
Götulokanir og skert þjónusta hjá móttöku og þjónustuveri Fjölmörg samtök kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa boðað til kvennaverkfalls á morgun þriðjudaginn 24. október, þar sem konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf. Strætó styður jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks heilshugar og mun ekki draga af launum starfsfólks sem tekur þátt í deginum. Þar af leiðandi verður móttaka Strætó lokuð og skert þjónusta í þjónustuveri. Eins gæti orðið lengri afgreiðslutími hjá Pant akstursþjónustu. Götulokanir í miðbænum munu hafa áhrif á nokkrar leiðir Strætó og einnig má gera ráð fyrir röskunum á tímaáætlunum vegna þessa. Búið er að gera ráðstafanir svo allar leiðir verði eknar þrátt fyrir verkfall. Kalkofnsvegur milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður lokaður frá kl. 18:00 á mánudeginum til kl. 19:00 á þriðjudaginn. Leið 3 fer hjáleið um Hverfisgötu og leið 14 fer Sæbraut í báðar áttir. Þriðjudagur kl. 11:00–16:00. Miðbæjarlokun. Sæbraut/Geirsgata verður opin. Leiðir 3 og 14 fara Sæbraut/Geirsgötu og leiðir 1, 6, 11, 12 og 13 fara Snorrabraut út í Háskóla og inn á leið eftir það. Undir staða á ferðum er hægt að sjá á hvaða biðstöðvar hjáleiðir hafa áhrif á.

Strætó er á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2023. Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó tók á móti verðlaununum á viðurkenningarathöfn FKA og Jafnvægisvogarinnar þann 12. október. Sigurborg segir ánægjulegt fyrir Strætó að fá viðurkenninguna en Jafnvægisvoginni er ætlað að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. „Strætó hefur ávallt reynt að gæta þess að hlutfall milli kynja sé sem jafnast, enda er það ekki einungis hagur vinnustaðarins og viðskiptavina heldur samfélagsins alls. Það skiptir máli að fá alla að borðinu þegar kemur að ákvarðanatöku og erum við stolt af þessari viðurkenningu“, segir Sigurborg. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi við Creditinfo, Deloitte, forsætisráðuneytinu, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.

Strætó kynnir til leiks nýjan meistarakúrs með leikaranum, skemmtikraftinum en þó aðallega strætónotandandum Vilhelm Neto. Í þessum meistarakúrs mun Vilhelm Neto kenna fólki á Strætó og fara yfir fargjöld, Mínar síður, hvernig á að skipuleggja ferð, hvernig á að nota rauntímakortið og margt fleira. Áhugasamir geta tekið kúrsinn og útskrifast sem Strætómeistarar!

Athugið að viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey, mánudaginn 9. október, hefur verið aflýst vegna veðurs. Strætó verður með akstur vegna tendrunar Friðarsúlunnar á mánudaginn 9. október. Frá Hlemmi að Viðeyjarferju kl. 17:30 – 18:00 – 18:30 – 19:00 Frá Viðeyjarferju að Hlemmi kl. 21:00 – 21:30 – 22:00

Næturstrætó mun hefja akstur til Hafnarfjarðar aðfaranótt laugardags 30. september. Hafnarfjarðarbær hefur gert samning við Strætó um að hefja akstur næturstrætó til Hafnarfjarðar, um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja mánaða. Ekin verður leið 101 en með þeim breytingum að einungis verður stoppað í Hamraborg í Kópavogi og Ásgarði í Garðabæ. Einnig lengist leiðin örlítið og síðasta stopp verður Hamranes. Brottfarartímar eru frá Lækjartorgi B kl. 1:20, 2:25 og 3:45.

Frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó 22. september Bíllausi dagurinn, sem er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst 16. september síðastliðinn, er 22. september nk. Frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó yfir daginn og er fólk hvatt til að hvíla bílinn og nota fjölbreytta og vistvæna ferðamáta. Þetta er tilvalið tækifæri til að breyta út af vananum í dagsins amstri og rölta, hlaupa, hjóla, hoppa eða taka strætó í vinnu eða skóla.

Á morgun hefst Evrópsk samgönguvika sem stendur yfir frá 16. – 22. september. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í þessu samstillta átaki með sveitarfélögum í Evrópu og hefur Strætó verið með frá upphafi. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja fleiri í að nota fjölbreytta, vistvæna ferðamáta. Kynntu þér allt um samgönguvikuna á : Facebook síðu samgönguviku Fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá í samgönguvikunni: Þriðjudagur, 19. september kl. 17-19. BMX-hátíð á Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ. BMX BRÓS verða með orkumikla sýningu og í kjölfarið bjóða þeir upp á skemmtilegt hjólanámskeið þar sem þátttakendur leysa krefjandi hjólaþrautir, fá kennslu í grundvallaratriðum og enda svo á tímatöku. Muna að taka hjól og hjálm með. Miðvikudagur, 20. september kl. 15-17. Dr. Bæk á Miðbæjartorgi í Mosfellsbæ. Allir hjólaeigendur eru hvattir til að koma með hjólin sín í fría ástandsskoðun hjá Dr. Bæk. Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Hann skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra. Föstudagur, 22. september Bíllausi dagurinn 22. september – Frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Allir eru hvattir til að hvíla bílinn og nota vistvæna ferðamáta. Nánar má lesa um átakið á www.mobilityweek.eu .

