
Breytt leiðakerfi á menningarnótt
Almennt fargjald gildir yfir daginn – aukin tíðni verður hjá Strætó yfir daginn
Lokanir og fyrirkomulag
Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturgjald í næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
Leið 1:
- mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
- mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leið 6
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15:
- munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
- munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Hægt er að sjá biðstöðvar sem stoppað verður á í tímatöflu allra leiða undir 24. ágúst.
Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Búið er að uppfæra leiðavísinn eftir bestu getu og hægt er að skoða tímatöflur allra leiða fyrir daginn en þar sem lokanir eru víðsvegar um borgina getur verið að vagninn þurfi að aka óhefðbundna leið – Vinsamlegast fylgist því með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.
Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:
- Klappinu appi í síma
- Áfyllanlegu Klapp korti
- Klapp tíu
- Reiðufé – vagnstjórar á höfuðborgarsvæðinu gefa ekki til baka
Nánari upplýsingar á Klappid.is
Sæktu Klappið
Keyptu fargjöld, skipulegðu ferðir eða fylgstu með Strætó í rauntíma. Sæktu Klappið á App Store eða Google Play.
Leiðakerfi rofið kl. 22:30
Kl. 22:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.
Það kostar ekkert í þessar ferðir.
Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:
Brottfaratímar á síðustu ferð frá
Kl. 22:23 frá Skúlagötu | Kl. 22:19 frá Skarðshlíð. | |
Kl. 21:51 frá Skúlagötu | Kl. 22:22 frá Mjódd | |
Kl. 21:55 frá Granda | Kl. 22:21 frá Mjódd | |
Kl. 22:15 frá Skúlagötu | Kl. 22:21 frá Mjódd | |
Kl. 22:05 frá HR | Kl. 22:18 frá Norðlingaholti | |
Kl. 22:17 frá HÍ | Kl. 22:18 frá Egilshöll | |
Kl. 22:22 frá Mjódd | Kl. 22:27 frá Eiðistorgi | |
Kl. 22:20 frá Skerjafirði | Kl. 22:07 frá Ártúni | |
Kl. 22:10 frá Sléttuvegi |
Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum sem eru í pöntunarþjónustu. Þetta eru leiðir 22, 23, 25, 26 og 27.
Skutluþjónusta
„Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 00:30.
Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll.
Það kostar ekkert í skutluþjónustuna.
Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvarnar sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum.

Miðborgin tæmd
Um 23:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni.
Það kostar ekkert í tæminguna.
Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 23:00 – 00:30. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir og verða eins og „gömlu“ næturleiðirnar:
Leiðir
101 - Hafnarfjörður
Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð
102 - Kópavogur
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf
103 - Breiðholt
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar
104 - Úlfarsárdalur
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur
105 - Norðlingaholt
Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt
106 - Mosfellsbær
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt.
* Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30.
107 - Seltjarnarnes
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi
Leiðarkort

Næturstrætó
Eftir kl. 00:30 á aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó.
Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum.
Borga þarf næturgjald í næturstrætó.
- Stakt fargjald í næturstrætó er 1300 krónur en það jafngildir tvöföldu fargjaldi – Stök fargjöld gilda ekki þ.m.t. afsláttarfargjöld
- Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi
- Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
- Ekki er hægt að greiða með greiðslukorti um borð í næturstrætó
- Hægt er að borga með reiðufé – vagnstjórar geta ekki gefið tilbaka
Næturstrætó aðfaranótt laugardags
Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið
Brottfarir næturvagna á Menningarnótt



