
Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Athugið að leið 94 ekur skv. fimmtudagsáætlun. Leiðir 91 og 93 munu ekki aka þennan dag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð á uppstigningardag en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Leið 94 ekur skv. miðvikudagsáætlun. Leiðir 91 og 93 munu ekki aka þennan dag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokað 1. maí en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Í tilefni af alþjóðlegum degi jarðar, sem haldinn er 22. apríl ár hvert, býður Krónan viðskiptavinum sínum að taka strætisvagn í matvörubúðina til að draga úr umferð einkabílsins á alþjóðadeginum og leggja þannig sitt af mörkum til umhverfisvænni ferðamáta. Framtak Krónunnar til dags jarðar í ár verður unnið í samstarfi við Strætó bs., og fá allir sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðinu frítt far með vagninum þann 22. apríl næstkomandi. Tilvalin leið í Krónuna „Dagur jarðar hefur verið haldinn árlega í fjöldamörg ár og er ætlað að minna okkur á að fara vel með jörðina okkar og umhverfið og umfram allt hvetja fólk til að leggja sitt af mörkum. Það eru margvíslegar leiðir til að fara betur með umhverfið okkar og þar má meðal annars nefna samgöngumáta okkar. Á höfuðborgarsvæðinu er fjöldi Krónuverslana og eru þær allar nálægt stoppistöð Strætó. Okkur fannst því upplagt að fara í samstarf með Strætó og í sameiningu lyfta þessu málefni upp, þá bæði með því að hvetja fólk til að nýta sér umhverfisvænni fararmáta og í leiðinni minna það á að grípa fjölnota innkaupapokann með sér,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Vinnum ötullega að orkuskiptum „Við fögnum þessu framtaki Krónunnar og hvetjum auðvitað sem flesta til að taka fram fjölnota pokann sinn og þiggja frítt far í búðina með Strætó. Við hjá Strætó leggjum ríka áherslu á orkusparnað og stefnum á að skipta út dísilknúnum strætisvögnum fyrir umhverfisvænni orkugjafa eins og rafmagns-, vetnis- og metanknúna vagna. Markmið okkar er að vera komin með kolefnislausan vagnaflota árið 2030,“ segir Markús Vilhjálmsson, sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs Strætó.

Ársfundur Strætó verður haldinn fimmtudaginn 2. maí. Fundurinn hefst kl. 15:00 og verður í safnaðarheimilinu Borgum, Kópavogi. Fundarstjóri er Jakob Birgisson, betur þekktur sem grínistinn Meistari Jakob. Farið verður yfir það helsta í starfi Strætó frá árinu 2023 ásamt ársreikningi og auk þess verða erindi sem snúa að almenningssamgöngum. Nánari dagskrá verður kynnt síðar. Allir eru velkomnir á fundinn og hvetjum við sérstaklega Strætónotendur sem hafa tök á til að koma og kynna sér málin. Léttar veitingar verða í boði.

Hér fyrir má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó á sumardaginn fyrsta 2024. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Leið 94 ekur skv. mánudagsáætlun. Leiðir 91 og 93 munu ekki aka þennan dag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00. Miðbær Reykjavíkur Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30 Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Snorrabraut og Hringbraut til og frá Hlemmi. Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu til og frá Hlemmi mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut til og frá Hlemmi. Lokaðar biðstöðvar verða: Barónsstígur Bíó Paradís Þjóðleikhúsið Lækjartorg A Lækjartorg B Lækjartorg C MR Hallargarðurinn Ráðhúsið Heilsuverndarstöðin Sjúkrahótel Gamla Hringbraut Landakot Ásvallagata Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:45 og 13:30 Leið 15 – leiðin mun snúa við á hringtorginu við Skólabraut og aka Skólabraut, Háholt, Bjarkarholt og Langatanga. Lokaðar biðstöðvar verða: Skeiðholt Álfatangi

Strætó hefur gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2023. Skýrslan hefur að geyma margar áhugaverðar staðreyndir um Strætó eins og farþegatölur, orkunotkun, fjárhagslegar upplýsingar auk upplýsinga um mannauð, markaðsmál og samfélagsmál svo fátt eitt sé nefnt. Alþjóðastaðallinn GRI, Global Reporting Initiative var hafður til hliðsjónar við gerð skýrslunnar.

Ekki þarf lengur að panta fyrstu þrjár ferðir leiðar 25 á virkum dögum en leiðin fer á milli Spangarinnar og Gufuness í Grafarvogi. Hingað til hafa allar ferðir á þessari leið verið í pöntunarþjónustu en nú verða fyrstu þrjár ferðirnar á morgnana það ekki, það eru ferðir frá Spönginni B kl. 6:52, 7:22 og 7:52. Ferðir kl. 8:22 og síðar þarf enn að panta og er það gert með 30 mínútna fyrirvara í síma 540 2740. Einnig eru allar helgarferðir í pöntunarþjónustu áfram.

Leið 93 mun aka aukaferð á þriðjudögum í takt við siglingar Norrænu. Aukaferðin mun vera til þriðjudagsins 28. maí en þann 6. júní færist aukaferðin yfir á fimmtudaga í samræmi við breytta siglingaáætlun Norrænu.

Nýju rafvagnar Strætó eru komnir í akstur en þeir byrjuðu að keyra í morgun. Þetta eru níu vagnar af tegundinni Yes-EU (CRRC 8m) og koma þeir frá Kína eins og eldri rafvagnar Strætó sem hafa reynst vel. Það er engin olíumiðstöð í vögnunum og verða þeir kyntir með rafmagni. Þeir eru því mjög umhverfisvænir og eru góð viðbót við flota Strætó og í samræmi við stefnu Strætó um kolefnislausan flota árið 2030. „Vagnarnir eru frábær viðbót við flota Strætó og ánægjulegt að sjá þá fara af stað,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. „Með þessum nýju rafvögnum eru nú rúmlega 30% af flota Strætó kolefnislaus sem er gott fyrir umhverfið og stefnir Strætó á að auka enn frekar við umhverfisvæna kosti á næstu árum.“ Vagnarnir munu aka leiðir 8, 22, 23 og 31og fyrir leið 22 í Garðabæ þýðir þetta betra aðgengi þar sem rafvagnarnir eru stærri og notendavænni en þeir sem óku leiðina áður. Settar hafa verið upp hleðslustöðvar bæði upp á Hesthálsi 14 og í Ásgarði í Garðabæ og eru vagnarnir hlaðnir í lok eða á milli aksturs. Hrannar Bragi Eyjólfsson, stjórnarmaður Strætó frá Garðabæ, segir þetta vera afskaplega ánægjulegan áfanga. „Með nýjum rafvögnum fáum við bætt og aukið aðgengi meðal annars fyrir fólk sem þarf að nota hjólastól en einnig barnavagna og hjól svo dæmi séu tekin. Við erum mjög ánægð að geta boðið upp á umhverfisvænan valkost í umhverfisvænu samfélagi.“ Nýju rafvagnarnir eru byrjaðir að keyra Í tilefni dagsins heimsóttu Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Hrannar Bragi Eyjólfsson, stjórnarmaður Strætó frá Garðabæ og Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó nýju hleðslustöðina í Garðabæ fyrir nýju vagnana

Árið fer svo sannarlega vel af stað fyrir Strætó og æ fleiri ferðir eru farnar með vögnum Strætó enda almenningssamgöngur vistvænn og hagkvæmur kostur. Janúar og febrúar voru metmánuðir en aldrei hafa fleiri innstig mælst í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu í þessum mánuðum, síðan reglulegar mælingar hófust. Í janúar voru rúmlega 1.121.000 innstig en flest innstig voru áður mæld í fyrra en þá voru þau 1.119.000. Í febrúar mældust tæplega 1.179.000 innstig en flest innstig voru áður mæld í febrúar í fyrra eða 1.069.000. Þess má að geta að árið í fyrra var sannkallað metár þar sem aldrei fleiri innstig hafa mælst yfir árið á höfuðborgarsvæðinu en þá eða 12,64 milljón innstiga. Við erum þakklát fyrir þessar góðu móttökur og vonumst til að sjá sem flesta í strætó á árinu. 2019 2020 2021 2022 2023 2024 Janúar 1049000 1077000 731000 755000 1119000 1121000 Febrúar 958000 1087000 777000 793000 1069000 1179000 Mars 1102000 799000 846000 985000 1242000 Apríl 889000 383000 679000 808000 944000 Maí 1004000 708000 724000 918000 990000 Júní 881000 774000 719000 863000 983000 Júlí 872000 721000 637000 784000 848000 Ágúst 1038000 725000 771000 954000 1021000 September 1125000 829000 921000 1092000 1109000 Október 1204000 610000 945000 1080000 1143000 Nóvember 1156000 566000 950000 1135000 1180000 Desember 905000 572000 792000 979000 991000

