
Höfuðborgin Ekið verður skv. sunnudagsáætlun Landsbyggðin Ekið verður skv. laugardagsáætlun Leiðir 91 og 93 aka skv. þriðjudagsáætlun Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð en þjónustuverið verður opið þennan dag frá kl. 10:00 – 14:00. Götulokanir munu hafa áhrif á akstur Strætó í miðborg Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum. Mest mun röskun verða á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá morgni til kvölds. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um daginn. Allar hjáleiðir verða settar undir stöðu ferða.

Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að Nýju leiðaneti , sem á að taka gildi árið 2031. Meiri þjónusta, betri tíðni, lengri þjónustutími – fleiri í Strætó Hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18% í rúmlega 50% . Þjónustan verður aukin, m.a. með tilliti til notkunar leiða, álags og áhrifa af framkvæmdum Borgarlínu. Helstu breytingar Aukin tíðni á annatíma: Leiðir 3, 5, 6 og 12: úr 15 mín. í 10 mín. Leiðir 19, 21 og 24: úr 30 mín. í 15 mín. Utan annatíma: Leiðir 3, 5, 12 og 15: úr 30 mín. í 15 mín. Lengri þjónustutími á kvöldin á þessum leiðum : 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 11, 12, 15, 18, 19 og 21 Tímatöflulagfæringar á nokkrum leiðum (m.a. 2 og 5) Vagnar munu ekki bíða eftir tengingum við aðra vagna í Ártúni á annatíma vegna aukinnar tíðni. Aðrar breytingar: Leið 4 breytir akstursleið – fer um Kringlumýrarbraut vegna nýrrar forgangsakreinar og ekur því ekki um Miklubraut og Háaleitisbraut. Athugið að nýja biðstöðin Álftamýri verður óvirk um sinn vegna þess að framkvæmdum er ekki enn lokið. Ný akstursleið: Græna línan sýnir akstursleiðina eins og hún er fyrir breytingar og biðstöðvar sem munu detta út eru merktar með x-i. Bláa línan sýnir nýju akstursleiðina og við bætist ný biðstöð: Álftamýri. Leiðir 22 og 23 verða ekki lengur í pöntunarþjónustu á kvöldin og um helgar heldur aka skv. tímatöflu. Báðar leiðir verða á 30 mín tíðni virka daga og um helgar. Síðasta ferð á leið 22 verður kl. 22:14 . Síðasta ferð á leið 23 verður kl. 22:17. Leið 24 – hjáleið um Dvergshöfða hættir þar sem framkvæmdum er lokið og leiðin ekur aftur um Stórhöfða. Leið 25 verður skipt í tvo leggi Spöngin – Gufunes Gufunes – Spöngin Þetta er gert til að tímasetja ferðir betur við aðrar ferðir til og frá Spönginni. Leið 29 – tíðni verður aukin og þjónustutími á kvöldin lengdur. Virka daga: ferðir á 30 mín fresti: Frá Hofgrund kl. 6:55 – 22:58. Frá Háholti frá kl. 7:14 – 22:48. Laugardaga 8 ferðir í hvora átt. Frá Hofgrund kl. 9:00 – 22:00. Frá Háholti frá kl. 8:21 – 21:49. Sunnudaga 6 ferðir í boði í hvora átt. Frá Hofgrund frá kl. 9:30 – 20:00. Frá Háholti frá kl. 10:21 – 19:49. Markmið Auka notkun almenningssamgangna Bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni Venja fólk við tíðni framtíðarinnar Draga úr umferð með auknum valkostum við einkabílinn Af hverju núna? Dregið til baka skerðingar vegna Covid Undirbúningur fyrir framkvæmdir við 1. áfanga Borgarlínu Til að venja fólk við aukna tíðni og hvetja til aukinnar notkunar Nánari upplýsingar og uppfærðar tímatöflur verða birtar þegar nær dregur.

Höfuðborgarsvæðið Hvítasunnudagur, 8. júní : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í hvítasunnu, 9. júní : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Hvítasunnudagur, 8. júní : Ekið samkvæmt laugardagsáætlun. Annar í hvítasunnu, 9. júní : Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Athugið að leið 94 ekur eins og venjulega þessa daga. Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum 91 , 92 , 93 , og 96. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð yfir helgina og annan í hvítasunnu, mánudaginn 9. júní en þjónustuverið verður opið þessa daga frá kl. 10:00 – 14:00.

