Stormurinn hefur áhrif á Strætó á landsbyggðinni – Strætó
Stormurinn hefur áhrif á Strætó á landsbyggðinni
Stormurinn hefur áhrif á Strætó á landsbyggðinni
Vonskuveðrið sem gengur yfir landið á morgun, 5. desember mun hafa mikil áhrif á strætóferðir á landsbyggðinni. Spáð er hviðum allt að 40 til 45 metrum á sekúndu frá um klukkan 9 til klukkan 5 síðdegis á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi.
Leið 57 (Reykjavík – Akureyri): Allar ferðir munu falla niður yfir daginn. Óvissa verður með ferðir eftir kl. 17:00 á morgun. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum.
Leið 58 (Stykkishólmur – Borgarnes): Morgunferðin verður felld niður en búist er við að seinni ferð dagsins verði ekin.
Leið 82 (Hellissandur – Stykkishólmur): Óvissa verður með morgunferðina en seinni ferð dagsins er líkleg. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum.
Leið 51 (Reykjavík – Höfn): Allar líkur eru á að ekið verði um morguninn en þegar líður á daginn má búast við að ferðir verði felldar niður. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum.
Leið 52 (Reykjavík – Landeyjahöfn): Allar líkur eru á að fyrri ferðin verði ekin um morguninn en óvissa er um seinni ferð dagsins. Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum.