Fara beint í efnið

Persónuverndaryfirlýsing ASHB

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., kt. 651125-0220, Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík (hér eftir „ASHB", „félagið" eða „við"), stendur að vinnslu persónuupplýsinga um viðskiptavini og aðra einstaklinga sem í tengslum við rekstur og þjónustu félagsins.  

Öflug persónuvernd er ASHB kappsmál og leggur félagið mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd, sem nú eru lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (hér eftir „persónuverndarlög“).

Yfirlýsing þessi nær til viðskiptavina félagsins, birgja, þjónustuaðila, verktaka og einstaklinga  forsvarsmenn sem eru í forsvari fyrir lögaðila sem eiga í viðskiptasambandi við félagið. Yfirlýsingin nær einnig eftir atvikum til annarra einstaklinga, t.d. þá sem hafa samband við félagið eða heimsækja starfsstöðvar þess eða nota vefsvæði ASHB (vefsíðu ASHB www.ashb.is og vefsíðu Klappsins www.klappid.is), verktaka, birgja og samstarfsaðila (einnig vísað til sem „þú“). 

Um vinnslu á persónuupplýsingum um starfsfólk ASHB og starfsumsækjendur er fjallað um í sérstökum persónuverndaryfirlýsingum.

Sértækar persónuverndaryfirlýsingar kunna að gilda um einstakar þjónustur og viðmót ASHB, sem birtar eru á vef félagsins og eftir atvikum í viðkomandi viðmóti. Um greiðslukerfi ASHB, KLAPPIÐ, gildir sérstök persónuverndaryfirlýsing sem nálgast má www.klappid.is.

Hjá ASHB starfar persónuverndarfulltrúi sem hægt er að leita til með fyrirspurnir, ábendingar eða athugasemdir með því að senda póst á netfangið personuvernd@ashb.is.

1. Hvaða upplýsingum söfnum við og um hverja?

Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga er forsenda þess að ASHB geti veitt þér eða fyrirtækjum, sem þú starfar hjá eða ert í forsvari fyrir, þá vöru eða þjónustu sem óskað hefur verið eftir. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað eftir eðli viðskiptasambandsins.

ASHB vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar um einstaklinga í viðskiptum við félagið:

  • Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, símanúmer, netfang, rafræn skilríki og aðrar grunnupplýsingar.
  • Samskipta- og viðskiptasaga: Upplýsingar úr samskiptum sem þú velur að eiga við ASHB, hvort sem þau fara fram bréflega, rafrænt, s.s. með tölvupósti eða í gegnum netspjall, vefsíðu, samfélagsmiðlasíður ASHB, með símtali, munnlega eða á annan hátt og aðrar upplýsingar sem leiða af samningssambandi þínu við félagið um einstaka viðskipti.
  • Greiðslu- og kortaupplýsingar: Upplýsingar sem þörf er á svo unnt sé að afhenda þá vöru eða þá þjónustu sem þjónustan eða viðskiptasambandið nær til, s.s. um færslur, greiðslukortanúmer, greiðslustaðfestingar og afslætti.
  • Notkunar- og viðskiptasaga KLAPPSINS: Einkvæmt auðkenni notanda og eftir atvikum upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer. Upplýsingar um notkun KLAPPSINS og aðgerðarsögu notanda, þ.m.t. innskráningar, kaup á fargjöldum, virkjun, skönnun og áframsendingu farmiða, aðrar aðgerðir í KLAPPINU og dagsetningu og tímasetningu þeirra. Upplýsingar um viðskipti og notkun þjónustunnar, þ.m.t. tegund fargjalds, stöðu farmiðla, afsláttarkjör, fjárhæð og staðfestingu greiðslu, greiðslukvittanir og stoppistöð þar sem þjónustan er nýtt hverju sinni. Upplýsingar um rétt til afsláttarkjara, þ.m.t. staðfesting á afsláttarrétti og eftir atvikum lögheimilissveitarfélag vegna námsmannaafsláttar. Upplýsingar um vistað greiðslukort, þ.e. sýndarnúmer (e. token), fyrstu sex og síðustu fjórar tölur greiðslukorts og gildistíma, en raunveruleg greiðslukortanúmer eru ekki vistuð. Tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tala, MAC-vistfang tækis (e. MAC address), tegund og útgáfa stýrikerfis og smáforrits.
  • Upplýsingar um beitingu fargjaldaálags: ASHB vinnur með persónuupplýsingar í tengslum við eftirlit með réttri greiðslu fargjalda og beitingu fargjaldaálags. Þar undir falla m.a. nafn, kennitala, auðkenni farmiðils, ákvörðun um beitingu fargjaldaálags og ástæður hennar, dagsetning og tímasetning ákvörðunar, upplýsingar um greiðslu fargjaldaálags og hvort ákvörðunin hafi verið kærð til Samgöngustofu. Jafnframt vinnur félagið með þær upplýsingar sem hinn skráði eða aðrir veita í tengslum við meðferð máls, svo sem skýringar, andmæli og aðrar upplýsingar úr samskiptum sem nauðsynlegar eru til úrlausnar málsins.
  • Upplýsingar sem safnast við beina markaðssetningu: Nafn, netfang og eftir atvikum símanúmer.
  • Tæknilegar upplýsingar og afleiddar upplýsingar: Upplýsingar um búnað og tæki sem notuð eru til þess að tengjast vefsvæðum ASHB, s.s. IP-tölu, tegund snjalltækis, vefkökur og hvaða aðgerðir þú framkvæmir á vefsvæðunum. Ef við á staðsetningarupplýsingar í tengslum við notkun á vefsíðum ASHB á grundvelli samþykkis.
  • Upplýsingar sem safnast við rafræna vöktun: Hljóð- og myndbandsupptökur sem safnast við rafræna vöktun með eftirlitsmyndavélum eða hljóðritun símtala.
  • Upplýsingar úr opinberum skrám og frá korta- og greiðslumiðlunarþjónustum: Upplýsingar úr opinberum skrám, s.s. þjóðskrá. Framangreind upptalning er ekki tæmandi en ASHB getur unnið aðrar upplýsingar um þig sem eru nauðsynlegar hverju sinni eftir eðli viðskiptasambandsins eða samskipta þinna við félagið, s.s. frá korta- og greiðslumiðlunarþjónustum.

ASHB vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar um einstaklinga sem veita félaginu þjónustu eða koma fram fyrir hönd lögaðila sem ASHB á í samningssambandi við:

  • Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: Nafn, kennitala, starfstitill, vinnustaður, vinnusími og vinnunetfang.
  • Samskiptasaga: Upplýsingar um samskipti við félagið hvort sem þau fara fram bréflega, rafrænt, s.s. tölvupósti eða í gegnum netspjall, vefsíðu, samfélagsmiðlasíður ASHB, með símtali, munnlega eða á annan hátt.
  • Upplýsingar vegna viðskiptasambandsins og samningsupplýsingar: Upplýsingar um þá þjónustu sem veitt er og samskipti við ASHB og aðrar upplýsingar sem leiða af samningssambandi þínu við félagið um einstaka þjónustu, s.s. lýsingu verkefna, tímaskráningu (ef við á), verkbeiðnir og samningar.
  • Reiknings- og greiðsluupplýsingar: Upplýsingar sem koma fram á reikningum sem sendir eru félaginu, þar á meðal um þá þjónustu sem veitt er, dagsetningu, fjárhæð og reikningsnúmer.
  • Upplýsingar sem safnast við rafræna vöktun: Hljóð- og myndbandsupptökur sem safnast við rafræna vöktun með eftirlitsmyndavélum eða hljóðritun símtala.

Þá styðst vefsvæði ASHB við vefkökur, sem eru litlar textaskrár sem komið er fyrir í tölvu eða snjalltæki notanda, sem safna persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru fyrir virkni vefsvæðis félagsins og markaðssetningu. Nánari upplýsingar um vefkökur má finna á vefsíðu ASHB í sérstökum vefkökuborða þar sem hægt er að leyfa eða hafna vefkökum.

2. Í hvaða tilgangi vinnum við persónuupplýsingar um þig?

Öll vinnsla ASHB á persónuupplýsingum fer fram í skýrum, yfirlýstum og málefnalegum tilgangi. Félagið vinnur aðallega með persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi að:

  • Uppfylla lagaskyldu sem hvílir á félaginu eða starfsfólki þess hverju sinni.
  • Eiga samskipti við þig, svara fyrirspurnum eða bregðast við ábendingum eða kvörtunum.
  • Koma á og viðhalda samningssambandi við verktaka, birgja og aðra samstarfsaðila.
  • Hafa samband við þig, auðkenna þig, stofna og viðhalda viðskiptasambandi, framkvæma efni samnings milli þín og félagsins og veita þá vöru og þjónustu sem boðið er upp á í starfseminni.
  • Veita aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga.
  • Tryggja að notendur geti notið þeirra afsláttarkjara sem þeir eiga rétt á.
  • Veita þér betri yfirsýn yfir viðskipti þín við ASHB.
  • Sinna eftirliti með réttri greiðslu fargjalda og beita fargjaldaálagi samkvæmt lögum og reglum.
  • Tryggja öryggis- og eignavörslu og vernda viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem eiga erindi við félagið, stuðla að og rannsaka, upplýsa eða koma í veg fyrir lögbrot og aðra refsiverða og/eða ámælisverða háttsemi.
  • Efla gæði þjónustu og skjalfesta samskipti m.a. með hljóðritun símtala.
  • Stuðla að net- og upplýsingaöryggi með því að greina, rannsaka og koma í veg fyrir hvers kyns misferli, fjársvik eða netógnir.
  • Þróa vöru og þjónustuframboð félagsins, bæta virkni vöru eða þjónustu, í þágu gæða- og umbótastarfs.
  • Útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir tengdar notkun á þjónustunni.
  • Reka vefsvæði og bæta upplifun þína af þeim.
  • Stunda markaðs- og kynningarstarf m.a. með því að veita persónubundna þjónustu, senda þér upplýsingar um starfsemina, afslætti og markaðsefni með tölvupósti eða SMS.
  • Meðhöndla uppljóstranir eða ábendingar um ámælisverða háttsemi eða lögbrot, þar á meðal tryggja rétta málsmeðferð, skrá samskipti og vernda uppljóstrara í samræmi við lög nr. 40/2022 um vernd uppljóstrara.
  • Meðhöndla upplýsingar um eigendur og stjórnendur fyrirtækja sem sækjast eftir opinberum samningum í útboðum félagsins á grundvelli laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
  • Skrásetja viðskipti, hvort heldur kaup eða sölu, og færa bókhald í samræmi við ákvæði laga nr. 145/1994 um bókhald.
  • Skrásetja mál sem eru til meðferðar hjá ASHB og meðferð þeirra í samræmi við ákvæði upplýsingalaga nr.  140/2012 og laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014.
  • Varðveita skjöl og gögn í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

3. Hvaðan fær ASHB persónuupplýsingar um þig?

ASHB safnar fyrst og fremst persónuupplýsingum um þig frá þér sjálfum. Þú lætur í ákveðnum tilvikum jafnframt af hendi persónuupplýsingar með óbeinum hætti, s.s. ef þú gengur inn á svæði félagsins sem vöktuð eru með öryggismyndavélum eða heimsækir/notar vefsvæði ASHB eða KLAPPIÐ þar sem vefkökur kunna að vera notaðar og aðgerðarskráning fer fram, eða þegar þú notar þráðlaust net á um borð í strætisvögnum.

Neitir þú að afhenda ASHB persónuupplýsingar eða andmælir vinnslu þeirra getur það haft áhrif á það hvernig félagið getur veitt þér þjónustu.

Í öðrum tilfellum kunna persónuupplýsingar þínar að berast okkur frá þriðja aðila, s.s. lögaðila sem er í viðskiptum við félagið, samstarfs- og vinnsluaðilum eða opinberum aðilum, s.s. Þjóðskrá Íslands, Tryggingastofnun Ríkisins, skólastofnunum eða fyrirtækjum sem gert hafa samgöngusamning við félagið, þegar fyrrnefndir aðilar hafa heimild til miðlunar slíkra upplýsinga. Áður en persónuupplýsinga er aflað frá þriðja aðila leitast félagið eftir að upplýsa þig um slíkt.