Biðstöðin Akurholt hefur verið færð tímabundið vegna vinnu við endurnýjun hitaveitulagnar og háspennustrengja við Háholt í Hafnarfirði. Hér má sjá hvar nýja biðstöðin er:

Frá og með 1. júní næstkomandi verður ekki lengur hægt að staðgreiða fargjöld með reiðufé um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Þetta á ekki við um landsbyggðarvagna þar sem áfram verður hægt að borga með reiðufé eða greiðslukorti (posakerfi). Áfram verður hægt að kaupa fargjöld með reiðufé í móttöku Strætó, Hesthálsi 14. Margir greiðslumöguleikar Úrval greiðslumöguleika hefur aukist en nú er til dæmis hægt að greiða snertilaust með greiðslukorti um borð í öllum vögnum innan höfuðborgarsvæðisins en einungis 2,3% viðskiptavina greiða nú með reiðufé um borð í Strætó. Hægt er að kaupa Klapp tíur og Klapp kort með reiðufé á sölustöðum Strætó en samhliða þessari breytingu verður sölustöðum fjölgað. Greiðslumöguleikar í boði fyrir viðskiptavini: Snertilausar greiðslur Klapp kort Klappið app Klapp tíur Vanti viðskiptavinum aðstoð vegna þessara breytingar er hægt að hafa samband við þjónustuver Strætó í síma 540 2700. Spurt og svarað Er þetta löglegt? / Má Strætó neita að taka við reiðufé? Já. Samkvæmt áliti Seðlabanka Íslands er það heimilt að neita að taka við reiðufé, enda séu aðrir greiðslumátar í boði. Er þetta ekki brot á lögum um gjaldmiðil Íslands eða lögum um Seðlabanka Íslands? Nei. Þau lög kveða einungis á um að peningaseðlar og mynt frá Seðlabanka séu lögeyrir í allar greiðslur hér á landi, en banna ekki að seljandi ákveði að nota aðra greiðslumáta. Staða gjaldmiðils sem lögeyris þýðir einungis að hann skuli vera endanlegur mælikvarði á verð í viðskiptum aðila. Af hverju er þetta gert? Einungis um 2,3% viðskiptavina greiða nú með reiðufé og er kostnaðurinn við umsýslu reiðufjárins talsverður. Markmiðið er að einfalda greiðsluferla en núna eru einnig fleiri greiðsluleiðir í boði en áður. Hvað ef það verður rafmagnslaust eða netsambandslaust? Ef um yrði að ræða alvarlegt eða langvarandi rafmagns- eða netsambandsleysi þar sem ekki virkaði að greiða með korti eða öðrum greiðslumáta um borð í Strætó, gæti stjórn Strætó ákveðið tímabundið að heimila reiðufé vegna aðstæðna. Þetta er metið í hverju tilviki fyrir sig. Get ég verið nafnlaus? Ég vil ekki skilja eftir spor. Já. Ef viðskiptavinur notar Klapp tíur sem keyptar eru með reiðufé, er ekki hægt að rekja notkun til viðkomandi. Einnig er hægt að skrá sig inn nafnlaust í Klapp appinu. Annars fylgist Strætó ekki með ferðum fólks í gegnum snertilausar greiðslur eða notkun á tímabilskortum/stökum miðum og engin greiðslukortanúmer vistast í kerfum Strætó. Hvar er hægt að kaupa Klapp tíur með reiðufé? Í móttöku Strætó að Hesthálsi 14. Á sölustöðum Strætó, sjá hér. Í flestum sundlaugum í Reykjavík (frá og með 1. júní 2025).

