Á föstudögum og laugardögum eftir miðnætti aka fimm leiðir frá miðbæ Reykjavíkur og inn í hverfi höfuðborgarsvæðins.
Hver leið fer þrjár ferðir eftir miðnætti.
Þrír brottfarartímar eru á hverri leið úr miðbænum en vagnarnir aka síðan sem leið liggur út í hverfin án þess að fylgja tímatöflu. Farþegar sem ætla að koma um borð á miðri leið er bent á að fylgjast með komu vagna á rauntímakorti.
Aðeins er hægt að taka næturstrætó á leið úr miðbænum en ekki til baka í átt að miðbænum.
Akstursleiðir
- Stakt fargjald í næturstrætó er 690 krónur – Afsláttarfargjöld gilda ekki
- Hægt er að greiða snertilaust með greiðslukorti/síma í næturstrætó
- Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi
- Handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó