Fara beint í efnið
Til og frá KEF

Leið 55 ekur daglega á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.

Leið 55 er hluti af leiðakerfi landsbyggðarstrætó sem er í eigu og rekstri Vegagerðarinnar en Strætó sér um ákveða upplýsingagjöf og þjónustu fyrir farþega.


Hvað kostar ferðin?


Fjörður, Hafnarfirði

Garðabær og Reykjavík

Fullorðnir

1800 krónur

2400 krónur

Ungmenni, 12 -17 ára

900 krónur

1200 krónur

Eldri borgarar, 67 ára og eldri

900 krónur

1200 krónur

Öryrkjar

900 krónur

1200 krónur

Börn, 11 ára og yngri

Frítt

Frítt

Athugið að ekki allar ferðir aka til og frá BSÍ. Um helgar og á völdum ferðum á virkum dögum er einungis ekið til og frá Firði í Hafnarfirði.

Leiðir til þess að borga fyrir ferð

  • Greiðslukort
  • Reiðufé
  • Landsbyggðarkort

Ekki er hægt að panta ferð fyrir fram. Það er nóg að mæta á staðinn og borga um borð í vagninum.

Farangur

Landsbyggðarvagnar eru allir með farangurslestir og því geta viðskiptavinir tekið farangur með sér.  Miðað er við að viðskiptavinur geti borið farangurinn einn síns liðs.

Hægt er að taka með sér reiðhjól á ákveðnum tímum. Tímarnir koma fram í tímatöflunni.

Staðsetning biðstöðvar

Farþegar sem taka landsbyggðarvagn frá höfuðborgarsvæðinu til Leifsstöðvar er hleypt út við inngang flugstöðvarinnar. Skoða stoppistöð hér.

Komufarþegar sem ætla að fara frá Leifsstöð til höfuðborgarsvæðisins nota biðstöð Strætó við ytra rútustæðið, en hún er komumegin við flugstöðina. Skoða stoppistöð hér.