Áætlun nokkurra landsbyggðarleiða mun breytast yfir sumartímann. Leiðir á höfuðborgarsvæðinu haldast óbreyttar. Suðurland Leiðir 51 og 52 Breytt áætlun frá og með 1.júlí til og með 10.ágúst vegna sumaráætlunar Herjólfs. Aukaferðir yfir Þjóðhátíð á leið 52 verða kynntar síðar. Norður- og norðausturland Leið 56 Ekur alla virka daga frá og með 2.júní til og með 29.ágúst. Vestur- og norðurland Leið 59 Ferð á miðvikudögum breytist og fer alla leiðina í Hólmavík (í stað þess að enda í Búðardal) frá og með 4.júní til og með 27.ágúst. Leiðir 63,64,65 og 81 Akstur er skv. skóladagatali og er því síðasti dagur í akstri 2.júní. Akstur hefst aftur 25.ágúst. Austfirðir Leið 93 Aukaferð vegna Norrænu færist frá miðvikudegi yfir á fimmtudaga frá og með 5.júní til og með 4.september. Leið 94 Leiðin hefur hafið akstur skv. sumaráætlun en ekið verður skv. henni til 31.ágúst. Vestfirðir Leiðir 61 og 62 Akstur hefst skv. sumaráætlun frá og með 1.júní til og með 31.ágúst. Leið 61 Leið 61 - Ísafjörður - Hólmavík Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Ísafjörður 15:35 15:35 12:00 Súðavík 15:55 15:55 12:20 Heydalur 17:10 17:10 13:35 Reykjanes 17:20 17:20 13:45 Hólmavík 18:25 18:25 14:45 Leið 61 - Hólmavík - Ísafjörður Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Hólmavík 19:12 19:12 15:30 Reykjanes 20:17 20:17 16:35 Heydalur 20:27 20:27 16:45 Súðavík 21:42 21:42 18:00 Ísafjörður 22:02 22:02 18:20 Leið 62 Leið 62 - Patreksfjörður - Ísafjörður Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Patreksfjörður 12:45 12:45 12:45 Brjánslækur - koma 13:30 13:30 13:30 Brjánslækur - brottför 13:45 13:45 13:45 Flókalundur 13:55 13:55 13:55 Dynjandi - koma 14:40 14:40 14:40 Dynjandi - brottför 15:10 15:10 15:10 Ísafjörður 16:05 16:05 16:05 Leið 62 - Ísafjörður - Patreksfjörður Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Ísafjörður 16:50 16:50 16:50 Þingeyri 17:40 17:40 17:40 Dynjandi - koma 18:10 18:10 18:10 Dynjandi - brottför 18:40 18:40 18:40 Flókalundur 19:30 19:30 19:30 Patreksfjörður 20:15 20:15 20:15

Ársfundur Strætó verður haldinn miðvikudaginn 4.júní. Fundurinn hefst kl. 14:00 og verður í Tjarnarsal, Ráðhúsi Reykjavíkur. Farið verður yfir það helsta í starfi Strætó frá árinu 2024 ásamt ársreikningi auk erinda sem snúa að almenningssamgöngum. Áætluð dagskrá fundarins er: Farþegar í fókus – ár þjónustuúrbóta – Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður stjórnar Strætó Ársreikningur 2024 – Elísa Kristmannsdóttir, deildarstjóri fjármála hjá Strætó Saga Strætó – Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó fer yfir sögu/þróun Strætó Hverjir taka Strætó – og hvað einkennir þann hóp? – Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents Fundarstjóri er Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó. Allir eru velkomnir á fundinn og hvetjum við sérstaklega Strætónotendur sem hafa tök á til að koma og kynna sér málin. Léttar veitingar verða í boði.

VÆB vagninn er kominn á fulla ferð en hann er skemmtilega skreyttur í silfurstíl með myndum af þeim VÆB bræðrum. Vagninn flutti þá einmitt ásamt öðrum Júróvisjón förum út á Keflavíkurflugvöll þegar haldið var til Sviss í síðustu viku. Nú keyrir vagninn almennar strætóleiðir en hægt er að sjá hvar hann er staðsettur og hvaða leið hann keyrir þar sem hann er sérmerktur á rauntímakorti Strætó. Við óskum VÆB bræðrum góðs gengis á stóra sviðinu á þriðjudaginn. Áfram Ísland! Fylgstu með VÆB vagninum

