
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 1. júlí næstkomandi. Nemur hækkunin 3,2% á stökum fargjöldum og 3,85% á tímabilskortum. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1000 krónur
Ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó er tekin af stjórn félagsins. Ástæðan fyrir hækkun á gjaldskrá er meðal annars til að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði en einnig til að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Gjaldskrárbreyting hjá Vegagerðinni á landsbyggðinni
Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð fyrir stök fargjöld í Strætó á landsbyggðinni. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 5,3% og fer stakt fargjald úr 570 krónur í 600 krónur Verð á tímabilskortum mun haldast óbreytt. Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 12540 krónur í 13200 krónur og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 2280 krónur í 2400 krónur
Hér má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar:
Fargjald í landsbyggðarstrætó hækkar 1. júlí – Vegagerðin (vegagerdin.is)