4.  Hvaða heimild höfum við til að vinna með persónuupplýsingar þínar?

Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga þinna fer fram þar sem hún er nauðsynleg til að gera eða efna samning milli þín og ASHB eða fullnægja lagaskyldu í samræmi við 2. og 3. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Janframt vinnur ASHB persónuupplýsingar þínar vegna beitingar opinbers valds eða vegna verks sem er nauðsynlegt vegna almannahagsmuna í samræmi við 5. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.

Þegar við á, óskar ASHB eftir upplýstu samþykki þínu fyrir vinnslu persónuupplýsinga í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Í þeim tilvikum getur þú hvenær sem er dregið veitt samþykki til baka og er þá þeirri vinnslu sem samþykkið nær til hætt. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu persónuupplýsinga fram að afturkölluninni.

Í ákveðnum tilvikum er unnið með persónuupplýsingar vegna þess að ASHB, þú sjálf/-ur eða þriðji aðili hefur lögmæta hagsmuni af því að upplýsingar séu unnar. Slík vinnsla fer einungis fram ef hagsmunir ASHB og/eða þriðja aðila af því að vinnslan fari fram vegi þyngra en einkalífshagsmunir þínir að undangengnu sérstöku hagsmunamati þar um. Eftirfarandi vinnsluaðgerðir fara fram á grundvelli lögmætra hagsmuna:

  • Vinnsla til að einfalda samskipti og þjónustu við viðskiptavini, s.s. í gegnum netspjall og önnur viðmót.
  • Vinnsla í þágu eftirlits með réttri greiðslu fargjalda.
  • Vinnsla í þágu innheimtu vanskilakrafna.
  • Vinnsla í þágu þróunar og prófunar á nýjum vörum og þjónustuleiðum
  • Vinnsla í þágu tölfræði-, þjónustu- og markhópagreininga til að bæta þjónustu og styðja við rekstur félagsins.
  • Vinnsla í þágu net- og upplýsingaöryggis.
  • Vinnsla  til að tryggja öryggis- og eignavörslu félagsins, m.a. með  öryggismyndavélum og varðveislu annars konar rafrænna samskipta.
  • Vinnsla í þágu gæðaeftirlits, þjálfunar starfsfólks og rekjanleika samskipta, m.a. með hljóðritun símtala.
  • Varðveisla efnis sem verður til við rafræna vöktun t.d. ef nauðsynlegt er að varðveita efni til að afmarka, setja fram eða verjast lagalegum kröfum fyrir dómi eða annars staðar.
  • Vinnsla í þágu markaðs- og kynningarstarfs, þ.m.t. markhópagreiningar og beinnar markaðssetningar, svo sem rafrænnar upplýsingagjafar um þjónustu, afslætti og önnur sérkjör, nema þar sem samþykki er áskilið samkvæmt lögum.

Almennt vinnur ASHB ekki með viðkvæmar persónuupplýsingar um þá einstaklinga sem þessi persónuverndaryfirlýsing nær til en það er ekki útilokað t.d. ef upplýsingar um slys verða til í tengslum við rafræna vöktun með öryggismyndavélum. Ef ASHB vinnur viðkvæmar persónuupplýsingar í samræmi við framangreint byggir vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga ávallt á skýrri heimild í 11. gr. persónuverndarlaga t.d. afdráttarlausu samþykki, lagaheimild eða vegna laganauðsynja.

5. Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum og af hverju?

Persónuupplýsingar um þig geta verið afhentar til þriðju aðila ef slíkt skylt samkvæmt lögum, s.s. til stjórnvalda, löggæslu- og skattyfirvalda eða dómstóla. Á grundvelli lagaskyldu er ASHB t.a.m. skylt að skila skjölum og gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands á grundvelli laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Að auki kann ASHB að veita þriðju aðilum aðgang að persónuupplýsingum þegar það er nauðsynlegt vegna rekstrar og þjónustu. Þetta á við um aðila sem veita upplýsingatækniþjónustu, annast hýsingu kerfa eða veita aðra þjónustu sem tengist vinnslu persónuupplýsinga og er hluti af starfsemi félagsins. Í vissum tilvikum geta slíkir aðilar talist vera vinnsluaðilar og gerir ASHB þá vinnslusamning við viðkomandi aðila, þar sem trúnaður og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með er tryggt, í samræmi við kröfur persónuverndarlaga.

Persónuupplýsingum kann að vera miðlað til fyrirtækja sem annast greiðslumiðlun, svo sem banka, kortafyrirtækja og annarra greiðsluþjónustuveitenda, eftir því sem nauðsynlegt er vegna framkvæmdar greiðslna og efnda samningssambands við þig eða fyrirtæki sem þú kemur fram fyrir.

Þegar það á við kann ASHB jafnframt að miðla nauðsynlegum persónuupplýsingum til samstarfsaðila, svo sem Tryggingastofnunar ríkisins, skólastofnana eða fyrirtækja sem gert hafa samgöngusamning við félagið, í þeim tilgangi að staðfesta eða veita rétt til afsláttarkjara.

Ef ákvörðun ASHB um fargjaldaálag er kærð kunna nauðsynlegar persónuupplýsingar að vera afhentar Samgöngustofu vegna málsmeðferðar.

Persónuupplýsingum um þig kann að vera miðlað til fyrirtækja sem vinna með ASHB að framfylgni innheimtu. Komi til þessa undirgangast þessir aðilar trúnaðarskyldur vegna þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru.

Framangreindir þriðju aðilar kunna að vera staðsettir utan Íslands. ASHB miðlar þó ekki persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.

Með notkun á samfélagsmiðlasíðum ASHB, s.s. Facebook, safnast tölfræðiupplýsingar um heimsóknir á síðuna sem félagið vinnur ásamt viðkomandi samfélagsmiðlaþjónustu. Í tengslum við þá vinnslu koma aðilar fram sem svokallaðir sameiginlegir ábyrgðaraðilar. Við hvetjum þig því til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.

6. Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?

ASHB varðveitir aðeins persónuupplýsingar eins lengi og þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar, í samræmi við ákvæði laga og varðveislustefnu félagsins. Almennt eru persónuupplýsingar varðveittar á meðan á viðskiptasambandi stendur, eins lengi og lög kveða á um eða lögmætir hagsmunir félagsins krefjast og málefnaleg ástæða gefur tilefni til. Sem dæmi er persónuupplýsingum sem verða til við rafræna vöktun sjálfvirkt eytt að 30 dögum liðnum, nema lög kveði á um annað eða laganauðsyn krefji s.s. til að geta stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur, einkum í dómsmáli.

ASHB hefur afhendingarskyldu á grundvelli laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og eftir atvikum annarra lagaákvæða sem gilda um vistun gagna félagsins. Það þýðir að ASHB er óheimilt að ónýta eða farga nokkru skjali sem fellur undir gildissvið laganna, nema með lagaheimild eða sérstakri heimild þjóðskjalavarðar. Almennt er gögnum og skjölum skilað til Þjóðskjalasafns að 30 árum liðnum frá tilurð þeirra.

7. Öryggi persónuupplýsinga þinna

ASHB leggur ríka áherslu á að tryggja öryggi persónuupplýsinga og hefur innleitt skipulagslegar og tæknilegar öryggisráðstöfunum í þeim tilgangi. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru aðgangsstýringar og aðgerðarskráning í upplýsingakerfum og hugbúnaði, notkun eldveggja, örugg innskráning svo dæmi séu tekin auk þess sem starfsfólk fær reglulega þjálfun og fræðslu um persónuvernd og upplýsingaöryggi. Þessum ráðstöfunum er ætlað að koma í veg fyrir mannleg mistök, þjófnað og svik og vernda öll gögn gegn óleyfilegum aðgangi, glötun, eyðileggingu, breytingum fyrir slysni og ólögmætri notkun.  