Fimmtudaginn 1. maí hefst sumaráætlun á leið 94, sem mun þá aka á milli Breiðdalsvíkur og Hornafjarðar með viðkomu á Djúpavogi. Ferð vagnsins hefst á Höfn, stoppar á Djúpavogi og endar á Breiðdalsvík áður en keyrt er til baka sömu leið. Vagninn ekur á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og svo sunnudögum. Hér má sjá nýja tíma: Höfn - Breiðdalsvík Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Höfn í Hornafirði - Sundlaug 09:30 10:15 11:50 09:30 09:50 Djúpivogur - Koma 11:00 11:45 13:20 11:00 11:20 Djúpivogur - Brottför 11:15 12:00 13:35 11:15 11:35 Breiðdalsvík - Koma 12:10 12:55 14:30 12:10 12:30 Breiðdalsvík - Höfn Biðstöð Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Breiðdalsvík - Brottför 12:20 13:05 14:40 12:20 12:40 Djúpivogur - Koma 13:15 14:00 15:35 13:15 13:35 Djúpivogur - Brottför 13:45 14:30 16:05 13:45 14:05 Höfn í Hornafirði - Sundlaug 15:15 16:00 17:35 15:15 15:35 Flugvöllur - Koma 15:25 16:10 17:45 15:25 15:45 Flugvöllur - Brottför 15:40 16:25 18:00 15:40 16:00 Höfn í Hornafirði - Sundlaug 15:50 16:35 18:10 15:50 16:10

Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Enginn akstur verður á leiðum 91 – 96 á Austfjörðum Ferð gæti verið bætt við leið 94 ef flogið verður til Hafnar þann daginn en flugáætlun liggur ekki fyrir. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.

Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó ásamt hjáleiðum vegna gatnalokana á sumardaginn fyrsta 2025. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Leið 94 mun aka skv. fimmtudagsáætlun. Aðrar leiðir á Austfjörðum munu ekki aka þennan dag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00. Miðbær Reykjavíkur Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30 Leið 1 – Í stað þess að aka Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Sæbraut, Snorrabraut og Hringbraut til og frá HÍ og Skúlagötu. Leið 3 – Í stað þess að aka Geirsgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun hún aka Ánanaust og Hringbraut. Leið 6 – Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Lækjargötu og Suðurgötu mun leiðin aka Hringbraut til og frá HÍ. Leið 5 – Í stað þess að aka um Egilsgötu, Barónsstíg, Gömlu Hringbraut og Vatnsmýrarveg mun leiðin fara hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut. Leið 5 í Árbæ (frá kl. 12:00-13:00) – Í stað þess að aka um Hraunbæ og Rofabæ mun leiðin fara hjáleið um Bæjarháls og Bæjarbraut. Lokaðar biðstöðvar eru: Hraunbær, Fagribær og Hábær. Leið 11 – Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu og Suðurgötu mun leiðin aka um Hringbraut. Leið 12 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu, Lækjargötu og Skothúsveg mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut. Leið 13 – Í stað þess að aka um Snorrabraut, Hverfisgötu, Vonarstræti og Túngötu mun leiðin aka Snorrabraut og Hringbraut. Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu og Geirsgötu mun leiðin aka Snorrabraut, Hringbraut og Ánanaust í átt að Verzló. Í áttina að Granda mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut í stað þess að aka Hverfisgötu. Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu mun leiðin aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut. Lokaðar biðstöðvar verða: Mýrargata (opin í átt að Granda fyrir leið 14) Snorrabraut Skeggjagata Laugavegur Barónsstígur Bíó Paradís Þjóðleikhúsið Harpa Lækjartorg A Lækjartorg B Lækjartorg C MR Hallargarðurinn Ráðhúsið Háskóli Íslands B Heilsuverndarstöðin Sjúkrahótel Gamla Hringbraut Landakot Ásvallagata Hafnarfjörður Hafnarfjörður milli kl. 13:15 – 13:45 Leið 19 – í stað þess að aka Vesturgötu og Hjallabraut mun leiðin aka Reykjavíkurveg. Lokaðar biðstöðvar verða: Norðurbakki Sundhöll Hafnarfjarðar Skjólvangur Víðivangur Miðvangur Hjallabraut Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30 Leið 15 – leiðin mun snúa við á hringtorginu við Skólabraut og aka Skólabraut, Háholt, Bjarkarholt og Langatanga. Lokaðar biðstöðvar verða: Skeiðholt Álfatangi

