Fara beint í efnið

Þjónustutímar

Þjónustutímar

Móttaka Strætó

Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík

Opnunartímar


Mánudaga - fimmtudaga

9:00 -16:00

Föstudaga

9:00 - 14:00

Laugardaga

Lokað

Sunnudaga

Lokað

Þjónustuver Strætó

Sími: 540 2700

Opnunartímar


Mánudaga - föstudaga

7:00 - 17:00

Laugardaga

10:00 -14:00

Sunnudaga

10:00 - 14:00

Neyðarnúmer: Ef erindið er brýnt er ávallt hægt að fá samband við stjórnstöð Strætó utan þjónustutíma í síma 540 2700. Símsvarinn gefur þann möguleika að velja tölustaf (einn) til að fá samband við stjórnstöð.



Akstur vagna

Á virkum dögum hefja flestar leiðir á höfuðborgasvæðinu akstur í kringum 06:30 – 07:00 á morgnana.

Athugið að ekki byrja allar fyrstu ferðir dagsins á upphafsstöð og farþegar hvattir til að skoða tímatöflu vel.

Akstur hefst á morgnana


Virkir dagar

6:30 - 7:00

Laugardagar

7:30 - 8:00

Sunnudagar

9:30 - 10:00

Um helmingur leiða hættir akstri í kringum miðnætti og hinn helmingurinn hættir akstri fyrr á kvöldin og/eða eru ekki með þjónustu um helgar.

Í flestum tilvikum ljúka vagnar akstri á endastöðvum á kvöldin. Athugið að í nokkrum tilvikum ljúka vagnar ferð sinni á millistöð og er þess sérstaklega getið í tímatöflum yfir síðustu ferðir á hverri leið.



Næturstrætó um helgar

Fimm næturleiðir aka frá miðbæ Reykjavíkur á föstudögum og laugardögum eftir miðnætti.

Ein leið ekur í Hafnarfjörð með viðkomu í Kópavogi og Garðabæ. Þrjár enda í úthverfum Reykjavíkur, þ.e. Breiðholti, Úlfarsárdal og Norðlingaholti. Ein leið endar í Mosfellsbæ og hefur viðkomu í Grafarvogi.