Ekið er frá Mjódd um Ártún og eftir Vesturlandsvegi upp í Mosfellsbæ, þaðan út á Kjalarnes og gegnum Hvalfjarðargöng í Hvalfjarðarsveit. Síðan liggur leiðin um Borgarnes og Bifröst, norður yfir Holtavörðuheiði að Staðarskála og áfram um Víðigerði og Blönduós til Sauðárkróks. Frá Varmahlíð er ekið yfir Öxnadalsheiði og endað við Hof á Akureyri.
21:35