Ný tímatafla fyrir leið 94 tekur gildi fimmtudaginn 3. apríl. Er það vegna nýrrar flugáætlunar til Hafnar þar sem nýr rekstraraðili hefur tekið við fluginu. Gildir tímataflan út apríl en ekki er komin flugáætlun vegna maí en tímataflan verður uppfærð um leið og hún liggur fyrir. Djúpivogur - Höfn Mán Mið Fim Fös Sun Djúpivogur, hótel Framtíð 15:00 15:00 12:20 15:00 13:20 Höfn, flugvöllur 16:30 16:30 13:50 16:30 14:50 Höfn - Djúpivogur Mán Mið Fim Fös Sun Höfn, flugvöllur 16:40 16:40 14:05 16:40 15:05 Höfn, sundlaug 16:50 16:50 14:15 16:50 15:15 Djúpivogur, hótel Framtíð 18:20 18:20 15:45 18:20 16:45

Búið er að færa biðstöðina á Skógum til. Á myndinni má sjá hvar eldri biðstöðin var og hvar sú nýja er.

Leið 93 mun aka aukaferð á miðvikudögum í takt við siglingar Norrænu. Miðvikudagsferðirnar verða frá 19. mars til og með 28. maí. Milli 10-10:35 frá Seyðisfirði til Egilsstaða Milli 11-11:35 frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó yfir páska 2025. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2025 Ekið er skv. sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana Skírdagur, 17. apríl Föstudagurinn langi, 18. apríl Páskadagur, 20. apríl Annar í páskum, 21. apríl Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Landsbyggðin Páskar 2025 Skírdagur, 17. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 18. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 20. apríl Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 21. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Leiðir 63 , 64 , 65 og 81 miða akstur við skóladagatal og verða því ekki í akstri frá 14. – 21. apríl. Austfirðir: Athugið að enginn akstur er þessa rauðu daga á leiðum á Austfjörðum: 91 , 92 , 93 og 96 . (Athugið að leiðir 91 og 93 aka eins og venjulega á laugardeginum 19. apríl). Leið 94 mun aka skv. fimmtudagsáætlun skírdag og mánudagsáætlun annan í páskum en enginn akstur er föstudaginn langa og á páskadag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Reykjanesbær – innanbæjarvagnar: Skírdagur, 17. apríl Enginn akstur Föstudagurinn langi, 18. apríl Enginn akstur Páskadagur, 20. apríl Enginn akstur Annar í páskum, 21. apríl Enginn akstur Akureyri – innanbæjarvagnar: Skírdagur, 17. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 18. apríl Enginn akstur Páskadagur, 20. apríl Enginn akstur Annar í páskum, 21. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími Skírdagur, 17. apríl 10:00 - 14:00 Föstudagurinn langi, 18. apríl 10:00 - 14:00 Páskadagur, 20. apríl 10:00 - 14:00 Annar í páskur, 21. apríl 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími Skírdagur, 17. apríl Lokað Föstudagurinn langi, 18. apríl Lokað Páskadagur, 20. apríl Lokað Annar í páskur, 21. apríl Lokað

Biðstöðin „Háteigsskóli“ á leið 11 í átt að Eiðistorgi hefur verið færð um nokkra metra. Er þetta vegna vegavinnu á Háteigsvegi sem mun standa yfir í nokkra daga.

