Fara beint í efnið
Fargjaldaálag

ASHB er heimilt að leggja fargjaldaálag á farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit skv. lögum nr. 28/2017 og reglum nr. 675/2026.

Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.

Álagið er greitt á staðnum eða innheimt í heimabanka innan 15 daga frá því að það var sett á.

Álagið er m.a. ætlað til að minnka svindl um borð í vögnum og að fólk ferðist um miðalaust eða á röngu fargjaldi og greiði þ.a.l. ekki til almenningssamgangna.

Fargjaldaálaginu er þannig ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í almenningssamgöngum. Með því að tryggja að allir farþegar greiði rétt fargjald er hægt að viðhalda góðri þjónustu og koma í veg fyrir að aukakostnaður vegna svindls bitni á öðrum farþegum.



Hvað er fargjaldaálagið hátt?

Almennt

18000 krónur

Ungmenni

9000 krónur

Aldraðir

9000 krónur

Öryrkjar

5400 krónur

Athugið að auk fargjaldaálagsins þurfa farþegar einnig að greiða rétt fargjald um borð í vagninum fyrir yfirstandandi ferð ef halda á ferð áfram.



Dæmi um ástæður þess að fargjaldaálagið getur verið lagt á farþega eru:

  • Notandi notar ekki rétt fargjald, til dæmis:
    • Fullorðinn einstaklingur ferðast um á ungmenna- og/eða aldraðafargjaldi.
    • Notandi ferðast um á afsláttarmiða sem er tengdur kennitölu hjá öðrum notanda (öryrkjafargjald, nemafargjald, starfsmannafargjald).
    • Nemi sem á rétt á nemafargjaldi ferðast um á ungmennafargjaldi.
  • Notandi ferðast um án miða.
  • Notandi ferðast um án þess að virkja farmiðann sinn.


Hvernig fer eftirlit Strætó/ASHB fram?

Eftirlitsfulltrúar Strætó hafa um árabil verið hluti af daglegri starfsemi Strætó og sinnt eftirliti. Eftirlitið fer fram með þeim hætti að eftirlitsfulltrúar ganga um vagninn, kynna sig fyrir farþegum og óska eftir staðfestingu á greiddu fargjaldi. Eftirlitsfulltrúarnir leggja fargjaldaálag á þá farþega sem geta ekki sýnt fram á rétt fargjald við eftirlit.


Hvernig borga ég fargjaldaálag sem lagt var á mig?

Hægt er að greiða gjaldið á staðnum. Sé það ekki gert berst krafa í heimabankann og hægt er að ganga frá greiðslu þar. Þeir einstaklingar sem eru ekki með íslenska kennitölu greiða á staðnum.

Fargjaldaálag skal greiða innan 15 daga frá því að það var sett á.

Hægt er að mótmæla álagningu fargjaldaálagsins innan 3ja mánaða frá því að gjaldið var lagt á með því að senda tölvupóst á alag@straeto.is

Fyrir frekari upplýsingar um fargjaldaálag er hægt að hafa samband við alag@straeto.is