Auglýsingar
Strætisvagnar
Strætó býður upp á einstakan miðil til birtingar á auglýsingaefni sem fer ekki fram hjá neinum, líkt og mælingar sýna fram á. Uppsöfnuð dekkun er óviðjafnanleg og tíðnin há þvert á aldurshópa.
Birtingartíminn er einn mánuður þar sem vagninn ekur ólíkar leiðir á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem auglýst vörumerki situr eitt að plássinu. Þannig fá skilaboðin óskipta athygli í umferðinni.
Vagnarnir eru útbúnir með sérprentuðum filmum sem límdir eru á vagnana og því geta allir regnbogans litir eða hreinlega hvaða myndefni sem er prýtt vagninn.
Hægt er að velja á milli heilmerkingar, hálfmerkingar eða merkingu á afturenda.
Möguleikarnir til að gera eitthvað skemmtilegt og skapandi, eitthvað sem vekur eftirtekt eru óteljandi!

Strætóskýli

Billboard/Buzz selur auglýsingar á 250 LED skjám í biðskýlum strætisvagna og auglýsingastöndum í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði og Garðabæ.
Til þess að fá tilboð í auglýsingar í strætóskýlum þá skaltu senda fyrirspurn á Billboard í síma 5461414 eða í gegnum netfangið birtingar@billboard.is.
Handföng
Hægt er að kaupa auglýsingar á handföng sem eru til staðar inni
í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu.
Stærðin fyrir myndir í handföngum eru 15,9 cm x 9,9 cm

Sniðmát og leiðbeiningar
[VANTAR]