Á tímabilinu 19. – 28. febrúar var bilun í greiðsluhirðingu Strætó sem gerði það að verkum að snertilausar greiðslur fóru ekki allar í gegn. Viðskiptavinir voru þannig ekki rukkaðir fyrir allar strætóferðir á þessu tímabili þegar þeir greiddu snertilaust. Um helgina voru því allar færslur á þessu tímabili rukkaðar saman í einni greiðslu. Til dæmis ef viðskiptavinur fór fjórar ferðir á þessu tímabili getur verið að hann hafi verið rukkaður um 4 x stakt fargjald í einni færslu. Venjan er að snertilausar greiðslur rukkist allar saman eftir miðnætti svo hægt sé að telja strætóferðir yfir daginn og virkja þannig Kapp greiðsluþak ef við á. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Móttaka Strætó verður lokuð fimmtudaginn 6. febrúar frá kl. 9:00 -12:00, á meðan rauð veðurviðvörun er í gildi. Þjónustuver Strætó verður opið frá kl. 7:00 -16:30 eins og vanalega og geta viðskiptavinir hringt í síma 540 2700. Viðbúið er að raskanir verði áfram á ferðum á landsbyggðinni en veðrið getur einnig haft áhrif á leiðir innan höfuðborgarsvæðisins. Við biðjum fólk að fylgjast með röskunum undir „Staða á ferðum“.

Undirbúningur er hafinn á uppbyggingu forgangsreinar fyrir Strætó á Kringlumýrarbraut sem verður um 500m löng. Þar verður einnig gert ráð fyrir nýjum biðstöðvum nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut. Strætó, Vegagerðin, Betri samgöngur og Reykjavíkurborg vinna saman að þessu verkefni. Þessi forgangsrein mun stytta ferðatíma um allt að 4-5 mínútur fyrir strætófarþega sem eru t.d á leið í Borgartún eða á Hlemm. Strætó ekur ekki þarna núna því umferðin er of hæg á annatíma og engar biðstöðvar eru á þessari leið í dag. Núna ekur Strætó upp Miklubraut, framhjá Kringlu og svo vestur eftir Háaleitisbraut og beygir síðan norður Kringlumýrarbraut. Verið er að vinna að verkhönnun og útboðsgögnum og verður vonandi hægt að bjóða út fyrsta hluta framkvæmda fyrir vorið. Þegar framkvæmdir hefjast mun þetta hafa áhrif á leið 4 sem mun þá ekki aka lengur um Miklubraut og Háaleitisbraut heldur aka beina leið eftir Kringlumýrarbraut og á þeirri leið munu koma nýjar stoppistöðvar fyrir leið 4 nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut.

Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3,1% á stökum fargjöldum og 3,7% á tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 650 kr. í 670 kr. og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5.400 kr. í 5.600 kr. Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1.000 kr. Strætó mun hætta sölu dagpassa á komandi vikum: 24 klst. og 72 klst. en Kapp greiðsluþak hefur komið í staðinn fyrir þær vörur. Ónotaðir 24 klst. og 72 klst. passar ógildast ekki. Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 13. desember sl. og er í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu þessa árs. Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi miðvikudaginn 8. janúar 2025. Gjaldskrá Strætó frá 8. janúar 2025 Stök fargjld Fullorðnir 670 kr. Ungmenni 335 kr. Aldraðir 335 kr. Öryrkjar* 200 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Næturstrætó - eitt fargjald 670 kr. *Þetta verð er eingöngu í boði í Klapp greiðslukerfinu. Ekki er hægt að greiða öryrkjafargjald með reiðufé. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 11.200 kr. 112.000 kr. Ungmenni 5.600 kr. 56.000 kr. Aldraðir 5.600 kr. 56.000 kr. Nemar, 18 ára og eldri 5.600 kr. 56.000 kr. Öryrkjar 3.360 kr. 33.600 kr. Klapp tíur Klapp tía Fullorðnir 6.700 kr. Klapp tía Aldraðir 3.350 kr. Klapp tía Ungmenni 3.350 kr. Plast kort Klapp kort 1.000 kr.

Frá og með 1. janúar nk. mun brottför á leið 94 í báðar áttir vera flýtt um eina klukkustund á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum til þess að samræmast breyttri flugáætlun Mýflugs. Fyrsti dagurinn sem ný áætlun tekur gildi er því föstudagurinn 3. janúar þar sem ekki er flogið á nýársdag.