Laugardaginn 2. september munu tveir aukavagnar aka á leið 55 í tilefni Ljósanætur. Athugið að um aukavagna er að ræða á hefðbundinni tímatöflu en ekki aukaferðir. Upphafs- og endastaðir breytast þó. Fyrri aukavagninn fer kl.17:53 frá Firði og endar akstur við Hringbraut/Melteig í Keflavík. Seinni aukavagninn fer kl.23:01 frá Hringbraut/Melteig í Keflavík og endar á BSÍ. ATHUGIÐ: Aukavagnar verða merktir sem aukavagnar. Aukavagnarnir aka ekki á milli Hringbrautar/Melteigs og Keflavíkurflugvallar og öfugt. Að öðru leyti aka þeir hefðbundna leið í gegnum Hafnarfjörð, Vogaafleggjara, Grindavíkurafleggjara og í gegnum Keflavík. Aukavagn kl.23:01 frá Keflavík mun aka alla leið á BSÍ. Hefðbundin gjaldskrá fyrir landsbyggðina gildir og hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða pening. Athugið að ekki er hægt að nota Klappið í landsbyggðarvagna.

Helgina 25. – 27.ágúst 2023 mun næturstrætó hefja akstur til Mosfellsbæjar á leið 106. Mosfellsbær gerði samning við Strætó um þessa þjónustu fyrir íbúa Mosfellsbæjar og greiðir allan kostnað við aksturinn innan sveitarfélagsins. Fargjald í næturstrætó er tvöfalt almennt fargjald en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín. Leið 106 hefur hingað til endað akstur sinn í Grafarvogi á næturnar en mun nú halda inn í Mosfellsbæ og enda leið sína þar. Brottfarartímar breytast því og fer vagninn nú af stað frá Lækjartorgi B kl. 1:30, 2:35 og 3:40.

Leið 93 mun aka tíu ferðina, kl. 10:15, á föstudaginn 18. ágúst í stað fimmtudags eins og venjulega í takt við siglingar Norrænu.

Breytt leiðakerfi á menningarnótt Almennt fargjald gildir yfir daginn – aukin tíðni verður hjá Strætó yfir daginn Lokanir og fyrirkomulag Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag. Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturgjald í næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Leið 1: mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10 mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18 mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Leiðir 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 13, 14 og 15 : munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18 munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 22:30 (þar til tæming frá miðborg hefst) Athugið að leið 18 ekur til og frá HR í stað leiðar 5 á Menningarnótt Hægt er að sjá biðstöðvar sem stoppað verður á í tímatöflu allra leiða undir 19. ágúst. Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Búið er að uppfæra leiðavísinn eftir bestu getu og hægt er að skoða tímatöflur allra leiða fyrir daginn en þar sem lokanir eru víðsvegar um borgina getur verið að vagninn þurfi að aka óhefðbundna leið – Vinsamlegast fylgist því með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru. Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með: Klapp tíu Áfyllanlegu Klapp korti Klappinu appi í síma Reiðufé – vagnstjórar á höfuðborgarsvæðinu gefa ekki til baka Nánari upplýsingar á Klappid.is Sæktu Klappið Keyptu fargjöld, skipulegðu ferðir eða fylgstu með Strætó í rauntíma. Sæktu Klappið á App Store eða Google Play. Kort frá Reykjavík - lokanir Leiðakerfi rofið kl. 22:30 Kl. 22:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut. Það kostar ekkert í þessar ferðir. Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu: Brottfaratímar á síðustu ferð frá Kl. 22:28 frá Hlemmi Kl. 22:19 frá Skarðshlíð. Kl. 22:03 frá Hlemmi Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 22:24 frá Hlemmi Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:18 frá Hlemmi Kl. 22:21 frá Mjódd Kl. 22:12 frá Gömlu Hringbraut Kl. 22:14 frá Árvaði Kl. 22:07 frá Hlemmi Kl. 22:18 frá Egilshöll Kl. 22:22 frá Mjódd Kl. 22:23 frá Eiðistorgi Kl. 22:20 frá Skerjafirði Kl. 22:07 frá Ártúni Kl. 22:10 frá Sléttuvegi Kl. 22:08 frá Öldugranda Kl. 22:09 frá Granda Kl. 22:14 frá Verzló Kl. 22:15 frá Reykjavegi Kl. 22:01 frá Flyðrugranda Kl. 22:06 frá Spöng Kl. 22:09 frá HR Kl. 22:18 frá Kaplakrika Kl. 22:22 frá Ásvallalaug Kl. 22:19 frá Spöng Kl. 22:03 frá Ásgarði Kl. 22:07 frá Hamraborg Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum sem eru í pöntunarþjónustu. Þetta eru leiðir 22, 23, 25, 26 og 27. Skutluþjónusta „Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 01:00. Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll. Það kostar ekkert í skutluþjónustuna. Hægt er að sjá skutlurnar á rauntímakorti inn á straeto.is og í Klappinu undir heitinu Hér fyrir neðan er kort af skutluþjónustunni og biðstöðvarnar sem skutlan stoppar á en hún mun hleypa út farþegum og taka upp nýja ef pláss leyfir á þessum biðstöðvum. Miðborgin tæmd Um 23:00, þegar flugeldasýningu er lokið munu vagnar flytja gesti Menningarnætur úr miðborginni. Það kostar ekkert í tæminguna. Ekið verður frá Sólfarinu við Sæbraut frá kl. 23:00 – 01:00. Vögnunum verður skipt í 7 leiðir og verða eins og „gömlu“ næturleiðirnar: Leiðir 101 - Hafnarfjörður Kringlumýrarbraut – Hamraborg – Ásgarður – Fjörður – Vellir – Skarðshlíð 102 - Kópavogur Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Grensásvegur – Bústaðavegur – Hamraborg – Arnarneshæð – Smáralind – Salir – Kórar – Vatnsendahvarf 103 - Breiðholt Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Mjódd – Sel – Fell – Hólar 104 - Úlfarsárdalur Kringlumýrarbraut – Suðurlandsbraut – Skeiðarvogur – Ártún – Þúsöld – Kristnibraut – Skyggnisbraut – Gefjunarbrunnur 105 - Norðlingaholt Sæbraut – Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt 106 - Mosfellsbær Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Ártún – Höfðabakki – Gullinbrú – Fjallkonuvegur – Langirimi – Borgavegur – Mosavegur – Korpúlfsstaðavegur – Vesturlandsvegur – Bjarkarholt. * Ferð verður ekin frá Bjarkarholti í Mosfellsbæ til Kjalarness kl. 00:30. 107 - Seltjarnarnes Kringlumýrarbraut – Miklabraut – Hjarðarhagi – Neshagi – Ægissíða – Suðurströnd – Norðurströnd – Eiðsgrandi Leiðarkort Næturstrætó Eftir kl. 01:00 á aðfaranótt sunnudags hefst akstur á næturstrætó. Næturvagnarnir aka eftir sínu hefðbundnu leiðum innan Reykjavíkur . Borga þarf næturgjald í næturstrætó. Stakt fargjald í næturstrætó er 1140 kr. en það jafngildir tvöföldu fargjaldi. Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Ekki er hægt að greiða með greiðslukorti um borð í næturstrætó Hægt er að borga með reiðufé – vagnstjórar geta ekki gefið tilbaka Brottfarir næturvagna á Menningarnótt

