Akstur Strætó verður með breyttu sniði í kringum Smáralind vegna tónleika Laufeyjar sem haldnir verða í Kórnum um helgina.
Vegna sætaferða tónleikagesta frá Smáralind fyrir tónleika verður biðstöðinni Smáralind lokað að sunnanverðu (Smáralindar megin) í almenna leiðakerfinu.
Nánari upplýsingar um fríar sætaferðir með strætó fyrir tónleikagesti ásamt aðgengi gesta að Kórnum má finna á síðu Senu.
Áhrif á leiðakerfið
Stoppistöð Smáralind að sunnanverðu (Smáralindar megin) verður lokuð laugardag og sunnudag frá kl.17:30-20:00 fyrir leiðir 2, 21, 24, 28 í austurátt.
Í staðinn geta farþegar nýtt sér þessar biðstöðvar í staðinn:
Leið 2
Dalsmára á leið 2
Leið 2 mun aka hjáleið um Arnarnesveg og niður Smárahvammsveg og mun vagninn stoppa á öllum biðstöðvum á hjáleið.
Leið 21
Dalsmára á leið 21
Leið 24
Dalsmára og Smáratorg á leið 24
Leið 28
Smáralind að norðanverðu á leið 28 þar sem farþegar geta enn notað stoppistöðina að norðanverðu
Sætaferðir munu ekki hafa áhrif á akstur eða biðstöðvar eftir tónleikana.
Akstur í Kórahverfinu óbreyttur
Akstur í Kórahverfi verður óbreyttur þrátt fyrir götulokanir, vögnum verður hleypt í gegn um lokanir. Það má þó búast við seinkunum vegna þessa. Akstur á leiðum 2 og 28 helst því óbreyttur og munu leiðirnar stoppa á sínum venjubundnu biðstöðum í hverfinu.