Í byrjun árs 2025 stefnir Strætó að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit. Er þetta byggt á lögum nr. 28/2017 og reglum nr. 1021/2023. Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag. Eftirlitsmenn hafa verið um borð í vögnum í mörg ár og verður þetta nú eitt af þeirra verkefnum. Ávallt hefur verið heimilt að vísa fólki úr vögnum hafi það ekki greitt rétt fargjald en nú bætist við að það sé hægt að innheimta fargjaldaálag af þeim sem geta ekki sýnt rétt fargjald við eftirlit. Álagið er innheimt í heimabanka eða greitt á staðnum eftir því sem við á Álaginu er m.a. ætlað að minnka svindl um borð í vögnum og að fólk ferðist um miðalaust eða á röngu fargjaldi og greiði þ.a.l. ekki til almenningssamgangna. Fargjaldaálaginu er þannig ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í almenningssamgöngum. Með því að tryggja að allir farþegar greiði rétt fargjald er hægt að viðhalda góðri þjónustu og koma í veg fyrir að aukakostnaður vegna svindls bitni á öðrum farþegum. Hvað er fargjaldaálagið hátt? Almennt: 15.000 kr. Ungmenni: 7.500 kr. Aldraðir: 7.500 kr. Öryrkjar: 4.500 kr. Frekari upplýsingar um fargjaldaálag má sjá hér.

Eftir áramót mun leið 95 hætta akstri alfarið en vagninn á leiðinni hefur farið á milli Borgarfjarðar og Egilsstaðar. Síðasti dagur í akstri er því 30. desember 2024.

Nú er hægt að borga snertilaust um borð í öllum vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu en snertilausar greiðslur hafa verið í prófunum undanfarið hjá Strætó. Þessi nýja greiðslulausn sem er hluti af Klapp greiðslukerfinu er því komin í fulla virkni fyrir viðskiptavini. Hægt er að greiða eitt almennt fargjald (fullorðins) snertilaust með debit- og kreditkortum. Snertilausar greiðslur eru einstaklega hentugar þegar viðskiptavinir vilja nýta sér Kapp greiðsluþak en þá er aldrei greitt meira en fyrir 3 ferðir á dag eða 9 ferðir á viku með fullorðins gjaldi. Einfalt og þægilegt, einungis þarf að muna að nota alltaf sama greiðslumáta, sama greiðslukortið, sama Klapp kort eða sama Klappið (appið). Snertilausar greiðslur: 1 kort – 1 miði (650kr.) Eitt almennt stakt fargjald (fullorðins) Gildir fyrir Visa, Mastercard og Europay Miðinn gildir í 75 mín – ef þú skannar sama kortið innan þess tíma í næsta vagni þá er ekki rukkað fyrir nýjan miða Snertilausar greiðslur gilda í Klapp greiðslukerfinu hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu Hægt er að sjá allt um snertilausar greiðslur hér.

Ákveðið hefur verið að breyta fyrirkomulagi á öllum leiðum pöntunarþjónustu þannig að viðskiptavinir hringja nú í Hreyfil í síma 588 55 22 til þess að panta ferð. Á þetta við um leiðir 22 , 23 , 25 , 26 , 27 og 29 . Pöntunarþjónusta þýðir að viðskiptavinir panta ferðina sem þeir ætla að nýta í gegnum síma 588 55 22 minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu. Það er aðeins hægt að greiða fyrir ferðina í leigubílnum með því að sýna Klapp kort, virkjaðan miða í Klapp appi, Klapp tíu eða gildan farmiða.

