Leiðin hefst við Gömlu Hringbraut, nema á kvöldin og um helgar þegar akstur hefst við HR. Þá er ekið frá HR um Öskjuhlíð að Gömlu Hringbraut, þar sem hefðbundin akstursleið tekur við.
Frá Gömlu Hringbraut er ekið fram hjá Sjúkrahótelinu að Sundhöll Reykjavíkur áður en beygt er inn á Snorrabraut. Þaðan beygir hún inn í Borgartún, um Katrínartún og upp á Laugaveg. Áfram er ekið eftir Suðurlandsbraut að Mörkinni, þar til beygt er inn á Miklubraut og ekið áfram eftir Vesturlandsvegi með viðkomu í Ártúni. Þaðan er ekið inn í Árbæ, um Rofabæ og Selásbraut þar til loks er ekinn hringur um Norðlingaholt.