Hátíðarhöld í kringum Gleðigönguna munu hafa áhrif á strætóleiðir sem aka um Lækjargötu og Fríkirkjuveg á laugardaginn 12. ágúst milli kl. 10:00-18:00. Eftirfarandi hjáleiðir verða í gildi: Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka hjáleið um Snorrabraut og Gömlu Hringbraut að HÍ og til og frá Hlemmi. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Snorrabraut þegar hjáleið er ekin. Leið 11, 12 og 13 munu nota biðstöðina Háskóli Íslands þegar hjáleið er ekin. Gleðigangan Gleðigangan hefst stundvíslega kl. 14:00 hjá Hallgrímskirkju. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn. Strætó tekur þátt í Gleðigöngunni í ár eins og fyrri ár.

Leið 52, sem gengur milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar mun aka 21 aukaferðir vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum dagana 3. ágúst – 7. ágúst 2023. Allar aukaferðir eru skipulagðar með áætlun Herjólfs að leiðarljósi. Hægt er að greiða fargjaldið um borð í vagninum með greiðslukorti eða reiðufé. Mjódd → Landeyjahöfn Fimmtudagur 3. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:15 08:00 10:05 10:45 (Samkvæmt tímatöflu) 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:30 17:35 18:15 17:45 20:05 20:45 (Samkvæmt tímatöflu) - - 23:15 Mjódd → Landeyjahöfn Föstudagur 4. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:00 07:30 09:35 10:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega samkvæmt tímatöflu kl. 08:00) 09:30 11:35 13:00 12:00 14:05 15:00 14:15 16:20 17:00 16:15 18:20 19:00 17:45 20:05 21:00 (Samkvæmt tímatöflu) - - 23:00 Mjódd → Landeyjahöfn Laugardagur 5. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 08:15 08:10 10:15 10:45 (Samkvæmt tímatöflu) 10:30 12:35 13:15 13:00 15:05 15:45 15:15 17:40 18:15 (Samkvæmt tímatöflu Mjódd → Landeyjahöfn Sunnudagur 6. ágúst Brottför Strætó úr Mjódd Koma Strætó til Landeyjahafnar Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn - - 09:00 08:10 (7:55 frá BSÍ) 10:15 11:00 (Samkvæmt tímatöflu) 10:15 12:20 13:00 12:15 14:20 15:00 14:15 16:20 17:00 (Kemur í stað ferðar sem fer venjulega samkvæmt tímatöflu kl. 15:15) Landeyjahöfn → Mjódd Mánudagur 7. ágúst Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum Brottför Strætó úr Landeyjahöfn Koma Strætó í Mjódd 02:00 03:10 05:10 04:00 05:10 07:10 06:00 07:10 09:10 08:00 09:10 11:10 10:00 11:20 13:20 10:25 12:43 (Samkvæmt tímatöflu) 13:00 14:20 16:20 15:00 16:20 18:20 17:00 18:00 20:18 (Samkvæmt tímatöflu) 19:00 20:20 23:20 21:00 22:20 00:20 23:00 24:20 02:20

