
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi.
Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 krónur í 630 krónur og 30 daga nemakort fer úr 4500 krónur í 5200 krónur Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1000 krónur
Ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó er tekin af stjórn félagsins og var samþykkt á eigendafundi Strætó sem haldinn var 16. október sl.
Litið var til rekstrarstöðu Strætó við ákvörðunina en uppsöfnuð áhrif vegna heimsfaraldurs Covids gætir enn í rekstrinum. Verðhækkunum er einnig ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði og draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi mánudaginn 8. janúar 2024.
Gjaldskrá Strætó 8. janúar 2024
Stök fargjöld
Fullorðnir | 630 krónur |
Ungmenni | 315 krónur |
Aldraðir | 315 krónur |
Öryrkjar* | 189 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Næturstrætó - eitt fargjald | 1260 krónur |
*Þetta verð er eingöngu í boði í Klapp greiðslukerfinu. Ekki er hægt að greiða öryrkjafargjald með reiðufé.
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 10400 krónur | 104000 krónur |
Ungmenni | 5200 krónur | 52000 krónur |
Aldraðir | 5200 krónur | 52000 krónur |
Nemar, 18 ára og eldri | 5200 krónur | 52000 krónur |
Öryrkjar | 3120 krónur | 31200 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Klapp tíur
Klapp tía Fullorðnir | 6300 krónur |
Klapp tía Aldraðir | 3150 krónur |
Klapp tía Ungmenni | 3150 krónur |
Plast kort
Klapp kort | 1000 krónur |
Dagpassar
24 klst. | 2500 krónur |
72 klst. | 5600 krónur |


