Nokkrar leiðir á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni eru í pöntunarþjónustu.
Pöntunarþjónusta virkar þannig að viðskiptavinir panta ferðina símleiðis áður en lagt er af stað út á stoppistöð.
Hægt er að greiða fyrir ferðir pöntunarþjónustu með því að sýna bílstjóra Klapp kort eða lyklakippu með gildum farmiða, Klapp tíu, virkjað fargjald í Klapp appi eða annan gildan farmiða.
Höfuðborgarsvæðið
Pöntunarþjónusta allan daginn
Til að panta ferð á höfuðborgarsvæðinu þarf að hringja í Hreyfil í síma 588 5522, minnst 30 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.
Pöntunarþjónusta að hluta
Landsbyggðin
Pöntunarþjónusta allan daginn
Til að panta ferð með leið 84 þarf að hringja í þjónustuver Strætó í síma 540 2700, minnst 2 klukkustundum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.
Pöntunarþjónusta að hluta
Til að panta ferð með leið 92 þarf að hringja í ÍS - Travel Austurland í síma 892 0955 eða senda tölvupóst á ivar@is-travel.is, minnst 6 klukkustundum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.
Reykjanesbær
Pöntunarþjónusta að hluta
Til að panta ferð með leið R4 þarf að hringja í A-stöðina í síma 420 1212, minnst 20 mínútum fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.