ASHB leggur áherslu á að takmarka skuli aðgang að persónuupplýsingum við þá starfsmenn sem nauðsynlega þurfa slíkan aðgang starfa sinna vegna. Starfsfólk ASHB er jafnframt skylt til að gæta  trúnaðar og tryggja öryggi persónuupplýsinga á meðan og eftir að það lætur af störfum fyrir félagið.  

ASHB hefur skjalfest verklag til að tryggja lögmæta meðferð og öryggi persónuupplýsinga þ.m.t. um skilvirk viðbrögð við öryggisbrestum eða öryggisatvikum sem og tilkynningarskyldu. Í slíkum tilvikum er Persónuvernd, viðeigandi eftirlitsstofnunum og eftir atvikum einstaklingum tilkynnt um öryggisbrest í samræmi við persónuverndarlög. 

8. Hver eru réttindi þín samkvæmt persónuverndarlögum?

Persónuverndarlög veita öllum einstaklingum þ.m.t. viðskiptavinum, og öðrum sem ASHB kann að vinna persónuupplýsingar um, ákveðin réttindi. Þú átt almennt rétt á að:

  • fá staðfestingu á því hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig og ef svo er fá aðgang og afrit af persónuupplýsingum þínum, standi hagsmunir annarra því ekki í vegi, s.s. vegna réttinda annarra sem skulu vega þyngra. Þá áttu jafnframt rétt á ákveðnum lágmarksupplýsingum um tilhögun vinnslu sem m.a. eru veittar í yfirlýsingu þessari.
  • fá persónuupplýsingar þínar fluttar til annars ábyrgðaraðila ef þú hefur afhent ASHB persónuupplýsingar á rafrænu formi og slíkur flutningur er tæknilega mögulegur.  Einungis er um að ræða persónuupplýsingar sem afhentar hafa verið á grundvelli samþykkis þíns eða vegna framkvæmdar samnings og eru unnar með sjálfvirkum hætti.
  • óska eftir því að rangar eða tilteknar persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar ef þær eru rangar eða óáreiðanlegar, eftir því sem lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn heimila.
  • óska eftir að persónuupplýsingum um þig sé eytt í afmörkuðum tilvikum ef skilyrði persónuverndarlaga um eyðingu eiga við, eftir því sem lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn heimila.
  • andmæla vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum ASHB eða fer fram í þágu beinnar markaðssetningar.
  • fara fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna sé takmörkuð tímabundið vegna sérstakra aðstæðna hjá þér.
  • sæta ekki sjálfvirkri ákvarðanatöku nema hún fari fram samkvæmt skilyrðum persónuverndarlaga og þegar hún fer fram átt þú rétt á mannlegri íhlutun og útskýringu á því hvernig sjálfvirk ákvarðanataka er fengin, sbr. nánari umfjöllun í kafla 9.
  • afturkalla samþykki þitt um að ASHB megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.
  • leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi sjáir þú ástæðu til þess.

Réttindi þín eru ekki fortakslaus og lög eða reglugerðir kunna að heimila eða skylda ASHB til að hafna beiðni þinni um að nýta þér umrædd réttindi. Réttur þinn til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna beinnar markaðssetningar er þó ávallt fortakslaus.

Þú hefur einnig rétt á að leita til persónuverndarfulltrúa félagsins og/eða leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd teljir þú ASHB ekki vinna persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndarlög. Netfang persónuverndarfulltrúa er personuvernd@ashb.is. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu stofnunarinnar, www.personuvernd.is.

9. Sjálfvirk ákvarðanataka

Ef til þess kemur að ASHB útbúi persónusnið um þig s.s. til að meta eða spá fyrir um ákveðna þætti er varða hagi þína, hegðun eða þjónustunotkun mun félagið ávallt tryggja að slík vinnsla fari fram samkvæmt ákvæðum persónuverndarlaga. Sjálfvirk ákvarðanataka og eftir atvikum gerð persónusniðs sem hefur bein áhrif á hagsmuni þína fer einungis fram á grundvelli viðeigandi heimilda þ.m.t samþykkis.

