september kl. 16 og verður hún opin alla daga Samgönguvikuna. Gestir geta lagt reiðhjólum sínum við innganga hússins eða í bílakjallara undir húsinu. 18. september: Auðlindahringir, bíó og málþing • Auðlindahringir er viðburðaröð hjá Elliðaárstöð þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins. Rafstöðvarvegi kl. 17. • Reiðhjólabændur og Bíó paradís sýna heimildamyndina Chasing The Sun. • Aðförin í öndvegi. Elliðaárstöð. Orka náttúrunnar og Veitur standa fyrir málþingi í hádeginu á Bístró við Elliðaárstöð þar sem umferð hjólandi og gangandi er einmitt í öndvegi. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi. 19. september: Nýr göngustígur og PubQuiz • Opnun á nýjum göngu- og hjólastíg við Suðurhlíðar í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vegagerðar og Betri samgangna. • Samgöngu PubQuiz á SnorraBar með Samtökum um bíllausan lífsstíl kl. 11. 20. september: Umferðarþing • Umferðarþing – saman í liði. Samgöngustofa heldur Umferðarþing kl. 9:00-15:30 í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík. Þema: Ólíkir vegfarendahópar. 21. september: Reykvíkingar og Seltirningar hjóla saman • Samhjól. Reykjavíkurborg og Seltjarnarnes leiða hesta sína saman og bjóða upp á hjólaferð fjölskyldunnar. Hist verður við kl. 11 við nýjan útsýnispall við JL húsið. 6 kílómetra Gróttuhringur verður hjólaður og þátttakendum boðið í sund, kaffi, djús og kleinur í lok ferðar. 22. september: Bíllausi dagurinn • Bíllausi dagurinn. Frítt verður í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu. • Lokun á Garðsbraut á Húsavík fyrir bílaumferð. Fyrirlestur um öryggi barna í gatnahönnun. Norðurþing. Frekari upplýsingar Heimasíða samgönguviku er á Facebook. Vistorka verður með Samgönguáskorun . Hjólafærni býður grunnskólum upp á hjólavottun .

Eftirfarandi breytingar verða gerðar á tímatöflum á Austfjörðum. Leið 93 Aukaferðin sem hefur verið farin á fimmtudögum í samræmi við siglingaráætlun Norrænu tekur breytingum í takt við breytta siglingaáætlun. 10. september til 5. nóvember: Aukaferðin verður farin á þriðjudögum. Brottför frá Seyðisfirði til Egilsstaða kl. 10:15. 13. og 20. nóvember: Aukaferðin færist á miðvikudaga. 27. nóvember til 12. mars 2025: Engar aukaferðir. 19. mars 2025: Aukaferðir byrja aftur á miðvikudögum. Leið 94 Vetrarakstur hefst 30. september 2024 með breyttri tímatöflu, einnig mun leiðin ekki lengur aka á milli Breiðdalsvíkur og Hafnar heldur fer einungis á milli Djúpavogs og Hafnar. Engar breytingar verða á leiðum 91, 92, 95 og 96.

Búið er að opna Grensásveg fyrir umferð en hann var lokaður fyrir akstri í aðra áttina í nokkra mánuði vegna framkvæmda. Leiðir 2, 14, 15 og 17 aka því ekki lengur hjáleið um Ármúla heldur sínar hefðbundnu leiðir. Verið er að uppfæra leiðavísinn (Skipuleggja ferð).

Laugardaginn 7. september munu fleiri vagnar aka á leið 55 í tilefni Ljósanætur í Reykjanesbæ en skv. tímatöflu. Athugið að um aukavagna er að ræða á hefðbundinni tímatöflu á leið í Reykjanesbæ en á leið frá Reykjanesbæ eftir að hátíð lýkur verða aukaferðir í boði utan hefðbundinnar tímatöflu. Til Reykjanesbæjar Tveir aukavagnar fara frá Firði í Hafnarfirði á sama tíma og áætlunarvagnar, annar þeirra fer kl.17:53 og hinn kl. 19:53 og endar akstur beggja við Hringbraut/Melteig í Keflavík. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Fjörður – Sveitarfélagið Vogar – Hringbraut/Melteigur. Frá Reykjanesbæ Þegar hátíð lýkur verða farnar þrjár aukaferðir frá Hringbraut/Melteig í Keflavík utan tímatöflu, ein kl. 22:45 og tvær kl. 23:15 og endar akstur þeirra vagna við BSÍ. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Hringbraut/Melteigur – Sveitarfélagið Vogar – Fjörður – Ásgarður – Kringlumýrarbraut – Hlíðar – Klambratún – BSÍ. ATHUGIÐ: Aukavagnar verða merktir sem aukavagnar, annaðhvort með ljósaskilti eða með prentuðum texta í framrúðu vagnsins. Aukavagnarnir aka ekki á milli Hringbrautar/Melteigs og Keflavíkurflugvallar og öfugt, stoppa hvorki við Grindavíkurafleggjara né Vogaafleggjara og keyra ekki innanbæjar í Reykjanesbæ. Aukavagnarnir munu hins vegar aka inn í Voga og stoppa á stoppistöð Sveitarfélagið Vogar eins og leið 87, sjá áætlaðan komutíma: Komutímar aukavagna í Voga Brottför frá Firði Sveitafélagið Vogar kl. 17:53 kl. 18:13* kl. 19:53 kl. 20:13* *Áætlaður tími, vagni getur seinkað um 5-10 mínútur því hann ekur á eftir áætlunarvagni. Brottför frá Hringbraut/Melteigur (söfnunarsvæði aukavagna) Sveitafélagið Vogar kl. 22:45 kl. 23:10* kl. 23:15 kl. 23:40* *Áætlaður tími, vagni getur seinkað. Fer eftir umferð innan Reykjanesbæjar. Hefðbundin gjaldskrá fyrir landsbyggðina gildir og hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða pening. Athugið að ekki er hægt að nota Klappið í landsbyggðarvagna.

Við viljum vekja athygli á því að nokkrir óprúttnir aðilar hafa sett í gang herferðir á samfélagsmiðlum sem eru ekki á vegum Strætó. Þykjast þeir gefa kort á mjög vægu verði í Strætó til viðskiptavina. Strætó biður aldrei um fullar kortaupplýsingar og viljum vara við að ýta ekki á neina hlekki sem koma ekki frá okkur. Allir póstar frá okkur koma frá okkar eigin Facebook síðu.

Hátíðin „Í túninu heima“ er haldin í Mosfellsbæ 29. ágúst – 1. september. Leið 15 mun fara aukaferð laugardagskvöldið 31. ágúst eftir tónleika hátíðarinnar til að flytja tónleikagesti og aðra frá Mosfellsbæ. Þessi ferð er eftir að hefðbundnum akstri leiðarinnar lýkur. Aukavagninn leggur af stað frá stoppistöðinni Háholti kl. 23:55.

