Gæludýr eru heimil í vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu undir ákveðnum skilyrðum. Ekki er heimilt að ferðast með gæludýr í landsbyggðarvögnum.
Sérþjálfaðir og sérmerktir leiðsöguhundar eru undanþegnir öllum reglum um gæludýr í Strætó.
Óheimilt er að ferðast með gæludýr í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu á annatíma sem telst
vera á virkum dögum, á milli kl. 07:00-09:00 og frá kl. 15:00-18:00.
Farþegi sem ferðast með gæludýr skal hafa náð 18 ára aldri og ber hann ábyrgð á dýrinu sem hann ferðast með.
Hvernig gæludýr mega koma í Strætó?
Það má ferðast með öll gæludýr sem eru leyfð á Íslandi, eins og:
- Hunda
- Ketti
- Hamstra og naggrísi
- Fugla
- Kanínur
- Fiska
- Skriðdýr
- Skordýr
Hver farþegi má einungis vera með eitt dýr í einu.
- Dýr, að hundum undanskildum, þurfa að vera í lokuðu búri eða tösku þannig að þau sleppi ekki út.
- Hundar verða að vera í ól eða beisli og stuttum taumi.
Að ferðast um með gæludýr og greiða fargjald
Sá sem ferðast með dýr kemur í framdyrnar til að greiða fargjald og fer síðan með gæludýrið inn um aftari/miðdyr vagnsins. Gæludýr skulu vera í aftari hluta vagnsins.
Þetta er gert til að hafa skilgreint gæludýrasvæði í vagninum og þá geta þeir sem eru með ofnæmi eða eru smeykir við ákveðin gæludýr valið að sitja í fremri hluta vagnsins þar sem dýr mega ekki ganga um.
Farþegi sem ferðast með gæludýr skal tilkynna vagnstjóra um gæludýrið um leið og fargjald er greitt.
Ekki er greitt fargjald fyrir gæludýrið.