Strætó og Blindrafélagið undirrituðu í dag samstarfssamning sín á milli um uppsetningu NaviLens kóða á öllum biðstöðvum og vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða algjöra byltingu fyrir blinda og sjónskerta í aðgengi að upplýsingum um ferðir strætisvagna í rauntíma, án efa það stærsta síðan hljóðkerfi var sett upp í vögnunum fyrir rúmum 10 árum síðan, sem gefur til kynna hvar vagninn stoppar næst. Kóðarnir verða einnig settir á strætisvagnana sjálfa og mun það hjálpa blindum og sjónskertum að vita um hvaða vagn er að ræða og í hvaða átt hann er að fara án þess að þurfa að reiða sig á aðstoð annarra. Strætó mun leiða verkefnið og verða kóðarnir á ábyrgð og í eigu Strætó en félags- og vinnumarkaðsráðherra og innviðaráðherra skrifuðu í byrjun árs undir samning við Blindrafélagið vegna samstarfsverkefnis félagsins og Strætó um innleiðingu á kóðunum og veittu til þess styrk 2.000.000 kr. hvor. Ljóst er að verkefni af þessari stærðargráðu tekst ekki nema með samstilltu átaki allra aðila sem koma með einhverjum hætti að rekstri biðstöðva og strætisvagna og hafa allir tekið vel í að greiða fyrir þeirri vinnu sem mun þurfa til að koma upp öllum kóðum. Hlynur Þór Agnarsson, ráðgjafi frá Blindrafélaginu sem kemur að verkefninu segir að bæði sé NaviLens lausnin spennandi og jafnframt tímabært skref í að bæta aðgengi blindra og sjónskertra að upplýsingum um komutíma vagna Strætó. „Ég er ánægður með þá framsýni sem Strætó sýnir því ég efast ekki um að eftir einhver ár verða komnir upp svona kóðar á mun fleiri stöðum sem mun bæta aðgengi blindra og sjónskertra að upplýsingum í umhverfinu og auka verulega við sjálfstæði þeirra. Þetta er í fyrsta skipti hérlendis sem upplýsingar í almenningssamgöngum í umhverfismerkingum eru aðgengilegar þeim sem ekki geta lesið þær.„ Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó sagði við undirritunina að hann væri stoltur að Strætó væri hluti af jafn mikilvægu verkefni og því að stórbæta aðgengi blindra og sjónskerta í Strætó. Um væri að ræða byltingu í aðgengi en stjórn Strætó setti sér stefnu um bætt aðgengi fyrir alla og er þetta fyrsti áfanginn á þeirri vegferð. Hvað eru NaviLens kóðar? NaviLens kóðar virka á svipaðan hátt og QR kóðar. Hins vegar er hægt að greina NaviLens kóða úr 12 sinnum meiri fjarlægð en QR kóða. Einnig virka NaviLens merki betur í minni birtu og hægt er að nota allt sjónsvið myndavéla snjalltækja til að greina þá, ólíkt QR kóðunum sem krefjast meiri nákvæmni. Notendur nota síðan NaviLens app til að fá upplýsingar um staðsetningu og fjarlægð frá kóðanum auk þeirra upplýsinga sem hann hefur að geyma. Þannig virkar NaviLens bæði til að staðsetja biðstöðvar og veita upplýsingar um hvaða leiðir ganga þar og hve langt er í næsta vagn í rauntíma. Kóðarnir virka eins á vagnana sjálfa, staðsetja þá, greina frá um hvaða leið ræðir og í hvaða átt vagninn er að fara. Engu að síður geta kóðarnir nýst hverjum sem er, því sjáandi einstaklingar geta notað appið NaviLens GO til að kalla upp sömu rauntímaupplýsingar á fljótlegan og einfaldan hátt. Einnig þýðir NaviLens upplýsingar sjálfvirkt á yfir 33 mismunandi tungumál og gerir það sjálfvirkt eftir því á hvaða tungumál hvert snjalltæki er stillt á. Þetta gerir appið að góðum kosti fyrir fólk sem er ekki með íslensku sem fyrsta tungumál og ferðamenn. Mögulegur notendahópur stækkar einnig til muna ef horft er til þeirra sem eiga erfitt með lestur eins og t.d. lesblinda og þau sem eiga erfitt með að lesa í tímatöflur.