Breytt leiðakerfi á menningarnótt Almennt fargjald gildir yfir daginn – aukin tíðni verður hjá Strætó yfir daginn Lokanir og fyrirkomulag Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturgjald í næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Leið 1: mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10 mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leið 6 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15 : munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18 munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Hægt er að sjá biðstöðvar sem stoppað verður á í tímatöflu allra leiða undir 24. ágúst. Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Búið er að uppfæra leiðavísinn eftir bestu getu og hægt er að skoða tímatöflur allra leiða fyrir daginn en þar sem lokanir eru víðsvegar um borgina getur verið að vagninn þurfi að aka óhefðbundna leið – Vinsamlegast fylgist því með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru. Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Klappinu appi í síma Áfyllanlegu Klapp korti Klapp tíu Reiðufé – vagnstjórar á höfuðborgarsvæðinu gefa ekki til baka Nánari upplýsingar á Klappid.is Sæktu Klappið Keyptu fargjöld, skipulegðu ferðir eða fylgstu með Strætó í rauntíma. Sæktu Klappið á App Store eða Google Play. Kort frá Reykjavíkurborg, götulokanir Leiðakerfi rofið kl. 22:30 Kl. 22:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut. Það kostar ekkert í þessar ferðir. Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu: Brottfaratímar á síðustu ferð frá Kl. 22:23 frá Skúlagötu Kl. 22:19 frá Skarðshlíð. Kl. 21:51 frá Skúlagötu Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 21:55 frá Granda Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:15 frá Skúlagötu Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:05 frá HR Kl. 22:18 frá Norðlingaholti Kl. 22:17 frá HÍ Kl. 22:18 frá Egilshöll Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 22:27 frá Eiðistorgi Kl. 22:20 frá Skerjafirði Kl. 22:07 frá Ártúni Kl. 22:10 frá Sléttuvegi Kl. 22:08 frá Öldugranda Kl. 22:29 frá Granda Kl. 22:10 frá Verzló Kl. 22:15 frá Reykjavegi Kl. 22:01 frá Flyðrugranda Kl. 22:06 frá Spöng Kl. 22:14 frá Skúlagötu Kl. 22:18 frá Kaplakrika Kl. 22:22 frá Ásvallalaug Kl. 22:19 frá Spöng Kl. 22:03 frá Ásgarði Kl. 22:07 frá Hamraborg Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum sem eru í pöntunarþjónustu. Þetta eru leiðir 22, 23, 25, 26 og 27. Skutluþjónusta „Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 00:30. Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll. Það kostar ekkert í skutluþjónustuna. Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvarnar sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum. Miðborgin tæmd Um 23:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni. Það kostar ekkert í tæminguna. Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 23:00 – 00:30. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir og verða eins og „gömlu“ næturleiðirnar: Leiðir 101 - Hafnarfjörður Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð 102 - Kópavogur Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf 103 - Breiðholt Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar 104 - Úlfarsárdalur Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur 105 - Norðlingaholt Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt 106 - Mosfellsbær Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt. * Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30. 107 - Seltjarnarnes Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi Leiðarkort Næturstrætó Eftir kl. 00:30 á aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó. Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum. Borga þarf næturgjald í næturstrætó. Stakt fargjald í næturstrætó er 1300 kr. en það jafngildir tvöföldu fargjaldi – Stök fargjöld gilda ekki þ.m.t. afsláttarfargjöld Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Ekki er hægt að greiða með greiðslukorti um borð í næturstrætó Hægt er að borga með reiðufé – vagnstjórar geta ekki gefið tilbaka Næturstrætó aðfaranótt laugardags Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið Brottfarir næturvagna á Menningarnótt

Nýir samningar við Hagvagna og Kynnisferðir Í gær var stigið stórt skref í átt að kolefnislausum flota árið 2030 þegar nýir samningar voru undirritaðir við Hagvagna og Kynnisferðir um akstur strætisvagna. Þann 29. apríl sl. ákvað stjórn Strætó að ganga til samninga við þessi fyrirtæki þar sem þau buðu lægst í verkið og skiluðu inn lokatilboðum. Í nýja útboðinu var gerð krafa um að vagnafloti akstursaðila verði orðinn kolefnislaus í lok árs 2029 en það er í takt við markmið Strætó um kolefnislausan flota árið 2030. Um er að ræða 70 vagna og með eðlilegri endurnýjun á vagnaflota Strætó á þetta markmið að nást. „Við hjá Strætó erum mjög ánægð með þennan samning sem styður okkar markmið um kolefnislausan flota,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. „Við höfum þegar fest kaup á níu rafvögnum og er samningurinn annað skref í átt að þessu mikilvæga markmiði.“

Strætó býður öllum þeim sem eru á aldrinum 18 -25 ára og eru ekki virkir notendur Strætó að skrá sig til leiks og fá að kynnast þjónustunni á höfuðborgarsvæðinu. Nýir notendur prófa tvær Strætóferðir með Klapp korti og segja okkur svo hvað þeim finnst. Takmarkaður fjöldi getur tekið þátt og einn heppinn þátttakandi vinnur Iphone 15. Eitt Klapp og af stað! Þú segir okkur svo hvað þér finnst.

