
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka gamla Strætó appinu þann 1. júlí næstkomandi. Öll virkni sem viðkemur leiðarkerfi eða miðum fyrir höfuðborgarsvæðið er nú komin í Klappið auk annarra nýjunga. Flestir hafa nú þegar fært sig yfir í nýtt app enda fleiri möguleikar í því.
Aðeins ein virkni stendur út af en ekki er hægt að versla landsbyggðarmiða í Klappinu. Áfram verður hægt að borga með reiðufé og fá til baka eða greiða með greiðslukorti um borð í vögnunum og eru langflestir sem versla miða með þeim hætti. Sala miða í appinu var að meðaltali aðeins 3% allra seldra fargjalda á landsbyggðinni. Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó og er nú með til skoðunar að bæta við fleiri greiðslumöguleikum fyrir viðskiptavini á landsbyggðinni. Hægt er að sjá öll verð fyrir landsbyggðina í „Skipuleggja ferð“ í Klappinu og á straeto.is
Í Klappinu og á straeto.is er m.a. hægt að skipuleggja ferðir, sjá vagna í rauntíma (Hvar er Strætó?) og sjá verð bæði fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina.
Viðskiptavinir sem eiga miða í gamla Strætó appinu
Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina.
Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára.
Þeir sem eiga enn miða í gamla Strætó appinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir.
Hvernig sé ég verð fyrir landsbyggðina?
Nú er hægt að sjá öll verð í „Skipuleggja ferð“ á straeto.is og í Klappinu. Eftir að upphafs- og áfangastaður er valinn, er hægt að sjá verð undir hverri ferð.
Einnig er hægt að sjá verðskrá fyrir landsbyggðina hér.

Hvað verður um miðana mína?
Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina.
Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára.
Þeir sem eiga enn miða í gamla Strætó appinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir.
Ég gleymdi að ég ætti miða og nú er búið að loka appinu!
Starfsfólk Strætó getur aðstoðað við að færa miðana í Klappið eða endurgreiða þá. Hægt er að hafa samband við Strætó með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is með upplýsingum um símanúmer og eins ef um er að ræða miða á landsbyggðinni, í hvaða landshluta miðinn gildir.
Hægt er að flytja miða fyrir höfuðborgarsvæðið séu þeir ekki eldri en 4 ára í Klappið að beiðni viðskiptavina.
Hægt er að óska eftir endurgreiðslu á miðum fyrir landsbyggðina séu þeir ekki eldri en 4 ára.
Hvar er Strætó?
Veldu þá vagna sem þú vilt sjá í rauntíma á kortinu.