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó yfir páska 2024. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2024 Ekið er skv. sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana Skírdagur, 28. mars Föstudagurinn langi, 29. mars Páskadagur, 31. mars Annar í páskum, 1. apríl Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Landsbyggðin Páskar 2024 Skírdagur, 28. mars Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 29. mars Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 31. mars Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 1. apríl Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum á Austfjörðum: 91 , 92 , 93 , 95 og 96 . Leið 94 mun aka skv. hefðbundinni áætlun skírdag og annan í páskum en enginn akstur er föstudaginn langa og á páskadag. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími Skírdagur, 28. mars 10:00 - 14:00 Föstudagurinn langi, 29. mars 10:00 - 14:00 Páskadagur, 31. mars 10:00 - 14:00 Annar í páskur, 1. apríl 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími Skírdagur, 28. mars Lokað Föstudagurinn langi, 29. mars Lokað Páskadagur, 31. mars Lokað Annar í páskur, 1. apríl Lokað

Biðstöðin í Þorlákshöfn verður færð til og frá og með miðvikudeginum 21. febrúar mun leið 71 stoppa við ráðhúsið í stað verslunarkjarnans eins og áður var. Nýja biðstöðin verður hér hjá ráðhúsinu

Reykjavíkurborg er með miklar breytingar í farvatninu við Hlemm og mun svæðið taka stakkaskiptum á næstu árum í samræmi við nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Breytingarnar munu hafa áhrif á akstur Strætó og mun allur akstur Strætó um svæðið víkja tímabundið og nýjar endastöðvar verða teknar í notkun. Framkvæmdir við torgið sjálft eiga að hefjast vorið 2024 og mun þá Strætó þurfa að hætta alfarið akstri um svæðið. Í framtíðinni verður engin leið með endastöð um Hlemm en Borgarlínuleiðir munu aka í gegnum Hlemmtorg. Fyrst um sinn munu almennar strætóleiðir nýta Borgarlínuinnviðina í gegnum torgið. Einnig munu strætóleiðir aka norður/suður um Snorrabraut. Hægt er að kynna sér breytingarnar hér en þær verða kynntar betur þegar nær dregur.

Vegagerðin hefur ákveðið að styðja við Grindvíkinga á þessum fordæmalausu tímum, og bjóða 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir í landsbyggðarvagna. Kortin eru hugsuð fyrir ungmenni sem þurfa að sækja þjónustu eða afþreyingu á höfuðborgarsvæðið eða á Suðurnes og munu gilda fyrir Suðurnes, Suðurland eða Vesturland. Hægt er að sækja um strætókortið á straeto.is undir verslun á landsbyggðinni Landsbyggðarkortin eru ekki hluti af Klappinu og ekki rafræn. Nauðsynlegt er því að láta ljósmynd af viðkomandi fylgja með þegar sótt er um kort. Kortin er hægt að fá send í bréfpósti eða sækja þau á skrifstofu Strætó bs. á Hesthálsi 14 eða í þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu.

Vegna framkvæmda á Grensásvegi verða hjáleiðir á leiðum 2 , 14 , 15 og 17 frá Hlemmi. Engar hjáleiðir eru á leiðunum í átt að Hlemmi. Áætlað er að framkvæmdir munu standa frá og með .29 janúar til og með 31. maí. Tilkynning mun koma undir Staða á ferðum og í Klappið þegar hjáleiðir byrja. Frá Hlemmi munu leiðir 2 og 17 aka Vegmúla og Ármúla í stað Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Óvirkar biðstöðvar: Laugardalshöll og Laugardalur. Biðstöð við Ármúla hefur verið bætt við leiðirnar. Frá Hlemmi mun leið 14 mun aka Suðurlandsbraut, Vegmúla og Ármúla í stað Gnoðarvogs, Álfheima, Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Biðstöð við Ármúla hefur verið bætt við leiðina. Frá Hlemmi mun leið 15 aka Suðurlandsbraut og Skeiðarvog í stað Grensásvegar og Miklubrautar. Biðstöðvarnar Heimar og Mörkin eru á þeirri hjáleið. Óvirkar biðstöðvar: Ármúli, Grensás og Skeifan.

