Fara beint í efnið
Leiðbeiningar

Leiðbeiningar fyrir nema

Nemar fá 50% afslátt af tímabilskortum á höfuðborgarsvæðinu.

Til að fá nemaafslátt þarf að auðkenna sig í appinu en fyrst þarf að gefa Strætó leyfi til að fá upplýsingar um að viðkomandi sé nemandi.

Til að gefa leyfi:

1. Skráðu þig inn á vefsvæðið þitt hjá skólanum.

  • Uglan hjá Háskóla Íslands, Bifröst, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands.
  • Canvas hjá Háskólanum í Reykjavík
  • Inna hjá framhaldskólum.

2. Veldu „Stillingar“.

  • „Portal“ á vefsvæði HR.

3. Gefðu leyfi. 

  • Gefðu Strætó leyfi til að fá staðfestingu á virku námi þínu.

Til að kaupa fargjöld á nemaafslætti:

  1. Skráðu þig inn í appið.
  2. Veldu „Kaupa“ neðst á skjánum og veldu svo „Tímabil“ og ýttu á „Veldu miða“.
  3. Smelltu á "Uppfæra afslætti" eða "Uppfæra" og auðkenndu þig.
  4. Nú á að koma fram að þú eigir rétt á afslætti og þú getur valið um 30 daga miða eða árskort.



Leiðbeiningar fyrir öryrkja

Öryrkjar fá 70% afslátt af almennum fargjöldum á höfuðborgarsvæðinu.

Til að fá öryrkjafslátt þarf að auðkenna sig í appinu en fyrst þarf að gefa Strætó leyfi til að fá upplýsingar um að viðkomandi eigi rétt á afslætti.

Til að gefa leyfi:

  1. Fara á tr.is. Skráðu þig inn á „Mínar síður“.
  2. Veldu „Þú hjá TR“ og „Þínar upplýsingar“
  3. Hakaðu við „Ég veiti Tryggingastofnun leyfi til að gefa Strætó upplýsingar um stöðu mína.“ Þú hakar við með því að ýta á kassann fyrir framan. Einungis þarf að gera þetta einu sinni.

Til að kaupa fargjöld á afslætti:

1. Skráðu þig á „Mínar síður“

  • Ef þú ert með aðgang skaltu skrá þig inn.
  • Ef þú ert ekki með aðgang þarft þú að ýta á „Nýskrá“. Þá býrðu til nýjan aðgang með símanúmerinu þínu eða netfanginu þínu.
  • Ef þú átt Klapp kort, skráðu númerið sem stendur á kortinu og veldu nafn á kortið. Þú getur keypt Klapp kort á sölustöðum Strætó eða í vefverslun Strætó.

2. Veldu „Kaupa“.

3. Nú skaltu ýta á takkann „Tengjast með rafrænum skilríkjum“.

4. Þú þarft að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum. Það er til að Strætó geti sótt upplýsingar um að þú sért öryrki og megir fá afslátt.

  • Núna eiga strætó fargjöld með 70% öryrkja-afslætti að bætast við hjá þér þegar þú kaupir miða.

5. Veldu „Stakir miðar“til að kaupa staka miða.

  • Veldu „Tímabil“ til að kaupa mánaðarkort eða árskort.
  • Veldu „Bæta í körfu“ til að kaupa kortið eða miða.
  • Passaðu vel að það standi Öryrkjar og TR í glugganum.
    Ef það stendur eitthvað annað í glugganum þá skaltu ýta á „Breyta“ og velja öryrkjafargjald

7. Veldu innkaupakörfuna uppi í hægra horninu til að borga fyrir miðana eða kortið.

8. Nú þarftu að bæta við greiðslukorti og borga.

Eftir nokkra klukkutíma þá dettur afslátturinn út. Þá þarft þú að ýta aftur á „Tengjast með rafrænum skilríkjum“ og þá kemur öryrkja-afslátturinn aftur inn. 



  • Allir sem þurfa aðstoð geta komið í móttöku Strætó, Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. Það er til dæmis ef fólk er ekki með rafræn skilríki.
  • Ef fólk er ekki með rafræn skilríki þá þarf það að hringja í Tryggingastofnun og fá þá til að haka við Ég veiti Tryggingastofnun leyfi til að gefa Strætó upplýsingar um stöðu mína fyrir sig áður en það kemur í Hafnarstræti.
  • Síminn hjá TR er 560 4400 og hann er opinn frá kl. 11-15.
  • Eftir að fólk er búið að tala við Tryggingastofnun þá getur það komið í Hafnarstræti, nauðsynlegt er að hafa skilríki með mynd og kennitölu með sér þegar það kemur.
  • Það er opið á skrifstofunni hjá Strætó virka daga milli klukkan 9 til 16 mánudaga til fimmtudag og milli klukkan 9 til 14 föstudaga.
  • Það er líka hægt að hringja í þjónustuver í síma 540-2710 eða senda tölvupóst á straeto@straeto.is