Nýjar biðstöðvar í Fossvogi verða teknar í notkun fimmtudaginn 15. ágúst en þær eru staðsettar sitt hvorum megin við göngubrúna frá Fossvogi yfir Kringlumýrarbraut. Leiðir 1, 2 og 4 munu stoppa á þeim báðum.

Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 10. ágúst milli kl. 07:00-18:00. Allar hjáleiðir munu birtast í Klappinu og á straeto.is Gleðigangan Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn. Strætó tekur þátt í Gleðigöngunni í ár eins og fyrri ár.

Akstur og opnunartími Strætó á frídegi verslunarmanna 5. ágúst. Höfuðborgin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Landsbyggðin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Leið 62 ekur skv. mánudagsáætlun Enginn akstur verður á leiðum 61 og 94 Móttaka Strætó verður lokuð en þjónustuverið verður opið þennan dag frá kl. 10:00 – 14:00.

Leið 52, sem gengur milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar mun aka 21 aukaferðir vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum dagana 1. ágúst – 5. ágúst 2024. Allar aukaferðir eru skipulagðar með áætlun Herjólfs að leiðarljósi en þær munu einungis stoppa í Mjódd, Hveragerði, N1 Selfossi, Hellu, Hvolsvelli og Landeyjahöfn. Fastar ferðir skv. tímatöflu stoppa á hefðbundum stoppum á leið 52, einnig þeim ferðum sem er flýtt og eru þær stjörnumerktar (*) í töflunum. Hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða reiðufé. Mjódd → Landeyjahöfn Fimmtudagur 1. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:15 07:10* 09:13 10:45 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:30 17:35 18:15 17:45* 20:03 20:45 - - 23:15 * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Föstudagur 2. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:00 07:10* 09:13 10:00 09:30 11:35 13:00 12:00 14:05 15:00 14:15 16:20 17:00 16:15 18:20 19:00 17:45* 20:03 21:00 - - 23:00 * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Laugardagur 3. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:15 07:25 (07:10 frá BSÍ)* 09:28 10:45 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:15 (Brottför flýtt úr Mjódd)* 17:38 18:15 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega skv. tímatöflu kl. 16:05) * Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Sunnudagur 4. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 09:00 08:10 (7:55 frá BSÍ)* (Brottför seinkað) 10:28 11:00 10:15 12:20 13:00 12:15 14:20 15:00 14:15 (Brottför flýtt úr Mjódd)* 16:18 17:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega samkvæmt tímatöflu kl. 16:05) * Samkvæmt tímatöflu Landeyjahöfn → Mjódd Mánudagur 5. ágúst Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum Brottför Strætó úr Landeyjahöfn Koma Strætó í Mjódd 02:00 03:10 05:10 04:00 05:10 07:10 06:00 07:10 09:10 08:00 09:10 11:10 09:55* 12:13 10:00 11:20 13:20 13:00 14:20 16:20 15:00 16:20 18:20 17:00 18:55* 21:13 19:00 20:20 22:20 21:00 22:20 00:20 23:00 24:20 02:20 * Samkvæmt tímatöflu

Vegna framkvæmda á Laugavegi verða hjáleiðir á leiðum 2, 5, 14, 15, 17 og næturleið 104. Mun þetta gilda frá og með 15. júlí til og með 29. júlí. Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172 vegna endurnýjunar lagna. Leiðir 2, 5, 15, 17 og 104 Þessar leiðir munu aka Borgartún og Kringlumýrarbraut í báðar áttir. Óvirkar biðstöðvar: Þjóðskjalasafnið og Hátún. Leið 14 Leið 14 mun aka Borgartún í báðar áttir. Óvirkar biðstöðvar: Þjóðskjalasafnið, Hátún, Teigar og Tún.