Strætó býður 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu. Það er gott að geta stutt við Grindvíkinga á þessum fordæmalausu tímum, segir Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó en stjórn Strætó tók ákvörðun um þetta í morgun og verður útfærslan á þessu í samráði við Grindavíkurbæ. Hægt er að sækja um strætókortið inn á straeto.is frá og með mánudeginum 22. janúar og verða kortin sett inn á Klapp kort eða Klapp app viðkomandi. Því er nauðsynlegt að þeir sem sækja um kort séu með símanúmer tengt Klapp appinu eða með Klapp kort tengt aðgangi sínum á „Mínum síðum“. Fyrir þá sem vilja nota Klapp kort þá verður hægt að fá þau í þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Tollhúsinu við Tryggvagötu.

Ekið um Dvergshöfða í stað Stórhöfða Frá og með föstudeginum 19. janúar mun leið 24 aka um Dvergshöfða í stað Stórhöfða vegna framkvæmda. Biðstöðvarnar á Stórhöfða: Stórhöfði, Svarthöfði og Breiðhöfði munu því verða óvirkar og tvær nýjar biðstöðvar: Funahöfði og Smiðshöfði, verða í staðinn á Dvergshöfða. Mynd af nýju leiðinni: Nýjar biðstöðvarnar við Dvergshöfða:

Aldrei hafa fleiri innstig mælst yfir árið í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu en árið 2023 síðan reglulegar mælingar hófust og er um sannkallað metár að ræða. Yfir allt árið voru u.þ.b. 12,64 milljónir innstiga en áður var metið árið 2019 sem var með 12,18 milljón innstiga. Nokkrir metmánuðir voru einnig á árinu en alls voru sex mánuðir á árinu þar sem aldrei hafa mælst fleiri innstig í þeim mánuði áður, þetta voru janúar, mars, apríl, júní, nóvember og desember. Þar að auki var mars 2023 metmánuður allra mánaða þar sem aldrei áður hafa mælst jafn mörg innstig í neinum mánuði áður. Við viljum þakka viðskiptavinum okkar góðar móttökur á síðastliðnu ári og hlökkum til komandi samfylgdar á nýju ári. 2019 2020 2021 2022 2023 Janúar 1049000 1077000 731000 755000 1119000 Febrúar 958000 1087000 777000 793000 1069000 Mars 1102000 799000 846000 985000 1242000 Apríl 889000 383000 679000 808000 944000 Maí 1004000 708000 724000 918000 990000 Júní 881000 774000 719000 863000 983000 Júlí 872000 721000 637000 784000 848000 Ágúst 1038000 725000 771000 954000 1021000 September 1125000 829000 921000 1092000 1109000 Október 1204000 610000 945000 1080000 1143000 Nóvember 1156000 566000 950000 1135000 1180000 Desember 905000 572000 792000 979000 991000

Ný leið nr. 65 mun byrja að keyra föstudaginn 2. febrúar á milli Búðardals og Borgarness. Leiðin er hugsuð til að koma framhaldskólanemum í Dalabyggð úr Búðardal í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi en leiðin er opin öllum sem geta nýtt sér ferðirnar. Leiðin mun aka á mánudögum og föstudögum og miðast við skóladagatal, s.s. hún er ekki ekin í skólafríum og á rauðum dögum. Mánudagar Búðardalur - Borgarnes Búðardalur - Auðarskóli Búðardalur Bifröst Baula Borgarnes 8:30 8:30 9:11 9:21 9:37 15:10 15:10 15:51 16:01 16:17 Borgarnes - Búðardalur Borgarnes Baula Bifröst Búðardalur 9:45 10:01 10:11 10:54 16:25 16:41 16:51 17:34 Föstudagar Búðardalur - Borgarnes Búðardalur - Auðarskóli Búðardalur Bifröst Baula Borgarnes 8:30 8:30 9:11 9:21 9:37 Borgarnes - Búðardalur Borgarnes Baula Bifröst Búðardalur 9:45 10:01 10:11 10:54 Hægt er að taka leið 59 kl.16:58 frá Borgarnesi í Búðardal á föstudögum

Leið 87 mun ekki aka milli jóla og nýárs. Akstur hefst 2. janúar 2024 skv. tímatöflu.

