
Leiðakerfi Strætó tekur breytingum í desember en dregið verður úr þjónustu á nokkrum leiðum, fyrst og fremst þegar notkun er sem minnst. Breytingarnar haldast í hendur við mikla þjónustuaukningu á síðustu tveimur árum og eru hluti af því að almenningssamgöngur nýtist almenningi á höfuðborgarsvæðinu sem best þar sem þeirra er mest þörf.
Breytingarnar taka gildi 1. desember næstkomandi og snúa að almennu leiðakerfi Strætó. Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar, þegar mun færri ferðast til vinnu og skóla. Þjónustuskerðingin byggir m.a. á mælingum á notkun Strætó þar sem notast var við handtalningar. Við útfærslu breytinganna var lögð áhersla á að þær hefðu sem minnst áhrif á ferðir farþega og reynt var að haga breytingum þannig að þar sem þjónusta er lögð niður sé hægt að komast leiðar sinnar með öðrum leiðum.
Breytingar sem taka gildi 1. desember
- Leiðir 3, 5 og 12 - Tímatafla á annatíma breytist þar sem tímabil með 10 mínútna tíðni verður stytt
- Leið 7 - Morgunferð kl. 6:33 frá Tungubökkum fellur niður
- Leið 15 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á milli annatíma
- Leið 17 - Akstur á laugardögum fellur niður
- Leið 19 - Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma
- Leið 36 - Akstur um helgar fellur niður
Kvöldferðir sem munu falla niður:
Virkir dagar
Leið | Ferðir sem falla niður | Síðustu ferðir eftir breytingu |
|---|---|---|
2 | 23:52 frá Mjódd; 23:56 frá HÍ; 23:26 frá HÍ | 23:22 frá Mjódd; 22:56 frá HÍ |
3 | 23:51 frá Mjódd; 23:54 frá Granda | 23:21 frá Mjódd; 23:24 frá Granda |
4 | 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu | 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu |
11 | 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi | 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi |
12 | 23:50 frá Skerjafirði; 23:37 frá Ártúni | 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni |
15 | 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda | 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda |
17 | 19:43 frá Skúlagötu | 19:13 frá Skúlagötu; 19:21 frá Mjódd |
18 | 23:39 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu | 23:09 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu |
24 | 23:19 frá Spönginni | 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði |
35 | 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg | 22:07 frá Hamraborg |
Laugardagar
Leið | Ferðir sem falla niður | Síðustu ferðir eftir breytingu |
|---|---|---|
2 | 23:52 frá Mjódd; 23:43 frá HÍ; 23:24 frá HÍ | 23:22 frá Mjódd; 22:54 frá HÍ |
3 | 23:51 frá Mjódd; 23:53 frá Granda | 23:21 frá Mjódd; 23:23 frá Granda |
4 | 23:51 frá Mjódd; 23:49 frá Skúlagötu | 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu |
11 | 23:52 frá Mjódd; 23:22 frá Mjódd; 23:54 frá Eiðistorgi; 23:24 frá Eiðistorgi | 22:52 frá Mjódd; 22:54 frá Eiðistorgi |
15 | 23:44 frá Reykjavegi; 23:31 frá Flyðrugranda | 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda |
18 | 23:36 frá Spönginni; 23:43 frá Skúlagötu | 23:06 frá Spönginni; 23:13 frá Skúlagötu |
24 | 23:19 frá Spönginni | 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði |
35 | 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg | 22:07 frá Hamraborg |
Sunnudagar
Leið | Ferðir sem falla niður | Síðustu ferðir eftir breytingu |
|---|---|---|
2 | 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd; 23:24 frá HÍ | 22:22 frá Mjódd; 22:24 frá HÍ |
3 | 23:23 frá Granda; 23:21 frá Mjódd | 22:53 frá Granda; 22:51 frá Mjódd |
4 | 23:21 frá Mjódd; 23:19 frá Skúlagötu | 22:51 frá Mjódd; 22:49 frá Skúlagötu |
5 | 23:38 frá HR | 23:08 frá HR; 23:18 frá Norðlingaholti |
11 | 23:24 frá Eiðistorgi; 22:54 frá Eiðistorgi; 23:22 frá Mjódd; 22:52 frá Mjódd | 22:24 frá Eiðistorgi; 22:22 frá Mjódd |
12 | 23:20 frá Skerjafirði; 23:07 frá Ártúni | 22:50 frá Skerjafirði; 22:37 frá Ártúni |
13 | 23:38 frá Öludgranda; 23:10 frá Sléttuvegi | 22:40 frá Sléttuvegi; 23:08 frá Öldugranda (stutt ferð) |
15 | 23:14 frá Reykjavegi; 23:01 frá Flyðrugranda | 22:44 frá Reykjavegi; 22:31 frá Flyðrugranda |
18 | 23:13 Frá Skúlagötu; 22:43 frá Skúlagötu; 23:06 frá Spönginni; 22:36 frá Spönginni | 22:13 frá Skúlagötu; 22:06 frá Spönginni |
24 | 23:19 frá Spönginni; 22:49 frá Spönginni; 23:03 frá Ásgarði; 22:33 frá Ásgarði | 22:19 frá Spönginni; 22:03 frá Ásgarði |
35 | 23:07 frá Hamraborg; 22:37 frá Hamraborg | 22:07 frá Hamraborg |
Hægt er að skoða breytingarnar undir hverri akstursleið með því að velja tímabil, einnig er hægt að sjá tímatöfluna fyrir nýtt tímabil.
Til að sjá tímabil:

Til að sjá tímatöflu:

Skoða tímatöflur leiða sem breytast 1. desember
Breytt þjónusta Strætó yfir jól og áramót
Breytingarnar munu gilda frá 21. desember til og með 5. janúar.
- Leiðir 3, 5 og 12 - Tíðni ferða breytist úr 10 í 15 mínútur á annatíma
- Leið 8 – Tíðni verður 30 mínútur yfir allan daginn
- Leiðir 21, 24 og 31 – Tíðni ferða breytist úr 15 í 30 mínútur á annatíma