Vegna breytinga á siglingaáætlun Herjólfs á tímabilinu 1. júlí – 11. ágúst, munu eftirfarandi breytingar verða á leiðum 51 og 52. Virkir dagar: Breyting á ferðum frá Mjódd: Ferð sem í dag fer kl. 7:10 á leið 51 mun fara með leið 52 kl. 7:10 og endar í Landeyjahöfn kl. 9:13. Ferð sem í dag fer kl. 8:00 á leið 52 mun fara með leið 51 kl. 8:10 og endar á Selfossi kl. 9:04. Ferð sem í dag fer kl. 12:00 á leið 51 mun fara kl. 12:20. Breyting á ferðum frá Selfossi – N1 : Ferð sem í dag fer kl. 10:50 á leið 51 mun fara með leið 52 kl. 11:09. Ferð sem í dag fer kl. 11:49 á leið 52 mun fara með leið 51 kl. 11:50. Ferð sem í dag fer kl. 21:54 á leið 52 mun fara kl. 22:04. Breyting á ferðum frá Landeyjahöfn : Ferð sem í dag fer kl. 10:35 á leið 52 mun fara kl. 9:55. Ferð sem í dag fer kl. 20:40 á leið 52 mun fara kl. 20:50 Helgar: Breyting á ferðum frá Reykjavík: Ferð sem í dag fer kl. 7:55 frá BSÍ á leið 52 fer kl. 7:10 og endar í Landeyjahöfn kl. 9:28. Ferð sem í dag fer kl. 15:15 frá Mjódd á leið 52 fer kl. 16:05 og endar í Landeyjahöfn kl. 18:28. Breyting á ferðum frá Selfossi – N1: Ferð sem í dag fer kl. 11:50 frá Selfossi á leið 52 fer kl. 11:20. Ferð sem í dag fer kl. 19:25 frá Selfossi á leið 52 fer kl. 20:20. Breyting á ferðum frá Landeyjahöfn: Ferð sem í dag fer kl. 10:25 frá Landeyjahöfn á leið 52 mun fara kl. 9:55. Ferð sem í dag fer kl. 18:00 frá Landeyjahöfn mun fara kl. 18:55. Frá og með 12. ágúst munu áætlanir á leiðum 51 og 52 sem í gildi voru fyrir 1. júlí taka aftur í gildi.

Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 1. júlí næstkomandi. Nemur hækkunin 3,2% á stökum fargjöldum og 3,85% á tímabilskortum. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr. Ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó er tekin af stjórn félagsins. Ástæðan fyrir hækkun á gjaldskrá er meðal annars til að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði en einnig til að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Gjaldskrárbreyting hjá Vegagerðinni á landsbyggðinni Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð fyrir stök fargjöld í Strætó á landsbyggðinni. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 5,3% og fer stakt fargjald úr 570 kr. í 600 kr. Verð á tímabilskortum mun haldast óbreytt. Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 12.540 kr. í 13.200 kr. og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 2.280 kr. í 2.400 kr. Hér má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar: Fargjald í landsbyggðarstrætó hækkar 1. júlí – Vegagerðin (vegagerdin.is)

Hringvegi 1 verður lokað á milli Hvalfjarðarvegar og Grundartanga afleggjara á morgun 26. júní frá kl. 21:00 til kl. 06:30 á fimmtudagsmorgun vegna malbikunar. Leið 57 sem átti að leggja af stað frá Akureyri kl. 16:20 á morgun verður felld niður. Leið 57 sem átti að leggja af stað frá Mjódd kl. 23:00 í Borgarnes verður felld niður.

Frá og með 25. júní 2024 munu leiðir 2, 12 og 14 hætta að aka hjáleið um Sæbraut og aka nú Hverfisgötu í átt að miðbænum. Eins er framkvæmdum við biðstöðina Laugaveg, vestan megin við Snorrabraut lokið og mun því biðstöðin færast frá bráðabirgðastaðsetningu við gatnamót Grettisgötu að framtíðarstaðsetningu við gatnamót Laugavegar.

