
Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu.
Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær.
Lokanir og fyrirkomulag
Skrollaðu til hægri til að sjá fleiri flipa með upplýsingum.
Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00.
Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð.

Vegna götulokana munu vagnar þurfa að aka hjáleiðir og geta akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða.
Hægt er að sjá sjá tíðni ferða í leiðavísinum og í tímatöflum.
Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.
Aukin tíðni yfir daginn
Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
Leið 1
- mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
- mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leið 6
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15
- munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
- munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Hægt er að greiða í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:
- Snertilausri greiðslu
- Klappinu appi í síma
- Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu
- Klapp tíu
Nánari upplýsingar á Klappid.is
Leiðakerfi rofið kl. 21:30
Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.
Það kostar ekkert í þessar ferðir.
Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:
Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 23:20.
Brottfaratímar á síðustu ferð frá
Kl. 21:35 frá Skúlagötu | Kl. 21:34 frá Skarðshlíð. | |
Kl. 21:24 frá HÍ | Kl. 21:16 frá Mjódd | |
Kl. 21:25 frá Granda | Kl. 21:21 frá Mjódd | |
Kl. 21:19 frá Skúlagötu | Kl. 21:21 frá Mjódd | |
Kl. 21:23 frá HR | Kl. 21:33 frá Norðlingaholti | |
Kl. 21:33 frá HÍ | Kl. 21:33 frá Egilshöll | |
Kl. 21:34 frá Tungubökkum | Kl. 21:35 frá Egilshöll | |
Kl. 21:20 frá Mjódd | Kl. 21:22 frá Eiðistorgi | |
Kl. 21:20 frá Skerjafirði | Kl. 21:37 frá Ártúni | |
Kl. 21:10 frá Sléttuvegi | Kl. 21:38 frá Öldugranda | |
Kl. 21:29 frá Granda | Kl. 21:30 frá Verzló | |
Kl. 21:15 frá Reykjavegi | Kl. 21:30 frá Flyðrugranda | |
Kl. 21:36 frá Spöng | Kl. 21:43 frá Skúlagötu | |
Kl. 21:18 frá Kaplakrika | Kl. 21:26 frá Ásvallalaug | |
Kl. 21:11 frá Álfholti | Kl. 21:22 frá Mjódd | |
Kl. 21:19 frá Spöng | Kl. 21:03 frá Ásgarði | |
Kl. 21:07 frá Hamraborg | ||
Kl. 20:07 frá Hamraborg |
Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29.
Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd
Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa.
Almennt fargjald gildir.
Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar en einungis ganga í eina átt. Aðeins verður hægt að taka vagninn frá miðbænum og út í hverfi.
Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50.
Leið 101
Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð.
Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti.
Skutluþjónusta
„Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:00 – 23:15.
Frá kl. 7:00 -12:00 mun skutlan einnig stoppa á Njarðargötu.
Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll.
Það kostar ekkert í skutluþjónustuna.
Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvunum sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum.

Miðborgin tæmd
Um 22:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni.
Það kostar ekkert í tæminguna.
Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 22:00 – 23:00. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir.
Leiðir
Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar
Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur
Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt.
* Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 23:30.
Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi
Leiðarkort

Ferðir til Selfoss, Keflavíkur og Akraness
Áætlunarferðir á leiðum 50, 51 og 55 munu aka frá Skúlagötu kl. 22:40.
Almennt fargjald gildir.
Hægt er að greiða í landsbyggðarvögnum með debit- eða kreditkorti um borð í vagninum, reiðufé og landsbyggðarkortum.
Athugið breytta áætlun þennan dag á leiðum 50, 51 og 55
Leið 50 - Akranes
- Venjuleg laugardagsáætlun fram eftir degi.
- Ferð frá Akranesi til Reykjavíkur kl. 21:40 verður flýtt til kl. 20:26.
- Ferð frá Mjódd kl. 22:50 færist til kl. 22:52.
- Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata-Mjódd og hefðbundin leið á Akranes) áætlaður tími á endastöð 23:41.
Leið 51 - Selfoss
- Venjulega laugardagsáætlun fram eftir degi.
- Ferðir 20:25 og 23:15 frá Mjódd og 22:10 frá Selfossi falla niður.
- Engin tenging verður á Selfossi við ferð leiðar 53, kl. 21:00 frá Landeyjahöfn.
- Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata – Mjódd, og svo hefðbundin leið á Selfoss) áætlaður tími á endastöð 23:43.
Leið 55 - Keflavík
- Venjuleg laugardagsáætlun fram eftir degi.
- Ferðir 21:50 og 23:50 frá Firði og ferðir 22:54 frá Kef – Airport falla niður.
- Ferð 20:54 frá Kef-Airport verður flýtt til 20:35.
- Ferð frá Skúlagötu 22:40 (ekur Skúlagata – Fjörður og svo hefðbundin leið að Keflavík – Airport) áætlaður tími á endastöð 23:43.
Næturstrætó
Klukkan 01:20 aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó.
Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum en byrja á Skúlagötu vegna götulokana.
Almennt fargjald gildir.
- Stakt fargjald í næturstrætó er 690 krónur – Afsláttarfargjöld gilda ekki
- Hægt er að greiða snertilaust með greiðslukorti/síma í næturstrætó
- Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi
- Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó
Næturstrætó frá Skúlagötu alla helgina
Athugið að vegna götulokana fyrir Menningarnótt byrjar næturstrætó á biðstöðinni Skúlagötu alla helgina, aðfaranótt laugardags (föstudagsnóttina) og sunnudags (laugardagsnóttina). Óvirkar biðstöðvar eru: Barónsstígur, Bíó Paradís, Þjóðleikhúsið, Lækjartorg A, Lækjartorg B og Ráðhúsið
Brottfarir næturvagna á Menningarnótt
01:20 – 02:25 – 03:45
01:30 – 02:35 – 03:40
01:25 – 02:30 – 03:35
01:29 – 02:29 – 03:29
01:30 – 02:35 – 03:40