Hér má nálgast upplýsingar um akstur hjá Strætó á landsbyggðinni yfir hátíðarnar. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Suðurland Leið 51 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 10:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:20 frá Selfoss – N1 í Mjódd 10:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 52 Aðfangadagur, 24.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:35 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:35 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur * Ef Landeyjahöfn er lokuð, ekur vagninn aðeins til og frá Hvolsvelli. Leiðir 71, 72 og 73 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. ( Leiðir 71 og 72 aka ekki á sunnudögum ) Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Suðurnes Leið 55 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 06:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 08:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 07:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 09:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 87 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:00 frá sveitarfélaginu Vogar til Miðstöðvar kl. 10:23 frá Miðstöð til sveitarfélagsins Vogar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:00 frá sveitarfélaginu Vogar til Miðstöðvar kl. 10:23 frá Miðstöð til sveitarfélagsins Vogar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 89 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Vestur- og Norðurland Leið 57 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið er samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:25 frá Akranes-Akratorg í Mjódd 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Borgarness 12:30 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 58, 59, 82 og 84 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 63, 64 og 81 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Norður- og Norðausturland Leiðir 56, 78 og 79 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Austurland Leiðir 91, 92, 93, 94 og 95 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ Leiðir R1, R3 og R4 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar á Akureyri Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 Aðfangadagur, 24.desember Akstri hætt kl. 12:00 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Akstri hætt kl. 12:00 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2024 10:00 - 14:00 25. desember 2024 10:00 - 14:00 26. desember 2024 10:00 - 14:00 31. desember 2024 10:00 - 14:00 1. janúar 2025 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2024 Lokað 25. desember 2024 Lokað 26. desember 2024 Lokað 31. desember 2024 Lokað 1. janúar 2025 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun að viðbættum aukaferðum um morguninn. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Athugið að pöntunarleiðir 25, 26, 27 og 29 aka skv. áætlun á virkum degi. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun að viðbættum aukaferðum um morguninn. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Athugið að pöntunarleiðir 25, 26, 27 og 29 aka skv. áætlun á virkum degi. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Aðfangadagur og gamlársdagur Síðustu ferðir dagsins: Síðasta ferð Leið 1 Frá Skúlagötu 15:14 Leið 1 Frá Skarðshlíð 15:00 Leið 2 frá Háskóla Íslands 14:51 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Granda 15:20 Leið 3 frá Mjódd 15:21 Leið 4 frá Skúlagötu 15:15 Leið 4 frá Mjódd 14:51 Leið 5 frá Selvaði 14:48 Leið 5 frá HR 14:35 Leið 6 frá Háskóla Íslands 15:08 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Egilshöll A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Enginn akstur Leið 11 frá Eiðistorgi 14:59 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:43 Leið 14 frá Granda 14:35 Leið 15 frá Reykjavegi 14:43 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 frá Skúlagötu 14:43 Leið 17 frá Mjódd 14:51 Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Skúlagötu 15:14 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Álfholti 14:41 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 15:01 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 25 frá Spöngin B Pöntunarþjónusta 15:15 Leið 26 frá Ásvallalaug Pöntunarþjónusta 15:07 Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:16 Leið 28 frá Hamraborg 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 frá Háholti Pöntunarþjónusta 14:50 Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg 15:07 Leið 36 frá Hamraborg 15:07

Fargjaldið í næturstrætó hefur verið lækkað tímabundið niður í eitt stakt fargjald eða 650 kr. Einnig er hægt að greiða snertilaust með debit- og kreditkortum um borð í öllum næturvögnum. Það hefur því aldrei verið jafn auðvelt að taka næturstrætó eins og núna. Kynntu þér leiðir næturstrætó hér.

Snertilausar greiðslur eru um þessar mundir í lokaprófunum. Greiðslulausnin sem er hluti af Klapp greiðslukerfinu er komin um borð í alla vagna Strætó en enn er verið að fínpússa nokkra hluti. Hægt er að greiða eitt almennt fargjald (fullorðins) snertilaust með debit- og kreditkortum. Við minnum á að þeir viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort eða staka miða í appinu þurfa að vera með QR kóðann tilbúinn á skjánum áður en gengið er um borð í vagninn, annars er möguleiki á því að snertilausu greiðslurnar virkjist og skuldfæri almennan miða af kortinu. Þegar síminn er svo lagður upp að skannanum þá á QR kóðinn að taka yfir veskið. Við hvetjum fólk til að hafa samband við straeto@straeto.is hafi það einhverjar ábendingar sem það vill koma á framfæri eða nýta sér ábendingakerfi Strætó.

Smávægileg breyting verður gerð á tímatöflu leiðar 52 en seinkun verður á brottför um tíu mínútur frá Landeyjarhöfn um helgar og er því vagninn að leggja af stað kl. 10:35. Er það sami tími og vagninn leggur af stað á virkum dögum og er því fyrri ferðin á þessari leið ávallt á sama tíma frá Landeyjahöfn, kl. 10:35.