Þann 1. júlí mun ný gjaldskrá Strætó taka gildi. Nemur hækkunin 3,6% af stökum fargjöldum og 3,3% af tímabilskortum. Stakt fargjald fer þannig úr 550 kr. í 570 kr. og 30 daga nemakort og kort fyrir ungmenni og aldraða fer úr 4.500 kr. í 4.650 kr. Samkvæmt gjaldskrárstefnu Strætó er stefnt að endurskoðun gjaldskrár tvisvar á ári en gjaldskráin var síðast hækkuð 1. október 2022. Frá þeim tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og Strætóvísitala um 3,5%. Stjórn Strætó samþykkti því hækkun á gjaldskrá á fundi stjórnar félagsins 19. maí sl. Markmiðið með gjaldskrárstefnunni var og er að tryggja að gjaldskrá haldist í hendur við rekstrarkostnað Strætó og tekur þannig gjaldskráin breytingum í takt við Strætóvísitölu hverju sinni. Undir Strætóvísitölunni eru laun, olía, nvt, viðhald og viðgerðir (undirvísitala nvt) og varahlutir (undirvísitala nvt). Gjaldskrárbreyting hjá Vegagerðinni á landsbyggðinni Samhliða gjaldskrárhækkun Strætó hefur Vegagerðin ákveðið að hækka einnig verð hjá sér. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hækkunin nemi 16,3% og fer stakt fargjald úr 490 kr. í 570 kr. Tímabilskort og nemakort verða þó óbreytt og hækka ekki að sinni. Sem dæmi fer ferð frá Reykjavík til Akureyrar úr 10.780 kr. í 12.540 kr. og ferð frá Reykjavík til Keflavíkur úr 1.960 kr. í 2.280 kr. Hér má sjá tilkynningu Vegagerðarinnar. Ný gjaldskrá bæði fyrir höfuðborgina og landsbyggðina tekur gildi 1. júlí næstkomandi. Gjaldskrá Strætó 1. júlí 2023 Stök fargjöld Fullorðnir 570 kr. Ungmenni 285 kr. Aldraðir 285 kr. Öryrkjar 171 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. Tímabilskort 30 daga 12 mánaða Fullorðnir 9.300 kr. 93.000 kr. Ungmenni 4.650 kr. 46.500 kr. Aldraðir 4.650 kr. 46.500 kr. Nemar, 18 ára og eldri 4.650 kr. 46.500 kr. Öryrkjar 2.790 kr. 27.900 kr. Börn, 11 ára og yngri 0 kr. 0 kr. Klapp tíur Klapp 10 Fullorðnir 5.700 kr. Klapp 10 Aldraðir 2.850 kr. Klapp 10 Ungmenni 2.850 kr. Plast kort Klapp kort 1.000 kr. Dagpassar 24 klst. 2.300 kr. 72 klst. 5.200 kr.

Tekin hefur verið ákvörðun um að loka gamla Strætó appinu þann 1. júlí næstkomandi. Öll virkni sem viðkemur leiðarkerfi eða miðum fyrir höfuðborgarsvæðið er nú komin í Klappið auk annarra nýjunga. Flestir hafa nú þegar fært sig yfir í nýtt app enda fleiri möguleikar í því. Aðeins ein virkni stendur út af en ekki er hægt að versla landsbyggðarmiða í Klappinu. Áfram verður hægt að borga með reiðufé og fá til baka eða greiða með greiðslukorti um borð í vögnunum og eru langflestir sem versla miða með þeim hætti. Sala miða í appinu var að meðaltali aðeins 3% allra seldra fargjalda á landsbyggðinni. Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó og er nú með til skoðunar að bæta við fleiri greiðslumöguleikum fyrir viðskiptavini á landsbyggðinni. Hægt er að sjá öll verð fyrir landsbyggðina í „Skipuleggja ferð“ í Klappinu og á straeto.is Í Klappinu og á straeto.is er m.a. hægt að skipuleggja ferðir, sjá vagna í rauntíma (Hvar er Strætó?) og sjá verð bæði fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina. Viðskiptavinir sem eiga miða í gamla Strætó appinu Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina. Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára. Þeir sem eiga enn miða í gamla Strætó appinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir. Hvernig sé ég verð fyrir landsbyggðina? Nú er hægt að sjá öll verð í „Skipuleggja ferð“ á straeto.is og í Klappinu. Eftir að upphafs- og áfangastaður er valinn, er hægt að sjá verð undir hverri ferð. Einnig er hægt að sjá verðskrá fyrir landsbyggðina hér. Hvað verður um miðana mína? Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina. Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára. Þeir sem eiga enn miða í gamla Strætó appinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir. Ég gleymdi að ég ætti miða og nú er búið að loka appinu! Starfsfólk Strætó getur aðstoðað við að færa miðana í Klappið eða endurgreiða þá. Hægt er að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir. Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina. Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára. Hvar er Strætó? Veldu þá vagna sem þú vilt sjá í rauntíma á kortinu.

