Fara beint í efnið

Aðgengi fatlaðs fólks

Aðgengi fatlaðs fólks

Aðgengi fyrir hjólastóla

Höfuðborgarsvæðið:

Aðgengi er fyrir hjólastóla í öllum vögnum á höfuðborgarsvæðinu.

  • Vagnstjórum ber að aðstoða með að setja niður rampinn. Viðkomandi þarf hins vegar að vera sjálfbær með að komast inn og út úr vagninum og að festa sig í öryggisbeltið.
  • Tryggja þarf að bak hjólastólsins snúi ávallt í akstursátt.
  • Það kemst aðeins einn hjólastóll með í hvern vagn.
  • Hjólastólar hafa forgang fram yfir reiðhjól í vagninum.

Landsbyggðin:

Ekki er aðgengi fyrir hjólastóla í landsbyggðarvögnum eins og er.



Blindir og sjónskertir

Blindir og sjónskertir ferðast ókeypis með Strætó innan höfuðborgarsvæðisins og á landsbyggðinni.

Höfuðborgarsvæðið: 

Hvíti stafurinn, leiðsöguhundur eða félagsskírteini Blindrafélagsins staðfesta rétt viðkomandi á ókeypis fargjaldi.

NaviLens kóðar eru staðsettir á öllum biðstöðum á leiðum 13 og 14. Með þeim geta blindir og sjónskertir fengið upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó án aðstoðar. Á næstu misserum verða kóðarnir settir upp á fleiri leiðum.

Landsbyggðin: 

Framvísa verður félagsskírteini Blindrafélagsins til staðfestingar á ókeypis fargjaldi.

Ferðist viðkomandi með viðurkenndum leiðsöguhundi verður einnig að framvísa leyfiskorti hundsins.

Leiðsöguhundarnar mega vera hvar sem er í farþegarými vagnanna.