
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 16. júlí næstkomandi. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt en tímabilskort hækka því sem nemur 3,45%. Sama hækkun á við tímabilskort versluð með afsláttarkjörum.
30 daga kort fullorðinna hækkar því úr 11600 krónur í 12000 krónur og árskort fullorðinna úr 116000 krónur í 120000 krónur
Stakt fargjald verður áfram 690 krónur og verð á Klapp plastkortum og lyklakippum helst sömuleiðis óbreytt eða 1000 krónur
Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu er í samræmi við gjaldskrárstefnu um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu. Gjaldskrá Strætó ber að endurskoða tvisvar á ári en síðast var gjaldskráin hækkuð 6. janúar 2026.
Gjaldskrárbreytingarnar ná einungis til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Ný gjaldskrá tekur gildi fimmtudaginn 16. júlí 2026.
Gjaldskrá Strætó frá og með 16. júlí 2026
Stök fargjöld
Verð | |
|---|---|
Snertilausar greiðslur | 690 krónur |
Fullorðnir | 690 krónur |
Ungmenni, 12- 17 ára | 345 krónur |
Aldraðir, 67 ára og eldri | 345 krónur |
Öryrkjar | 207 krónur* |
Börn, 11 ára og yngri | 0 krónur |
Næturstrætó - eitt fargjald | 690 krónur |
*Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu.
Tímabilskort
30 daga | 12 mánaða | |
|---|---|---|
Fullorðnir | 12000 krónur | 120000 krónur |
Ungmenni, 12- 17 ára | 6000 krónur | 60000 krónur |
Aldraðir, 67 ára og eldri | 6000 krónur | 60000 krónur |
Nemar, 18 ára og eldri* | 6000 krónur | 60000 krónur |
Öryrkjar* | 3600 krónur | 36000 krónur |
*Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu.
Áfyllanleg Klapp kort og lyklakippur
Klapp kort | 1000 krónur |
Klapp lyklakippa | 1000 krónur |


