
Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Með þessari breytingu verður mikilvægt skref stigið í átt að betri og aðgengilegri almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18% í rúmlega 50%.
Markmiðið með breytingunum er að bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni og auka þannig notkun almenningssamgangna.
Þjónustuaukningin er liður í Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó, auk þess að vera undirbúningur fyrir Nýtt leiðanet sem tekur gildi árið 2031. Nú þegar styttist í breytingarnar er mikilvægt að notendur kynni sér þær vel.
Við stórbætum þjónustuna
- Aukin þjónusta í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu
- Lengri þjónustutími á kvöldin
- Styttri ferðatími frá Kópavogi og Breiðholti með nýrri forgangsakrein
- Lengri þjónustutími á Kjalarnesi og stóraukin tíðni
Búið er að uppfæra leiðavísinn og því geta notendur fundið bestu leiðina fyrir sig í Skipuleggja ferð með því að velja dagsetninguna 17. ágúst eða síðar þegar þjónustuaukningin hefst.
Helstu breytingar
- Aukin tíðni á annatíma:
Leiðir
3
,
5
,
6
og
12
úr 15 mín. í 10 mín.
Leiðir
19
,
21
og
24
úr 30 mín. í 15 mín. - Milli annatíma á virkum dögum:
Leiðir
3
,
5
,
12
og
15
úr 30 mín. í 15 mín. - Lengri þjónustutími á kvöldin á leiðum:
Leiðir
1
,
2
,
3
,
4
,
5
,
6
,
7
,
11
,
12
,
15
,
18
,
19
og
21 - Vegna aukinnar tíðni munu vagnar ekki bíða eftir hver öðrum á annatíma í Ártúni
- Vegna aukinnar tíðni verða einnig leiðir 12 og 3 ekki í tengingum við aðrar leiðir í Mjódd á annatíma
Allar breytingar
Leið | Breyting frá og með 17. ágúst | Ný tímatafla |
|---|---|---|
1 |
| |
2 |
| |
3 |
| |
4 |
|

5
- 10 mín tíðni á annatíma
- 15 mín tíðni utan annatíma
- Tímatafla lagfærð
- Lengri þjónustutími á kvöldin
6
- 10 mín tíðni á annatíma
- Lengri þjónustutími á kvöldin
7
- Lengri þjónustutími á kvöldin
11
- Lengri þjónustutími á kvöldin
12
- 10 mín tíðni á annatíma
- 15 mín tíðni utan annatíma
- Lengri þjónustutími á kvöldi
15
- 15 mín tíðni milli annatíma virka daga
- Lengri þjónustutími á kvöldin
18
- Lengri þjónustutími á kvöldin
19
- 15 mín tíðni á annatíma
- Lengri þjónustutími á kvöldin
21
- 15 mín tíðni á annatíma
- Lengri þjónustutími á kvöldin
22
- Verður ekki lengur í pöntunarþjónustu á kvöldin og um helgar heldur ekur skv. tímatöflu.
- 30 mín tíðni virka daga og um helgar
- Síðasta ferð á leið 22 verður kl. 22:14
23
- Verður ekki lengur í pöntunarþjónustu á kvöldin og um helgar heldur ekur skv. tímatöflu.
- 30 mín tíðni virka daga og um helgar
- Síðasta ferð á leið 23 verður kl. 22:17
24
- 15 mín tíðni á annatíma
- Hjáleið um Dvergshöfða hættir þar sem framkvæmdum er lokið og leiðin ekur aftur um Stórhöfða.
25
- Leiðinni verður skipti í tvo leggi:
Spöngin – Gufunes
Gufunes – Spöngin - Þetta er gert til að tímasetja ferðir betur við aðrar ferðir til og frá Spönginni.
29
- Tíðni verður stóraukin
- Lengri þjónustutími á kvöldin