Akstur Strætó laugardaginn 17. júní verður óbreyttur þ.e. skv. laugardagsáætlun, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Næturstrætó mun ganga eins og venjulega þessa helgi. Götulokanir munu hafa áhrif á akstur Strætó í miðborg Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum. Mest mun röskun verða á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 10:15 og 15:00. Raskanir á leiðum strætó 17. júní eru eftirfarandi: Í Reykjavík verður ekki hægt að aka um Lækjargötu frá Hverfisgötu, Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu, Bjarkargötu, Skothúsavegi, og Vonarstræti frá Tjarnargötu milli klukkan 07:00 og 19:00. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka Snorrabraut til og frá Hlemmi. Í Hafnarfirði munu leiðir 1, 19 og 21 aka hjáleið vegna skrúðgöngu á Hringbraut og Lækjargötu frá klukkan 13:00 til 13:30. Í Mosfellsbæ munu leiðir 7 og 15 aka hjáleiðir vegna skrúðgöngu frá klukkan 13:00 – 14:00. Leið 7 mun aka hjáleið um Háholt á milli 13:20 -14:00 og leið 15 Vesturlandsveg og Bogatanga kl. 13:00-14:00. Sjá má heiti biðstöðva sem verða fyrir áhrifum undir Stöðu ferða undir hverri leið fyrir sig.

Vegna vegavinnu Vegna vegavinnu á Kringlumýrarbraut verða hjáleiðir á leiðum 1, 2, 4 ,13 og 14 frá kl. 19:00 í kvöld 13. júní til lok aksturs í kvöld. Hér að neðan eru myndir af öllum hjáleiðunum en einnig er hægt að skoða Stöðu ferða og sjá heiti biðstöðva sem verða fyrir áhrifum af hjáleiðunum. Leið 1 Hjáleið að Hamraborg en venjuleg leið að Hlemmi Leið 2 Hjáleið að Hamraborg en venjuleg leið að Hlemmi Leið 4 Hjáleið að Hamraborg en venjuleg leið að Hlemmi Leið 13 Hjáleið í báðar áttir Leið 14 Hjáleið í báðar áttir

Strætó og Hönnunarstofan Kolofon fengu á dögunum verðlaun í alþjóðlegu hönnunarsamkeppninni IIIDawards , sem haldin er af International Institute for Information Design — samtökum upplýsingahönnuða. Verðlaunin eru í flokknum Traffic and Public Transport og voru veitt fyrir heildarframsetningu á uppfærðu leiðarkerfi og merkingum Strætó. Verkefnið nær til allra merkinga á stoppum, endurbætta vefsíðu og leiðarkerfisupplýsinga í öppum. Verðlaunin, sem eru veitt á 3 ára fresti, voru nú afhent í fimmta sinn. Keppt er í 15 ólíkum flokkum, þar sem hver einblínir á ýmist vettvang upplýsingahönnunar eða aðferð við framsetningu. The International Institute of Information Design eru alþjóðleg samtök sem stofnuð voru árið 1986. Samtökin er helsti vettvangur upplýsingahönnunar, þar sem markmiðið er að þróa saman betri og skýrari framsetningu upplýsinga og gagna þvert á starfsgreinar, með rannsóknum og kynningum á fræðunum. „Okkur þykir mjög vænt um að fá viðurkenningu eins og þessa, fyrir þetta mikilvæga verkefni, sem hefði aldrei getað orðið nema með góðu og nánu samstarfi okkar og Strætós. Við erum mjög þakklát fyrir það.“ segir Hörður Lárusson, hjá Kolofon, sem tók á móti verðlaununum í Vínarborg 24. maí síðastliðinn. Vefsíða verðlaunanna: https://www.iiidaward.net/ Vefsíða IIID: https://www.iiid.net/

Sumaráætlun er nú komin í gang á nokkrum landsbyggðarleiðum Strætó. Leiðir á höfuðborgarsvæðinu haldast óbreyttar. Vesturland Leiðir 63, 64 og 81 hætta akstri yfir sumartímann. Akstur hefst aftur 23. ágúst. Suðurnes Á leið 87 verða ferðir milli 10:00 og 16:00 ekki eknar milli 5.júní til 11. ágúst. Vestfirðir Leið 62 hefur hafið akstur skv. sumaráætlun en óvíst er hvort leið 61 verði ekin í sumar. Ekið er til 31. ágúst. Austfirðir Leið 94 hefur hafið akstur skv. sumaráætlun sem stendur til 17. september. Ferðir á leið 93 munu breytast í takt við siglingar Norrænu. Aðrar leiðir á landsbyggðinni haldast óbreyttar.

Höfuðborgarsvæðið Hvítasunna Hvítasunnudagur, 28. maí: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Annar í hvítasunnu, 29. maí: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Landsbyggðin Hvítasunna Hvítasunnudagur, 28. maí: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í hvítasunnu, 29. maí: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Athugið að leið 94 ekur eins og venjulega þessa daga Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð yfir helgina og annan í hvítasunnu, mánudaginn 29. maí en þjónustuverið verður opið þessa daga frá kl. 10:00 – 14:00.

