
Þann 1. október mun ný gjaldskrá Strætó taka gildi. Gjaldskráin var samþykkt á fundi stjórnar félagsins 16. september sl. og nemur hækkunin 12,5 %. Stök fargjöld og tímabilskort munu öll taka sömu verðbreytingu. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 490 krónur í 550 krónur og 30 daga nemakort fer úr 4000 krónur í 4500 krónur
Gjaldskráin hefur verið óbreytt síðan um áramótin 2020/2021 en þann 16. nóvember 2021 var Klapp, rafrænt greiðslukerfi Strætó innleitt og öll gjaldskráin einfölduð til að vera sanngjarnari og veita viðskiptavinum jafnari kjör á fargjöldum.
Verðhækkunum er ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum á aðföngum Strætó svo sem olíuverðshækkunum, en olíuverð hefur hækkað um tæp 40% frá áramótum og kostnaði vegna vinnutímastyttingar, sem hefur haft veruleg áhrif á reksturinn. Áhrifa heimsfaraldurs COVID gætir enn í rekstrinum og útlit fyrir að uppsöfnuð áhrif á tekjur séu á bilinu 1500 m.kr. til 2000 m.kr. Áhrifa hækkandi aðfangaverðs og lægri tekna má sjá í árshlutauppgjöri Strætó fyrir janúar til júní 2022.
Ávallt er reynt að stilla öllum verðhækkunum Strætó í hóf og er hækkuninni ætlað að draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt munu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skoða að styrkja rekstur Strætó frekar en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2022.
Strætó hefur sett sér stefnu um kolefnislausan flota árið 2030 og með því verða áhrif olíuverðs óveruleg á rekstur Strætó.
Miðað við útreikninga FÍB um rekstrarkostnað þess að reka bíl, er hann um 1,3 milljónir á ári miðað við að eknir séu 15.000 km á ári og því ljóst að enn er mun hagstæðara að nota almenningssamgöngur.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en ekki til akstursþjónustu fyrir fatlað fólk en þar verða engar breytingar á gjaldskrá.
Ný gjaldskrá tekur gildi 1. október næstkomandi.
Gjaldskrá Strætó 1. okt. 2022
Stök fargjöld
Fullorðnir | 550 krónur |
|---|---|
Ungmenni | 275 krónur |
Aldraðir | 275 krónur |
Öryrkjar | 165 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 9000 krónur | 90000 krónur |
Ungmenni | 4500 krónur | 45000 krónur |
Aldraðir | 4500 krónur | 45000 krónur |
Öryrkjar | 2700 krónur | 27000 krónur |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur | 0 krónur |
Klapp tíur
Verð | |
|---|---|
Klapp 10 Fullorðnir | 5500 krónur |
Klapp 10 Aldraðir | 2750 krónur |
Klapp 10 Ungmenni | 2750 krónur |
Plastkort
Verð | |
|---|---|
Klapp kort | 1000 krónur |
Dagpassar
Verð | |
|---|---|
24 klst. | 2200 krónur |
72 klst. | 5000 krónur |