Eftirfarandi breytingar verða gerðar á leiðum á Suðurnesjum. Leið 55: Tímatafla leiðarinn mun taka talsverðum breytingum til að standast betur tímaáætlun. Morgunferðir sem í dag leggja af stað kl. 6:35 frá Keflavíkurflugvelli og 6:34 frá Hringbraut/Melteig verða sameinaðar í eina ferð sem leggur af stað frá flugvellinum kl. 6:20 og stoppar við Hringbraut/Melteig kl. 6:28. Ferðir sem leggja í dag af stað kl. 7:57 og 8:25 frá BSÍ verða einnig sameinaðar í eina ferð sem fer frá BSÍ kl. 8:15, næsta stopp er Klambratún. Leið 55 hættir að aka hring um miðborg Reykjavíkur frá BSÍ – Ráðhús – BSÍ og ekur ekki lengra en að BSÍ nema í fyrstu ferð dagsins á virkum dögum. Þannig er það einungis fyrsta ferðin frá Keflavíkurflugvelli kl. 6:20 sem ekur hringinn um miðborgina (með viðkomu við HÍ kl. 7:46). Leið 87: Leið 87 mun aka 8 ferðir á dag á virkum dögum frá Vogum að Miðstöð í Reykjanesbæ með viðkomu á Vogaafleggjara. Leiðin mun einnig aka 8 ferðir á dag á virkum dögum frá Miðstöð að Vogum með viðkomu á Vogaafleggjara. Á laugardögum og sunnudögum verða 2 ferðir í hvora átt. Leið 89: Hliðrun verður á einstaka ferðum á leið 89 til að passa við ferðir sem breytast á leið 55 frá/til Miðstöð.

Höfuðborgin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Landsbyggðin Ekið verður skv. laugardagsáætlun Leiðir 62 og 94 aka skv. mánudagsáætlun Enginn akstur er á leiðum 91 og 93 Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð en þjónustuverið verður opið þennan dag frá kl. 10:00 – 14:00. Götulokanir munu hafa áhrif á akstur Strætó í miðborg Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum. Mest mun röskun verða á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 10:15 og 15:00. Í Reykjavík verður ekki hægt að aka um Lækjargötu frá Hverfisgötu, Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu, Bjarkargötu, Skothúsavegi, og Vonarstræti frá Tjarnargötu milli klukkan 07:00 og 19:00. Í Hafnarfirði munu leiðir 1, 19 og 21 aka hjáleið vegna skrúðgöngu á Hringbraut og Lækjargötu frá klukkan 13:00 til 13:30. Í Mosfellsbæ munu leiðir 7 og 15 aka hjáleiðir vegna skrúðgöngu frá klukkan 13:00 – 14:00. Allar hjáleiðir verða settar undir stöðu ferða.

Kópavogsbær, Strætó og rafskútuleigurnar Hopp og Zolo hafa tekið höndum saman til að til að hvetja fólk til að nota umhverfisvæna ferðamáta og um leið bæta lagningu rafskúta í bænum. Frá og með deginum í dag, miðvikudeginum 12.júní, er veittur afsláttur af leigu rafskúta ef þeim er lagt á skilgreindum svæðum við biðstöðvar Strætó með það að leiðarljósi að hvetja notendur til að leggja rafskútunum þar sem þær eru ekki fyrir gangandi og akandi. Sleppisvæðin verða sýnileg inn í appi rafskútuleiganna. Kópavogsbær er fyrsta sveitarfélagið sem fer þessa leið og er markmiðið að fjölga slíkum stæðum í bænum þannig að þau verði einnig við sundlaugar, íþróttamannvirki og önnur vinsæl svæði sem hægt er að greina út frá upplýsingum frá rafskútuleigum. „Virkilega gaman að Kópavogsbær sé fyrst sveitarfélaga á Íslandi að stíga þessi skref. Með þessu hvetjum við fólk til að tengja saman tvo umhverfisvæna fararmáta, Strætó og rafskútur og stuðlum í leiðinni að því að rafskútur séu ekki á víð og dreif um bæinn,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri. Strætó og rafskútuleigurnar eru þegar í góðu samstarfi þar sem staðsetning rafskúta á rauntímakorti er sýnileg inn á vef Strætó og í Klappinu. Hægt er að smella á viðkomandi rafskútu á kortinu og þá sést hvaða fyrirtæki hjólið tilheyrir og hver hleðslan er. Sé smellt á hlekkinn er farið inn á rafskútuna í viðkomandi appi og þannig hægt að taka hana frá eða á leigu strax. Á myndinni eru frá vinstri: Adam Karl Helgason, rekstrarstjóri Zolo. Sigurjón Rúnar Vikarsson, rekstrarstjóri Hopp, Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, Leó Snær Pétursson, umhverfis- og samgöngunefnd og dóttir hans Hafdís Magnea, Guðjón Ingi Guðmundsson, umhverfis- og samgöngunefnd, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, Bergur Þorri Benjamínsson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar og Jóhannes Svavar Rúnarsson, Strætó bs.