Strætó óskar viðskiptavinum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr. Ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó er tekin af stjórn félagsins og var samþykkt á eigendafundi Strætó sem haldinn var 16. október sl. Litið var til rekstrarstöðu Strætó við ákvörðunina en uppsöfnuð áhrif vegna heimsfaraldurs Covids gætir enn í rekstrinum. Verðhækkunum er einnig ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði og draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi mánudaginn 8. janúar 2024. Gjaldskrá Strætó 8. janúar 2024 Stök fargjöld Fullorðnir 630 kr. Ungmenni 315 kr. Aldraðir 315 kr. Öryrkjar* 189 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Næturstrætó - eitt fargjald 1.260 kr. *Þetta verð er eingöngu í boði í Klapp greiðslukerfinu. Ekki er hægt að greiða öryrkjafargjald með reiðufé. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 10.400 kr. 104.000 kr. Ungmenni 5.200 kr. 52.000 kr. Aldraðir 5.200 kr. 52.000 kr. Nemar, 18 ára og eldri 5.200 kr. 52.000 kr. Öryrkjar 3.120 kr. 31.200 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. 0 kr. Klapp tíur Klapp tía Fullorðnir 6.300 kr. Klapp tía Aldraðir 3.150 kr. Klapp tía Ungmenni 3.150 kr. Plast kort Klapp kort 1.000 kr. Dagpassar 24 klst. 2.500 kr. 72 klst. 5.600 kr.

Vegna lítillar aðsóknar í aukaferð á leið 55 á morgnana hefur verið ákveðið að fella hana niður. Aukaferðin var kl. 7:05 frá BSÍ að FS og kl. 8:20 frá Miðstöð að BSÍ. Síðasta aukaferðin verður því föstudaginn 1. desember og hefðbundin tímatafla tekur gildi mánudaginn 4. desember.

Strætó verður í samstarfi með SÁÁ í ár til að vekja athygli á sölu jólaálfsins en álfasala SÁÁ er ein mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna. Strætó er stoltur af því að vekja athygli á þessum mikilvæga málstað. Í tilefni af þessu er jólaálfurinn búinn að koma sér fyrir á einum strætisvagni og yfirtaka strætóskýlið á Lækjartorgi. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tók á móti fyrsta jólaálfinum í dag í strætóskýlinu við Lækjartorg. Jólaálfurinn nýtti sér að sjálfsögðu almenningssamgöngur og fylgdu Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ og Ásgerður Erla Haraldsdóttir, starfsmaður SÁÁ þeim stutta síðasta spölinn að Lækjartorgi ásamt Jóhannesi S Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Strætó. Álfasalan stendur yfir frá 29. nóvember til 3. desember og verður sölufólk á fjölförnum stöðum um allt land og á völdum dögum í Strætó.

Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma og akstur hjá Strætó yfir hátíðarnar. Þjónustuver Strætó Sími 540 2700 Dagur Opnunartími 24. desember 2023 10:00 - 14:00 25. desember 2023 10:00 - 14:00 26. desember 2023 10:00 - 14:00 31. desember 2023 10:00 - 14:00 1. janúar 2024 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Hestháls 14 Dagur Opnunartími 24. desember 2023 Lokað 25. desember 2023 Lokað 26. desember 2023 Lokað 31. desember 2023 Lokað 1. janúar 2024 Lokað Höfuðborgarsvæðið Aðfangadagur, 24.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Jóladagur, 25.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Annar í jólum, 26.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Seinustu ferðir leggja af stað í kringum 15:00. Nýársdagur, 1.janúar : Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Aðfangadagur og gamlársdagur Síðustu ferðir dagsins: Leið 1 Frá Hlemmi 15:13 Leið 1 Frá Skarðshlíð 15:04 Leið 2 frá Hlemmi 15:03 Leið 2 frá Mjódd 14:52 Leið 3 frá Hlemmi 14:54 Leið 3 frá Mjódd 15:21 Leið 4 frá Hlemmi 14:48 Leið 4 frá Mjódd 15:21 Leið 5 frá Selvaði 14:48 Leið 5 frá HR 14:36 Leið 6 frá Hlemmi 14:37 Leið 6 frá Egilshöll B 14:48 Leið 7 frá Egilshöll A 14:35 Leið 7 frá Tungubökkum 14:34 Leið 8 Enginn akstur Leið 11 frá Eiðistorgi 14:53 Leið 11 frá Mjódd 14:52 Leið 12 frá Skerjafirði 14:50 Leið 12 frá Ártúni C 14:37 Leið 13 frá Sléttuvegi 14:40 Leið 13 frá Öldugranda 14:38 Leið 14 frá Verzló 14:39 Leið 14 frá Granda 14:34 Leið 15 frá Reykjavegi 14:45 Leið 15 frá Flyðrugranda 14:31 Leið 16 Enginn akstur Leið 17 Enginn akstur Leið 18 frá Spönginni A 14:36 Leið 18 frá Hlemmi 14:46 Leið 19 frá Ásvallalaug 14:29 Leið 19 frá Kaplakrika 14:55 Leið 21 frá Álfholti 14:41 Leið 21 frá Mjódd 14:52 Leið 22 frá Ásgarði A 14:31 Leið 23 frá Ásgarði A 14:47 Leið 24 frá Ásgarði A 15:03 Leið 24 frá Spönginni A 14:49 Leið 25 frá Spöngin B Pöntunarþjónusta 15:15 Leið 26 frá Ásvallalaug Pöntunarþjónusta Enginn akstur Leið 27 frá Háholti Pöntunarþjónusta 12:45 Leið 28 frá Hamraborg 15:05 Leið 28 frá Dalaþingi 15:02 Leið 29 Enginn akstur Leið 31 Enginn akstur Leið 35 frá Hamraborg 15:07 Leið 36 frá Hamraborg 15:07

Hér má nálgast upplýsingar um akstur hjá Strætó á landsbyggðinni yfir hátíðarnar. Suðurland Leið 51 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 07:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 8:50 frá Selfoss – N1 í Mjódd 09:00 frá Mjódd til Selfoss – N1 13:15 frá Mjódd til Selfoss – N1 Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 52 Aðfangadagur, 24.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Einu ferðir dagsins verða: kl. 07:55 frá Umferðarmiðstöðinni til Landeyjahafnar* kl. 10:25 frá Landeyjahöfn* í Mjódd. Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur * Ef Landeyjahöfn er lokuð, ekur vagninn aðeins til og frá Hvolsvelli. Leiðir 71, 72 og 73 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. ( Leiðir 71 og 72 aka ekki á sunnudögum ) Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Suðurnes Leið 55 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 12:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 13:53 frá Firði til KEF-Airport Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: kl. 10:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 12:55 frá KEF-Airport til Fjarðar kl. 11:53 frá Firði til KEF-Airport kl. 13:53 frá Firði til KEF-Airport Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 87 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur. Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur 27. – 30. desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 88 Athugið að leiðin er ekki ekin þessa stundina vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 11:08 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjari 12:01 frá Grindavík – Aðalbraut til Grindavíkurafleggjara 11:23 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar 12:16 frá Grindavíkurafleggjara til Grindavíkur – Aðalbrautar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leið 89 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 10:20 frá Miðstöð til Íþróttamiðstöðvarinnar Sandgerði 10:43 frá Íþróttamiðstöðinni Sandgerði til Miðstöðvar Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Vestur- og Norðurland Leið 57 Aðfangadagur, 24.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 12:20 frá Borgarnesi í Mjódd 10:30 frá Mjódd til Borgarness 12:00 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið er samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun hluta dags. Einu ferðir dagsins verða: 09:50 frá Borgarnesi í Mjódd 12:20 frá Borgarnesi í Mjódd 10:30 frá Mjódd til Borgarness 12:00 frá Mjódd til Akranes-Akratorg Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 58, 59, 82 og 84 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Leiðir 63, 64, 81 og 96 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Norður- og Norðausturland Leiðir 56, 78 og 79 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Austurland Leiðir 91, 92, 93, 94 og 95 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar í Reykjanesbæ Leiðir R1, R3 og R4 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Enginn akstur Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur Innanbæjarvagnar á Akureyri Leiðir A1, A2, A3, A4, A5 og A6 Aðfangadagur, 24.desember Enginn akstur Jóladagur, 25.desember Enginn akstur Annar í jólum, 26.desember Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Gamlársdagur, 31.desember Enginn akstur Nýársdagur, 1.janúar Enginn akstur

