Ekið er frá Háskóla Íslands um Sóleyjargötu og Lækjargötu að Lækjartorgi og þaðan upp Hverfisgötu að Snorrabraut. Þaðan beygir hún inn í Borgartún, um Katrínartún og upp á Laugaveg. Áfram er ekið eftir Suðurlandsbraut, inn á Grensásveg og áleiðis um smáíbúðahverfið við Bústaðaveg. Þá næst er ekið fram hjá Borgarspítalanum beygt inn Háaleitisbraut fram hjá RÚV og Verzló. Þaðan er ekið yfir Fossvog í Hamraborg, upp Kópavogsdal um Smára, Lindir, Sali, Kóra og Hvörf og að lokum um niður Breiðholtsbraut, um Seljahverfi og endar í Mjódd.