10. Markpóstar

ASHB kann að senda út tilkynningar með fréttum af starfseminni á viðskiptavini eða tengiliði viðskiptavina og aðra þá sem sérstaklega hafa skráð sig á tölvupóstlista félagsins. Vinnsla tölvupóstfanga í þeim tilgangi er byggð á lögmætum hagsmunum ASHB af markaðssetningu og því að tryggja viðskiptavinum fyrirmyndar þjónustu.

Ef þú óskar eftir því að vera ekki á tölvupóstlista ASHB getur þú ávallt afskráð þig með því að smella afskráningarhlekk sem fylgir sérhverjum tölvupósti. Þá minnir ASHB jafnframt tengiliði tölvupósta reglulega á rétt þeirra til afskráningar af tölvupóstlistanum.

11. Rafræn vöktun með öryggismyndavélum og hljóðritun símtala

Rafræn vöktun fer fram með öryggismyndavélum á starfsstöðvum ASHB. Vöktunin fer fram í þágu lögmætra hagsmuna félagsins s.s. til að tryggja öryggis- og eignavörslu sem og aðra lögmæta hagsmuni félagsins og/eða hinna skráðu. Þá eru persónuupplýsingar sem safnast við rafræna vöktun einungis notaðar í þágu yfirlýsts tilgangs með söfnun þeirra og ekki afhentar öðrum en löggæsluyfirvöldum vegna lögreglurannsóknar eða öðrum aðilum á grundvelli skýrrar heimildar, t.d. vátryggingafélögum vegna tjónamála.  

Þegar þú hringir í ASHB kann félagið að hljóðrita símtöl og/eða önnur rafræn samskipti eins og upplýst er um í upphafi símtals. Hljóðritun fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins í þeim 
tilgangi að tryggja öryggi og rekjanleika í viðskiptum.

Rafræn vöktun samkvæmt framangreindu fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins í þeim tilgangi að tryggja öryggi, eignavörslu og rekjanleika í viðskiptum.  Efni sem safnast við rafræna vöktun er varðveitt í að hámarki 30 daga, að þeim tíma liðnum er efninu sjálfkrafa eytt nema lög eða málefnalegar ástæður krefji lengri varðveislu, svo sem vegna rannsóknar máls eða meðferðar réttarkröfu.  Strangar aðgangstakmarkanir gilda um aðgang að efni sem safnast við rafræna vöktun öryggismyndavéla og hljóðritun símtala og það er eingöngu skoðað ef laganauðsyn er til staðar t.d. í tilefni af ágreiningi, slysi, innbroti, ef uppi er grunur um refsiverða háttsemi eða í þágu innra eftirlits. Hljóðrituð símtöl geta jafnframt verið nýtt við þjálfun starfsfólks í þeim tilgangi að efla gæði og öryggi þjónustunnar.

Persónuupplýsingar sem verða til við rafræna vöktun má ekki afrita eða afhenda öðrum aðila, nema á grundvelli lagaheimildar, samþykki skráðra aðila eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar hverju sinni. Efni sem safnast með rafrænni vöktun er því almennt ekki afhent öðrum en lögreglu og þá einungis ef um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða. Þá kann efni jafnframt að vera miðlað í þeim tilgangi að ASHB geti stofnað, haft uppi eða varið réttarkröfur. Í þeim tilvikum sem unnið er með mynd- eða hljóðupptökur í þeim tilgangi, er eins og nauðsyn krefur, heimilt að veita stjórnendum, lögmönnum og vátryggingafélagi ASHB og gagnaðila, auk dómstóla, aðgang að efninu.

12. Frekari upplýsingar

Ef þú vilt frá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að persónuupplýsingum þínum þá bendum við þér að hafa samband við persónuverndarfulltrúa ASHB, í gegnum netfangið personuvernd@ashb.is.

13. Endurskoðun og uppfærslur

ASHB áskilur sér rétt til að endurskoða persónuverndaryfirlýsingu þessa reglulega og uppfæra eftir þörfum. Ef um efnislega uppfærslu er að ræða mun þér verða tilkynnt um slíkt áður en uppfærð yfirlýsing tekur gildi. Minni háttar breytingar s.s. orðalagsbreytingar taka gildi við birtingu.

Yfirlýsing þessi var síðast uppfærð þann 10. september 2026.