Vegna framkvæmda á Hverfisgötu frá 20. nóvember Vegna framkvæmda við Hverfisgötu 100 munu leiðir 1, 6, 11, 12, 13 og 14 ekki aka um Hverfisgötu heldur fara hjáleið um Sæbraut. Gildir þetta frá mánudeginum 20. nóvember og fram til föstudagsins 24. nóvember en gæti þó verið lengur. Biðstöðvar sem verða óvirkar eru: Lækjartorg B Þjóðleikhúsið Bíó Paradís Barónsstígur Biðstöðvar á hjáleiðinni á Sæbraut eru: Harpa Sólfarið

Breytt tímatafla á leið 71 Ný tímatafla tekur gildi á leið 71 frá og með 6. nóvember nk. Fyrsta ferð frá Þorlákshöfn til Hveragerðis er flýtt og fer kl. 7:16 og er það til að ná tengingu við leið 51 sem er á leið til Reykjavíkur. Farþegar sem eru á leið til Selfoss þurfa því að bíða örlítið lengur til að ná tengingu við leið 51 en í staðinn næst betri tenging við ferðina til Reykjavíkur. Biðstöðin Hólsvegur dettur út á leið 14 Frá og með 6. nóvember mun leið 14 hætta að stoppa á biðstöðinni Hólsvegi til að standast betur tímaáætlun. Næsta stöð er Sunnutorg sem er um 150 m frá.

Götulokanir og skert þjónusta hjá móttöku og þjónustuveri Fjölmörg samtök kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls á morgun þriðjudaginn 24. október, þar sem konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf. Strætó styður jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks heilshugar og mun ekki draga af launum starfsfólks sem tekur þátt í deginum. Þar af leiðandi verður móttaka Strætó lokuð og skert þjónusta í þjónustuveri. Eins gæti orðið lengri afgreiðslutími hjá Pant akstursþjónustu. Götulokanir í miðbænum munu hafa áhrif á nokkrar leiðir Strætó og einnig má gera ráð fyrir röskunum á tímaáætlunum vegna þessa. Búið er að gera ráðstafanir svo allar leiðir verði eknar þrátt fyrir verkfall. Kalkofnsvegur milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður lokaður frá kl. 18:00 á mánudeginum til kl. 19:00 á þriðjudaginn. Leið 3 fer hjáleið um Hverfisgötu og leið 14 fer Sæbraut í báðar áttir. Þriðjudagur kl. 11:00–16:00. Miðbæjarlokun. Sæbraut/Geirsgata verður opin. Leiðir 3 og 14 fara Sæbraut/Geirsgötu og leiðir 1, 6, 11, 12 og 13 fara Snorrabraut út í Háskóla og inn á leið eftir það. Undir staða á ferðum er hægt að sjá á hvaða biðstöðvar hjáleiðir hafa áhrif á.

Strætó er á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2023. Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó tók á móti verðlaununum á viðurkenningarathöfn FKA og Jafnvægisvogarinnar þann 12. október. Sigurborg segir ánægjulegt fyrir Strætó að fá viðurkenninguna en Jafnvægisvoginni er ætlað að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. „Strætó hefur ávallt reynt að gæta þess að hlutfall milli kynja sé sem jafnast, enda er það ekki einungis hagur vinnustaðarins og viðskiptavina heldur samfélagsins alls. Það skiptir máli að fá alla að borðinu þegar kemur að ákvarðanatöku og erum við stolt af þessari viðurkenningu“, segir Sigurborg. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi við Creditinfo, Deloitte, forsætisráðuneytinu, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.