Hvassviðri hefur áhrif á leiðir 57 og 55.
Leið 57: Reykjavík – Akureyri
Margar ferðir hafa fallið niður í dag á leið 57 vegna hvassviðris á Kjalarnesi og við Blikadalsá. Mjög tvísýnt er með ferðir á leiðinni það sem eftir lifir degi.
Leið 55: Fjörður – Keflavíkurflugvöllur
Einhverjar raskanir hafa orðið á leiðinni í dag vegna hvassviðris.
Bilun í tilkynningakerfi
Það er bilun í tilkynningakerfinu á heimasíðu Strætó og okkur hefur því ekki tekist að setja inn tilkynningar um frávik á heimasíðuna. Við erum hins vegar búin að tilkynna öll frávik dagsins í gegnum Twitter síðu Strætó https://twitter.com/straetobs
Við biðjumst velvirðingar á þessum tækniörðugleikum. Unnið er að lagfæringu eins fljótt og hægt er.


