Fara beint í efnið

Skóla- og tómstundakort

Skóla- og tómstundakort

Sérstök skóla-og tómstundakort þarf fyrir hópferðir skólabarna og tómstundastarfs á höfuðborgarsvæðinu.


Skólakort

Leik- og grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu býðst að fá sérstök skólakort sér að kostnaðarlausu. Kortin eru notuð til þess að starfsmenn skóla geti farið með hóp barna og ungmenna í strætóferðir á skólatíma.

Skólakort 0 krónur


Tómstundakort

Yfir sumartímann geta umsjónaraðilar íþrótta- og tómstundastarfs keypt tómstundakort fyrir 36500 krónur Kortin eru notuð til þess að starfsfólk íþrótta- og tómstundastarfs á sumrin geti farið með hóp barna og ungmenna í strætóferðir. Gildistími tómstundakorta er frá byrjun júní og út ágúst.

Tómstundakort 36500 krónur


Eftirfarandi skilmálar gilda um kortin

  • Kortin gilda einungis í Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
  • Leyfilegur notkunartími kortanna er virka daga kl. 9:00 – 15:30.
  • Hvert kort gildir fyrir 1- 4 starfsmenn með hverjum hóp.
  • Einstaklingar mega ekki nota kortið. Hverjum starfsmanni skulu fylgja að lágmarki 3 börn eða ungmenni.
  • Ef fjöldi barna eða ungmenna fer yfir 28 verður að tvískipta hópnum.
  • Misnotkun varðar sviptingu kortsins.

Umsóknir og fyrirspurnir um skóla- og tómstundakort skulu sendast á kort@straeto.is