Fara beint í efnið

Greiðsluþak

Greiðsluþak

Kapp er greiðsluþak sem tryggir að þú borgir aldrei fyrir meira en 3 ferðir á dag eða 9 ferðir á viku með Strætó á höfuðborgarsvæðinu þegar greitt er með stökum fullorðinsfargjöldum.

Það þarf ekki að virkja greiðsluþakið sérstaklega heldur virkjast það sjálfkrafa þegar sama greiðslukort, kort á snjalltæki, Klapp kort, lyklakippa eða app er notað í hverri ferð. Ekki er hægt að færa miða á milli greiðslumáta til að safna upp í greiðsluþakið. 

Greiðsluþakið heldur einungis utan um stök fargjöld fullorðinna, ekki afsláttarfargjöld né hópmiða.  

Dagkapp


Þegar þú hefur virkjað 3 staka fullorðinsmiða á sama deginum, þá ferðast þú frítt út daginn.  

Í appinu birtist frímiði sem má nota út daginn, en þegar greitt er með greiðslukorti, snjalltæki, Klapp korti eða lyklakippu heldur farþegi áfram að skanna um borð líkt og venjulega en ekkert fargjald er dregið af. 

Dagkappið heldur utan um ferðir sem farnar eru á einum degi, frá því akstur vagna hefst að morgni til þar til síðustu ferðir ljúka akstri að kvöldi dags. 

Vikukapp


Þegar þú hefur virkjað 9 staka fullorðinsmiða innan einnar viku, þá ferðast þú frítt út vikuna. 

Í appinu birtist frímiði sem má nota út vikuna, en þegar greitt er með greiðslukorti, snjalltæki, Klapp korti eða lyklakippur heldur farþegi áfram að skanna um borð líkt og venjulega en ekkert fargjald er dregið af. 

Ekki skiptir máli hvaða dag vikunnar ferðin er tekin heldur telur greiðsluþakið daginn í dag og 6 daga aftur í tímann. Hægt er að sjá hvenær vikan byrjar að telja inni á Mínum síðum. 

Dæmi: Þú virkjar 3 miða á fimmtudegi, 2 á föstudegi, 2 á laugardegi og 2 á sunnudegi, þá færðu frímiða sem gildir út miðvikudaginn. Greiðsluþakið byrjar þá að telja nýja viku á fimmtudeginum næsta.