Af öryggisástæðum verða götulokanir í miðbænum sem mun hafa áhrif á strætó. Einnig má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda á þessum dögum og verða áhrifin hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum. Athugið að þetta á einnig við um Reykjanesbrautina, þ.e. á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins þessa sömu daga. Frá kl. 21:00 15. maí til kl. 19:00, 17. maí: Vegna þessa munu leiðir 1, 3, 6 11, 12, 13, 14 og 55 aka hjáleiðir í kringum miðborgina og leið 16 ekur hjáleið um Vatnagarða í stað Sundagarða. Athugið að það munu verða ófyrirséðar raskanir á tímaáætlunum víðs vegar um borgina á þessu tímabili. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með vögnum á rauntímakorti

Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Athugið að leið 94 ekur eins og venjulega. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokuð 1. maí en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Uppfærsla var gerð á skipuleggja ferð (e. Journey planner) sem mun bæta notendaupplifun til muna og gera framsetningu leitar skýrari. Uppfærslan er bæði á vefnum og í Klappinu. Nauðsynlegt er að notendur uppfæri appið sitt til að fá fram nýjungarnar. Nú er hægt að sjá verð fyrir fullorðna þegar ferðast er bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni. Framsetning leitarniðurstaðna úr skipuleggja ferð er skýrari t.d. hvaða hluti af heildarferðatíma er gangandi og hversu mikill tími er um borð í strætisvagni. Í leitarniðurstöðum er birt yfirlit yfir þær biðstöðvar sem ekið er fram hjá áður en viðskiptavinur kemur að þeirri biðstöð sem hann ætlar að fara út á. Þetta mun gera nýjum og/eða óvönum strætónotendum auðveldara að ferðast með Strætó. Einnig er framsetning óvæntra atvika eins og lokun biðstöðvar eða seinkunar á ferð gerð skýrari ásamt því að nú er hægt að flakka á milli skjáa án þess að leitarniðurstöður ferðar hverfi strax. Leitarvél á vef Strætó Leitarvél er nú líka komin á vef Strætó sem mun auðvelda viðskiptavinum til muna að leita að upplýsingum á vefnum. Hægt er að leita eftir stoppistöðum, leiðarnúmeri, reglum og gjaldskrá svo eitthvað sé nefnt. Nýjungar Skipuleggja ferð Upphafsstaður og áfangastaður sjást alltaf efst miðað við hvað var sett inn í leit Staða á ferðum Óvænt atvik eins og lokun biðstöðva er meira áberandi og skýrari framsetning hvaða hluti ferðar er akandi og gangandi Verð Verð fyrir fullorðna sjást fyrir þá ferð sem leitað er að, bæði fyrir höfuðborg og landsbyggðina Leitarvél Nú er hægt að leita á vef Strætó

Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Leið 94 ekur skv. mánudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokað 1. maí en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Aldrei hafa fleiri innstig mælst í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu en í marsmánuði síðastliðnum síðan reglulegar mælingar hófust. Í mars 2023 mældust rúmlega 1.242.000 innstig en flest innstig voru áður mæld í október 2019, en þá voru þau 1.204.000. Séu innstigin í mars hins vegar borin saman við aðra marsmánuði má sjá 26% fjölgun innstiga miðað við mars í fyrra og 12,7% fjölgun miðað við fyrra met í marsmánuði árið 2019. Því er um sannkallaðan metmánuð að ræða frá því að reglulegar mælingar hófust. Leiðirnar með flestu innstigin í mars voru leiðir 1, 15 og 3. Innstig - mars 2019 2020 2021 2022 2023 Janúar 1049000 1077000 731000 755000 1119000 Febrúar 958000 1087000 777000 793000 1069000 Mars 1102000 799000 846000 985000 1242000 Apríl 889000 383000 679000 808000 Maí 1004000 708000 724000 918000 Júní 881000 774000 719000 863000 Júlí 872000 721000 637000 784000 Ágúst 1038000 725000 771000 954000 September 1125000 829000 921000 1092000 Október 1204000 610000 945000 1080000 Nóvember 1156000 566000 950000 1135000 Desember 905000 572000 792000 979000

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó á sumardaginn fyrsta 2023. Höfuðborgarsvæðið Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun. Landsbyggðin Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun. Leið 94 ekur skv. fimmtudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur. Móttaka Strætó verður lokað á sumardaginn fyrsta en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00. Miðbær Reykjavíkur Miðbær Reykjavíkur frá kl. 10:30 – 13:30 Leiðir 1, 3 og 6 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu munu leiðirnar aka hjáleið um Hringbraut, Ánanaust, Mýrargötu, Geirsgötu og Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Leiðir 11 og 12 – Í stað þess að aka um Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 13 – Í stað þess að aka um Hofsvallagötu, Túngötu, Vonarstræti, Lækjargötu og Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 14 – Í stað þess að aka um Hverfisgötu mun leiðin aka hjáleið um Sæbraut á leið til og frá Hlemmi. Leið 15 – Í stað þess að aka um Gömlu Hringbraut, Barónsstíg og Bergþórugötu að Hlemmi mun leiðin aka hjáleið um Hringbraut og Snorrabraut á leið að Hlemmi. Frá Hlemmi fer leiðin hjáleið um Hringbraut en það hefur engin áhrif á biðstöðvar. Lokaðar biðstöðvar verða: Barónsstígur Bíó Paradís Þjóðleikhúsið Lækjartorg A Lækjartorg B Lækjartorg C MR Hallargarðurinn Ráðhúsið Heilsuverndarstöðin Sjúkrahótel Gamla Hringbraut Þjóðminjasafnið Landakot Ásvallagata Hafnarfjörður Hafnarfjörður milli kl. 13:45 og 14:00 Leið 19 – Ein ferð á leið 19 mun ekki geta ekið um Hjallabraut á leið sinni í átt að Kaplakrika. Í staðinn mun leiðin aka hjáleið um Reykjavíkurveg. Lokaðar biðstöðvar verða: Hjallabraut Miðvangur Víðivangur Skjólvangur Sundhöll Hafnarfjarðar Norðurbakki Mosfellsbær Mosfellsbæ milli kl. 12:50 og 13:30 Leið 7 – Leiðin mun ekki aka til og frá Leirvogstungu á meðan á lokun stendur. Leið 15 – Í stað þess að aka um Skeiðholt, Skólabraut og Háholt mun leiðin aka hjáleið um Langatanga og Vesturlandsveg á leið sinni til og frá Reykjaveg. Lokaðar biðstöðvar verða: Skeiðholt Varmárskóli Háholt Tungubakkar Laxatunga