Leiðakerfi Strætó mun taka miklum breytingum sunnudaginn 2. júní vegna framkvæmda Reykjavíkurborgar við Hlemm. Allur akstur Strætó um svæðið mun víkja tímabundið og nýjar endastöðvar verða teknar í notkun. Strætó hvetur farþega til að skoða upplýsingasíðu Strætó þar sem leiðir geta tekið breytingum á framkvæmdatíma en síðan er uppfærð jafnóðum. Þar er hægt að kynna sér breytingarnar og sjá kort af öllum leiðum.

Höfuðborgarsvæðið Hvítasunnudagur, 19. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í hvítasunnu, 20. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Hvítasunnudagur, 19. maí : Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í hvítasunnu, 20. maí : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Athugið að leið 94 ekur eins og venjulega þessa daga Athugið að leiðir 91 og 93 aka ekki þessa daga Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð yfir helgina og annan í hvítasunnu, mánudaginn 20. maí en þjónustuverið verður opið þessa daga frá kl. 10:00 – 14:00.

Vegna vegaframkvæmda í Hafnarfirði verða götulokanir í Fjarðargötu og Lækjargötu þriðjudaginn 14. maí og miðvikudaginn 15. maí. Mun þetta hafa áhrif á leiðir 1, 19, 21 og 55. Þriðjudaginn 14. maí kl. 9:00-12:00 og miðvikudaginn 15. maí kl. 9:00-16:00 verður Fjarðargata lokuð sem hefur áhrif á þessar leiðir: Leið 21 – frá Mjódd Hjáleið um Lækjargötu og Strandgötu Óvirkar biðstöðvar: Fjörður Leið 21 – til Mjóddar Hjáleið um Reykjavíkurveg og Flatahraun Óvirkar biðstöðvar: Lækjargata, Lækjarskóli, Sólvangur og Álfaskeið Leið 1 – til Skarðshlíðar Hjáleið um Flatahraun, Reykjanesbraut, Lækjargötu og Hringbraut Óvirkar biðstöðvar: Hraunbrún, Hellisgerði, Fjörður og Lækjargata Leið 55 – til Keflavíkur Hjáleið um Reykjavíkurveg, Flatahraun, Reykjanesbraut og Lækjargötu Óvirkar biðstöðvar: Fjörður Leið 19 – til Ásvallalaugar Hjáleið um Reykjavíkurveg, Flatahraun, Reykjanesbraut og Hlíðarberg Óvirkar biðstöðvar: Fjörður, Lækjargata og Lækjarskóli Þriðjudaginn 14. maí kl. 13:00-14:00 og miðvikudaginn 15. maí kl. 14:00-17:00 verður Lækjargata lokuð sem hefur áhrif á þessar leiðir: Leið 21 – frá Mjódd Hjáleið um Lækjargötu, Hringbraut, Strandgötu og Strandveg Óvirkar biðstöðvar: Lækjargata Leið 21 – til Mjóddar Hjáleið um Fjarðargötu, Reykjavíkurveg og Flatahraun Óvirkar biðstöðvar: Lækjargata, Lækjarskóli, Sólvangur og Álfaskeið Leið 1 – til Hlemms Hjáleið um Strandgötu og Fjarðargötu Óvirkar biðstöðvar: Suðurbæjarlaug, St. Jósefsspítali, Flensborg, Grænakinn og Lækjargata Leið 19 – í báðar áttir Hjáleið um Hringbraut, Strandgötu og Fjarðargötu Óvirkar biðstöðvar: Lækjargata