
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Nemur hækkunin 3,1% á stökum fargjöldum og 3,7% á tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 650 krónur í 670 krónur og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 5400 krónur í 5600 krónur Verð á Klapp plastkortum helst óbreytt eða 1000 krónur
Strætó mun hætta sölu dagpassa á komandi vikum: 24 klst. og 72 klst. en Kapp greiðsluþak hefur komið í staðinn fyrir þær vörur. Ónotaðir 24 klst. og 72 klst. passar ógildast ekki.
Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu var tekin af stjórn félagsins á fundi þess 13. desember sl. og er í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu þessa árs.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni. Ný gjaldskrá tekur gildi miðvikudaginn 8. janúar 2025.
Gjaldskrá Strætó frá 8. janúar 2025
Stök fargjld
Fullorðnir | 670 krónur |
Ungmenni | 335 krónur |
Aldraðir | 335 krónur |
Öryrkjar* | 200 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Næturstrætó - eitt fargjald | 670 krónur |
*Þetta verð er eingöngu í boði í Klapp greiðslukerfinu. Ekki er hægt að greiða öryrkjafargjald með reiðufé.
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 11200 krónur | 112000 krónur |
Ungmenni | 5600 krónur | 56000 krónur |
Aldraðir | 5600 krónur | 56000 krónur |
Nemar, 18 ára og eldri | 5600 krónur | 56000 krónur |
Öryrkjar | 3360 krónur | 33600 krónur |
Klapp tíur
Klapp tía Fullorðnir | 6700 krónur |
Klapp tía Aldraðir | 3350 krónur |
Klapp tía Ungmenni | 3350 krónur |
Plast kort
Klapp kort | 1000 krónur |


