Óskilamunir sem finnast í vögnum Strætó má nálgast í móttöku Strætó, Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík:
- Mánudaga–fimmtudaga kl. 09:00–16:00
- Föstudaga kl. 09:00–14:00
Hafa þarf skilríki meðferðis við afhendingu.
Óskilamunir eru geymdir í 1 mánuð. Að þeim tíma loknum er fatnaður gefinn til Rauða krossins en öðrum munum fargað á viðeigandi hátt. Matvæli eru að jafnaði geymd í 2 daga.
Strætó ber ekki ábyrgð á óskilamunum. Munir eru alfarið á ábyrgð eiganda.