Í annað sinn gefur Strætó nú út sjálfbærniskýrslu. Auk fjárhagslegra upplýsinga hefur skýrslan að geyma upplýsingar um mannauð, markaðsmál, umhverfismál, orkunotkun, samfélagsmál og farþegatölur svo fátt eitt sé nefnt. Alþjóðastaðallinn GRI, Global Reporting Initiative var hafður til hliðsjónar við gerð skýrslunnar.

Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opunartíma Strætó yfir páska 2023. Höfuðborgarsvæðið Páskar 2023 Ekið er skv. sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana Skírdagur, 6. apríl Föstudagurinn langi, 7. apríl Páskadagur, 9. apríl Annar í páskum, 10. apríl Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Landsbyggðin Páskar 2023 Skírdagur, 6. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Föstudagurinn langi, 7. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Páskadagur, 9. apríl: Ekið samkvæmt laugardagsáætlun Annar í páskum, 10. apríl: Ekið samkvæmt sunnudagsáætlun Athugið að enginn akstur er þessa daga á leiðum á Austfjörðum: 91 , 92 , 93 , 95 og 96 . Leið 94 keyrir 6. apríl skv. fimmtudagsáætlun og 10. apríl skv. mánudagsáætlun. Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þessa daga á öllum leiðum undir tímatöflur. Þjónustuver Strætó - sími 540 2700 Dagur Opnunartími Skírdagur, 6. apríl 10:00 - 14:00 Föstudagurinn langi, 7. apríl 10:00 - 14:00 Páskadagur, 9. apríl 10:00 - 14:00 Annar í páskum, 10. apríl 10:00 - 14:00 Móttaka Strætó Dagur Opnunartími Skírdagur, 6. apríl Lokað Föstudagurinn langi, 7. apríl Lokað Páskadagur, 9. apríl Lokað Annar í páskum, 10. apríl Lokað

Klappið hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir greiðslukerfi á viðburðinum Transport Ticketing Global í vikunni. Viðburðurinn er leiðandi á heimsvísu og er stærsti viðburður heims fyrir almenningssamgöngur þegar kemur að rafrænum lausnum greiðslukerfa. Í ár var hann haldinn í Olympia London, dagana 7.-8. mars. Sjá: https://www.transport-ticketing.com/ Nýja greiðslukerfi Strætó var meðal sjö tilnefndra og fékk sérstök verðlaun – „Highly Commended“ – í flokknum besta greiðslukerfi almenningssamgangna fyrir minna en 200 þúsund daglegar ferðir. Tilgangur verðlaunanna er að veita framúrskarandi lausnum á sviðinu viðurkenningu og veita rekstraraðilum og stofnunum almenningssamgangna og samstarfsaðilum þeirra athygli fyrir greiðslukerfi sem hefur verið hleypt af stokkunum á síðustu 2 árum. „Þessi viðurkenning er sérlega ánægjuleg því dómendur eru fremstu sérfræðingar heims á þessu sviði og aldrei hafa verið sendar inn fleiri tilnefningar. Hún sýnir okkur að við erum á réttri leið og hvetur okkur til að halda ótrauð áfram á þeirri löngu vegferð að gera greiðslukerfi Strætó að frábærri lausn fyrir bæði farþega og alla þá sem vinna við að gera almenningssamgöngur að góðum valkosti fyrir fólk á ferðinni. Enda eru sérlega spennandi nýjungar í farvatninu – meðal annars að greiða beint með snertilausu greiðslukorti og greiðsluþak,„ segir Daði Áslaugarson, yfirmaður upplýsingatæknimála hjá Strætó. Klappinu var hleypt af stokkunum 16. nóvember 2021 og gátu þá viðskiptavinir skannað miðana sína með appi, Klapp-korti eða pappakorti um borð í vögnum auk þess að auðvelda farþegum kaup á vörum, aðgang að afsláttum og yfirsýn yfir notkun sína á Mínum síðum. Kerfið er öruggara með tilliti til persónuverndar fyrir notendur en fyrri lausnir og býður upp á mikla möguleika til framtíðarþróunar. Starfsfólk Strætó er þakklátt fyrir viðurkenninguna og stefnir ótrautt áfram að gera Klappið sem best fyrir viðskiptavini Strætó.