
Þann 1. júlí mun ný gjaldskrá Strætó taka gildi. Nemur hækkunin 3,6% af stökum fargjöldum og 3,3% af tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 550 krónur í 570 krónur og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 4500 krónur í 4650 krónur
Samkvæmt gjaldskrárstefnu Strætó er stefnt að endurskoðun gjaldskrár tvisvar á ári en gjaldskráin var síðast hækkuð 1. október 2022. Frá þeim tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og Strætóvísitala um 3,5%. Stjórn Strætó samþykkti því hækkun á gjaldskrá á fundi stjórnar félagsins 19. maí sl.
Markmiðið með gjaldskrárstefnunni var og er að tryggja að gjaldskrá haldist í hendur við rekstrarkostnað Strætó og tekur þannig gjaldskráin breytingum í takt við Strætóvísitölu hverju sinni. Undir Strætóvísitölunni eru laun, olía, nvt, viðhald og viðgerðir (undirvísitala nvt) og varahlutir (undirvísitala nvt).
Gjaldskrárbreyting hjá Vegagerðinni á landsbyggðinni
Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð hjá sér. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 16,3% og fer stakt fargjald úr 490 krónur í 570 krónur Tímabilskort og nemakort verða þó óbreytt og hækka ekki að sinni. Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 10780 krónur í 12540 krónur og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 1960 krónur í 2280 krónur Hér má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar.
Ný gjaldskrá bæði fyrir höfuðborgina og landsbyggðina tekur gildi 1. júlí næstkomandi.
Gjaldskrá Strætó 1. júlí 2023
Stök fargjöld
Fullorðnir | 570 krónur |
Ungmenni | 285 krónur |
Aldraðir | 285 krónur |
Öryrkjar | 171 króna |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 9300 krónur | 93000 krónur |
Ungmenni | 4650 krónur | 46500 krónur |
Aldraðir | 4650 krónur | 46500 krónur |
Nemar, 18 ára og eldri | 4650 krónur | 46500 krónur |
Öryrkjar | 2790 krónur | 27900 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Klapp tíur
Klapp 10 Fullorðnir | 5700 krónur |
Klapp 10 Aldraðir | 2850 krónur |
Klapp 10 Ungmenni | 2850 krónur |
Plast kort
Klapp kort | 1000 krónur |
Dagpassar
24 klst. | 2300 krónur |
72 klst. | 5200 krónur |


